Morgunblaðið - 28.05.1955, Blaðsíða 1
16 síður
£9 árr&ngv
119. tbl. — Laugardagur 28. maí 1955
PrentsmþSj* Morgunblaðsins
Rafmagnið er það bezta sem við höfum
— segir frúin á Möðruvöllum i Hörgárdal
//
fengið í sveitirnar,
44
Séð heim að Möðruvöllum.
(Myndirnar í greininni tók Vignir Guðmundsson).
Brezki Ihaldsflokkurinn
vinnur glœsilegan sigur
I fyrsta skipti i tæp hundrað ár er brezk stiórn
endurkjörin og eykur jafnframt fylgi sitt
LONDON, 27. maí.
1D A G bar íhaldsflokkurinn glæsilegan sigur úr býtum í þing •<
kosningunum í Bretlandi. Stjórn Sir Anthony Edens var end«
urkjörin og jók fyigi sitt talsvert. Er það í fyrsta skipti í tæ;l
hundrað ár (síðan árið 1860), sem brezk stjórn hefir verið endur -
kjörin og jafnframt aukið fylgi sitt í kosningunum. Skömmu fyrir
miðnætti í gærkvöld hafði íhaldsflokkurinn 60 þingsæta meiri-
hluta gegn stjórnarandstöðunni í heild í neðri deildinni. Átt;
þá enn eftir að telja í fimm kjördæmum, búizt var við, að úrslií
fengjust í þrem þessara kjördæma í nótt, en ekki frá tveim fyrr
en á morgun. Er þingið var rofið, höfðu íhaldsmenn aðeins 17
atkvæða meirihluta, má því segja, að í landi þar, sem atkvæða-
magnið skiptist yfirleitt mjög jafnt milli tveggja stærstu flokk-
anna, hafi íhaldsflokkurinn unnið mikinn og glæsilegan sigur
þessum kosningum.
Er síðast fréttist skiptust þing-
sætin þannig milli flokkanna:
íhaldsflokkurinn: 342 þing-
menn kjörna.
Verkamannaflokkurinn: 276
þingmenn kjörna.
Frjálslyndi flokkurinn: 5 þing-
menn kjörna.
Aðrir flokkar: 2 þingmenn
kjörna.
Hafa íhaldsmenn því feneið
rúmlega helming allra greiddra
atkvæða, Verkamannaflokkurinn
44%, Frjálslyndir 214% og komm
únistar einn tíunda af einum
hundraðshluta.
★ ★ ★
f þessum kosningum hefir
íhaldsflokkurinn fengið hærra at
kvæðamagn en Verkamannaflokk
urinn, og er það í fyrsta skipti
eftir síðustu heimsstvrjöldina,
sem heildaratkvæðatalan fellur
þannig. Atkvæðamagn Frjáls-
lynda flokksins hefir einnig auk-
izt talsvert síðan í kosningunum
1951, enda þótt allt útlit sé fvrir,
að þeir muni ekki auka þing-
mannafjölda sinn. Átti flokkur-
inn sex þingmenn á síðasta þingi.
Hafa íhaldsmenn unnið alls tíu
þingsæti en tapað einu. Verka-
mannaflokkurinn hefir unnið eitt
en tapað tíu.
★ ★ ★
Kjörsókn í kosningunum var
ekki eins mikil og í síðustu kosn-
ingum. Tæp 77% kjósenda
greiddu atkvæði, en það er 5 ¥2%
minna en við síðustu kosningar.
Horfði all dauflega um kjörsókn
fyrrihluta dags í gær. en síðdegis
rættist nokkuð úr því. Lélegust
var kjörsóknin í Lundúnum.
Annars varð lítil breyting á í
fjörutíu og tveim kjördæmum
Lundúna, íhaldsmenn héldu sín-
um 15 sætum en höfðu áður 14,
Verkamannaílokkurinn hlaut 27
sæti, en hafði áður 29 (þá var
einu kjördæmi fleira í Lundún-
um.
★ ★ ★
Allir ráðherrarnir i stjórn
Edens voru endurkjörnir í
kjördæmum sínum. Meðal leið
toga íhaldsflokksins er juku
fylgi sitt voru: Harold Mac
Millan, utanríkisráðherra, Sel-
wyn Lloyd, varnarmálaráð-
herra, Anthony Head, hermála
ráðherra, Butler, fjármálaráð-
Brezka þjóðin veitti Sir Anthony
traustsyfirlýsingu sína.
herra og Boyd, nýlendumála-
ráðlierra. Varla þarf að taka
fram, að Winston Churchill
var endurkjörinn með miklum
meirihluta.
Allir helztu leiðtogar Verka-
mannaflokksins náðu kosningu,
en yfirleitt með minni meirihluta
en í síðustu kosningum, m. a.
Attlee og hægri hönd hans, Her-
bert Morrison. Endurkjörnir voru
einnig Hugh Gaitskell, fyrrver-
andi fjármálaráðherra, Emanuel
Shinwell, fyrrverandi varnarmála
ráðherra.
Tveir stuðningsmenn Bev-
ans úr vinstra armi flokksins
hafa tapað þingsætum sín-
um. Bevan var endurkjörinn
en með talsvert minni meiri-
hluta en áður, einnig Cross-
man og Barbara Castle töpuðu
fylgi í kjördæmum sínum.
Framh. á bls. 2
Rnflýst sveitnheímili heintsátl
IÐULEGA sjáum við í blöðum landsins langar greinar um
hinar miklu og víðtæku raforkuframkvæmdir, sem nú
standa yfir víða um land. Við lesum um að til byggingu
nýrra orkuvera og rafmagnslína hafi verið veittar 11 millj.
kr. á fjárlögum á s. 1. ári, að byggðar hafi verið iínur 330
km að lengd, og annað í þeim dúr. Hins heyrist aftur á móti
miklu sjaldnar getið, hvernig hið nýfengna rafmagn er hag-
nýtt á einstökum heimilum til sjávar og sveita, hverjir eru
kostir hins langþráða gests, þegar hann loksins kemur til
varanlegrar dvalar og hver vinnusparnaður og léttir raf-
magnið er húsfreyju og heimilisfólki við búsýsluna.
Verðni fjórvelda
róðstefnon
18. júlí?
@ LONOON, WASHINGTON
og PARIS, 27. mai: — Vest-
urvelain þrjú bræða nú með sér,
hvar og hvenær skuli halda fyr-
irhugaða fjórveldaráðstefnu
æðstu manna. lormælandi
brezka utanríkisráðuneytsins
kvað vonir standa til, að ákveðn-
ar tillögur um stað og stund yrðu
lagðar fyrir Ráðstjórnina innan
skamms. Sagði hann, að ráð-
stefnan yrði ef til vill haldin 18.
júlí, eins og franski forsætisráð-
herrann Faure hefði lagt til, en
hinsvegar væri það enn óvíst.
Kvað hann orðsendingu Ráð-
stjórnarinnar frá í gær hafa ver-
ið fagnað meðal brezkra stjórn-
málamanna. Lagði Ráðstjórnin
þar til, að ráðstefnan yrði haldin
í Vínarborg í júlí.
11S manns farast
í hvirfilbyijum
★ í BANDARÍKJUNUM hafa
115 manns beðið bana í hvirf-
ilbyljum. er gengið hafa yfir
suð-vestur fylkin undanfarna
tvo daga. Vesturhluti Kansas-
fylkis, Oklahoma og Texas
hafa einkum orðið fyrir barð-
inu á hvirfilbyljunum. Hefur
Eisenhower forseti mælt svo
fyrir, að fé skuli veitt úr ríkis-
sjóði til hjálpar nauðstöddum
til viðbótar við það fé, er fylk-
in sjálf leggja fram.
Hermdarverir fara
í vöxf í Algier
ALGIER, 27. maí: — Hermdar-
verk skæruliða fara stöðugt í
vöxt í Algier í Norður-Afríku. í
dag rændu skæruliðar póstþjóni
í Constantinehéraðinu og skutu
hann til bana með vélbyssu. Um
sömu slóðir var ráðizt á tvo varð
menn úr franska hernum, og
þriðji: varðmaðurinn varð fyrir
árás í Aures-fjöllunum.
□-
-□
kemur næst út miðvikudaginn 1.
júní. — Lesbók fylgir því ekki.
Það var þess vegna, sem við
Vignir Guðmundsson, fréttaritari
Mbl. á Akureyri, fórum eitt
kvöldið í fyrri viku frá Akur-
eyri út í Möðruvallasókn og hitt-
um að máli þar Eggert bónda
Davíðsson á Möðruvöllum og
konu hans Ásrúnu Þórhallsdóttur
frá Þrastarhóii í Arnarnes-
hreppi.
Löngum hefur verið staðarlegt
að líta heim að Möðruvöllum í
Hörgárdal, og nú eru þar ein
myndarlegustu búin í Evjafirði,
þar sem raforkan og tæknin hafa
í ríkum mæli verið tekin í
notkun við búnaðarstörfin. Séra
Sigurður Stefánsson býr rausnar-
búi á öðrum helming jarðarinn-
ar, en Eggert á hinum heímingi
hennar. Hefur hann rekið búið
þar frá 1946.
★ NÝ LÍNA TIL DALVÍKUR
— Það var árið 1941, sem raf-
magnið kom fyrst til Möðruvalla,
segir Eggert. — Var þá byggð
vindrafstöð á bænum. Skömmu
seinna bættist dieselvél við Held-
ur var slæm reynsla af báðum
þessum stöðvum, þær vildu oft
bila og voru æði dýrar í rekstri.
Þær veittu heldur ekki rafmagn
nema rétt til Ijósa og voru því
ónógar. Því var það okkur fagn-
□-
-□
Rafknúin þvottavél ög rafmagns-
þvettapottur létta húsmóðurinni
þvottastörfin.
aðarefni, þegar við fengum raf-
magn frá Laxárvirkjuninni fyrir
þremur árum. Var það frá raf-
magnslínunni, sem þá var lögð
frá Akureyri út á Hjalteyri og
voru Möðruvellir fyrsti bærinn
Framh. á bla. 2