Morgunblaðið - 18.05.1955, Side 1
16 síður
12 árfangnr
111. tbl. — Miðvikudagur 18. maí 1955.
PrentsmlStya Morgunblaðsins
Helgi Benediktsson dæmdur í
250 Jbús. kr. sekt og til jbess oð
skila 130 Jbús. kr.
ólöglegum hagnaöi
Var dæmdur fyrir verðlagsbrot,
rangar skýrslur, gjaldeyrisbrot o. //.
IGÆRDAG gekk dómur í hinu umfangsmikla máli, sem
ákæruvaldið höfðaði gegn Helga Benediktssyni útgerð-
armanni í Vestmannaeyjum. Var Helgi dæmdur til greiðslu
fjórðungs milljónar króna í sekt til ríkissjóðs og gert að
greiða upptækan ólöglegan ágóða sinn kr. 131.782,85 ásamt
6% ársvöxtum frá 1. júlí 1950, en sú upphæð lætur nærri
að vera kr. 38.200.00. Loks var ákærða gert að greiða allan
sakarkostnað kr. 61.200.00. Með dómi þessum er Helga Bene-
diktssyni alls gert að greiða um kr. 480.200.00 í sekt, til
greiðslu á ólöglcgum hagnaði og í málskostnað.
Stjórnin féll
á 2 atkv.
HAAG, 17. maí — Hollenzki for-
sætisráðherrann, sósíalistinn W.
Drees, afhenti Júlíönu drottningu
lausnarbeiðni sína í kvöld. Sigldi
afsögnin í kjölfar ósigurs, sem
Framh. á bls. 2
Vinnudeitan í Danmörku
Gerðardómstóll
vísaði kröfu
launþeganna frá
-fc Taldi hana brjóta í bág vi$ þjéðarhag
Kaupmannahöfn 17. maí. — Frá NTB.
'RÖFU dönsku landbúnaðarverkamannanna um styttingu
vinnutímans úr 9 tímum í 8 á dag yfir sumarmánuðina
var í dag hafnað af opinberum gerðardómstól.
K'
UMFANGSMIKIÐ MAL
Dómur i málinu er á annað
hundrað vélritaðar folíósíður.
Málsskjölin eru tæplega þrjú
þúsund blaðsíður, auk nokkurra
kassa af bókhaldsgögnum. Rann-
sókn málsins hófst 22. júlí 1948.
SAKARATRIÐI
Helgi Bcnediktsson er sak-
felldur fyrir, að flytja inn
fjölda vara án tilskilinna inn-
flutningsleyfa, að hafa hafið
sölu á þeim áður en lögmæt
aðflutningsgjöld voru greidd
og selt eða ráðstafað þeim, án
þess að leita staðfestingar
verðlagsyfirvalda á útsölu-
verði. Þá er ákærði sakfelld-
ur fyrir að hafa skýrt trúnað-
armanni verðlagsstjóra rangt
frá um tiltekin atriði og Gjald
eyriseftirlitinu um ráðstöfun
sína á gjaldeyri. Ennfremur
er hann talinn hafa ráðstafað
samtímis rúmlcga 22 þúsund
sterlingspundum á ólögmætan
hátt, en sök varðandi tæp 9
þúsund pund af þvi var fyrnd.
Þá er ákærði sakfelldur fyrir
að hafa selt ýmsan varning
of háu verði, ólöglegur ágóði
kr. 131.782,85 gerður upptæk-
ur, en tekið tillií, við ákvörð-
un fésektar. til annars mikils
Ákærði greiði ríkissjóði upp
tækan ólöglegan ágóða, kr.
131.782.85 ásamt 6% ársvöxt-
um frá 1. júlí 1950 til greiðslu-
dags, innan 15 sólarhringa frá
birtingu dóms þessa.
Ákærði greiði allan sakar-
kostnað, þar með talin máls-
varnarlaun skipaðra verjenda
sinna, Sigurðar hrl. Ólafsson-
ar kr. 60.000.00 og Jóhannes-
Kosningaharátfan í Bretlandi:
ChurchUl
kominn á vettiang
Rúmlega 1400 frambjóðendur i kjöri
S1?
Lundúnum 17. maí. — Frá Reuter-NTB.
IR WINSTON CHURCHILL hóf þátttöku í kosningabaráttunni
Bretlandi í dag. Hélt hann ræðu í dag og var ákaft fagnað.
Hann sagði þar m. a., að líkurnar fyrir því að á kæmist fjórvelda-
ráðstefna er bæri gifturíkan ávöxt ykust stöðugt eftir því hve
hinar frjálsu vestrænu þjóðir yku samstarf sitt.
AKAFT HYLLTUR
Það var ausandi rigning
ar hdl. Elíassonar kr. 1200.00. Bedfordshire þar sem
Rússar bjóða Júgd-
slöfum efnahagshjdlp
Liklegt oð Júgóslafar þiggi
ef skilyrðin eru sanngjörn
Belgrad 17. maí. — Frá Reuter-NTB.
ÞAÐ MÁ telja fullvíst, að Júgóslafar muni þiggja rússneska
efnahagshjálp í ríkum mæli, svo framarlega sem rússneska
sendinefndin með Kruchev í broddi fylkingar setur Júgóslöfum
ekki því óaðgengilegri skilyrði fyrir slíkri hjálp. Þetta er álit vest-
rænna stjórnmálamanna í Júgóslafíu.
I maðurinn talaði, en þúsundir
í! manna komu á kosninga-
áttræði, fundinn til að hylla hann.
— Hann lýsti ánægju sinni
með það sem áunnist hefði
í undirbúningi að fjórveldaráð-
stefnu. Hann kvaðst alltaf hafa
unnið að því að slík ráðstefna
kæmist á, en jafn ákveðinn hefði
hann verið í því, að hún skyldi
ekki fara fram ef Vesturveldin
gætu þar ekki staðið sameinuð í
afstöðu til mála.
ÞEIRRA ER HUGMYNDIN
Sem kunnugt er kemur rúss-
ólöglegs ágóða, sem ekki varð nesk sendinefnd til Júgóslafíu
tölulega sannreyndur. Loks er undir áðurnefndri forustu. Voru
ákærði sakfelldur fyrir stór- það Rússar sjálfir, sem eiga hug-
fellda óreglusemi í bókhaldi. myndina að því að slíkur við-
ræðufundur milli Júgóslafa og
Rússa fari fram.
Ákærði var sýknaður af mörg-
um ákæruatriðum, þar á meðal
fyrir bókhaldsfærslur í blekk-
ingarskyni.
DOMENDUR
Dóminn kváðu upp Einar Arn-
alds, borgardómari, sem var fal-
ið málið með sérstakri umboðs-
skrá og meðdómendurnir Ást-
bjartur Sæmundsson, verðlags-
dómsmaður og Sveinbjörn Þor-
björnsson, löggiltur endurskoð-
andi.
Dómsorð yfir Helga Benedikts-
syni hljóða svo:
Ákærði, Helgi Benediktsson,
greiði Kr. 250.000.00 í sekt til
ríkissjóðs, og komi varðhald
í tólf mánuði í stað sektarinn-
ar, verði hún eigi greidd inn-
an 4 vikna frá birtingu dóms
þessa.
★ SKILYRÐIN
^ Ennþá er óljóst hvað veldur
þessari skyndilegu umhyggju
:# Rússa í garð Júgóslafa og í
þeim efnum eru getgátur ein-
ar á lofti. Þó þykir af ýmsu
mega ráða, að Rússar vilja
reyna að fá Júgóslafa til að
lýsa því yfir með sér, að eitt-
hvað sé hæft í hjali þeirra um
„samtilveru" í Evrópu, þ. e.
að kommúnisminn og kapital-
isminn geti lifað saman í álf-
unni. Að Júgóslafar lýsi yfir
að kenning Nehrus fyrir frið-
samlegri „samtilveru" í Evr-
ópu sé rétt, en einmitt þá skoð
un aðhylltist Tito er hann var
á ferðalagi sínu í Indlandi.
^ Þá er og búist við, að Rússar
vilji aftur koma á sambandi
milli kommúnistaflokka Júgó-
slafíu og Rússlands, þó þeir
muni æskja að það samband
verði takmarkað.
★ HANN ER KAMELLJÓN
Attlee, formaður Verka-
mannaflokksins, talaði í Edin-
borg. Hann vék þar að ummæl-
um Churchills um sig, sem voru
á þá leið að hann (Attlee) væri
hræddari við vinstri arm flokks
síns en íhaldsflokkinn. — Lýsti
Attlee Churchill sem manni í
líki kamelljóns.
í kvöld er framboðsfrestur
rann út í Bretlandi höfðu rúm-
lega 1400 menn tilkynnt framboð
sitt.
FORSAGA MÁLSINS
\ Eins og menn muna gerðu 3000
danskir verkamenn á bændabýl-
um verkfall í aprílbyrjun og
kröfðust styttri vinnutíma. Stór-
búa eigendur svöruðu með verk-
banni sem náði til 70 þúsund
landbúnaðarstarfsmanna. — Kom
deilan fyrir danska þingið og var
ákveðið að láta gerðardóm kvéða
upp dóm í málinu. Hann liggur
nú fyrir með áðurnefndum úr-
slitum.
k TAP FYRIR ÞJÓÐINA
I úrskurði dómsins er þáð
viðurkennt að stytting
vinnutímans úr 9 stundum
í 8 myndi hafa í för með
sér þýðingarmikla bót fé-
lags- og menningarlegs
eðlis. En á hinn bóginn seg-
ir dómstóllinn, að úrslita-
áhrif hljóti efnahagsaf-
koma danska ríkisins að
hafa svo og gjaldeyris-
skortur sá sem Danir hafa
átt við að búa. Stytting
vinnutímans hlyti að hafa
í för með sér minnkandi
landbúnaðarframleiðslu og
þar með tjón fyrir þjóðar-
búið.
* r
★ MINNIHLUTAALIT
Frávísun kröfunnar var ekki
dómur meirihluta dómsins, held-
ur var gerðardómurinn marg-
skiptur, en þetta var álit stærsta
minnihluta hans.
Sænskir blaðamenn heimsækja forsefann
Undanfarna daga hafa sex sænskir blaðamenn verið hér í boði Flugfélags íslands. í gær heimsóttu
þeir forsetann í skrifstofu hans í Alþingishúsinu. Myndin hér að ofan var tekin við það tækifæri.
Á henni eru, talið frá vinstri: Gísli Guðmundsson, er var leiðsögumaður þeirra í gær, B. Öste frá
Svenska Dagbladet, S. Nordfeldt frá Aftonbladet, P. Ragnarsson frá Stockholms Tidningen, Ásgeir
Ásgeirsson forseti, S. Jansson frá Dagens Nyheter, M. Berggren frá Radiotjánst, B. Ibring frá Morgon-
tidningen og Njáll Símonarson, fulltrúi Flugfélags íslands. — Ljósm. V. Sigurgeirsson.