Morgunblaðið - 28.04.1955, Side 1
16 síður
42 krgangax
94. tbl. — Fimmtudagur 28. apríl 1955
Prentsmiðja Morgunblaðsini
Dregur til úrslita
i
Mjög hefur miðað i samkomulagsáti
síöusfu tvo sólarhringa
SÁTTANEFNLIN í vinnudeilunni og fuiltrúar deiluaðila
töldu enn ekki tímabært í gærkvöldi, að skýrt yrði op-
inberlega frá e nstökum atriðum samkomulags bess, sem
rætt hefur ver'ð um síðustu sólarhringa. En samkvæmt
upplýsingum frá þessum aðilum, heiur mjög miðað í sam-
komulagsáft s. 1. tvo sólarhringa.
FUNÐUR TIL KL. 5
í fyrrinótt stcð sáttafundur til kl. 5 um morguninn. Um
miðjan dag í gær, hóf sáttanefnd viðræður við fulltrúa ým-
issa starfshópa, sem í verkfallinu eiga. Kl. 9 í gærkvö'di
hófst svo fundur sáttanefndar með samninganefndum
vinnuveitenda og verkalýðsfélaganna.
Miklar líkur verður að telja til þess, að til úrslita dragi
í þessum máium í dag.
Vinirnir
skriiast á
WASHINGTON, 27. apríl — Eis-
enhower átti sinn vikulega fund
með blaðamönnum í dag. Sagði
hann þeim svo frá, að síðustu
þrjár vikurnar hefði hann skipzt
á bréfum við landvarnaráðherra
Rússa, Zukov marskálk.
Minnti forsetinn á fyrri vin-
áttu þeirra Zukovs er þeir voru
yfirmenn þeirra herja er þrengdu
að nazistaherjunum í lok styrj-
aldarinnar. — Forsetinn kvaðst
ekki vilja segja fréttamönnum
neitt um innihald bréfa þeirra
„vinanna“, en kvaðst hafa orðið
þess var, að Zukov vildi efla vin-
áttu landanna tveggja. „Bréfa-
skjpti geta leitt til góðs“, sagði
forsetinn, „en þeim árangri er
hæ?t að spilla, ef þau eru gerð
opinber".
Forsetinn minntist einnig á
heimsfriðarmálin í heild. Sagði
hann bjartara framundan á því
sviði nú en áður.
Gaf 7328 litra mjólkur siðastliðið ár
KÝRIN hér á myndinni ber
nafnið „Grása“, og er frá Galta-
felli í Hrunamannahreppi. Hún
er af Kluftakyni í báðar ættir.
Faðir hennar hét Brandur og var
feildur 7 vetra. Margt afkvæma
er lifandi undan honum bæði kýr
og naut.
hennar reyndust það ár 28872.
Eftir reikningi Hjalta urðu smjör
afurðir hennar nálega 340 kg. á
því ári.
„En það sem ég tel merkileg-
ast“, sagði Hjalti, „er að kýr sem
ekki er að stærð yfir meðallag
íslenzkra kúa skuli geta umsett
fóður sitt í svo mikla mjólk“.
í vetur fékk Grása svo slæman
doða að henni var vart hugað líf,
en hún náði sér aftur, sem betur
fór, fyrir eigandann, Árna Ög-
mundsson, bónda að Galtafelli.
Hjalti Gestsson, búfræðiráðu-
nautur Búnaðarsambands Suður-
lands að Selfossi, kom heim til
mín á sunnudaginn var. Greip ég
tækifærið til að ræða við hann,
um kynbætur nautpcninga aust-
anfjalls, og þær horfur, sem hann
telur um árangur í þcssu efni.
Þá sagði hann mér frá óvenju-
lega nythárri mjólkurkú, sem
hann vissi að væri til austur að
Galtafelii í Hrunamannahreppi.
— Ljósmyndari Morguntlaðsins
skrapp þangað austur eftir á
þriðjudaginn, og tók þessa mvnd
af þessari óvenjulega „drop-
sömu“ kú, er mjólkaði hvorki
meira né íhinna en 7328 kg. á
SÍðastliðnu ári.
Hjalti sagði mér að mjólk henn-
ar væri svo feit, að hún innihéldi
3,94% fitu. Svo fitueiningar 1
Börn veikjast illa
— eftir bólusetningu
WASHINGTON, 27. apríl — frá Reuter-NTB
tfEILBRIGÐISYFIRVÖLD Bandaríkjanna gáfu í dag
út skipun um að allt bóluefni gegn lömunarveiki af
Salk-gerð, sem framleitt hefur verið í Cutter-labratori-
inu skuli þegar í stað afturkallað. Hefur reynslan leitt
í ljós að 6 börn, sem bólusett voru með lyfi er framleitt
var þar, hafa fengið hastarlega lömunarveiki og lamast.
Engan veginn er sannað að veikin stafi frá bóluefninu,
heldur þykir líklegra, að börnin hafi áður en bólusetn-
ing fór fram, þegar verið smituð.
Það er aðeins bóluefni, framleitt í Cutter-stofnuninni,
sem afturkallað hefur verið og framleiðsla stöðvuð á.
Danskur blaðamaður segir
Samiícfarkveðjiir frá
íslandi herða Klakks-
vikinga í mótþróanum
Kampmann gat ekki lent í gœr — en af
skýrslu hans verður ákv.f hvort lögreglu-
liðið gengur á land í Klakksvík
Einkaskeyti frá fréttaritara Mbl. í Kaupm.höfn.
KLAKKSVÍKURDEILAN færeyska hefur nú orðið til þess, að
allsherjarverkfall er hafið í eyjunum. Kampmann fjármála-
ráðherra Dana var í dag sendur til Færeyja með herflugvél til
að kanna málin, en hann á ekki að skipta sér af deilum. Báðir
aðiljar hafa sett úrslitakosti — en hvorugur hefur enn hafzt að.
£ URSLITAKOSTIR
VERKALÝÐSINS
Það var í gærkvöldi, sem
Verkalýðssamband Færeyja setti
landsstjórninni þá úrslitakosti,
að ef ekki yrði innan klukku-
stundar fallizt á þá kröfu, að
láta gerðardóm skipaðan íslend-
ingi, Norðmanni og Svía skera
úr um deiluna í Klakksvík, þá
yrði allsherjarverkfall í Fær-
eyjum.
Klukkustundin leið og það
svar barst frá landsstjórninni, að
hún hefði sent málið dönsku
stjórninni til athugunar. Kom
□-
Síðari fréttir:
•--□
ÞÓRSHÓFN í gærkvöldi:
Síðdegis í dag (eða kl. 5) átti , fun(fL
að vera fundur milli lands-
stjórnarinnar og fulltrúa
Klakksvíkinga. Fundinum var
frestað. vegna þess að flug-
vél Kampmanns fjárm.ráðh.
gat ekki lent. Er nú Kamp-
manns beðið.
Vinnuveitendur í Færeyjum
Samningar
í austri?
MCMILL AN, utanríkisráðherra
Breta, skýrði svo frá á þing-
fundi í dag, að sendiherra Breta
í Peking hcfði verið falið að afla
frekari upplýsinga um ræðu og
tillögur Chou En Lais forsætis-
og utanríkisráðherra Kína,
þeirri er hann hélt á Bandung-
ráðstefnunni um viðræðufund
um Formósumálin. Sagði Mc
Millan að það hefði ætíð verið
vilji Breta að, að vopnahlé yrði
samið á Formósusundi á viðræðu
□
Lýsti ráðherrann og þeirri
skoðun sinni, að vera kynni
að ná ruætti verulegum áfanga
í lausn Austuriandavanda-
mála í næstu framtíð.
McMillan lýsti yfir því, að
ekkert sannleikskorn leyndist í
þeim orðrómi, að brezka stjórn-
hafa lýst verkfallið ólögiegt in hefði lofað Bandaríkjamönn-
og þeir hafa áskilið sér rétt um aðstoð við varnir Bormósu.
Þeir hafa engar skuldbindingar
tekið á sig í sambandi við þau
mál aðrar en þær aðrar þjóðir
hafa gert, sem aðild eiga að Sam.
þjóðunum.
Síðar í dag átti McMillan að
eiga fund með sendiherra Banda-
ríkjanna í Lundúnum. Sögðu
fréttaritarar, að þeir myndu
væntanlega ræða um möguleika
til að krefjast bóta fyrir tjón
er þeir verða fyrir sökum þess.
—NTB
-□
því til verkfallsins í morgun.
Náði það þó ekki til áætlunar-
báta og pósti er enn dreift. I
Það er búizt við að verk- . „ * .... „ ,
f ii * ij- . - *...........*- samnmgav ðræðna milli Banda-
fallið valdi stortjom a sviði ... ,
útgerðarinnar. Fáir bátar eru
inni, og togarar allir voru
sendir á veiðar fyrir verk-
fallið.
ríkjanna og Kína, en um það mál
ræddi Eden nokkuð í gær.
—Reuter—NTB
f ÚRSLITAKOSTIR
LANDSSTJÓRNARINNAR
Landsstjórnin heldur enn fast
við sína úrslitakosti — að Hal-
vorsen læknir fari frá sjúkrahús-
inu; — að vinnufriður komizt á
aftur — og að þeim sem sýndu
laganna vörðum mótþróa verði
hegnt.
Þannig stóðu málin í morgun,
er ákveðinn var sáttafundur kL
5 í dag (miðvikudag). Þann fund
höfðu fulltrúar Klakksvíkinga
lofað að sitja, en lýstu því jafn-
framt yfir, að þeir álitu frekari
samkomulagsumleitanir tilgangs-
lausar.
$ SKÝRSLA HANS
RÆÐUR ÚRSLITUM
Danska stjórnin ákvað fyrr
í morgun að senda Kampmann
fjármálaráðherra til þess að
Framh. á bls. 2
Fyrir
haustið ?
VÍNARBORG, 27. apríl — Raab,
forsætisráðherra Austurríkis,
lýsti í dag þeirri von sinni, að
hernámsþjóðirnar í Austurríki
hefðu dregið á brott herlið sitt
fyrir haustið.
Lét Raab þessi orð falla er
hann ávarpaði báðar deildir aust-
urríska þingsins í tilefni þess að
10 ár eru liðin frá endurstofnun
austurríks lýðveldis.
Hann sagði, að þegar lokið
væri brottflutningi herliðs er-
lendra ríkja og sjálfstæði Aust-
urríkis viðurkennt, þá myndu
þeir lýsa yfir ævarandi hlutleysi.
•— Reuter.