Morgunblaðið - 12.05.1955, Page 16
Veðurúlii) í dag:
NA-kaldi. Léttskýjað.
106. tbl. — Fimmtudagur 12. maí 1955
j.------
Skógrækt
Sjá blaðsíðu 8.
Kommúmstor stórtapa
i Hreyiilskosninguani
Bergsfeinn Guðjónsscu endurkjörinn formaSur
Fyrsti ésipr kommúnista eftir verkfailið
IGÆRKVÖLDI urðu kunn úrslitin í stjórnarkjöri til Bifreiða-
stjórafélagsins Hreyfils, innan deildar sjálfseignarmanna. Lýð-
ræðissinnar undir forustu Bergsteins Guðjónssonar unnu glæsi-
legan sigur, á sama tíma sem listi kommúnista tapaði tæplega
40 atkvæðum.
Lýðræðissinnar í sjálfseignar-^
mannadeildinni buðu fram til í
stjórnar auk Bergsteins, Friðrik
Guðmundsson og Berg Magnús-
son. Hlaut listi lýðræðissinna 214
atkvaeði, en við síðustu kosning-
ar hlaut listinn 213 atkv.
Það mun vera talandi tákn, að
listi kommúnista fékk 102 atkv.,
en við síðustu stjórnarkosningar
f Hreyfli hlaut hann 139 atkv.
Þykir sýnt að kommúnistar
gjalda nú framkomu sinnar í
verkfallinu mikla.
Er Hreyfill fyrsta verkalýðs-
félagið, sem kosið er í eftir verk-
fallið og gefur það athyglisverð-
ar ábendingar um það að straum-
urinn liggur nú úr röðum komm-
núista.
í vinnuþegadeild Hreyfils var
listi lýðræðissinna sjálfkjörinn,
þar eð kommúnistar komu ekki
lista fram vegna fylgisleysis.
Kuldinn
EKKERT lát er á inni köldu
norðan átt, sem haft hefur í för
með sér meira og minna nætur-
frost um land allt undanfarna
daga. í gærkvöldi klukkan 9, var
frost komið á Norðurlandi og
norðaustur. Var 1 stigs frost þá
á Akureyri og fleiri veðurathug-
unarstöðvum nyrðra og á Raufar-
höfn var 3 stiga frost. Austur á
Dalatanga var 2 stiga frost.
f gærkvöldi var 3 stiga hiti
hér í Reykjavík. Voru horfur
taldar á næsturfrosti hér í bæn-
um.
f gærdag var hitinn hér í
Reykjavík mestur 6 stig. í Ósló
var hitinn 8 stig um hádegið. Á
Solaflugvelli í Stavangn var
snjókoma í gær.
íslenzku flugfé-
lögiu og SAS
ræðast við
Á LAUGARDAGINN kemur
munu í Stokkhólmi hefjast við-
ræður milli íslenzku flugfélag-
anna tveggja og fulltrúa Skandi-
naviska fiugfélagsins, SAS. Er
hér um að ræða fund þann, er
hin sænsk-íslenzka ncfnd mæltist
til að haldinn yrði, cr viðræður
um endurnýjun loftferðasamn-
ingsins milli Svía og ísiendinga
fóru fram hér í Reykjavík.
Frá Flugfélagi íslands taka
þátt í viðræðunum þeir Örn
Johnsen framkvæmdastjóri og
Sigurður Boatthíasson yfirmaður
utanlandsflugdeildarinnar. — Af
hálfu Loftleiða mæta þar: Krist-
ján Guðlaugsson formaður stjórn
arinnar, Alfreð Eliasson fram-
kvæmdastjóri og Sigurður Helga-
son stjórnarmeðlimur.
í '
í Skógræktarstöðinni í Fossvogi. — Á myndinni sjást nokkur
beð með sitkagreni, sem dreifsett var í fyrravor.
— (Ljósm. Ól. K. M.)
órijón af völdu
bruna I Sfykkishólm!
Beinn skaSi vegna brunans talin nema um 400 þús.
IGÆRMORGUN brann til kaldra kola stórt geymsluhús í Stykk-
ishólmi. Voru í því geymd beitingaverkfæri, veiðarfæri og
ýmsar aðrar vörur. Húsið var eign Sigurðar Ágústssonar alþing-
ismanns og útgerðarmanns í Stykkishólmi og er beint tjón af
fcrunanum talið nema um 400 þús. krónur.
Gróður
sölnar
DALVÍK, 11 maí.
S í Ð A N um sumarmál hef-
ur verið hin mesta kuldatíð
hér um slóðir. — Norðan
steytingur með 4—10 stiga
frosti um nætur.
Er gras tekið að sölna, en
tún voru farin að grænka.
Síðastl. nótt snjóaði hér alveg
í sjó fram. — sipjo.
Alhvít jörð á Akur-
eyri í gærmorqun !
AKUREYRI, 12. maí: — Undan«
farið hefur verið hér kuldatíð.
Lítilsháttar var byrjað að grænka
hér um sumarmál, og Ieit þá út
fyrir, að sæmilega ætlaði að vora,
en síðan hcfur verið frost eða allt
að frostmarki hverja nótL. . Fer
gróðri nú ekkert f ram og . frost.
minnkar ekki í jörðu.
Tré voru byrjuð að springa út,
en framför á þeim er engin vegna
kuldanna, f morgun var alhvít
jörð hér á Akureyri og frost unl
2 stig.
í dag hefur verið hér sólskin
en kalsaveður með norðan þétt«
ingsgolu. —Vignir.
Bankahús við
Laugaveginn
Á HORNI Laugavegs og Frakka-
stígs, er nú verið að rífa nokkur
gömul hús, sem víkja eiga fyrir
bankabyggingu, sem Landsbanki
Islands ætlar að reisa á lóðunum
47—49 við Laugaveginn og fyrir
hornið niður Frakkastiginn. Mun
þetta verða allmikið hús. Heimilt
er að byggja fjögurra hæða hús
við Laugaveginn. Þannig mun
verða frá bvggingunni gengið, að
unnt verður síðar að taka undir
gangstéti jjaugavegs, sem svarar
4 m breið? sneið aí lóðinni.
Fiðlusveit barna og
viðkvæmnasta hijóðfærið
SÍÐASTL. sunnudag voru haldnir nemendahljómleikar Laugar-
nesskólans. Gerðust þar þau tíðindi, að fiðluhljómsveit 18
barna í skólanum kom þar fram í fyrsta skipti. Þarna var einnig
•óvenju vel vandaður kórsöngur barna og einnig vakti einleikur
barna á fiðlu og píanó mikla athygli.
FJÖLBREYTT EFNISSKRÁ
Ekki er hægt að rekja hér alla
efnisskrá nemendahljómleikanna,
en hún var fjölbreytt. Kórsöngn-
um stjórnaði Ingólfur Guðbrands
son, söngkennari skólans, en Ruth
Hermanns hefur æft alla hina
mörgu ungu fiðluleikara og bár-
ust henni bióm, sem þakkir fyrir
vel unnið starf.
VIÐKVÆMASTA
HLJÓÐFÆRIÐ
í lok nemendatónleíkanna
ávarpaði Ingólfur Guðbrandsson
áheyrendur. Hann sagði iítillega
frá þeim hætti, sem hafður væri
á söngkennslunni og gat þess, að
af ágóða af slíkum nemendatón-
leikum væri varið m. a. til kaupa
á hljóðfærum fyrir nemendur.
Um söngkennsluna sagði hann
m. a. að barnsröd.din væri mjög
viðkvæmt hljóðfæri, sem gæti
beðið þess óbætanlegt tjón, ef
I henni væri misþyrmt. Kvaðst
hann sjálfur miða sína söng-
kennslu við, að fara mjúkum
höndum um raddir barnanna og
vildi hann ekki þóknast áheyr-
endum með því, að láta þau
syngja hátt. Tónmagnið skiptir
heldur ekki máli, heldur rétt með
ferð í tónvísi.
ÞAKKIR FRÁ FORELDRA-
FÉLAGI
Að lokum tók til máls Friðgeir
Grímsson, sem er í stjórn For-
eldrafélags Laugarnesskólans. —
Mælti hanri nokkur þakkarorð til
barnanna og annarra, sem lagt
hafa sitt fram til að halda slíka
nemendahijómleika. • l
ENGU BJARGAÐ
| Það var um fimmleytið í gær-
morgun, er beitingamenn komu
til starfa í húsið, að þeir sáu
reyk leggja upp úr því. Var þeg-
ar brugðið við og slökkviliðið
kallað á vettvang. Er það kom
á staðinn var mikill eldur kom-
inn í húsið. Ekki reyndist unnt
að bjarga húsinu hé neinu af því,
sem í því var. Töldu menn
það hafa orðið alelda á 10 mín.
Veður var hvasst, og var með
naumindum hægt að verja nær-
liggjandi hús og sprungu rúður
í nokkrum þeirra. Húsin voru
varin með því að breiða vot segl
á þau og vatn látið þar á ganga.
BYGGT 1882
j Hús þetta var gamalt timbur-
hús, 140 ferm. að stærð, byggt
j 1882. Var það tvær hæðir og
ris. Var á neðstu hæð þess beit-
ingastöð. Á miðhæð þess voru
geymd veiðarfæri ýmiskonar,
svo sem net og síldarnætur báta
1 Sigurðar Ágústssonar. í rishæð-
innivoru einnig geymd veiðar-
færi fjögurra báta, auk varnings-
ins á rishæðinni.
Svo sem fyrr segir er beinn
skaði vegna brunans talinn nema
400 þús. kr. Er það svo sem aug-
NATO-fulllrúar
koma í kynnisför
Á LAUGARDAG munu koma
hingað í kynnisför fulltrú-
ar Atlantshafsríkjanna (NATO)
fimmtán. — Þeir koma hingað á
leið sinni vestur um haf í opin-
bera heimsókn til Bandaríkjanna
og Kanada.
Flugvélin, sem flytur fulltrúana,
kemur til Keflavíkurflugvallar
eftir hádegið á laugardaginn. —
Gert var ráð fyrir því, að farar-
stjóri yrði Ismay lávarður, fram
kvæmdastjóri NATO, en vegna
veikina getur hann ekki komið.
Dr. Krist.inn Guðmundsson, ut-
anríkisráðherra mun taka á móti
fulltrúunu'-i á flugvellinum. —
Hingað til Reykjavíkur koma
þeir um kvöidið, og heldur ut-
anríkisráðherra þeim kvöldverð-
arboð í nafni ríkisstjórnarinnar.
Seint á laugardagskvöldið munu
fulltrúarnir halda förinni áfram
vestur um haf.
I lljóst er, geysimikill skaði fyrir
j útgerð Sigurðar Ágústssonar. —
Húsið og verðmæti þess voru vá-
tryggð, en ekki nægilega fyrir
skaðanum.
Krían komin
í Tjarnarliólmann
ÞAÐ var kuldaleg aðkoman í
Tjarnarhólmanum í gærkvöldi
fyrir fyrstu kríurnar, sem þang-
að komu til að taka sér bólfestu
á nýbyrjuðu sumri. Norðangjóst-
ur og aðeins þriggja stiga hiti.
Það var klukkan rúmlega 10,
sem maður einn, sem býr við
Tjarnargötuna, hringdi til Mbl.
og tilkynnti komu þessa harð-
j snúna og einbeitta fugls. Fregn-
ina fékk blaðið síðan staðfesta.
1 Brunaverðir staðfestu hana og
bættu því við að fjórar kríur
væru á sveimi yfir Reykjavíkur-
tjörn. Krían var komin.
Ágúsl aflaði ve!
HAFNARFIRÐI — Togarinn
Ágúst kom núna í vikunni méS
um 290 tonn af ísfiski eftir að
eins 10 daga útiveru. Er þetta
prýðileg veiði, á ekki lengri
tíma. Hann fór aftur á veiðar
í gærkvöldi. — Júní og Júlí eru
á saltfiskveiðum. Surprise og
Bjarni riddari eru væntanlegir
á föstudag og Röðull á mánudag.
Þessir togarar fiska aðallega í ía
og sömuleiðis eitthvað í salt.
Vélbáturinn Stjarnan hefir
fengið um 1350 skippund á ver-
• íðinni, en ekki 1250 eins og sagt
var frá í blaðinu í gær. Hún
er nú um það bil að hætta róðr-
um. —G.E.
Dahríkingar afla vel
DALVÍK, 11. maí — Undanfarn-
ar þrjár vikur hefur ekkert verið
róið vegna ógæfta og beituleysis.
Bátar hafa verið á færaveiðum
með góðum árangri, 2—8 skip-
pund á dag af vænum fiski. Fyrst
framan af var veiðin mest í sund-
inu milli lands og Hríseyjar og
er það einsdæmi. í gær reri héð-
an einn bátur og var með mikinn
afla, 10—12 skippund.
Þórunni Jóhanns-
dóliur fagnað
Orðsending
HÚSFYLLIR var á tónleikum
Sinfóníuhljómsveitarinnar í Þjóð
leikhúsinu í gærkvöldi. Var þeim
feðginunum, Jóhanni Tryggva-
syni, sem var stjórnandi hljóm-
sveitarinnar, og Þórunni, dóttur
hans, sem var einleikari hennar,
tekið með mikilli hrifningu og
ánægju áheyrenda.
Á efnisskránni voru kaflar ÚB
óperunni „Fáráðlingurinn frá-
bæri“ eftir Gustav Holst, píanó-
konsert í a-moll eftir Schumann
og Sinfónía nr. 2 í d-dúr eftir
Sibelius.
frá Bílhappdrætti Sjálfstæðis-
flokksins. — Miðar í bílhapp-
drættinu eru seldir í skrifstofu
Sjálfstæðisflokksins. Skrifstofan
er opin daglega frá kl. 10—12 og
1—6. Pantanir óskast sóttar hið
fyrsta.
Seldir verða aðeins 5000 miðar.
Kaupið miða strax í dag.
Náimkðið í Axels-
BÍLDUDAL, 11. maí: ■— Fyriíl
nokkru var hér á Bíldudal Axel
Andréssor., sendikennari ÍSÍ, Si
vegum íþróttafélags Bíldudals. —«
Dvaldist hann hér í þrjár vikuil
og hélt námskeið, svo nefnt Axela
kerfi, í handboltaleik fyrir stúlk«
ur, en fótboltaleik fyrir pilta,
127 nemendur tóku þátt í nám«
skeiðunum á aldrinum 4—14 ára.
Fjórar sýningar voru haldnar
| hér, áður en Axel hélt suður aft«
ur og var tnikil aðsókn að öllum
sýningunum. —Friðrik. j