Morgunblaðið - 24.04.1955, Síða 1

Morgunblaðið - 24.04.1955, Síða 1
r 16 sáður og Leslsók & 42. árgaugur 91. tbl. — Sunnudagur 24. apríl 1955 PrentsmiSja Morgunblaðsin* i Hin fræga bandaríska kvikmyndastjarna, Olivia de Havilland, giftist nýlega blaðamanni frá París, Pierre Galante, í litlu frönskn þorpi — þar búa um 605 manns. Borgarstjórinn framkvæmdi hjónavígsluna og samkvæmt siðvenjum bæjarins gengu brúð- hjónin eftir hjónavígsluna eftir aðalgötu bæjarins og lúðrasveit bæjarins lék. Brúðurin hefir verið gift áður, og á myndinni sést sonur hennar frá fyrra hjónabandi hlusta á lúðrasveitina með brúð hjónunum. — Olivia de Havilland er einkum kunn hér á landi fyrir leik sinn í „Á hverfandi hveli“ og í „Ormagryfjunni.“ Chou En-lai: Stjórn Rautia Kína fús til ú ræða Formósumálin við Bandaríkin BANDUNG, 23. apríl. CHOU EN-LAI, utanríkisráðherra Rauða Kína, hefir lýst yfir því, að kínverska kommúnistastjórnin sé reiðubúin til að hefja viðræður við Bandaríkjastjórn um, hvernig draga megi úr við- sjám þjóða milli í A-Asíu og hvernig útkljá megi deiluna um Formósu. Sagði utanríkisráðherrann, að Kinverjar vildu ekki heyja styrjöld við Bandaríkin — heldur hafa vinsamleg samskipti við þau. Chou En-lai lýsti yfir þessu í ræðu, er hann flutti eftir að hafa snætt hádegisverð með sjö full- trúum þeirra Asíu- og Afríku- ríkja, er sitja Bandung-ráðstefn- una. Voru þetta fulltrúar Filipps- eyja, Thailands og Colombo- ríkjanna fimm, Indlands, Pakist- ans, Indónesíu, Ceylon og Burma. Formælandi kínversku stjórnarinnar sagði, að um- mæli Chou En-lais þýddu, að Kauða Kína vildi ræða ágrein- ingsmál sín við Bandarikin án nokkurra milliliða. 0—4—0 Chou En-lai, utanríkisráðherra Rauða Kína, hafði áður flutt ræðu í stjórnmálanefnd ráðstefn- unnar. Fjallaði ræða hans um, að Rauða Kína vildi ekkert frem- ur en friðsamlega samtilveru lýð- ræðis- og kommúniskra ríkja. — Frekari fregnir hafa ekki bor- izt af ræðu hans né heldur hvern- ig kommúnistastjórnin hyggist i þessu efni ætla að ganga til móts við lýðræðisþjóðirnar í viðleitni þéirra til að tryggja frið í heim- inum. O—*-o Nefnd sú, er skipuð hafði verið ' til að gera álykttin um nýlendu- mál hélt fund í dag, en ekkert i samkomulag náðist um ályktun- ; ina. Nefndin mun halda annan j fund á morgun. Búizt er við, að nýlendustefna Evrópuþjóða í j Asíu og Afríku verði fordæmd í j ályktun þessari. En skoðanir full- trúa þjóðanna virðast vera mjög skiptar í þessum efnum, eink- um er fulltrúar Kínverja og Indónesa annarsvegar og Tyrkja hinsvegar á öndverðum meiði. Nehru, forsætisráðherra Indlands, og Nasser, forsætisráðherra Egyptalands, hafa reynt að miðla málum en lítill árangur hefir orðið að viðleitni þeirra. &purst£iB«Fear á IzosningaseSlusn í Kópavoffi svo óljósar off iurðu- leffar að einsdætni er hér á iandi Klahksvíkingar hyggjnst ekki ldta hínt sinn... © ÞÓRSHÖFN, 23. apríl: — Fregnir frá Færeyjum benda til þess, að Klakksvíkingar hyggist ekki láta hlut sinn fyrir dönsku lögregluinönnunum, sem búizt er við að komi til eyjanna á morgun með skipinu Parkeston. Hala Klakksvíkingar m. a. í ráði að raða fiskibátum sínum í fjarðar- mynnið, svo að ekki sé bægt að leggja að landi. Lögregluþjónarnir, sem eru 130 talsins, hafa með sér lögreglubifreiðir og lögreglu- hunda. Klakksvíkingar áforma einnig að koma Halvorsen lækni í öruggan felustað. ® Þessi ákveðna mótspyrna Klakksvíkinga hefur komið nokkuð flatt upp á bæjarstjórn Klakksvíkinga, lízt þeim ekki á blikuna og hefur bæjarstjórnin livatt dönsku ríkisstjórnina og færeysku landsstjórnina til að koma i veg fyrir, að valdi verði beitt. O Ðanska ríkisstjórnin hefur svarað þvi til, að færeyska landsstjórnin hafi beðið um lög- regluaðstoð i Halvorsen-málinu. I ýmsum liöfnum Færeyja, m. a. Þórshöfn, er hafinn viðbúnaöur að því að meina lögregluliðinu að ganga á land. Bæjarstjórnin í Þórshöfn hefur verið boöuð til aukafundar í dag til að ræða mál- ið. I verklýðsfélögunum hefur komið til tals að boða til allsherj- ar verkfalls í mótmælaskyni, og þjóöveldisflokkurinn hefur kraf- izt þess, að Parkeston verði látið snúa við. -<*> Almenningur svarar þessu með því að neita að taka þátt í skrípaleiknum AHREPPSNEFNDARFUNDI sem haldinn var í fyrra- dag birti meirihluti hreppsnefndar hvernig hún ætlar að haga orðalagi á kosningaseðlum í skrípakosningunum, sem kommúnistar efna til þar í hreppnum í dag. u Er fyrirkomulag kosninganna og atkvæðaseðlar svo ein- stakt í sinni röð, að engin samlíking þess er finnanleg i kosningum, sem fram hafa farið. Eru hafðir tveir mismunandi kosningaseðlar um sama mál og í stað þess að koma með ein- faldar spurningar á seðlunum, eru þar málalengingar og svo óljóst orðalag, að í rauninni er ekki með öllu ljóst út á hvað spurningarnar ganga. u Sýnir þetta betur en allt annað, hvílíkur endemis skrípa- leikur allt athæfi kommúnista er, ætlað til þess eins að tefja hið sjálfsagða réttindamál íbúanna, að hreppurinn fái kaupstaðarréttindi. w Er því eina leiðin fyrir framfarasinnaða menn í Kópavogi, ^ sem vilja vöxt og viðgang sveitarfélags síns að svara þessu fádæma hneyksli kommúnista með því að sitja heima við þessa skrípakosningu. íkveikjutilraun í vörugeymslu UNDANFARIÐ hefur verið brot- izt þrisvar inn' í vörugeymslu Sindra h.f. við höfnina. Engu telj andi hefur verið stolið, en þar geymir fyrirtækið ýmiskonar byggingavörur. En í fyrrinótt hafa þeir, sem verið hafa að verki gert tilraun til íkveikju. — Hafa þeir hrúgað upp rusli og borið eld að. Hefur ruslið brunnið upp, án þess að kveikja í út frá sér. Mjög hefur öllu verið rótað til í vörugevmslunni, eins og hús- leit hafi þar farið fram. Sáttafundur tii izl. háif sex í ffærmorgun SÁTTAFUNDUR hófst með fulltrúum deiluaðilja og hinni stjórnskipuðu sáttanefnd í vinnudeilunni klukkan hálf níu á föstudagskvöldið. Var þetta einn lengsti fundur, sem full- trúar deiluaðilja hafa haft með sér, frá því að sáttaumleitanir hófust. Stóð hann til klukkan hálf sex í gærmorgun. Ekki er vitað til þess, að neinn árangur hafi orðið af þess- um viðræðum í fyrrinótt. Um miðjan dag í gær var ekki ennþá ákveðið, hvort sátta- fundur yrði haldinn í gærkvöldi. FINNBOGI Rútur Valdemarsson hefir lengi verið þekktur að undirhyggju enda haft fátt ann- að til mála að leggja í Kópavogi. í deilunni um kaupstaðarrétt- indamálið, hefir hann með öll- um ráðum reynt að hindra það að vilji íbúanna kæmi fram. Þegar það tókst ekki og hreinn meirihluti kosningabærra Kópa- vogsbúa sendu Alþingi áskorun um kaupstaðarréttindi, sá hann þá einu leið sér til bjargar að taka upp þá hugmynd að leggja Kópavog undir Reykjavík. REFSKÁKIN Honum var kunnugt um það, að sameining Kópavogs við Reykja- vík á jafnréttisgrundvelli á sterk- an hljómgrunn meðal Kópavogs- búa í öllum flokkum, að undan- teknum hans nánustu fylgismönn um einum, sem ekkert hafa út- hrópað meira en „meðferð Reykja víkuríhaldsins á úthverfum höf- uðstaðarins.“ Þennan hljóm- grunn ætlar Finnbogi Rútur að nota til þess að koma málum svo fyrir, að hann fái tilefni t'l að taka upp málamyndarsamn- ingaumleitanir við Reykjavíkur- bæ um sameiningu. Áhættan er lítil. Hann veit að Reykjavíkur- bær fýsir lítt að taka við óreið- unni af ráðsmennsku hans, eins og nú hefir komið í ljós með samþykkt bæjarráðs. Hinsvegar hefur Finnbogi möguleika á að setja fram óaðgengileg skilyrði ef svo illa horfir fyrir hann, að Reykjavík sé tilleiðanleg til samninga. Þessi refskák hefur verið ljós frá því fyrsta, en á hreppsnefnd- arfundi í fyrradag kastaði odd- vitinn grímunni. Hann upplýsti það þar, að við atkvæðagreiðsl- una í dag verði notaðir tveir atkvæðaseðlar. ________________ UM HVAÐ ER GREITT ATKVÆÐI? Á öðrum seðlinum er þessi spurning lögð fyrir kjósendur: — Viljið þér að Kópavogur sam- einist Reykjavík og verði áfram hreppsfélag þangað til samein- ing hefir farið fram? Á hinum seðlinum stendur: — Viljið þér að Kópavogur fái kaup- staðarréttindi? Til þess er ætlazt að svarað sé já eða nei. Ekki er vitaS hvort báðir seðl- arnir hafa sama lit. SVIKAMYLLAN Þeir Kópavogsbúar sem æskja sameiningar fá með öðrum orðum ekki tækifæri til þess að láta þann vilja í ljósi nema þeir sam- þykki um leið að Kópavogur verði hreppsfélag áfram. HVAÐ ÞÝÐIF, ÞETTA? Það þýðir það að þeir Kópa- vogsbúar, sem greiða samein- ingu atkvæði sitt í dag í góðri trú, eru með því að hindra það að sameining geti farið fram meðan Finnbogi Rútur heldur völdum í hreppsnefndinni og eru því þannig í reynd að greiða at- kvæði gegn því að þeirra eigin óskir nái fram að ganga. Kópavogsbúar aðrir en nán- ustu fylgifiskar Finnboga Rúts, taka því ekki þátt í þessari fá- heyrðu svikamyiiu kommúnista. Ngo Dinh Diem vill ræða vii Saigon, 23. apríl — FORSÆTISRÁÐHERRA Suður- Vietnam, Ngo Dinh Diem, hefir í útvarpsræðu boðið tveim leiðtogum þeirra þriggja sértrú- arflokka, er undanfarið hafa beitt sér gegn stjórninni, til við- ræðna við stjórn landsins um ýmis þjóðþrifamál og þá einkum til þess að binda endi á borgara- stvrjöldina er háð er nú í Suður- Vietnam. LTndanfarnar vikur hef- ir hvað eftir annað komið til átaka milli herja ríkisstjórnar- innar og hersveitanna, er sértrú- arflokkarnir hafa undir höndum. Lágði Neo Dinh Diem áherzlu á, að Suður-Vietnam gæti orðið aðnjótandi fjárhagslegrar aðstoð- ar Bandaríkjanna, en þó því að- eins að friði yrði komið á í land- inu. Mundi sú aðstoð koma í stað inn fyrir þann stvrk, er Viet- nam hefði fengið frá Frökkum. Kvað hann landið mjög illa statt fjárhagslega.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.