Morgunblaðið - 20.04.1955, Blaðsíða 11
T
Miðvikudagur 20. apríl 1955
MORGUNBLAÐIÐ
II
Brynjólfur ðlsfnon
állræður
ÁTTATÍU ára er í tíag, Brynjólf-
ur Ólafsson, Hveriisgötu 41 í
Hafnarfirði. Hann er Kangæing-
ur að ætt cg uppruna. Fæadur
að Uxahrygg í Oddasóiin sunnan
Þverár, 20. apríl 1875.
Bjuggu þar forexdrar hans,
Ólafur Guðnrundsson og Margrét
Andrésdóttir, var hún systir
merkisbóndans Andrésar í
Hemlu.
Þarna ólst Brynjólfur upp við
sveitastörf og sveitamenningu
þeirra tíma. En jafníramt hiýddi
hann svo að segja daglega á ,,haí-
gang þann.......er voldug reis-
ir Rán á Eyjasandi“.
Kom og brátt að því, að Brynj-
ólfur leitaði til sjávarins; fyrst til
sjóróðra á Stokkseyri og Þorláks-
höfn og síðar á þilskip frá Rvík.
Þar kom að hann festi ráð sitt,
■— sem reyndar aldrei mun hafa
verið reikult — og gekk að eiga
Hér sést eitt atriði úr barnaleikritinu Töfrabrunninum.
Leikfélag Hafnarfjarðar:
T öfrabrunnurinn
Barnaleikrit eftir Willy Kruger
Leikstjóri: Ævar R. Kvaran
Jónínu Jónsdóttur, sem einnig
var Rangæingur. Og þar sem
ekki var laust jarðnæði um þær
mundir í heimahögum, varð sú
raun á að Brynjólfur fluttist til
Reykjavíkur. Hafði þar þó
skamma dvöl, en flutti að Sjón-
arhól á Vatnsieysuströnd, þar sem
áður hafði búið smáskammta-
læknirinn, Lárus Pálsson. Þarna
stundaði svo Brynjóiíur jöfnum
höndum sjó og landbúskap, mun
honum hafa látið það vel. Þarna
bjó hann 16 ár og búnaðist allvel.
Frá Sjónarhól flytur Brynjólf-
ur til Hafnaríjarðar 1925. Hafði
þá um skeið lítið aflast á Strönd-
inni, og fólkið flykkst burt til
nærliggjandi kaupstaða, sem nú
voru í örum vexti. Brátt byggði
Brynjólfur sér hús í Hafnarfirði
í félagi við annan Strandaring.
Það er húsið nr. 41 við Hveríis-
götu, sem hann býr í enn.
Margt er vel um Brynjólf.
Hann er verkmaður ágætur, lag-
inn, vandvirkur og kappsamur,
mega þeir, sem yngri eru að ár-
um gæta sín, að standa honum
ekki að baki til verka, því enn
gengur Brynjólfur til vinnu svo
að segja á hverjum degi. Félagi
er hann góður, áreiðanlegur og
viðræðu góður, en enginn mál-
skrafsmaður. Einn er sá eðlis-
kostur Brynjólfs, að hann er
söngelskur og söngmáður góður
(bassamaður). Hefur hann iðkað
kirkjusöng frá ungum aldri. Fyrst
í Oddakirkju. Hreifst hann þar
af söng frú Sigríðar Helgadóttur
í Odda, en hún hafði söngrödd
mikla og fagra. Þá söng Brynjólf-
ur og í Kálfatjarnarkirkju á með-
an hann bjó á Ströndinni. Og s’ð-
an hann kom til Hafnarfjarðar
hefur hann verið stöðugur félagi
í kirkjukór þjóðkirkjunnar. Hygg
ég að þær séu ekki margar söng-
æfingar kórsins, sem Brynjólf
hefur vantað.
Mundi organleikurum kirkjunn
ar þykja skarð fyrir skildi ef
Brynjólf vantaði til söngs, því
sagt er að hann sé glöggur á
rétta tóna.
Ekki hefur Elli kerlingu orðið
mikið ágengt við Brynjólf enn
sem komið er, þó hún hafi reynt
að hnippa í hann með gigtarstingj
LEIKFÉX.AG Hafnarfjarðar
frumsýndi á annan í páskum
barnaleikritíð „Töfrabrunninn“
eftir WHIy Krager, en hann er)
einnig höfunAír leikritsins „Hans
og Gréta“, sena Leikfélag Hafnar- |
fjarðar sýndi í fyrra við ágæta
aðsókn og mikinn fönguð áhorf- j
enda, yngrí sem eldri. — „Töfra- j
brunnurinn" er ' að meginefni:
byggður á ævintýri Grimms-
bræðra um „Huldu gömlu“, sem
býr einhvers staðar ofar skýjum
og lætur mannheimi í té snjóinn
með því að hrista sængurfötin sín
og launar ríkulega mannlegar
dyggðir, en refsar líka harðlega
þeim, sem eru rangsleitnir og
miskunnarlausir og hugsa ein-
göngu um sinn eigin hag.
Boðskapur leikritsins er þann-
ig hollur ungum og gömlum, en
höfundurinn hefur jafnframt séð
fyrir því að börnin, sem horfa á
leikinn, geti glaðzt og hlegið og
tekið lifandi þátt í þvi, sem fram
fer á sviðinu. Og það gerðu þau
líka óspart á frumsýningunni. —
Þau stóðu sem einn maður með
stjúpdótturinni góðu og fallegu,
en létu eindregið í ljós andúð
sína á móðurinni vondu og dóttur
hennar, sem fékk vissulega mak-
leg málagjöld hjá Huldu gömlu
fyrir illsku sína og heimtu-
frekju.
Sýning þessi er í alla staði
Leikfélagi Hafnarfjarðar til mik-
ils sóma. — Leikstjórinn, Ævar
Kvaran, hefur unnið hér ágætt
verk með leikstjórn og sviðsetn-
ingu, tekizt prýðilega öll tilhög-
un á hinu þrönga sviði svo að
allt að heita má fer fram með
eðlilegum hraða og heildarsvipur
sýningarinnar er furðugóður, þó
að þess að vísu gæti að ekki eru
allir leikendur jafn öruggir. Þá
eru og leiktjöld Lothars Grunds
með miklum ágætum, sannkall-
aður ævintýraheimur, bæði á
jörðu og á hlaðinu hjá Huldu
gömlu. Virðist þessum snjalla
leiktjaldamálara einkar sýnt um
að búa til tjöld við hæfi barna-
leikrita, hafa til þess óvenjulega
hugkvæmni og smekkvísi.
Leikendur fara yfirleitt vel
um og sjóndepru, þá hefur hann
stjakað henni frá sér fram að
v'~ssu Tvíkvæntur er Brynjólfur.
Fyrri konu sína, Jónínu, missti
hann 1934, höfðu þau eignast fjög
ur börn, lifa tvær dætur þeirra.
S ðari kona hans er Guðrún Árna
dóttir, ættuð úr Reykhólasveit,
eiga þau einn son. Heppinn'var
Brynjólfur í konuvali og lánsam-
ur með börn.
Ekki get ég óskað Brynjólíi
annars betra við þessi vegamót,
en þess, að söngur og rósemi búi
í sál hans til hins síðasta.
Þökk fyrir kynnin, Brynjólfur.
Lifðu heill áttræður.
G.
með hlutverk sín og skal þá
fyrst nefna hina geðþekku
leikkonu, Margréti Guðmunds-
dóttur, er leikur Maríu sjúp-
dóttur „móðurinnar“, sem
Hulda Runólfsdóttir leikur. —
Margrét túlkar hlutverk sitt af
nærfærni og næmum skilningi,
er örugg á sviðinu og framsögn
hennar er skýr og eðlileg og
framkoma hennar öll vekur
óskipta samúð allra leikhúsgesta.
Er þessi unga leikkona tvímæla-
laust gædd góðri leikgáfu, enda
fáum við brátt að sjá hana í
veigamiklu hlutverki á sviði
Þj óðleikhússins.
Hulda Runólfsdóttir fer einnig
vel og skörulega með hlutverk
hinnar vondu stjúpu og geldur
sannarlega góðs leiks hjá hinum
ungu áhorfendum. Er gerfi henn-
ar í ágætu samræmi við innrætið
og látbragð hennar eftir því.
Leikur Sólveigar Jóhannsdótt-
ur í hlutverki lötu Maríu, er
einnig mjög athyglisverður. —
Dregur hún upp ágæta mynd af
hinni alþekktu vondu dóttur í
ævintýrunum og er alltaf sjálfri
sér samkvæm. Er Sólveig orðin
býsna örugg leikkona.
Selma Samúelsdóttir leikur
Huldu gömlu snoturlega, en ekki
af miklum tilþrifum, og búning-
' ur hennar finnst mér full yfir-
lætislaus.
i Glópur og Glanni, vinnumenn
, Huldu gömlu, sem þeir Friðleifur
| E. Guðmundsson og Sverrir Guð-
mundsson leika, eru bráð-
skemmtilegir í meðferð þeirra.
Leikur Valgeirs Óla Gíslasonar í
hlutverki betlarans er og áferðar-
góður. — Sigurður Kristins fer
með lítið hlutverk, Svarta Pál,
en Hans, — prinsinn í ævintýr-
inu, leikur Jóhannes Guðmunds-
son. Sigurður gerir hlutverki
sínu góð skil, en allmikill við-
vaningsbragur var á leik Jóhann*
esar.
Ljósameistarinn Róbert Bjarna
son beitir ljósunum prýðisvel.
I Carl Billich lék undir sýning-
• unni góðkunn þýzk lög.
I Haildór G. Ólafsson hefur þýtt
leikritið mjög skemmtilega.
Áhorfendur tóku leiknum af-
bragðsvel. Hef ég aldrei heyrt
meiri fögnuð og líf í tuskunum
á barnaleik sem að þessu sinm.
Sigurður Grímsson.
Úr daaleaa tífinu
Framh. af bls. 8
Af öðrum athyglisverðum dag-
skráratriðum má nefna flutning
óperunnar „I Pagliacci", á ann-
an í páskum, erindi séra Sigurð-
ar Einarsson um bifreiðaferðalög
á meginlandinu og flutning hinn-
i ar nýju útvarpssögu „Jómfrú
Barbara", eftir Aino Kallar, er
séra Sigurjón Guðjónsson les
prýðis vel.
Fermingar-iir
Vöndwð — Ódýi
Nivada
■Vatösfwétt og höggþétt
Kven- og karlmannsúr
ríjr stáli og gullpletti
Magnús E. Baldvinsson
Úrsmi-ður — Lauðavegi 12 — Sími 7048
*
■
I B Ú
3 herbergi og eldhús, ásamt bílskúr, itl sölu á Sel- $
«
• .
fossi. Upplýsingar gefa Haraldur Bachmann og Snorri 3
S-
Arnason, Selfossi.
BIFREIÐAR TIL SOLIJ
DE SOTO 1954, lítið keyrð og sérlega vel með farin. !m
5
IJO.)
Einnig FIAT 1100 — STATION 1954.
Upplýsingar gefur Guðjón Hólm hdl. — Sími 80950. ! .■»
' <Ssd
l/
Dodge Kingswoy-Custom
til sölu
■
■
model 1953. — Keyrður 5.600 kílómetra. *
■
■
■
Uppl. gefnar í síma 3216, milli kl. 10—12 og 15—17. S-
Orðsersding
til iðnmeistara og ibnfyrirtækja
Að gefnu tilefni skal vakin athygli iðnmeistara og iðn-
fyrirtækja á eftirfarandi ákvæðum 22. gr. laga nr.
46/1949, um iðnfræðslu.
,.Nú stendur yfir verkfall eða verkbann á vinnustöð
þeirri, er nemandi stundar nám sitt á. og skal hann þá
ekki taka þátt í framleiðslustörfum á meðan.
Aftur á móti er nemanda skylt að mæta til æfinga og
meðfgerðar véla og verkfæra á vinnustöð, þar sem því
verður við komið“.
Reykjavík, 18. apríl 1955
Iðnfræðsluráð.
•m
>»#
•umi
Lykteyðandi og lofthreinsandi
undraefni — Njótið ferska loftsins
innan húss allt ánð.
AIRWICK
hefir staðist allar eftirlíkingar.
AIRWICK
er óskaðlegt.
Aðalumboð:
lilafur Gíslason & Co. h.f.
Sími 81370.
i ■ ■ RB *ML*JUJ» UJLMJUUUJt*