Morgunblaðið - 29.04.1955, Page 1
16 sáður
4* úrgangut
95. tbl. — Föstudagur 29. apríl 1955
Prentsmiðjj* Morgunblaðsjci
6 viks^a verkfaHi lokið:
< *>' '
sett um atvinnuleysistrygg-
rgað kaupgjald hœkki um 10X
Hinir nýju stunningar gildn Eil 1. júní 1956
Síðasti sátlofnndnrinn stóð í tæpnn sólarhring
SAMKOMULAG náðist í fyrrinótt og í gærdag í vinnudeilu þeirri, sem 14 verkalýðs-
félög í Reykjavík og Hafnarfirði hafa átt í undanfarið. Voru þá liðnar réttar 6 vikur
síðan verkfall hófst. Mun það vera eitt lengsta verkfall, sem um getur hér á landi, er
náð hefir til svo margs fólks.
Undirskriftir samninga hófust um kl. 6 síði. í gær, en þá hafði sáttafundur með fulltrú-
um deiiuaðila og hinni stjórnskipuðu sáttanefnd staðið samfleytt frá kl. 9 á miðviku-
dagskvöld, eða í tæpan sólarhring. Voru samningar undirritaðir með þeim fyrirvara, að
þeir yrðu samþykktir á fundum í félögum verkfallsmanna og vinnuveitenda. Var boðað
til funda í öllum félögunum í gærkvöldi og hinir nýju samningar samþykktir þar. Verk-
fallinu var því næst aflýst, og skyldi vinna hefjast í morgun.
Sáttasemjari ríkisins, sem er formaður liinnar stjórnskipuðu sátta-
nefndar í vinnudeilunni og formenn samninganefndar deiluaðila. I
— Á myndinni eru talið frá vinstri: Edvarð Sigurðsson formaður
samninganefndar verkalýðsfélaganna, Torfi Hjartarson formaður j
liinnar stjórnskipuðu sáttanefndar og Kjartan Thors formaður
samninganefndar vinnuveitenda. — Myndin er tekin í Alþingis-
liúsinu um miðjan dag í gær. (Ljósm. Mbl. Ól. K. M.)
húMammaðir fyrir
Ólafur Thors forsæíisráðherra tók mikinn og margvíslegan þátt
i sáttastarí’inu. — Ilann sést hér á myndinni, sem var tekin í Al-
þingishúsinu í gær í samtali við tvo sáttanefndarmenn, þá Torfa
Hjartarson og Jónatan Hallvarðsson hæstaréttardómara.
úoráði
siemgonna
Rætt um verkfollib og áhrif Jbess
AFUNDI fulltrúaráðs Sjáifstæðisfélaganna í Reykjavík, sem
boðað heíir verið til í kvöld í Sjálfstæðishúsinu, mun Bjarni
Benediktsson dómsmálaráðhcrra, hefja umræður um verkfallið og
áhrif þess.
Hið víðíæka verkfall, sem staðið hefir í 6 vikur, hefir vissulega
þegar hafí cg mun hafa margvísleg áhrif, bæði varðandi kjör
verkafólksins, atvinnurekstur landsmanna og efnahagslífið í heild.
í veg fyrir og dregið úr því alls-
herjarböli, sem vinnustöðvanirn-
á Dagsbrúnarhmdi
FUNDUR Verkamannafélagsins
Dagsbrúnar um nýju samningana
í gærkvöldi var geysifjölmenn-
ur Var Gamla-Bíó troðfullt út
úr dyrum. Eðvarð Sigurðsson
formaður samninganefndar
verkalýðsfélaganna, skýrði frá
gangi sáttaumleitananna og efni
hinna nýju samninga.
Allmiklar umræður urðu að
ræðu hans lokinni og voru komm
únistar húðskammaðir fyrir
verkfallið, upphaf þess og fram-
kvæmd. Bentu nokkrir ræðu-
menn á að auðvelt væri að taka
munninn fullan í upphafi og gera
háar kröfur. En það væri sann-
arlega lítill árangur. sem kæmi
nú í ljós eftir sex vikna verk-
fall, sem bakað hefði verka-
mönnum stórkostlegt tjón og ó-
hagræði. Myndi það taka lang-
an tíma, sennilega meira en ár,
að vinna það tjón upp.
Verður ekki annað sagt um
fundinn, en að hann hafi tekið
kommúnistum mjög kuldalega.
Hinir nýju samningar voru þó
samþykktir.
^ATVINNULEYSISTRYGGINGAR
Aðalatriði þess samkomulags, sem náðist fyrir milligöngu
hinnar stjórnskipuðu sáttanefndar eru þau, að samkvæmt
tilboði ríkisstjórnarinnar er stofnaður atvinnuleysistrygg-
ingasjóður, sem skal hafa það hlutverk að greiða atvinnu-
lausu fólki bætur eftir þeim reglum, sem síðar verða sett-
ar. í þennan sjóð tekur ríkissjóður að sér að greiða sem
svarar 2% af almennu daglaunakaupi Dagsbrúnarmanna
fyrir unninn tíma, miðað við 48 klst. vinnuviku; atvinnu-
rekendur greiða 1% og frá bæjar- og sveitarfélögum
greiðist 1%.
10% KAUPHÆKKUN
Þá fá Dagsbrúnarverkamenn, iðnaðarverkafólk og iðn-
aðarmenn 10% hækkun á útborguðu kaupi. Enn fremur
liækkar orlof, og tímakaupsmenn meðal almennra verka-
manna fá 1% vegna sjúkrakostnaðar.
Hinn nýi samningur gildir til 1. júní 1956 og er uppsegj-
anlegur með eins mánaðar fyrirvara. Sé honum ekki sagt
sagt upp framlengist hann um 6 mánuði í senn með sama
uppsagnarfresti.
Verði breyting á lögfestu gengi íslenzku krónunnar, skal
aðilum heimilt að segja samningum upp með eins mán-
aða fyrirvara.
Sjálfstæðisflokkurinn hefir
ætíð haldið fram þeir.ri skoðun
að vinnudeilur með verkföllum
og verkbönnum, séu þjóðfélags-
böl, sem vinna beri að með öll-
um ráðiim að forðast.
í samræmi við það beitti flokk-
urinn sér fyrir setningu vinnu-
löggjafarinnar á sínum tíma í
þeim tilgangi að skipa málum
hinna stríðandi aðila með frið-
samlegum hætti er komið gæti
Verkfallið nú hefir leitt í ljós
mörg alvarleg tilvik. Sjálfstæð-
ismenn verða nú sem fyrr að
beita áhrifum sínum til þess að
draga úr þeim voða, sem til hef-
ir verið stofnað og stuðla að
því í framtíðinni að bera klæði
á vopn hinna stríðandi aðila.
Blóðugir
bardagar
SAION 28. apríl. — Blóðugir
bardagar hafa í dag átt sér stað
á götum Saigon-borgar. Berjast
þar hermenn úr liði stjórnarinn-
ar og æstur lýður í einum af
hinum pólitísku sértrúarflokkum.
Fréttamenn fullyrða ,að mann-
tjónið nemi á þessum degi mörg-
um hundruðum xallinna og
særðra.
Mest varð manntjónið af völd-
um bruna er varð í einu hverfi
borgarinnar Eru þúsundir
manna heimilislausar og þykkur
reykjarmökkur grúfir yíir borg-
inni.
Sagt er að bardagarnir hafi
byrjað er stjórnarherinn fyrir-
skipaði nokkrum úr sértrúar-
flokknum að flytja af ákveðnum
svæðum í borginni. —Reuter.
SAMNINGUR DAGSBRUNAR
Sxmkvæmt hinum nýja samn-
ingi við Dagsbrún, verða þessar j.
aðalbreytingar á kjörum ver'ka-
manna:
1) Útborgað tímakaup hækk
ar um 10% t
2) Orlof hækkar um 1%, þ.
e. lengist úr 15 virkum dögum
í 18 virka daga. i
3) Tímakaupsmenn í Dags-1
brún fá 1% launaviðbót til
þess að standa straum af |
sjúkrakostnaði, þar sem þeir
fá ekki irreidda veikindadaga.
4) Aðild að atvinnuleysis-1
tryggingum þeim, sem ríkis-1
stiórnin beitir sér fyrir að
stofnað verður til.
SAMNINGUR
IÐNAÐARMANNA
Gagnvart iðnaðarmönnum
verka hinir nýju samningar í að-
alatriðum á þessa leið:
1) Þeir fá sömu hækkun á
útborgað kaup og Dagsbrún-
arverkamenn eða 10%. Felst
kauphækkun þeirra í senn í
því, að óskert vísitöluuppbót
skal greidd á allt kaup og í
hinu að grunnkaup er hækkað
nokkuð.
2) Lágmarksorlof er hækk-
að úr 5% í 6%. Er það sama
hækkun og hjá verkamönn-
um.
3) Þá verða ennfremur 1%
af vinnulaunum greidd í
sjúkrasjóð.
4) Aðild að atvinnuleysis-
tryggingasjóði.
IÐJA, FELAG VERK-
SMIBJUFÓLKS
Iðja, fclag verksmiðjufólks,
fær einnig 10% hækkun á útborg
uðu kaupi til handa meðlimum
sínum, ásamt sömu hækkun or-
lofs og verkamenn og iðnaðar-
menn. Ennfremur verða félagar
hennar aði’-'r að atvinnuleysis-
tryggingunum.
MÁLSSÓKNIR FALLA NIÐUR
Þá féllust deiluaðilar á að láta
niðurfalla málssóknir og kröfur
vegna árekstra í sambandi við
vinnudeiluna og verkfallið.
LÖGGJÖF UM ATVINNU-
LEYSISTRYGGINGAR
Eins og frá var skýrt hér að
framan byggist samkomulag
deiluaðila fyrst og fremst á því,
að ríkisstjórnin hét því að beita
sér fyrir stofnun atvinnuleysis-
tryggingasjóðs. sem byggður skal
upp af rikiss.ióði, vinni v'eitendum
og bæjar- og sveitarfélögum. —
Skal sett löggjöf um atvinnu-
Framh, á bls. 2
Flugferðir !nn?n-
lands hefjas! sfrax
i.
í GÆRKVÖLDI tókust samning-
ar um kaup og kjör atvinnuflug-
manna. Munu því flugferðir hér
innanlands hjá Flugfélagi íslands
hefjast þegar í dag eða á morg-
un (laugardag). Millilandaflugið
hefst einnig nú um helgina.