Morgunblaðið - 13.05.1955, Síða 1
16 síður
43 árgangur
107. tbl. — Föstudagur 13. maí 1955
Prentsmlðj* Morgunblaðsins
H. C. Andersen
...og Ijófi andarunginn
Ausfurríki verður sjálfstætt
og fullvalda ríki á sunnudag
Fara í austur
....og vestur
WASHINGTON, 11. maí — Frá
rússnesku stjórninni hefur
Bandaríkjastjórn borizt orðsend-
ing, þar sem Rússar bjóðast til
að senda „opinbera" sendinefnd
bænda til Bandaríkjanna i sum-
ar og samtímis taka á móti hópi
bandarískra bænda í Rússlandi.
Blaðafulltrúi Bandaríkjastjórn
ar hefur látið svo um mælt, að
allar líkur bendi til að af þess-
ari skiptiheimsókn bændanna í
austri og vestri verði. Enn er
undirbúningur málsins é frum-
stigi, en að því er unnið að koma
þessari heimsókn á.
Myndin hér að ofan er frá vinnustofu myndliöggvarans George
Lobers. Sézt hann ásamt styttu sem hann hefur gert af H. C.
Andersen og ljóta andarunganum. Stytta þessi verður sett upp í
Central Park í New York.
Strætisvagni velt
— og þá hófst slagur
Óeirðir miklar i Singapoore
ALLT lögreglulið Singapoore var kvatt út í dag vegna óeirða er
þar hafa átt sér stað. Hefur lögreglan gripið til táragass til
að dreifa mannfjöldanum, og lögreglumenn h£ifa fengið skipun
um að nota byssur ef á þarf að halda. Einn lögreglumaður hefur
látið lífið.
Nýi ícisetinn
RÓMABORG, 12. maí. — Gronchi
hinn nýkjörni forseti Ítalíu, neit-
aði í dag að taka til greina lausn-
arbeiðni ríkisstjórnar Scelba.
Afsögn Scelba var förmsatriði,
en það er venja, að þegar nýr
forseti tekur við völdum, biður
stjórnin lausnar frá embætti.
Þótti mikið vafaatriði hver af-
staða forsetans yrði og hætta á
að stjórnin félli á formsatriði
þessu. En þó svona hafi farið
er stjórnin enn í hættu, því
miklar hræringar eru innan
þingsins henni andvígar.
Þá undirrita fjórveldin
triðarsamninga við Austurríki
Vínarbúar syngja
og dansa af gleði
VÍNARBORG, 12. maí — frá Reuter-NTB
ASUNNUDAGINN er þess vænzt, að lokið verði hemámi Aust-
urríkis og að þá muni utanríkisráðherrar fjórveldanna, er átt
hafa her í landinu um árabil, undirrita friðarsamninga við Aust-
urríki og landið þá hljóta fullveldi og sjálfstæði á ný.
Þetta var tilkynnt í dag er „sendiherranefndin“ hafði haldið
sinn níunda fund um orðalag samninganna. Hafa þeir (þ. e.
sendiherrar fjórvtldanna er her eiga í landinu) á fundum þess-
um rætt við utanríkisráðherra Austurríkis. Stóð lengi í stappi
við Rússa, sem heimtuðu séraðstöðu yfir olíunámum í Auet-
urríki.
Fram yann Víking
1:0
* UPPHAFH) <
Óeirðirnar hófust út af verk-
íallij sem þar stendur. Félags-
menn þess sambands er í verk-
falli á, gengu að strætisvagni,
sem í voru nær eingöngu verka-
menn úr öðru sambandi. Veltu
þeir bílnum og þá hófst slagur-
inn, sem síðar dró æ fleiri að,
m. a. mikinn fjölda stúdenta.
Fólk hefur fengið aðvaranir um
að halda sér innan dyra, en lætin
halda áfram þó myrkur nætur-
innar grúfi yfir.
7
-□
Samkomulag í Saar
PARÍS 12. maí — í dag ræddust
þeir við McMillan, utanríkisráð-
herra og Johannes Hoffmann, for
sætisráðherra Saar. Ræddu þeir
um samvinnu Saar og Evrópu-
bandalagsins. Náðist fullkomið
samkomulag, en það verður ekki
birt í smáatriðum fyrr en ýmsir
aðilar hafa kynnst því.
□-
-□
PARÍS, 12. maí. — Frakkar og
Bandaríkin hafa komið sér sam-
an um sameiginlega stefnu í mál-
um Viet Nam. Ekki er hér.um
bindandi samning að ræða, því
fultrúi Viet Nam var ekki við-
staddur umræðurnar.
Samkomulagið er í 7 liðum og
þeir eru þessir í stærstu drátt-
um:
1. Stuðningur við Ngo Dinh
Diem, forsætisráðherra Viet Nam.
2. Að vinna gegn áhrifum
þeirra er vilja koma af stað
óeirðum í Viet Nam.
3. Stuðningur við stjórn Dinh
Diems.
4. Að vinna að framförum í
landinu eftir megni.
5. Bandaríkin reyni að miðla
málum milli Frakklands og
Diems.
6. Frjálsar kosningar 1956.
7. Franski eftirlitsherinn hverfi
úr landi smám saman eftir því
sem þjálfun hins frjálsa hers
Viet Nams miðar áfram.
í GÆRKVLDI léku Fram og
Víkingur í Reykjavíkurmótinu.
Úrslit urðu þau, að Fram sigraði
með 1:0.
* SÖNGUR OG DANS
Á strætum Vínarborgar ómuðu
í dag tónar söngs og gleðiláta er
glaðværir íbúar borgarinnar
fögnuðu fréttunum um að nú
myndi hernáminu lokið. Dans
var stiginn á götunum og gleði
fólksins var innileg.
★ DEILUATRIÐIN LEYST
Vesturveldin stóðu fast á
Hagnaður
í tyrsta sinn
LUNDÚNUM, 12. maí. — Til-
kynnt hefur verið að brezka flug-
félagið BEA hafi á s. 1. ári skilað
rúml. 50 þús. punda hagnaði. Er
það í fyrsta sinn sem hagnaður
verður, en á næsta ári á undan
nam tapið rúml. hálfri annari
milljón punda.
Flugfélagið flytur nú meira en
helming allra þeirra, sem fara
frá Lundúnum til meginlands Ev
' rópu. Vinnur stjórn félagsins nú
! að því að fá byggða járnbraut
frá miðbiki Lundúnaborgar til
flugvallarins.
Sokk í austri
LandvamaráSherra Kína heifir
kínverskum hersluðningi e! með þarí.
VARSJÁ, 12. maí — frá Reuter-NTB
UNDANFARNA tvo daga hafa setið á fundum í Varsjá fulltrúar
átta járntjaldslandanna. var til fundarins boðað í því skyni
að undirbúa gerð gagnkvæms vináttusamnings og til þess að stofna
sameiginlegt herráð þessara landa. Bulganin marskálkur sat sjálf-
ur fund þennan af hálfu Rússa.
því, að ekkert eitt land ætti
að fá sérstöðu í Austurríki, er
það losnaði undan fjötrum
hernámsins. Var þetta deita-
atriði síðan afgreitt með nýrri
grein í samningnum.
Þá tafði það og nokkuð endan-
legt samkomulag hvað verða
ætti um þýzkar eignir í landinu
frá því fyrir stríð. Var þetta
deiluatriði afgreitt með mála-
miðun.
★ MIKILL HAMINGJUDAGUR
Raab, forsætisráðherra Aust-
urríkis, sagði í dag, að sunnu-
dagurinn yrði mikill hamingju-
dagur austurrísku þjóðarinnar,
er endir yrði bundinn á hernám
landsins.
Utanríkisráðherrar Vesturveld
anna koma til Vínarborgar á
morgun (föstudag) og Molotof
kemur frá ráðstefnunni í Varsjá.
Þeir vestrænu munu færa í tal
við hann möguleika á fjórvelda-
ráðstefnu, en þær umræður
verða ekki langar, því hvorki
MaMillan né Dulles geta verið
lengur í Vínarborg en til mánu-
dagsmorgun.
★ TILBÚIÐ ALLT
Frekar litlar sögur fara af þess-
um tveggja daga fundum, og þeir
hafa farið rólega fram. í ræðum,
sem fluttar hafa verið, hefir ver-
ið rætt um málin á breiðum
grundvelli, en ekki nákvæma
samninga í smáatriðum.
En eigi að s ður kom svo í dag,
á öðrum degi ráðstefnunnar,
að lagt var fyrir fulltrúana
fullbúið uppkast að samningi
um stofnun sameiginlegs her-
ráðs. Var það gert á lokuðum
fundi í dag. Þar með var snögg
ur endir bundinn á ráðstefn
una.
UMMÆLI KÍNVERJANS
Sem áheyrnarfulltrúi sat ráð-
stefnuna landvarnaráðherra
Kína. Hann ávarpaði hana þó
og sagði: Kína mun styðja allt
það, sem hér hefur verið sam-
þykkt. Og kínverska alþýðu-
lýðveldið mun, ef nauðsyn
krefur, koma vinum sínum í
Evrópu til hjálpar og berjast
þar til sigur vinnzt II!.
Bordagar
breiðast út
í Vietnam
SAIGON, 11. maí — í dag hófust
enn á ný bardagar milli herja
stjórnar Suður-Vietnam og herja
sértrúarflokksins Binh Xuyens.
Barizt var að mestu utan borg-
arinnar, þar sem herir sértrúar-
flokksins höfðu nokkrum dögum
áður hörfað út á hrísekrurnar og
inn í mangrove-skógana í ná-
grenni Saigon. Hafa þeir komið
sér upp öflugum bækistöðvum
utan við borgina. Mikið mann-
tjón mun hafa orðið í bardögun-
um í dag, og varð stjórnarherinn
skjótt að senda eftir liðsauka. Er
myrkrð skall á var enn ekki ljóst,
hvor hafði betur.
Óstaðfestar fregnir herma, að
Bacut, foringi Hoa-Hao sértrúar-
flokksins, hafi hertekið borgina
Mytho, sem liggur í 56 km fjar-
lægð frá Saigon. Bacut hóf árásir
sínar á borgina á mánudagskvöld.
Fréttir herma einnig, að herir
Hoa-Hao hafi ráðizt á bæinn
Sadec 120 km suð-vestur af Sai-
gon. —tReuter-NTB.