Morgunblaðið - 27.05.1955, Síða 10

Morgunblaðið - 27.05.1955, Síða 10
26 MORGVTSBLAÐÍÐ Föstudagur 27. maí ]955 Sérá Pétur Magnússon: WIN í VESTRI Olnf Nieken bankástióri ÉG vakna við það, að einhvers staðar slær klukkan átta. Ég man allt í einu eftir að ég er gestur í húsi WiLlims Avery, Wárwick 515, og að Averyhjónin hafa boðið mér í ökutúr þennan dag, ,til einhvers fagurs staðar, sem ég man ekki nafnið á — ein hvers staðar á vesturströnd Michi gapvatnsjns, í norður írá Evans- ton. . Úg hendíst á fætur, rýk fram í baðherbergið og fæ mér bað, ral$gT mig í flýti og fer síðan í fötin,:.g>egar ég kem niður í dag- stoifuna er klukkan tæplega hálf níu. ,. NoUkruro. mínútum síðar eru allir seztir við morgunverðar- boi'ðíð., Húsbóndinn flytur stutta borðbæn. Allir lúta höfði á með- an. Að máltxðinni lokinn er haldið út að bílnum Loftið er mjög heitt, og svo rakt, að jafnvel næstu húsin og skógargreinarnar eru sveipaðar bláleitri móðu. Ég lít hálf áhyggjufullur til lofts. „Það ætlar að verða ennþá heitara í dag; heldur en var í gær“. Frú Avery brosir til mín hug- hreystandi. „Það lagast eftir að við erum lögð af stað. Við ökum í opna bílnum — og Cam ætlar að sitja vjð .stýrið* Cam er eldri sonurinn, 18 ára — einmitt á þeim aldri, þegar vöskum Ameríkumanni finnst að hann þurfi að aka eins hratt og bíllinn kemst. Já, vandamálið með veðrið leysist fljótt. Undir eins og við erum komin út á aðalbrautina fer bíllinn að gæða rásina. Sterkju- hitinn er alit í einu horfinn og við erum stödd í hvínandi vindi, alveg mátulega hlýjum, sem strýkst notalega um háls og vanga. — Mér dettur allt í einu í hug; að hinar miklu vegalengd- ir vestra séu ekki eina ástæðan til þess, að Ameríkumenn aka svo hratt. Hitinn hlaut að eiga sinn þátt i því. í hinum opnu bílum sínum, eiga þeir með hrað- anum (kqst á að breyta óþolandi hitasvækju í bezta veðrið í jörð- inni. Ég halla mér afíur í sætinu og lofa vindum að gera gælur við mig. Við erum að nálgast lítið þorp á virxstri hönd. Framundan blasir við bungumynduð hæð, skógi; vaxin. Við þjótum yfir hana. þá sést allt í einu glitta í Micþigpn vatnið til hægri. Ég heyri að Mr. Avery gerir einhxmrja athugasemd við öku- hra8j|^n, sem vérður örlítið minpj um stund. Svo er bvrjað að taia saman og kallast á við þá, sem sitja fram í. Samtalið er nj^stmegnið stuttar athuga- semdú um það, sem fyrxr augun ber -j og irm það hve lífið geti verið'^dásamiegt og jörðin fögur. Ég er spurður um landslag á fs- landi og ég reyni um stund að lýsa' t>ví eins skáldlega og mér er unt. O----□-----o Talið frá vinstri: Nansy, Richard, Avgry, Cameron og . frú Eugenie Avery. Áfram, áfram. Ég lít á úrið og sé að við erum búin að aka rúman klukkutíma. Um stund er landslagið alveg marflatt, en byrjar svo aftur að verða ofur- lítið öldumyndað. Annað slagið mætum við bílum, sem virðast ekki spara benzínið frekat en við. Fólk að halda til kirkjuþingsins, hugsa ég, og finn um leið til innilegrar gleði yfir því. að hafa valið mér annað hlutskipti þenn- arj dag. Þessar hugsanir mínar virðast hafa náð satnbandi, því aðT Gam kallar nú allt 1 einu til mín og spyr, hvort ég sái nokkuð eftir því, að sitja ekki núna á þinginú við að hlusta á erindi hinna vísu preláta. Ég neita því alveg eindregið, og bæti við, að ég ?é hálfhræddur um að dogma- tikin mun orenna við í dag í hin- um mikla hita í McGaw Hall . . .. Mr. Avery htur til mín asakandi, en unga fójkið lætur fjúka nokk- ur gamanyrði af þessu tilefni. Svo er farið að tala um bíla og flug- vélar — fyrst í anda raunsæisins síðan heimspekilega. Minnst er á viðleitnina til hins vaxandi hraða. Einhver segir, að hún stafi af því, að maðurinn sé að leitast við að elta uppi hatnningjuna. Eða að reyna að flýja frá sjálf- um sér, bætir einhver annar við. Nokkur hnittiyrði eru sögð í þessu samoandi og léttii hlátrar hljóma við og við og líða út í geyminn. —--------- o-----□-----o Klukkan er næstum tólf, þegar við komum á áfangastaðinn. Hann er stórt og veglegt veit- ingahús og sumardvaiarstaður í fögru umhverfi skammt frá vatn- inu. í vestur frá hinu mikla húsi er stói íþróttavangur, um- girtur skógarbeltum. Ég sé að hópur ungmenna er þar að leikj- um. Mr. Avery býður til hádegis- verðar og við sitjum til borðs við glugga, þar sem fagurt útsýni blasir við Hvatlegur þjónn kem- ur að borðinu með stóran mat- seðii. Frú Avery situr við hlið mína og ég trúi henni fyrir því, að það setji æfinlega að mér kvíða, þegar ég sjái þessa stóru matseðia hérna vestra, því að ég þekki ekki einu sinni þriðjunginn af réttunum Hún býðst strax til að hjálpa upp á sakirnai og fer að lýsa fvrir mér nokkrum af lostætustu réttunum. Á meðan byrjar vatnið að buna fram í munninn á mér. Þegar líður á máltíðina, hefj- ast aftur fjörugar samræður. — | Drengirnir fara að segja mér frá íþróttalífinu á þessum slóðum og á eftir er ég beðinn um að inna frá því, hvernig ferðaiög á ís- (landi fari fram. Svo höldum við j út, horfum um stund á leiki unga * fólksins og reikum síðan um fagra staði í nánd við veitinga- húsið.------- Þarna er dásamlegt að vera — , en vegna hitans er ég þó feginn, þegar við böldum aftur af stað út í svalandi vindinn, sem banda- r:skur ökumaður kann svo vel að framleiða á sinn tæknilega hátt. Við ökum aðra Jeið tii baka. Nýjar mvndir af þessu sumar- fagra landi blasa við — koma op fara. Marglitar húsabvrpingar, b'eikir akrar, vötn os? skógar líða húá. — Éff loka aumxnum um s+und. ti1 að nmta ennbá betur h«»irrnr vou ’ðanar, sem gagntek- ur mig. hAv R?s s^fnia?“, er spurt vlð h’’ð m;rt a i þýðuTn róm, sem ið^r af p'mi. v.cr ’i-.VnfSí "ummum t.il að J-< nvvr, f>r, F.fiYTi ''rn 'o’-í ykkar i-ron- /vT1-ie,"’'’an windl nf5; ?ð hvísia í ’ —að r mé’-“------------ o-----□-----O „Já. Hún er nákvæmlega af þeirri tegund, sem við komum okkur saman um“. „William Avery — er hann prestur?“ „Nei, lögfræðingur, mjög mik- iismetinn á þessum slóðum. — Hann veitir forstöðu elztu mál- flutningsskrifstofunni í Chicago. Hann og Adlai Stevenson voru um skeið starfsfélagar. Þeir eru mikiir vinir“ „Þessi borð bæn — ég hélt að — stendur ekki einhversstaðar: Gute juristen sind böse Kristen?“ „Jú. En vá talsháttur varð ekki til í Bandaríkjunum, heldur í Þýzkaiandi. í Bandarxkjunum fyrirverður kristið folk •— jafn lögfræðingar sem aðrir — sig ekki fyrir að bera fram þakkir áður en það neytir matar. Það fer í kirkju á hverjum sunnu- degi, tekur þátt í kirkjusöngn- um og les upphátt Faðirvorið með prestinum. Aver-fjölskyldan sæk- ir reglulega kirkju. — Ég var með þeim þar s:ðari sunnudaginn, sem ég dvaldi : Evanston. — Sko, hér er-----—“. „Já, mynd af fjölskyldunni." „í miðið er Mr. Avery. Hann er í senn mjög glæsilegur maður og einstakr valmenni. Konan til vinstri við hann er frú Eugenie Avery, af frönskum ættum — eiskuleg kona, sönn ,,lady‘. Og börn þeirra eru: Nancy, Richard og Camerxn' ,.Þú bjóst hjá þeim þennan t’ma. sem þú dvaidir í Evan- ston?“ „Já. n:u daga — Þau eru eisku- 1e,gasta fólkið sem ég kynntist í vesturförii.ni“ Fréttamaður: ,,Nú er betta ferðasagan, sem þ.i Jcfaðir blað- SMOWCEiy Hentugt til notkunar á: @ Mjólkurbú © Svcitabýli © Bakarí © trv-ri! i íis © KjaJIura © Kjallarageymsiur © Véiaverkstæði © Þvottahús © SúrJievsgryf jur © Skóia © Snyrtilierbergi Vívinið eftir Snowerem Hagsýiiir nota Snawcrem. H. Benediktsson & Co. h.f. Hafnarhi’oJ1. Sími 1228. NOKKRU eftir áramótin síð- ustu las ég í Norðurlanda- blöðum, að Oluf Nielsen, banka- stjóri við Landmandsbanken í Kaupmannahöfn, hefði látið af störfum um áramót, þá nálega 75 ára að aldri. Ég hef verið að búast við að sjá þessa merka manns gétið í íslenzkum blöðum, en ekki orðið þess var. Þess vegna bið ég Morgunblaðið að birta línur þess- ar. Er líklega engum núlifandi íslendingi skyldara en mér að minnast þessa merkismanns og viðskipta hans við ísland. Oluf Nielsen byrjaði banka- feril sinn 15 ára gamall hjá bankafirmanu Rubin og Bing. Árið 1905 réðist hann sem full- trúi hjá Landmandsbanken. Ár- ið 1921 varð han aðstoðarbanka- stjóri og aðalbankastjóri árið eftir, þegar Landmandsbanken var endurskipulagður eftir greiðsluþrotin 1921. Naut Oluf Nielsen þá þegar mikils álits sem samvizkusamur og traustur bankamaður. Hann þótti að vísu nokkuð aðhaldssamur, en hann hafði lika séð hin geysilegu bankahrun í Danmörku næstu ár in eftir fyrri heimsstyrjöld. Pen- ingaflóð stríðsáranna hafði fjar- að út. „Bjartsýnu“ fjármála- mennirnir gættu sín ekki og héldu, að hægt væri að halda ieiknum áfram. En staðreyndirn- ar létu ekki að sér hæða. Sum átrúnaðargoð Dana í fjármálum lentu í fangelsi, og allir stórbank- arnir komust í greiðsluþrot og sumir oftar en einu sinni. — Á fundi, sem kröfuhafar eins stór- bankans héldu, sagði einn fund- armanna: „Það er tilgangslaust að hafa járngrindur fyrir glugg- um, þegar þjófarnir sitja inni í húsinu“. Andrúmsloftið var engan veg- inn skemmtilegt í bankaheimin- um, þegar Oluf Nielsen tókst þann vanda á herðar að stjórna einum af stórbönkum Danmerk- ur eftir hin geysilegu óföll, sem yfir viðskiptalífið höfðu gengið. En Oiuf Nielsen sýndi brátt, að hann var vandanum vaxinn. Hann vann sér hvers manns traust, sem honum kynntist, og hann keppti ákveðið að því marki að gera Landmandsbank- en fjárhagslega sterka stofnun. Hann vissi, að með því einu móti gæti banki gegnt því hlutverki að vera lyftistöng athafnalífsins í landinu. Magnús Sigurðsson varð bankastjóri Landsbanka íslands 1916. Þá hafði Landsbankinn engin „veltilán"*) erlendis, enda ■ var hann nánast umkomulítill I sparisjóður á þessum tíma, þó að I hann hefði 750.000 krónur af seðlaútgáfunni. íslandsbanki var aðalbankinn og hafði seðlaútgáf- una að öðru leyti og réð því, hve mikið var af seðlum í um- ferð. Það er ekki fyrr en íslands- banki kemst í greiðsluþrot 1920 /21, sem Landsbankinn verður að taka að sér hita og þunga banka- málanna, meðal annars megin- hiuta hinna erlendu viðskipta. | Það var mikið lán fyrir ís- lenzku þjóðina, að jafn gætinn og gjörhuguil maður og Magnús Sigurðsson skyldi vera orðinn bankastjóri Landsbankans, þegar íslandsbanki sigldi upp í sandinn. Eitt af því fyrsta, sem Magnús gerði, var að útvega Landsbank- anum veltilán, bæði í Danmörku og London. Samninga um þessi ián gerði Magnús Sigurðsson við Hambros Bank í London og við Landmandsbanken í Kaupmanna höin. Eftir því sem Magnús sagði mér, kynntist han Oluf Nielsen, þegar hann var fulltrúi í bank- anum. Sagðist Magnús eftir það jafnan hafa átt tal við Nielsen, þegar hann þurfti að reka erindi við bankann. Þetta var ólíkt venjulegum vinnubrögðum Magnúsar, því að hann leitaði jafnan viðtals við æðstu ráða- menn þeirra stofnana, sem hann. átti erindi við. Kvaðst Magnús strax við fyrstu kynni hafa talið víst, að þess mundi skammt að bíða, að Oluf Nielsen yrði meiri. vaidamaður í bankanum en hann var þá. Varð Magnús um þetta. sannspár. Urðu þeir brátt góðir vinir, og hélzt sú vinátta jafn- an síðan, þar til Magnús dó. Skömmu eftir að Magnús Sig- urðsson s^mdi við Landmands- banken um viðskiptalán handa Landsbankanum, samdi Samband ísienzkra samvinnufélaga einnig um viðskiptalán fyrir sig og mun hafa slíkt lán enn. Vel getur ver- ið, að fleiri íslenzk fyrirtæki hafi haft þar lánsviðskipti, þó að mér sé ókunnugt um það. Á þess- um árum kynntist ég Oluf Niel- sen, bankastjóra, mjög vel, eink-‘ um eftir að ég varð formaður í bankaráði Landsbankans og síðar bankastjóri. Hef ég át-t mik- il viðskipti við hann og jafnan hin ánægjulegustu. Mátti með sanni segja, að Oluf Nielsen reyndist ætíð bezt í okkar við- skiptum, þegar mest á reið. — Eitt atvik ætla ég að nefna. Það var á kreppuárunum eftir 1930, að yfirdráttarheimild Sambands íslenzkra samvinuufélaga var að fuilu notuð ó miðju sumri, en margar nauðsynjavöi-ur þurfti að i kaupa til hausts, þegar greiðsla I fyrir útflutningsvijrur var vænt- ■ anleg. Ég var þá á ferð ytra og • var búinn að tala við bankann. Ég hitti Oluf Nielsen, banka- stjóra, og tjáði honum mála- vexti. Hann svaraði því til, að búið væri að synja um hækkun og erfitt að taka málið upp á ný, því að það yrði að leggjast fyrir bankaráðið.*) Að iokum segir bankastjórinn: „Eruð þér aJveg öruggur um, að þetta verði greitt fyrir áramót?“ „Nei“, sagði ég, „öruggt er það ekki, en allt verður gert, sem unnt er, til að standa í skilum, og hingað til hefur ek’ki brugðizt, að Sam- bandið hafi getað greitt skuldir sínar á réttum gjalddaga." „Talið við mig kl. 5 ó morgun“. Það gerði ég og fékk lánið. Þótti mér þetta því drengilegra, sem mér var ijóst, hvað Oluf Nielsen var gætinn og af mörgum talinn í- haJdssamur í fjármálum. Enda er ekki ólíklegt, að ,,bjartsýnin“, sem fyrirrennarar hans höfðu sýnt í stjórn sinni á máiefnum bankans, hafi stuðlað að þvi, að Oluf Nielsen ætlaði ekki að lenda í sömu ógöngum og þeir, ef hjá því yrði komizt. — Og honum tókst að komast hjá því. Ég veit ekki, hvort íslending- ar hafa gert sér grein fyrir því, hvers virði það er fvrir alit at- hafnalíf á íslandi, að Landsbank- anum tókst á hinum verstu krepputímum, þegar aðalbanki iandsins var kominn í greiðslu- þrot, að fá viðskiptalán erlend- is. En atvinnulífið á íslandi hef- ur að jafnaði ekki gengið betur en það, að í flestum árum hefur orðið að fá erlend lán til nauð- synjavörukaupa, á meðan verið er að afla útflutningsvaranna og koma þeim í verð. Er ástandið iöngum svo hjá aðalútflutnings- atvinnuveginum, sjávarútvegin- um, að skip og bátar kæmust al- roe’->nt ekki á flot á vetrarvertíð, ef ekki nyti þessara erlendu lána Landsbankans. Hefur þessu lítt ve ið á lofti haldið. Magnúsi Sig- urðssyni, sem vann mest að þess- um iánsútvegi, var ekki gjarnt að hafa hátt um störf sín, en það er ástæðulaust fyrir sam- ferðamenn hans að vanmeta þau, þó að hann héldi þeim lítt á lofti sjálíur. Ég vil enda þessar línur með því að þakka Oluf Nielsen, bankastjóra, fyrir ágæta við- kynningu og margvíslega fyrir- greiðslu í viðskiptum þau rúm *)Veitilán nefni ég bráða- birgðayfirdráttarlán, sem greið- ast upp öðru hvoru, . en gilda annars ár eftir ár. *)Lán, sem voru hærri en 50 þúsund, urðu að samþykkjast af bankaráði. Frh. á bls: 31.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.