Morgunblaðið - 19.05.1955, Page 8

Morgunblaðið - 19.05.1955, Page 8
MORGUNBLAÐIÐ Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjóri: ValtýT Stefánsson (ábyrgCarm.) Stjórnmálaritstjóri: Sigurður Bjarnason frá Vigw. Lesbók: Árni Óla, sími 3045. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla: Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald kr. 20.00 á mánuði innanlanda. I lausasölu 1 krónu eintakið. Tveir dómcr, musterisriddarinn og milliliðirnir Batnandi veðnr nyrðra en þar er enn kalt í veðri í fyrrinóll 4—7 stiga frost ÞÓ að kvenþjóðin i Reykjavík hafi í gær getað tekið fram dragtír sínar og sumarkápur á ný eftir norðan garrann, þá var enn í mjög kalt í veðri á Norðurlandi. Þar var norðan kul og hreinviðri í gær, en þrátt fyrir það vann sólin lítið á fönninni. Þar var tölu- vert næturfrost í fyrrinótt og horfur á að enn myndi frysta í nótt er leið. Á HÖFÐASTRÖND UNDANFARIN ÁR hefur aðal- málgagn Framsóknarflokks- ins, Tíminn, eytt miklu af dag- legu rúmi sínu til þess að verja tvö fyrirtæki, sem legið hafa undir ákærum réttvísinnar fyrir óíögmæta verzlunarhætti. Þessi fyrirtæki eru Olíufélagið li.f., sem er eitt af dótturfyrirtækjum Sambands íslenzkra samvinnu- félaga, og Helgi Benediktsson kaupmaður og hóteleigandi. Tíminn hefur ekki aðeins varið allt atferli þessara aðila í líf og blóð. Hann hefur jafn- framt hellt óbóta skömmum yfir Bjarna Benediktsson dómsmálaráðherra fyrir að hafa gegnt þeirri frumskyldu sinni, að láta lög og réttar- reglur ganga jafnt yfir alla og líða ekki stórfelld verðlags- brot vegna þess eins að Tíma- menn krefjast þess að þeir séu „stikkfríir“ gagnvart lands- lögum. Hæstaréttardómur hefur nú gengið í máli Olíufélagsins h.f. Hefur það verið dæmt til þess að skila aftur 1,1 millj. kr. ólög- legum hagnaði sínum. Jafnframt voru forráðamenn þess dæmdir í stórsektir. Er hér um að ræða stærsta verðlagsbrotamál, sem um getur hér á landi. í fyrradag var svo felldur und- irréttardómur í máli Helga Bene- diktssonar. Er hann dæmdur til að greiða fjórðung millj. kr. í sektir til ríkissjóðs. Ennfremur ber honum að greiða rúmlega 131 þús. kr. ólöglegan hagnað ásamt 38 þús. kr. vöxtum af þeirri upp- hæð. Loks er hann dæmdur til þess að greiða 61 þús. kr. í sak- arkostnað. Helgi Benediktsson er sak- felldur fyrir að hafa brotið gjaldeyrislög og verðlags- . ákvæði, gefið trúnaðarmanni verðlagsstjóra rangar upplýs- ingar og fleiri brot. Höfðu heilan stjórnmála- flokk að bakhjarli E N G U M sanngjörnum manni kemur til hugar að halda því fram, að stjórnmálaskoðanir manna ráði yfirleitt afstöðu þeirra til laga og réttarreglna. Menn úr öllum flokkum gerast segir um brot á einstökum lögum og reglum. Hitt er fátítt, að heilir lýðræðisflokkar snúist til varnar stórfelldum afbrotum, jafnvel þótt í hlut eigi samherjar þeirra og fjársterkir stuðningsaðilar. En þetta hefur hent Tímann. Hann hefu- ekki aðeins varið hið stórfellda verðlagsbrot Olíufélagsins heldur hefur blaðið lýst yfir því, að dómur hæstaréttar í máli þess væri rangur. Tíminn hefur jafnframt slegið skjaldborg um hið marg brotna brask og óreiðu, verð- lagsbrot og gjaldeyrissvindl, sem Helgi Benediktsson hefur nú verið dæmdur fyrir. j Almenningur á íslandi hefur verið vitni að því mörg undan- farin ár að aðalmálgagn næst stærsta stjórnmálaflokks þjóðar- innar hefur verið notað til þess að verja og breiða yfir stórfelld verðlagsbrot, gjaldeyrisbrask og spiliingu. Barátta Tímans gegn ÞANNIG er þá barátta Tíma- manna gegn „milliliðunum“ í verki. Það er sannarlega engin furða þótt þessir menn þykist vera hinir einu og sönnu must- erisriddarar í baráttunni gegn okri og spillingu í viðskiptamál- um!! | Nei, sannleikurinn er sá, að vörn Tímans fyrir verðlagsbrot Olíufélagsins og gjaldeyrisbrask og óreiðu Helga Benediktssonar sannar það eftirminnilega, að al- menningur getur ekkert traust sett á þetta málgagn Framsókn- arflokksins þegar um er að ræða velsæmi í viðskiptamálum. Tím- inn hefur tekizt það hlutverk á hendur, að verja hvers konar sukk og óreiðu, ef hans eigin samherjar eiga hlut að máli. Það sannar framkoma hans í fyrr- greindum málum. Óhætt er að fullyrða, að fjöldi bænda og heiðarlegra manna í Framsóknarflokknum séu mjög undrandi á þessu framferði Tím- ans. En stjórnendur hans hafa einu sinni tekið þá stefnu að hafa oftast það heldur sem ósann- ara reynist. Það sést t. d. mjög greinilega s.l. sunnudag þegar blaðið heldur því fram í heilsíðu- grein, að aðeins þau ráðuneyti, sem Framsóknarmenn stýra í nú- verandi ríkisstjórn komi nokkru gagnlegu í framkvæmd. Bendir Tíminn í því sambandi á raf- orkumálin og húsnæðismálin. Hver einasti maður, sem eitt- hvað er kunnugur þessum mál- um veit, að Sjálfstæðismenn hafa vissulega ekki síður en Fram- sóknarmenn unnið að fjáröflun vegna væntanlegra raforkufram- kvæmda og húsnæðisumbóta, enda þótt þessir málaflokkar heyri undir ráðuneyti Framsókn- armanna. Vill Tíminn kannske halda því fram, að ráðherrar Sjálfstæðisflokksins hafi þar hvergi nærri komið? Sjálfhælnin horgar sig ekki TÍMINN hefur undanfarið gengið svo langt í grobbi sínu og sjálf- hælni, að hann er orðinn að við- undri meðal hugsandi manna um land allt. Eitt frægasta dæmið um raup blaðsins er það, að það hélt því blákalt fram, að Eiríkur Þorsteinss. hefði verið aðalfor- göngumaðurinn um eflingu Fisk- veiðasjóðs á síðasta þingi. En sannað er að þessi þm. tók aldrei til máls í málinu á þessu þingi. Það er auðvitað skiljanlegt, að Tíminn vilji gjarnan hressa upp á fylgi þingmanna sinna í kjör- dæmum þeirra, sérstaklega ef grunur leikur á að þeir standi höllum fæti. En oflof og taum- laust sjálfshól, sem enga stoð á í raunveruleikanum verður eng- um til gagns. Því fer víðsfjarri. Hinir tveir dómar í málum Olíufélagsins og Helga Bene- diktssonar ættu að verða til þess að Tíminn sæi að sér, hætti að standa vörð um verð- lagsbrot og önnur lagabrot, sem framin eru af einstakling- um eða fyrirtækjum, sem hann telur skyld flokki sín- um. Honum kynni þá að verða eitthvað betur til liðs í kross- ferð sinni gegn „milliliðunum“ í landinu!! Þó að hér hafi brugðið nokkuð til hins betra í gær og í dag, þá 1 er það þó sannast mála, að vetur er enn í bæ, sagði fréttaritari I blaðsins að Bæ á Höfðaströnd, í gær. | Mikil fönn er hér þótt skaf- heiðríkur himinn sé og glamp- andi sólskin allan daginn, tekur snjóinn lítið upp í sólbráðinni, því að svo svalt er á daginn og mikið frost um nætur. Síðastliðna nótt var hér 7 stiga frost. Skepnur eru hér allar á gjöf. Það hefur nú komið á daginn, sem óttast var, að kindur myndu hafa drepizt, því að nokkrar vantar. Eins hafa folöld króknað í fönn, er hryssur hafa kastað í hríðinni. Það eru allar horfur á því að enn verði í nott talsvert frost, því að kul er af norðri og svalt veður. AKUREYRI Á Akureyri hefur verið hrein- Andóf i Eftirfarandi grein birtist í síðasta tölublaði Sjómanna- blaðsins „Víkings". Er hún vissulega þess virði að henni sé gaumur gefinn: ÞAÐ hafa mörg orð fallið í sam- bandi við útvíkkun landhelg- innar. Við, sem erum íslendingar, þekkjum að sú ákvörðun var rétt. Lífsnauðsyn íslenzkri framtíð og raunhæf fyrir alla aðila. Ég vil því ekki staglast á eða bæta við ummæli um landhelgina umfram það, að okkur tilheyrir land- grunnið utan um hólmann, og ef 1Jefvalz andi Árifar: Dýrkeyptar veitingar. IBRÉFI frá ferðamanni segir: „Fyrir skömmu var ég á ferða lagi austur um sveitir og staldr- aði stundarkorn við á Selfossi. Ég og maður, sem með mér var fórum þar inn á veitingaskála einn, Tryggvaskála, til að fá eitt- hvað í svanginn. Keyptum við | okkur þar fjórar smurðar brauð- sneiðar með áleggi og tvær pylsner-flöskur (með glerinu). Þegar að reikningsskilunum kom, rak okkur satt að segja í roga- stanz, er okkur var sagt, að við ættum að borga 50 krónur fyrir þetta, sem ég hefi talið upp — fjórar brauðsneiðar og tvo pylsnera. Hvernig gat þetta stað- izt? Okkur ofbýður verðið á hlut- lunum hér i Reykjavík, en ég fer I nú að halda, að staðir utan höfuð- \ borgarinnar séu engir eftirbátar 'i okrinu — eða er hægt að kalla , slíkt verðlag öðru nafni? Ég vildi geta þess, að þetta smurða brauð var á engan hátt sérlega gott, t. d. var það smurt með smjör- líki! á tveimur sneiðunum voru harðsoðin egg, heldur naumlega út i látin, og ekkert annað, en á hinum tveimur var steikar-sneið með mjög svo fátæklegu græn- meti ofan á. — Okkur fannst þetta verðlag því með öllu ó- skiljanlegt og óréttlætanlegt. Ferðamaður." Ósamræmi í verðlagi. JÁ, þetta hafa óneitanlega verið anzi dýrkeyptar veitingar i þarna á Selfossi, en því miður mun umræddur veitingaskáli engin undantekning. Það er dag- 1 legur viðburður, að fólk reki í rogastanz yfir reikningum, sem fara fram úr öllu, sem það hafði ímyndað sér og kemur öldungis flatt upp á það. Þetta ósamræmi , í verðlagi frá einum stað til ann- ars, jafnvel frá einni síofnun til annarrar á sama stað, kemur ó- þægilega við almenning og vekur eðlilega óánægju og tortryggni. Þetta virðist eiga við ekki hvað sízt um alls konar veitingasölu. Það er varla, að nokkuð komi þar lengur flatt upp á menn. Einnig rekur fólk sig margsinnis á að verðlag á vörum hér í Reykja vík er stundum furðulega mis- munandi frá einni verzlun til annarrar og er eðlilegt að fólk dragi þær ályktanir, að hér sé skýringin engin önnur en óhæfi- leg álagning einstakra kaup- manna. Reynsla nemanda. BRÉF frá nemanda, sem ég fékk fyrir skömmu ber að sama brunni. Hann var á skóla- ferðalagi með félögum sínum um 30 saman norður í land. Eins og við má búast urðu þau að nema staðar öðru hvoru á svo langri leið til að neyta matar og drykkj- ar á hinum ýmsu greiðasölustöð- um, sem á vegi þeirra urðu. „Á öllum stöðunum" — segir hann í bréfinu — borguðum við 10 kr. fyrir kaffi og kökur og 20 krón- ur fyrir máltíð, nema á einum stað, þar var verðið 18 krónur fyrir kaffið og 25 krónur fyrir matinn, saltkjötssúpu. Okkur fannst þetta harla einkennilegt og vissum varla, hvernig við ættum að bregðast við“. — Þetta sagði nemandinn og láir honum enginn, þótt hann undraðist. VELVAKANDI góður! Fyrir nokkru birtist í dálk- um þínum kvörtun frá konu yfir lélegri afgreiðslu í einu kvik- myndahúsi bæjarins. Þetta gefur mér tilefni til að skýra frá minni reynslu. Ég á einnig heima í út- hverfi, hringdi eitt sinn nokkuð seint í bíó og ætlaði að panta miða, en ég var fullvissaður um, að nógir miðar yrðu til við inn- ganginn, þegar ég kæmi. Þangað kominn, nokkrum mín- útum fyrir 9 var búið að selja alla miðana, en er ég svo skýrði alla málavöxtu: — að ég hefði hringt og mér hefði verið sagt, að miðar myndu verða til, þegar ég kæmi, kom þar að einhver yfirmaður, að mér virtist, bauð mér inn miðalausum og útvegaði mér lausa stóla til að sitja á. Ekki var um að tala, að ég fengi að greiða miðana og verð ég að segja, að mér hefur sjaldan verið sýnd meiri liðlegheit og það því fremur, að ég hefi aldrei fyrr né síðar séð þennan mann. — P“. MerklS. UæUr UndiS. Fimmtudagur 19. maí 1955 1 viðri undanfarna daga, og er snjóinn þar mjög að taka upp á láglendi, en á Vaðlaheiði sér lítt högg á vatni. Hitinn er rétt ofan við frostmark og hefúr komizt upp í 5 stig. — í fyrrinótt var þar næturfrost og svo mun einnig hafa verið í nótt er leið, því að veður fór kólnandi með kvöld- inu. SIGLUFIRÐI Á Siglufirði var hið fegursta veður í gær, og tók snjóinn þar ört upp, enda glampandi sólskin. Snjóýturnar voru farnar af stað upp í Siglufjarðarskarð til að opna leiðina, en það mun taka viku til tíu daga. fríum sjó | við hefðum aðstæður til að verja það, ætti engum nema okkar skip- um að vera opnar dyr í þá gull- kistu. Til er máltæki, sem segir svo: „Enginn má við margnum“. Á það ef til vill að sannast í sam- bandi við okkar landhelgismál, margt er, sem bendir til þess. Nokkrum mánuðum eftir að hin heillavænlega ákvörðun var tekin um útvíkkun landhelginn- ar, skrifaði ég nokkur orð um þetta, er birtust hér í blaðinu. Mér er ekki kunnugt um, að það hafi náð hljómgrunni hjá þeim, er með þessi mál fara, enda þótt að ég sé fullviss um það, að það er ekki einhlítt til framgangs þessu máli að staglast á köldum lagabókstafnum, þar sem þetta er tilfinningamál hjá íslenzkum og enskum sjómönnum. Ég vísa svo til fyrri greinar minnar um þetta mál, sem er birt í 10. tbl. 1952. Á sama tíma sem þetta er að gerast, er stríð um aðra landhelgi. Þar eiga Englendingar tilkall til landgrunnsins. Það er ekki fisk- urinn, sem þar er slegizt um, og þar er heldur ekki verið að verja sitt sker, eins og hjá okkur Nei, olíuhringarnir í London hafa fundið þar gullkistu í iðrum jarð- ar, og þá skal landhelgin ekki vera 3 sjómílur, heldur 30x3 sjó- milur. Einasta leiðin til að brúa hafið á millum okkar og Eng- lendinga varðandi landhelgis- deiluna, er að koma okkar sjón- armiði út til þeirra sjálfra. Þau afhroð, sem við höfum orðið að líða í enskum blöðum varðandi hið hörmulega sjóslys, er tveir enskir togarar fórust við stendur landsins þann 26. janúar síðastliðinn, þeir Lorella og Roderigo, hafa komið mér til um- hugsunar um hvernig svona skip geta farizt á fríum sjó. Ég er nú lítill karl í sambandi við sjómennsku. En þessi orð gætu kannske haft þau áhrif, að aðrir mér reyndari kæmu til og segðu sitt álit, öðrum til eftir- breytni. Togararnir okkar eru ein beztu skip sinnar tegundar sem fljóta. En öllu má ofbjóða. Allir sjó- menn vita, að þegar komið er út í ofsaveður, verður að halda á öllu sinu. Svo eru deildar skoð- anir um, hvernig skuli halda á sínu, það er, hver.nig taka á að- stæðum. Þá eru það augnablikin, sem oftast ráða, og maður verð- ur að gera það upp við sig eftir á, — hefði eitt eða annað mátt betur fara. í ofsaveðrum á vél- sterkum skipum álít ég hættulegt að nota of mikið vélakostinn. Ef skipið er á fríum sjó og andæfir, má andófið ekki vera svo mikið, að skipið sæki á móti vindi og sjó, heldur gagnstætt. Sé um mikla ísingu að ræða, verður hún mun meiri við mikið andóf. í 18 tíma andófi, í slæmu veðri, hef ég verið með að drifa 46 sjómílur. Notuðu Englendingarnir ekki of mikið vélina? Til fróðleiks og jafnframt til nýtni ættu skipstjórnarmenn að nenna að segja sitt álit um þetta hér í Víkingnum. , Guðm. H. Oddsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.