Morgunblaðið - 26.05.1955, Blaðsíða 1
lé síður
Si irsangw 117. tbl.—Fimmtudagur 26. maí 1955 Prentsmlfí* Morgunblaðsina
Mikill mannfjöldi fagnar
forsetahjónunum í Oslo
Hókon konnngnr og Úlofnr krón-
prins tókn n móti þeira
Myndastytta sr. Friðriks við Lækjargötu.
Horgunhelimókn !i!
sr. Frlðriks Frlðrskssoner
ALLTAF hef ég vitað, að sr. Friðrik Friðriksson hefur allra
manna óreglulegastan svefntíma. En af því að ég vissi, sem
var, að myndastytta hans við Lækjargötu var reist síðla kvölds
á þriðjudaginn var, bjóst ég hálft í hvoru við að hann mundi vera
óvenjulega snemma á fótum á afmælisdaginn sinn í gær. En ég
fór ekki í heimsókn til hans fyrr en um níuleytið í gærmorgun.
Kvaddi þá dyra við herbergi hans að Amtmannsstíg, þar sem sam-
komusalir KFUM eru. Ég beið þar drykklanda stund, nægilega
langa til að ég var farinn að halda, að sr. Friðrik hefði verið óvenju-
lega snemma á ferli „til að sjá strákinn“, eins og hann kallaði það.
En sem betur fór var hann heima við, ekki risinn úr rekkju, svo
ég varð að gera honum rúmrusk og afsakaði það að sjálfsögðu við
hann. „En úr því þú ert kominn, þá ættum við að skreppa til að
sjá „strákinn", segir hann, þegar hann var kominn á ról.
OSLO, 25. maí. — Einkaskeyti til Mbl. frá Árna Óla.
FALLBYSSURNAR á Akershus þrumuðu þegar Gullfoss sigldi
inn á Oslóar-höfn í dumbungs veðri með haglslitringi. Fyrir
framan ráðhúsið, sem er fagurlega skreytt, var komið fyrir tíu
blossandi kyndlum. Manngrúi hafði safnazt saman á hafnarbakk-
anum, en fremst stóð lífvarðarfylking fyrir ofan bryggjuna, þar
sem forseti skyldi stíga á land. Á bryggjunni lágu rauðir dúkar
upp að Baldakinhúsi, sem var blómum og fánum skreytt, en þar
beið konungur og fylgdarlið.
SR. FRIÐRIK SKOÐAR
STYTTUNA
Við fórum eins og leið liggur
niður eftir Amtmannsstígnum og
virtum fyrir okkur myndastytt-
una, með öllum ummerkjum sem
þar eru. Garðyrkjumenn bæjar-
ins höfðu með túnþökum lagað
grassvörðinn ut.an um hana, eftir
að ég skildi við staðinn kvöldið
áður og sett haganlega upp blóma
beð með hvítum blómum til
hpiðurs fyrir gamla manninn. En
Hafliði Jónsson garðyrkjustjóri
bæjarins taldi hið hvíta sakleysi
við hæfi hins 87 ára öldungs, og
þess vegna valdi hann þennan
blómalit.
ÆSKAN OSKAR IIONUM
TIL HAMINGJU
Strax og sr. Friðrik kom í Ijós
við myndastyttuna, drifu þar að
allmargir ungir piltar, sem ósk-
uðu honum hæversklega til ham-
ingju með afmælið og mynda-
styttuna. En sr. Friðrik hefur
sagt mér að fjölmargir ungir
vinir hans í K.F.U.M. hafi með
nokkurri óþolinmæði spurt sig,
hvenær myndastyttan mvndi
verða reist. Það hefði sýnt sig að
sumir þessarra smávöxnu vina
háns höfðu hinar undarlegustu
húgmyndir um hvernig tilhög-
uftin ætti að vera við þessa mynda
gérð. Einn þeirra hafði beinlínis
orð á þvi við sr. Friðrik hvort
hann gæti verið innan í styttunni
sjálfur. Barnið vildi sýnilega
ekki tapa af hinu hlýlega og alúð
lega viðmóti þessa æskulýðsleið-
tóga og vantreysti því hvort
hann framvegis gæti notið um-
gengninnar við styttuna eins og
þar væri sr. Friðrik sjálfur.
Þegar við komum aftur í húsa-
kynni hans við Amtmannsstíg,
sagði hann við mig á þessa leið:
„Ég get glatt þig með því að þegar
til kom var ég alls ekkert feim-
inn við „strákinn“. Því satt að
segja hafði ég lengi kviðið fyrir
Framh. á bls. 2
Fjónreldafundur
18—21. júlíl
ÞÓTT RÚSSAR hafi engu svar-
að enn formlega um þátttöku
í fjórveldafundi í sumar, halda
vesturveldin áfram undirbúningi
sínum undir hinn væntaniega
fund. — Pinay, utannkisráðherra
Frakka, skýrði frá því i gær, að
Eisenhower hefði nú fyrir sitt
leyti fallist á að l'undunnn verði
haldinn dagana 18. tii 21. júli í
Lausanne í Sviss.
Engin ákvörðun hetur þó ver-
ið um þetta tekin, að því er fregn
frá Washi.igton hermdi í gær-
kvöldi.
Nokkru áður en himr æðstu
menn hittast, er gert ráð fyrir
að utanríkisráðherrar fjórveld-
anna komi saman einnig j Lau-
sanne til þess að undirbúa fund
„hinna stóiu“.
Utanrík'sráðherrarnir hittast
einnig nokkrum vikum áður, í lok
júní, í Sar. Francisco á Kyrra-
hafsströnd Bandaríkjanna. Þar
verður haldið hátíðlega upp á 10
ára afmæli Sameinuðu þjóðanna,
en stofnfundur SÞ var haldinn
í San Francisco 25. júní 1945.
FORSETINN HYLLTUR 4
Nú kom hinn glæsilegi rikis-
erfingi Noregs, steig á bát og
sigldi út að Gullfossi, og aftur
þrumuðu fallbyssurnar. Rétt fyr-
ir hádegi kom Hákon konungur,
tigulegur á velli, þrátt fyrir ald-
ur sinn. Enn dunuðu fallbyssurn-
ar, herhljómsveit lék íslenzka
þjóðsönginn og forsetinn og fylgd
arlið hans steig á land, en mann-
fjöldinn hyllti hann hjartanlega.
EKIÐ TIL KONUNGSHALLAR
Konungur tók móti forseta á
bryggjusporðinum, gengu þeir
svo saman og könnuðu lífvarðar-
liðið. Eftir það var stigið í opna
bíla og ekið til konungshallar.
Konungur og forseti voru í fyrsta
bíl, en ríkiserfingi og forsetafrú-
in næst. Síðan kom fylgdarliðið.
Borgin er skreytt norskum og
íslenzkum fánum. Mikil þröng
var á næstu götum við höfnina
j og á Karl-Johan.
Nú stendur yfir veizla í kon-
ungshöll, en á eftir leggur for-
setinn blómsveig á minnismerki
norrænna frelsisvina í Akershus-
vígi. Síðan verður heimsókn í
ráðhúsið. í kvöld verður kvöld-
verðarboð fyrir forsetahjónin í
konungshöllinni.
ÁVARP FORSETA
Hér fer á eftir ávarp forseta
íslands í konungsveizlunni í Osló:
Herra konungur!
Með hræðrum hug þakka ég
yðar hlýja ávarp og góðar óskir
í garð okkar og íslenzku þjóð-
arinnar. Ég þakka hinar glæsi-
legu móttökur frá því við í morg-
un stigum á norska grund. Vér
íslendingar stöndum hér einnig
Kosningoúrslit
í Bretlondi
strox í kvöld
BREZKA þjóðin gengur til kosn-
inga í dag . hlýju veðri, þótt sums
staðar sé spáð rigningu. Almennt
er álitið að munurinn a tveimur
stærstu flokkunum, íhaidsflokkn
um og veikamannaflokknum, sé
svo lítill, að brugðið geti til
beggja vona um úrslitin, þótt
spár manna hafi í gær heldur
hneigzt í þá átt, að íhaidsflokk-
urinn myodi hafa betur.
•
í síðustu kosningunum til
brezka parlamentsins, árið 1951,
hlutu ÍHVLDSMENN og aðrir
flokkar, sem voru í bandalagi
Heil svei! knatt-
spyrnunianna
skoftn !il bana
Rangoon (Reuter)
UPPREISNARMENN af Karena
kynflokki hafa myrt heila
sveit kommúnistiskra knatt-
spyrnumanna, sem þeir höfðu
boðið til landsleiks í þorpi einu
um 90 km. í norður frá Rangoon.
Skömmu áður en leikur átti að
byrja tældu Karenarnir knatt-
spyrnumennina inn í frumskóg og
bundu þá á höndum og fótum og
skutu þá síðar í hefndarskyni í
sambandi við einhverjar inn-
byrðisdeilur milli þessara óald-
arflokka. Litið er á bæði Karen-
ana og kommúnistana sem upp-
reisnarmenn af hálfu stjórnar-
valdanna í Burma. Sumstaðar
hafa þessir uppreisnarmanna-
hópar samstarf með sér, en ann-
arsstaðar berjast þeir innbyrðis.
i»refaSda morðið
á Danmörku
Hefnd lœknisins
vegna fjármála
KAUPMANNAHÖFN, 25. maí:
við þa 13.718,069 atkv., og 321 : DANgKI læknirinn Kelstrup,
L v •% .v«%% L % mi n n l I Q * % II • I *P 1% Q /I 1 II
á feðranna fold, og nöínin, eins
og Hákon og Ólafur, eru gamal-
kunn. Engin þjóð er oss skyldari
en Norðmenn. Vér erum tvær
þjóðir af sömu ætt. Ver höfum
; vermt oss við hinn sama eld sög-
unnar.
^ Yðar hátign er einn þeirra fáu
konunga, sem eru þjóðkjörnir,
og eigið innan tíðar fimmtíu ára
ríkisstjórnarafmæli. Eftir sex
alda stjórn erlendra konunga,
hefir yður aðunast að staðfesta
konungdæmið í Noregi. Það
hljómar eins og konungasaga úr
Heimskringlu, þegar Noregskon-
ungur var í síðustu styrjöld knú-
inn til að fara úr landi til að
bjarga þjóð sinni, frelsi hennar,
lögum og rétti. Vér íslendingar
fylgdumst með þessum tíðindum
með brennandi áhuga, og Guði
sé lof fyrir góð sögulok. Yðar
hátign kiafðizt þjóðaratkvæðis
áður en þér tókuð við völdum,
þér hafið hætt lífinu til að varð-
veita grundvallarlög þjóðarinn-
ar; þér hafið sameinað lýðræði
Framh. á bls. 2
þingm. kjörinn. (1950: 12.595.410
atkv. og 298 þingmenn).
•
FRJÁLSLY NDI FLOKKURINN
hlaut árið 1951 730.552 atkv. og 6
menn kjörna. (1950: 2.621.489
atkv. og 9 þingmenn).
•
VERKAMNNA FLOKKURINN
hlaut árið 1951 13.949.105 atkv. og
295 þingmenn (1950: 13.295.736
atkv. og 315 þingmenn).
•
AÐRIR flokkar hlutu árið 1951
198.969 atkv. og 3 menn kjörna,
en árið 1950 165.033 atkv. og tvo
menn kjörna.
30 MILLJÓN KJÓSENDA
Kosning hefst i dag ki. 7 að
morgni og henni a að vera lokið
kl. 9 að kvöldi (brezkur tími).
Að þessu sinni verða kjörnir
630 þingmenn og i framboði eru
um 1500 menn og konui.
Frambjóðendur verða að leggja
fram 150 sterlingspund, er þeir
tilkynna framboð sitt og hljóti
þeir ekki tilskilið lágmarksmagn
atkv. tapast þeim þetta fé.
Frambjóðendur fluttu í gærkv.
síðustu ræðurnar í kjördæmum
sínum og hvöttu kjósendur til
þess að neyta atkvæðisréttar
síns. Sir Anthony Eden, forsæt-
isráðherra flutti sjö kosnmgaræð-
ur í gær. Allir helztu forustu-
menn í brezkum stjórnmálum
eru í framboði í öruggum kjör-
dæmum.
Fyrstu kosningatölur munu
byrja að herast í kvöld og fyrir
miðnætti mun verða Ijóst, hvert
stefn.r í kosningunuin. Fram-
bjóðendur eru venjulega við-
staddir talningu, þótt henni ljúki
sumsstaðar ekki fyrr en að
morgni næsta dags.
sem framdi sjálfsmprð á götu
í Hróarskeldu í gær, eftir að
hafa skömmu áður framið þrjú
morð, lét eftir sig bréf til lög-
reglunnar.
í bréfinu segir læknirinn, sem
er 44 ára gamall: Ég gerði mér
fulla grein fyrir verknaði mín-
um. Allar eignir mínar höfðu
verið píndar út úr mér og næst-
um allar tekjúr mínar síðastliðið
ár, samtals meir en fjórðungs
milljón króna.
í bréfir.u ?ru birt nöfn manna,
en lögreglan heldur þeim leynd-
um. Heldur lögreglan áfram rann
sókn málsins. í bréfinu er getið
um hvernig séð skuli fyrir fjór-
um börnum læknisins og eftirlif-
andi konu hans. — Læknirinn
greiddi iðgjald af iíftryggingu
sinni skömmu áður en hann
framdi morðin
Kelstrup var mjög eftirsóttur
læknir og vinsæll maður. Nýlega
hlaut hann áminningu frá heil-
brigðisstjórninni og var lagt
fyrir hann að draga úr útgáfu
lyfseðla með deyfilyfjum.
HAGEH í RUHR
í SÓTTKVÍ
HAGEN, 24. maí: — Ferðamönn-
um hefir verið bannað að fara
um héraðið umhverfis iðnaðar-
borgina Hagen í Ruhr-héraðinu,
þar sem taugaveiki hefir komið
upp. Heilbrigðiseftirlitið í Ruhr
hefir hvatt íbúana til að ferðast
ekki til annarra héraða í Þýzka-
landi. Tæplega fimm hundruð
manns hafa sýkzt á þessu svæði
og einn maður hefir látið lífið af
völdum veikinngr,