Morgunblaðið - 30.04.1955, Blaðsíða 2
2
MORGVNBLAÐIB
Laugardagur 30. apríl 1955
„Eining"
VEGNA framkomu kommúnista
í 1. maí-nefnd verkalýðsfélag-
•anna, og sérstaklega þar sem átt
er við fulltrúa Hreyfils, þykir
xnér rétt að skýra frá þeim atþurð
um, er þar hafa farið fram.
í fjögur undanfarin ár hefi ég
Verið tilnefndur fulltrúi Hreyfils
í 1. maí-nefnd verkalýðsfélag-
anna, og svo var einnig nú.
Á fyrsta fundi nefndarinnar,
sem haldinn var 24. þ. m., mætti
ég. Fundurinn hófst á því, eins
og venja er, að ganga úr skugga
um, hvaða fulltrúar væru mætt-
ir. Voru þá allir fulltrúar kallað-
ir upp nema ég. Er ég spurðist
iyrir um, hverju þetta sætti,
sagði Björn (í Iðju) að seinna
kæmi að mér. Þótti mér þetta
skrítin vinnubrögð, enda átti ég
þessu ekki að venjast í nefnd-
inni undanfarin ár. Bar Björti
síðan fram munnlega tillögu um
það, að fulltrúi Hreyfils fengi
«kki að starfa í nefndinni að svo
stöddu máli, fyrr en fram hefðu
JEarið viðræður milli stjórnar
Hreyfils og Alþýðusambandsins
og stjórnar Fulltrúaráðs verka-
lýðsfélaganna í Reykjavík um
tnálið.
Það skal tekið fram áður en
lengra er haldið, að Björn nefndi
miig ekki á nafn í sambandi við
þessa afgreiðslu á málinu, held-
ur talaði hann aðeins um full-
trúa Hreyfils. Var á Birni að
skilja, að aðalástæðan fyrir því,
að fulltrúi Hreyfils gæti ekki „að
svo komnu máli“ tekið þátt í
lundarstörfum nefndarinnar
•væri sú, að ýmsir félagar Hreyf-
ils hefðu lent í árekstrum við
■verkfallsverði. Sagði ég þá, að
sjálfsagt væri ýmislegt aðfinnslu-
vert hjá báðum aðilum, en ég
•teldi þó, að verkfallsverðir sumir
þverjir hefðu ekki verið starfi
sínu vaxnir. Spurði ég Björn að
því, hvers vegna fulltrúaráðs-
stjórnin hefði þá óskað eftir því
við Hreyfil að tilnefna mann af
sinni hálfu í nefndina. Varð hon-
um svarafátt. Sagði hann þó, að
starfsmaður fulltrúaráðsins hefði
sent bréfin út til allra félaganna.
Þróttar-fulltrúinn stóð upp og
sagði nokkur orð. Taldi hann að
þetta væri ekki vel af stað farið,
ef reka ætti einn fulltrúann þeg-
ar úr nefndinni. Þetta samræmd-
ist ekki einingartali kommúnist-
anna.
Þessi tillaga Björns var síðan
þorin upp og samþykkt með 15
atkvæðum gegn 10. Taldi ég mig
þá ekki geta setið fundinn leng-
•ur og gekk af fundi.
Næsti fundur í nefndinni var
þoðaður 28. þ. m. Taldi ég mig
ekki bundinn þeirri samþykkt,
sem gerð var á fyrri fundi og
mætti því á fundinum, þar sem
sú samþykkt bryti í bága við lög
verkalýðssamtakanna.
Þá má geta þess, að á fyrri
íundinum hafði Björn nefnt í til-
lögu sinni, að samkomulag ætti
að nást um málið fyrir næsta
iund. En á seinni fundinum kem-
ur í ljós, að stjórnir fulltrúaráðs-
ins og Alþýðusambandsins höfðu
-ekki átt neinar viðræður við
stjórn Hreyfils um málið, eins
og lofað hafði verið af formanni
iulltrúaráðsins.
Á þessum fundi gekk allt vel
i fyrstu, þar til Björn kemur
með tillöguna aftur, en nú er
llún stíluð persónulega á mig
vegna verkfallsbrota, sem ég
Jiefði átt að hafa framið. Þá stóð
•upp Guðmundur J. (eða sólar-
hringur, sem er nýtt nafn á þess-
um manni). Þóttist hann vita, að
;.ég hefði brotið einhver ósköp af
. jnér og belgdi sig allan upp við
þetta.
Vil ég nú skýra frá þeim við-
skiptum sem urðu milli mín og
Guðmundar J. í sambandi við
meint verkfallsbrot mín í nýaf-
stöðnu verkfalli.
Það var í upphafi verkfallsins,
að ég kom að varðlínu við Geit-
* \ - i i j . 1 i < i. * j' ‘ .
1
kommúnista í verki
Beita ofríki, hvenœr sem
slíku verður við komið
eftir Guðjón Hansson fulltrúa Hreyfils
í 7. maí-nefnd
háls og var stöðvaður þar af
verkfallsvörðum. Voru þar þá
tveir bílar fyrir, er stöðvaðir
höfðu verið. Hafði annar bílstjór-
inn hringt á lögregluna löngu áð-
ur en ég kom. Vildu verkfalls-
verðir fá að gera leit í bíl mín-
um. Spurðist ég þá fyrir um skil-
ríki þeirra fyrir því að fá að gera
leit í bíl mínum. Taldi ég það
vera samkvæmt íslenzkum lands-
lögum, að þeir hefðu enga heim-
ild til þess. Þar að auki var ég
með farþega í bíl minum. Óskaði
ég þá eftir því að biða eftir lög-
reglunni, þar sem hún væri vænt-
anleg, og lagði bílnum út við
vegabrúnina fyrir aftan hina tvo
sem fyrir voru. Það skal tekið
fram, að verkfallsverðir þeir,
sem þarna' voru á verði, komu
vel fram og var árekstrarlaust
milli þeirra og mín, og hefi ég
vitni að því, meira að segja trú-
bróður Guðmundar J. Guðmund-
ur kom með lögreglunni upp eftir
og varð það að samkomulagi, að
þessir bílar færu niður á lög-
* reglustöð. Þegar þangað kom
^ opnaði ég kistuna í mínum bíl í
j augsýn bæði lögreglu og verk-
i fallsvarða. Ég vil upplýsa að það
fannst ekekrt benzín í bílnum né
j annar varningur, sem ekki mætti
I koma til bæjarins. Hefur aldrei
fundizt fyrr eða síðar neitt, sem
! í banni var í mínum bíl, þó að ég
, hafi stundum þurft að fara gegn-
um varðlínu verkfallsvarða
vegna starfs míns, og ætíð
árekstrarlaust. En þegar Guð-
mundur J. verkfalsvörður kom*
út að bílnum við lögreglustöð-
ina, sagði hann þau orð, sem
I hann hefði heldur átt að láta ó-
sögð, sem foringi verkfallsvarða.
Þau voru svo slæm, að ég vil ^
ekki ræða þau nánar. En bíl- i
stjórastéttin kann honum engar j
þakkir fyrir þau orð. En fulltrúar j
í 1. maí-nefnd vita hvaða orð i
hann viðhafði gagnvart bilstjór- !
unum, þegar ég var að opna bíl
minn við lögreglustöðina. En sög-
una sagði hann á fundi 1. maí- j
nefndarinnar á þá leið, að ég
hefði stöðvað alla umferð um
veginn og látið dólgslega og neit-
að að færa til bílinn, þegar verk-
fallsverðir gáfu fyrirskipun um
það. Lýsti ég yfir því, að þar
væri algjörlega rangt farið með
staðreyndir. Og ef allar sögur i
Guðmundar J. í sambandi við
verkfallsmálin eru svona, þá er
ekki mikið á þeim að byggja. —
Hefir það reyndar berlega sýnt
sig í skrifum Þjóðviljans undan-
farið um verkfallsmálin, að sögu-
burður þar er á hæpum rökum
reistur.
Tillaga sú, sem Björn bar upp
á fundinum, var samþykkt með
14 atkvæðum kommúnista gegn
11 atkvæðum lýðræðissinna.
Gengu þá allir lýðræðissinnar
af fundi í mótmælaskyni við af- (
greiðslu málsins.
Ég vil svo taka það fram, að
þegar Iðja var ekki í verkalýðs-
samtökunum síðast liðin ár, var
fulltrúa Iðju þó boðið sæti í
nefndinni og hann tekinn gildur,
sem aðrir fulltrúar í nefndinni,
mótmælalaust.
Það, sem hér hefir gerzt í 1.
maí-nefndinni, sýnir vel gerðir
kommúnistanna í máli þessu og
ofbeldisaðferðir þeirra í verka-
lýðsfélögunum, þegar þeir geta
því við komið.
Guðjón Hansson. ]
Allir innlendir o«: erlendir
V
knattspyrnuleikir
í sumar eru ákveðnir
• r ’
Astaratlot Hermanns
við Moskva-valdið
Jafnve! framséknar-þmgm. blöskrar filhugaslandið
IGÆR fór fram atkvæðagreiðsla í Efri deild Alþingis um
Kópavogsfrumvarpið að aflokinni annarri umræðu. Var
frumvarpinu vísað óbreyttu til þriðju umræðu með 12 atkv.
gegn tveimur atkvæðum kommúnista.
Það vakti nokkra athygli, að þegar forseti deildarinnar tók
málið til atkvæða, sat Hermann Jónasson formaður Framsókn-
arflokksins í sæti sínu í deildinni. Brá hann við er greiða skyldi
atkvæði og hljóp út úr deildinni svo hratt að sá undir iljar
honum í brottförinni.
Var sýnilegt að maðurinn hegðaði sér með þessum hætti af
því að hann vildi ekki styggja vini sína, kommúnistana, með
því að greiða atkvæði með frumvarpinu. Heldur kaus hann
að vera fjarverandi atkvæðagreiðsluna. Er þessi atburður að-
eins einn af mörgum, sem Hermann framkvæmir til að nudda
sér utan í kommúnista. Þyka ástaratlot hans við fjarstýrða
flokkinn stundum afkáraleg, jafnvel svo að mörgum Fram-
sóknarþingmönnum blöskrar.
— Yfirlýsing dómsmálaráðherra í gærkvöldi
Framh. af bls. 1
væri þannig uppbyggt að hver
valdhafi þess yrði að vega nokk-
uð upp á móti öðrum til að koma
í veg fyrir einræði og ofstjórn.
Verkalýðsfélögin ættu að vera
óháð og sjálfstæð til þess að vega
upp á móti valdi atvinnurekenda.
En þau mættu hvorki snúast til
fjandskapar við vinnuveitendur
né ríkisvaldið, því allir væru
þessir aðilar í sama bát og mættu
ekki granda hver öðrum, ef vel
ætti að fara.
í okkar litla þjóðfélagi, sagði
Bjarni Benediktsson, á hin hat-
ramma stéttabarátta að vera ó-
þörf. — Allir atvinnurekendur
verða að ótta sig ó því að án vel-
farnaðar verkamannanna gæti
þeim ekki vegnað vel til lengd-
ar. Verkamenn yrðu hinsvegar
að skilja að ef atvinnuvegirnir
leggðust í rúst væri afkoma
sjálfra þeirrá í voða. Þess vegna
yrðu þessir aðilar að vinna sam-
an.
Verkalýðsfélögin ættu að
vera sterk og atvinnurekend-
ur ættu að koma fram við
starfsmenn sína af skilningi
og velvild, þannig að gagn-
kvæmur samhugur skapaðist
milli verkamanna og vinnu-
veitenda. Ef það tækist myndi
vel fara og það er skylda okk-
ar Sjálfstæðismanna að
tryggja það að það takist ekki
aðeins í orðið heldur líka á
borði, sagði Bjarni Benedikts-
son að lokum.
Ræðu dómsmálaráðherra var
ágæta vel tekið af fundarmönn-
um.
Síðan var drukkið kaffi og loks
fóru fram frjálsar umræður. Fór
þessi fundur fulltrúaráðsins í
öllu hið bezta fram.
íslendmgar, sem
sjórænmgjar
BREZKA tímaritið „Fishing
News“ geri- mikið úr þeirri fregn
að hinn ló. marz s.L, kom tog-
arinn „Red Sword“ frá Fleet-
wood til Vestmannaeyja, en þar
var hann •-•töðvaður og skipstjór-
inn dreginn fyrir rétt, vegna þess,
að einu ári áður hafði hann verið
að veiðum innan íslenzkrar land-
helgi, en neitað að nema staðar
og komiz' undan.
Var nú settur réttur yfir skip-
stjóranum og hann dæmdur f
sekt fyrir hið gamla brot. Þetta
þykir hinu enska blaði fáheyrð
ósvífni af íslendingum. Talar það
um að íslendingar hegði sér eins
og sjórænirgjar.
Málning h.f. opnar sýn•
ingu á málningavörum
IGÆRKVÖLDI barst blaðinu fréttatilkynning frá Knattspyrnu-
ráði Reykjavíkur, þar sem það tilkynnir að lokið sé við
niðurröðun allra knattspyrnuleikja, sem fram eiga að fara hér í
: bænum í sumar, m. a. leiki gegn erlendum liðum. — Þeir verða
fimm talsins og þeirra merkastur landsleikur við Dani 3. júlí n. k.
IGÆRDAG bauð fyrirtækið Málning h.f. fréttamönnum og öðrum
gestum að skoða íbúð að Tómasarhaga 20, sem eingöngu er máluð
með málningarvörum framleiddum af Málning h.f. Ýmsar nýjungar
á aðferðum og efnasamsetningu málningarinnar hafa verið um
hönd hafðar við málningu þessarar íbúðar.
í fréttatilkynningu Knatt-
spyrnuráðsins segir m. a.:
1 Niðurröðun allra knattspyrnu-
leikja, sem fram fara í Reykja-
vík í sumar, er hið vandasam-
asta verk, því að ákveðinn er
hver leikur allt frá 4. flokki B
til hins nýstofnaða móts í I.
deild, sem leysir af hólmi Knatt-
spyrnumót íslands, er einnig til-
greindur keppnisstaður, leik-
stund og dómari hvers leiks.
Ráðið hefur látið prenta skrá
yfir knattspyrnumótin í aðgengi-
lega handbók með líku fyrir-
komulagi og s. 1. ár. Er bókin
ómissandi öllum, sem hafa eitt-
hvað með íþróttina að gera,
keppendum, þjálfurum og ekki
hvað sízt áhorfendum, sem fá nú
heildarskrá yfir helztu knatt-
spyrnuviðburði sumarsnis á í-
þróttavellinum.
I Þar eru tilgreindir þeir leikir,
sem fram fara gegn hinum er-
lendu liðum sem hingað koma,
en þau verða ekki færri en 5
talsins. Fyrst kemur hér úrval
frá Neðra-Saxlandi á vegum
Vals, síðan úrvalslið unglinga frá
Hamborg til Vals, og síðan 3.
flokkur frá Bagsværd í Dan-
mörku til KR. Danska landsliðið
kemur hingað og leikur lands-
leik 3. júlí og að síðustu kem-
ur meistaraflokkslið til KR um
10. júlí.
Innlendu mótin hefjast sunnu-
daginn 8. maí með leik Fram og
Vals í Reykjavíkurmótinu, en
þann 9. leika KR og Þróttur. ís-
landsmótið eða 1. deild hefst 12.
júní og lýkur 15. ágúst. Mótin
í yngri flokkunum hefjast sem
hér segir: 1. flokkur laugardag-
inn 14. maí (Fram-Þróttur og
KR-Valur), 2. flokkur laugardag-
inn 21. maí (Fram-KR og Valur-
Víkingur), 3. flokkur á 2. í hvíta-
sunnu (Þróttur-Fram og Valur-
Víkingur) og 4. flokkur sama
dag (Fram-Víkingui og KR-
Þróttur).
Knattspyrnumót Reykjavíkur
átti að hefjast n. k. mánudag með
leik KR og Vals, en vegna verk-
fallsins hefur ekki unnizt tími
til þess að undirbúa völlinn. —
Einnig er völlurinn votur vegna
óvenjumikils klaka, sem verið
hefur í jörðu.
TVÆR YFIRFERÐIR Á
NÝJAN STEIN
Aðal markmið þessarar nýj-
ungar er að láta tvær málningar-
yfirferðir duga á nýjan stein. —
Eftir að búið er að grunna veggi
og loft úr blöndu úr fernisolíu
og terpentínu (til þess að binda
steininn) er málað einu sinni með
svonefndri Spred-Satin-gúmmí
málningu blandaðri með Spred-
fylli, og í annað sinn með hreinni
Spred-Satin-gúmmímálningu á
veggi, en með Spred-Matt á loft.
Spred-fylli má einnig nota til
mynstrunar eða hraunáferðar.
SÝNING Á MÁLNINGUNNI
Málning h.f. hefur efnt til sýn-
ingar á málningu þessari á Tóm-
asarhaga 20. Verður sýningin op-
in almenningi dag hvern frá kl.
13—22 dag hvern fyrst um sinn
og munu fulltrúar verksmiðjunn-
ar vera þar á staðnum til leið-
beiningar. Aðgangur er ókeypis.
Hefur fyrirtækið lagt mikla á-
herzlu á litaval og samsetningu
lita og gefur sýningargestum
margyjslegar leiðbeiningar í
þeim éfnum með litaspjöldum og
bæklingi er nefnist: Leiðbein-
ingar um notkun á Spred. Bækl-
ingurinn fæst á sýningarstaðn-
um.
]
HÆGT AÐ FYLGJAST MEÐ 1
MÁLNINGUNNI STIG
AF STIGI
Þar sem húsið á Tómasarhag^
20 er ekki fullgert, hefur Máln-
ing h.f. notað þetta tækifæri til
þess að sýna, í ytri forstofu, einn
vegg pússaðan og einn grunnað-
an. Einn eftir fyrstu yfirferð
með Spred-blöndu, og þann
fjórða fullmálaðan. Með þessu
móti geta sýningargestir fylgzt
með, hvernig íbúðin er máluð
stig af stigi.
FYRIRTÆKIÐ TVEGGJA ÁRA
Málning h.f. var stofnuð 1953
og hefur aðsetur sitt í Kópavogi
við Kópavogsbraut 10. Fram-
kyæmdastjórar eru Kolbeinn
Pétursson og Magnús Teitsson.
í verksmiðjunni vinna að jafn-
aði 15—20 manns auk tveggja
efnafræðinga, þeir Aðalsteinn
Jónsson og Gísli Þorkelsson.