Morgunblaðið - 18.05.1955, Side 16

Morgunblaðið - 18.05.1955, Side 16
Veðurúliiiídag: Hæg, breytileg átt. Smá skúrir. 111. tbl. — Miðvikudagur 18. maí 1955. Samfal við söngvarann Dieskau. Sjá bls. 9. Sakadómara falin léítar- rannsókn í máli Ingimars Jónssonar skólastjóra MORGUNBLAÐIÐ hefur leitað upplýsinga í menntamálaráðuneytinu um hvað líði athugun á fjárreið- um Gagnfræðaskóla Austur- bæjar. Segir ráðuneytið, að það hafi um nokkurt skeið haft ástæðu til að ætla, að misfellur ættu sér stað í sam- bandi við meðferð fyrrv. skólastjóra á fjármunum skól- ans og þá beðið endurskoðun- ardeild fjármálaráðuneytisins og námsstjóra gagnfræðastigs- ins að endurskoða fjárreiður stofnunarinnar. Hinn 10. þ. m. hafi ráðu- neytinu borizt skýrsla endur- skoðunardeildar fjármálaráðu neytisins og hafi dómsmála- ráðuneytið með bréfi dagsettu sama dag verið beðið að iáta fara fram réttarrannsókn i málinu. Hefur sakadómurinn í Reykjavík fengið máiið til meðferðar. Af þessu er það augljóst, að blað kommúnista fer í gær með þvætting einan og blekk- ingar, er það staðhæfir, að dómsmálaráðherra eða ráðu- neyti hans hafi óeðiiiegan hátt á í sambandi við meðferð máis þessa. Jafnskjótt og skýrslur réttra aðila lágu fyrir um mál- ið óskaði menntamáiaráðu- neytið réttarrannsókn í því. Þá ' réttarrannsókn fól svo dómsmálaráðuneytið sakadóm aranum í Reykjavík að fram- kvæma. Sex gamlir logarar höggnir upp í Danmörku og Brellandi Aðeins einn verður þá eftir ANÆSTUNNI munu sex hinna gömlu togara fara í sína hinztu siglingu til Danmerkur og Bretlands, þar sem þeir verða ^’höggnir upp. Mun þá ekki vera nema einn eftir hinna gömiu tog- FYLLTIR ’ MEÐ BROTAJÁRNI Það er Guðmundur Kolka, sem keypt hefur þessi gömlu skip. 'lHefur hann undanfarna mánuði 'tmnið að því að fylla þau hvert 'áf öðru af brotajárni. Hann hefur ’ sem kunnugt er safnað brotajárni í mjög stórum stíl. Um skeið var 'hann t. d. með togara hér úti á ytri höfninni, þar sem hann náði 'tipp allmiklu af legufærum. í síðasta mánuði, er verkfallið : Stóð yfir, var áformað að brota- : járnsskipin yrðu dregin út. Við 'það varð að hætta, en á morgun ' «ða föstudag er væntanlegur stór 'dráttarbátur frá Hollandi, sem fara mun með 3 í eftirdragi til Danmerkur. HAFA SAMFLOT Fjórir þessara togara liggja nú vestur við Ægisgarð og hafa leg- ið þar um langt skeið, en þeir ‘ eru: Skallagrímur, Þórólfur og ÍHöfðaborg, sem væntanlega 'munu hafa samflot yfir hafið til Danmerkur um helgina. Vestur ! við Ægisgarð er einnig Tryggvi ■ igamli, sem sóttur var inn á Kleppsvík í fyrradag. Suður í Hafnarfirði á togaralegunni ligg- tir svo Maí, og Faxi inni á Eiðs- vík. Þessir togarar munu verða 'dregnir til Bretlands síðar. Ráðgert er að þegar dráttar- háturinn leggur af stað með tog- árana þrjá, þá verði á hverjum þeirra fjórir menn, til þess að hafa eftirlit með dráttartaugum og öðru. ENDURMINNINGAR VAKNA Þegar þessir gömlu togarar fara í sína hinztu siglingu, vakna án efa í brjóstum margra togara- sjómanna cndurminningar frá lengri eða skemmri sjómennsku á þessum skipum á tímum friðar og ægilegra ófriðarára. Hversu miklu fiskmagni skyldu þau vera þúin að landa? T. d. Skallagrím- ur, er Guðmundur heitinn Jóns- son var aflakóngur á honum og í áraraðir var Skallagrímur með aflahæstu togurunum. Nú er eftir aðeins einn hinna gömlu togara, og er það Venus f> á Hafnarfirði. Forföl! í Reykjavík- urliðinu - Nýir menn ALLMIKLAR breytingar hafa átt sér staíi á úrvalsliði Reykja- víkur, ser.i leikur gegn Akranes- meisturunum á fimmtudaginn. — Reykjavíkurliðið verður þannig: Markvörður: Ólafur Eiríksson, Vík. Bakverðir: Hreiðar Ársæls- son, KR og Árni Njálsson, Val. Framverðir: Reynir Karlsson, Fram, Haukur Bjarnason, Fram og Hörður Felixson, KR. Fram- herjar: Sigurður Bergsson, KR, Gunnar Guðmannsson, KR, Þor- björn Friðriksson, KR, Hörður Felixson, Val og Sigurður Sig- urðsson, Val. Leikurinn hefst kl. 4.30 e.h. Forráðamcim mnlánsstofiiaea á fundi Á LAUGARDAGINN hefst hér í Reykjavík fundur forráðamanna allra bankanna O'g sparisjóðanna í landinu. Er hér um að ræða framkvæmd á þeírri tillögu nefndar þeirrar er fjaílaði um ráðstafanir til þess að auka sparn að í landinu. Nefndin sem skilaði áliti sínu í september síðastl. gerði það m.a. að tillögu sinni að komið yrði á fót samvinnunefnd banka og sparisjóða í landinu, til að vinna að slíkum málum svo og öðrum sameiginlegum hagsmunamálum innlánastofnananna. Á þessum fundi, en hann munu sitja alls milli 30—40 forráða- menn innlánsstofnana af öllu landinu, verður fjallað um til- lögur sparifjárnefndar og ef til vill gengið frá stofnun samvinnu- nefndar þeirrar, sem minnzt var á hér að ofan. — ★ — Það var viðskiptamálaráðherra Ingólfur Jónsson, sem skipaði nefnd þessa, en í henni áttu sæti Jóhann Hafstein bankastjóri, Þórhallur Ásgeirsson skrifstofu- stjóri, dr. Jóhannes Nordal hag- fræðingur, Haukur Þorleifsson bankafulltrúi og Jón Sigurbjörns son bankafulltrúi. Gamla pakkhúsið brennur , Fyrir nokkru brann „gamla pakkhúsið” í Stykkishólmi. Þetta er gömul timburbygging og varð ekkert ráðið við eldinn. A. m. k. þrjú hús í nágrenninu voru í hættu, þar sem vindur stóð beint á þau, en tókst að verja þau með blautu segli. — Myndina af brun- anum tók Sigurður Helgason, kennari í Stykkishólmi. — (Ljósm. Ól. K. M.) Góðri vertíð í Sandgerði mun Ijúka senn ! Kuldabyl&jan loks gengín hjá KULDAKASTIÐ er loks gengið hjá. Veðurstofan skýrði blaðinu svo frá í gærkvöldi, að í dag myndi veður fara hlýnandi um land allt, og myndi bjart veður verða um land allt nema suð- vesturland, en þar myndi sem í öðrum landshlutum verða hæg- viðri. Engir munu fagna þessum tíð- indum meir en bændur, einkum þó á Norður- og Austurlandi, þar sem mikill snjór er yfir öllu, en hin sterka vorsól mun fljótlega bræða þennan snjó, ef ekki bregð ur til kulda á ný. í gærdag var- hlýjast hér á landi í Síðumúla í Borgarfirði, þar sem hitinn komst upp í 10 , stig. Á Norður- og Austurlandi | var hitinn víðast hvar 1—5 stig, en var klukkan 6 í gærkvöldi 0 stig í Grímsey og á Grímsstöðum á Fjöllum. Þar nyrðra mun enn hafa verið frost í nótt er leið, en j hér um syðri hluta landsins var búizt við frostlausu veðri í nótt. Sandgerði, 16. maí. VERTÍÐ fer senn að ljúka hér, en aflinn hefur verið ein- staklega góður og er nú alls tæp- lega 11,500 lestir. Er það hvorki meira né minna en rúmlega 3500 lesa meiri afli en um sama leyti í fyrra. Dagana 1.—15. maí var ágætur afli hjá bátunum og lönduðu þeir alls 1076 lestum. Hæstur afli í róðri var hálf ellefta lest, sem Víðir kom með úr róðri hinn 5. maí. HÆSTU BÁTARNIR Hæsti báturinn hér er nú með 930 lesta afla og er það Muninn II., en var um miðjann maí í fyrra með 726 lestir. Annar hæsti báturinn er Víðir í Garði með 921 lesta afla á móti 757 lesta afla í fyrra. Þriðji hæsti er Pét- ur Jónsson frá Húsavík með 882 lestir á móti 833 lestum í fyrra. EKKIVERKFALL Það tókst að forða verkfalli hér, þar eð samningar tókust á ' sunnudagsmorguninn, eftir nær 1 hvíldarlaus fundahöld frá því klukkan 5 á laugardaginn. Var samið fyrir verkamenn upp á sömu kjör og í Reykjavík. Nýir samningar voru ekki gerðir fyrir verkakonur og verða þeir látnir bíða samninga við verkakonur 2 Keflavík, sem nú standa yfir. — Axel. Vorbati? UM kl. 8 í gærkvöldi gerði snögg- lega skúr um Reykjanesið og næsta nágrenni. Var þessi væta kærkomin fyrir þurra og skrælnaða jörðina eftic hinn langvinna norðan þurra- storm, sem verið hefur og frost- nætur. Enda lagði að vitum manns sterkan gróðrarilm frá Austurvelli. Manni fannst að þessi regnskúr hlyti að vera fyr- irboði vorbata, eftir svo kalda vordaga. Fóstbræðrum frá- bærlega vel tekið IKVÖLD er þriðji og síðasti samsöngur Fóstbræðra í Aust- | urbæjarbíói. Kórnum hefur verið ; frábærlega vel tekið á þeim ! tveim söngskemmtunum, sem j hann hefur haldið, enda eru við- j fangsefni kórsins nú nýstárleg, ! m.a. óperuflutningur með 6 ein- söngvurum, körlum og konum. — Söngstjóri er Ragnar Björnsson. Þetta er tunnu-báturinn, sem drengurinn fór á fyrradag, og lögreglan var beðin að eita. — heldur á „árinni“. — Skipið hafði drengurinn út á Elliðaárvog í Lögregluþjónninn sjáifur smíðað og sýnt við það mikla hugkvæmni og vandað sig eftir föngum. Múrarðfélag Hahtar- fjarðar stofnað HAFNARFIRÐI — Nýlega var stofnað Múrarafélag Hafnarfjarð- ar. Stofnendur eru 11 talsins, og í fyrstu stjórn voru kosnir Sigurð- ur Árnason formaður, Einar Sig- urðsson ritari og Guðni Stein- grímsson gjaldkeri. — Félagið er hvort tveggja meistara- og sveinafélag. — Samþykkt var á fundinum að vinna einungis eftir ákvæðisvinnutaxta félagsins. —G. E. Strand Kin^ Sol rannsakað THE FISHING NEWS skýrði frá því, að samgöngumálaráðherrann brezki, hefði ákveðið að láta fram fara rannsókn á því með hverj- um hætti togarinn King Sol strandaði á Meðallandsfjörum. Getur blaðið þess að Hamar h.f. hafi tekið að sér að bjarga tog- aranum út aftur og séu menn vongóðir um að í þessum mán- uði muni takast að bjarga skip- inu. Orðsending frá Bílahapndrætti Sjálfstæðisflokksins SÖKUM mikillar eftirspurnaB eftir miðum, eru þeir, sem vilja Vyggja sér sérstök númer, beðn- ir að panta þau sem fyrst og ekki síðar en á miðvikudag. Miðarnar eru seldir í skrifstofu Sjálfstæðisfiokksins. Skrifstofan er opin í dag frá kl. 9—12 og 1-6. ^

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.