Morgunblaðið - 25.06.1955, Page 1
16 síður
43. árgangur
140. tbl. — Laugardagur 25. júní 1955
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Franskur úrvalsher herjar í Algier
Allsheijoisókn
gegn ofbeldis-
mönnum
PARÍS, 24. júní.
ÞÚSUNDIR hennanna og
lögreglumanna hófu í
morgun stórfelldar hemaðar-
aðgerðir í Algier til þess að
brjóta á bak aftur starfsemi
hermdarverkamanna þar. í
hernaðaraðgerðunum er beitt
nýtízku hergögnum, svo sem
flugvélum og skriðdrekum.
Orrustuflugvélar og þyril-
vængjur hafa í allan dag ver-
ið á sveimi yfir Constantine
héraðinu, þar sem hermdar-
verkamennirnir hafa mjög
haft sig í frammi. Þarna er
einnig beitt fótgönguliði og
fallhlífarherdeildum.
Fregnir frá París hermdu, að
þegar í gær hefðu yfir 6 þús.
manna verið handteknir um
stundarsakir til yfirheyrslu. Á
Constantine svæðinu hafa yfir
200 manns verið fangelsaðir.
Nokkrir tugir manna hafa verið
settir í fangelsi í Algier.
BEZTA HERSVEITIN
Frakkar fluttu nýlega til
Algier heila hersveit, sem talin
hefir verið bezta hersveitin i
franska hernum, frá vörnum At-
lantshafsbandalagsins í Evrópu.
Gagnrýni á því að varnir At-
lantshafsbandalagsins hafi með
þessu verið veiktar, hafa Frakk-
ar svarað með því að benda á
hvílíka þýðingu Norður-Afríka
hafði sem hernaðarvettvangur í
síðustu styrjöld.
Frakkar telja sér lífsnauðsyn
að brjóta á bak aftur mótþróa
í Algier, þar eð þeir telja að
með friðun þessa afríkanska
hluta Frakkaveldis muni reyn-
ast auðveldar að ráða vanda-
málunum í Túnis og Marokko
til lykta.
Coty Frakklandsforseti talaði
í ræðu í gær um „ofsalega yfir-
drottnunarstefnu" vissra ríkja,
sem hjálpuðu hermdarverka-
mönnum í Norður-Afríku. Hér
mun hann hafa átt við ríkin í
Arababandalaginu. Coty kvað
Frakka aldrei myndu lúta ofríki
ofbeldismanna.
Af hálfu Arababandalagsins
var því iýst yfir í Kairó í gær,
að blóðsúthellingar myndu halda
áfram í Norður-Afríku, þar til
Frakkar veittu löndum þar
sjálfstjórn.
Buðlíf
í góðviðiinu
IIHE segir, ú kalda stríðiðsé orð-
ið ú menningarstríði á Islandi
3 heimsfrægir iistamenn koma hingað frá Banda-
ríkjunum í hausf — en taka þó alis ekki þátt í
menningarstríðinu!
Klakksvíkurmálið:
Rétlarrannsékn
lokið
KAUPMANNAHÖFN, 22. júní:
— Réttarrannsókn í Færeyjum
út af Klakksvíkurmálinu er nú
lokið og rannsóknardómarinn
ásamt lögreglumönnunum komn-
ir til Khafnar. Verður þar unnið
úr gögnum og frekari ákvarðan-
ir teknar.
Fulltrúi Færeyinga í danska
þjóðþinginu, Mohr Dam, hefir
hvatt til þess að reynt verði að
komast hjá að refsað verði mönn
unum sem „reyktu friðarpípuna
Eftirfarandi grein birtist i
nýjasta hefti bandaríska
tímaritsins Time, sem hing-
að barst í gær:
•
DAG nokkurn á s.l, vetri fékk
bandaríski fiðluleikarinn Isaac
Stern upphringingu.Fulltrúi hans
þurfti að ná tali af honum til
þess að spyrja hann um, hvernig
honum litist á að skreppa til
Reykjavíkur og leika fyrir ís-
lendinga. Stern var nýkominn
úr löngu ferðalagi og var síður .
en svo ginkeyptur fyrir uppá-1
stungunni, en hlustaði samt á1
forsendur hennar. Urðu úrslit
þau, að hann tók fiðluna sína
og hélt í herflugvél til þessarar
stóru eyjar sunnan heimskauta-
baugs.
„MENNINGARBARÁTTA”
Forsendur, eða öllu heldur
ástæður til þess, að Stern tók
þessa ákvörðun, voru m. a.:
„ísland er merkilegt land, þar
sem allir eru læsir og hafa rót
gróna fegurðarást. í öðru lagi
er landið í Atlantshafsbanda-
laginu. Þar sjá bandarískir um
flugbækistöð, og ekki ólíklegt,
að þeir sýni nokkuð einhliða
mynd af bandarísku menning-
arlífi. Og loks hafa Rússar
hafið menningarbaráttu þar í
landi, sem íslenzki kommúnista
flokkurinn gerir eins mikið úr
og frekast er kostur.
EINS OG DROPI í HAFIÐ
Stern hlaut góðar viðtökur og
varð að endurtaka hljómleika
sína, en frægð hans mátti sín
lítils gegn menningarsókn Rússa.
Á hverju ári senda Rússar þetta
4—10 manna hóp beztu lista-
manna sinna, t. d. sólóista frá
Leningrad-ballettinum, fiðluleik-
ara, söngvara, píanóleikara og
jafnvel skákmenn. Og eitt sinn
sendu þeir Aram Khachaturían,
tónskáld (Sverðdansinn), og
stjórnaði hann íslenzku sinfóníu-
hljómsveitinni. — Og enn meiri
áhrif hafa ferðir rússneskra
hljómsveitarmanna haft til
smærri og einangraðri staða í
landinu.
MJÖG FÁIR FRÁ BANDA-
RÍKJUNUM
Mjög fáir bandarískir hljóm-
listarmenn heimsóttu ísland fyrir
1954. En síðan ANTA (American
National Theater and Academy)
hóf skiptiferðir hljómlistarmanna
til annarra landa, hafa nokkrir
beztu listamenn Bandaríkjanna,
skroppið þangað, t. d. sópran-
söngvari Metrópólítan-óperunnar
Blanche Thebom, og blásara-
kvintettinn frá Fíladelfíu. í s.l.
viku var organistanum E. Power
Biggs ákaflega vel fagnað og ein-
staklingar úr Boston sinfóníu-
hljómsveitinni hafa leikið með
hljómsveitum,- og einir sér.
1 Framh. á bls. 2
Baðstaðir, bæði í sundlaugum, sundhöll og í Nauthólsvík, eru mjög
sóttir nú í sólskinsveðrinu. Myndin er tekin í sundlaugunum.
(Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.)
Júlíus Katchen
Peróm: Égverð
forseti áfram
BUENOS AIRES, 24. júní: —
Eftir miklar bollaleggingar um
það, að Peron forseti væri „sjúk-
ur og þreyttur á öllu saman“, tók
forsetinn sjálfur af skarið í út-
varpsræðu í gærkvöldi og kvaðst
'ætla að gegna forsetastörfum
áfram.
„Helzt vildi ég hætta“, sagði
forsetinn, „en skyldan kallar".
Hann sagði að þrír aðmírálar
hefðu staðið að byltingunni og að
þeir hefðu engu áorkað nema að
úthella blóði landsmanna.
Fjórtán ára prinsessa
giftist
75 ára milljóna-
mæringi
LUCCA, Ítalíu, 18 júní: —
Fjórtán ára gömul prinsessa lagði
í fyrradag af stað í brúðkaups-
ferð í svissnesku Ölpunum, með
sjötíu og fimm ára gömlum eigin-
manni sínum, milljónamæringi.
Brúðurin, di Torella, prinsessa,
verður fimmtán ára gömul 25.
júlí n.k. Hún rekur ætt sína til
Murats, mannsins sem Napoleon
I. gerði að konungi í Ítalíu og
prinsi af Neapel.
Brúðguminn heitir Tealdi
greifi og er auðugur mjög, auður
hans metinn á 11 milljónir
sterlingspunda eða um 500 millj.
króna. Fyrri kona hans dó fyrir
tíu mánuðum.
Dulles segir eiuu
uiferð til uð stiS m
„kuldu striiið'4
SAN FRANCISCO, 24. júní.
JOHN FOSTER DULLES, utanríkismálaráðherra Banda-
ríkjamanna, gerði í dag grein fyrir „ákaflega einfaldri
aðferð til þess að binda endi á það, sem kallað er „kalda
stríðið“ “.
Dulles var síðastur ráðherra fjórveldanna er ávarpað hafa af-
mælisþing Sameinuðu þjóðanna undanfarna daga. Dulles sagði:
„Fylgið stofnskrá Sameinuðu þjóðanna, beitið ekki valdi né
lótunum um valdbeitingu í alþjóðaviðskiptum og styðjið ekki
eða stjórnið moldvörpustarfsemi gagnvart öðrum þjóðum.
Dulles vitnaði til hinna sjö greina Molotovs og sagði: „Það
þarf engar sjö aðferðir til þess að binda endi á kalda stríðið,
þessi eina er nægileg."
Með þetta í huga kvað hann fulltrúa Bandaríkjanna fara til
Genfarráðstefnunnar í næsta mánuði. „Æskilegt væri að aðrir
kæmu þangað með sama hugarfari".
BONN, 24. júní: — Adenauer
kanslari gerir ráð fyrir að fara
til Moskvu í september n.k.
Dulles minnti á að talað væri^
um hinar batnandi horfur í al- •
þjóðamálum að undanförnu, sem
„upphaf nýs tíma.“ Þetta gæti
reynzt rétt. „Bandaríkin, því
lofa ég ykkur, munu gera allt
sem í þeirra valdi stendur til,
þess að þetta megi verða. En
vér gleymum ekki, vér þorum
ekki að gleyma því, að sumir
þeirra, sem nú fagna atburðum
I þeim, sem gerzt hafa að undan-
förnu, eru nákvæmlega hinir
sömu, sem árum saman hafa
reynt að stöðva þá“.
| Dulles minntist sérstaklega á
fimm málefni, sem hann taldi
höfuðverkefnin í alþjóðavið-
skiptum í dag, þar af tvö, sem
! Rússar hafa áður lýst yfir að
þeir muni hvergi vilja nærri
koma að ræða. Þessi fimm mál-
efni eru:
I
1) Þýzkaland: „Hin óeðlilega
skipting mikillar þjóðar er
mikið ranglæti. Af því mun
illt hljótast ef henni er hald-
ið áfram.“
2) Leppríkin: „I Austur Evrópu
eru þjóðir, sem margar eiga
stolta sögu þjóðlegrar tilveru,
sem nú eru þrælkaðar. Þeim
var bjargað undan einni harð-
Framh. á bls. 2
Mennirnir á hvítu
kyrliunum
íkröfugöngu
VÍNARBORG, 18. júní: — Meir
en 5000 Vínar-læknar gengu
fylktu liði um borgina í dag, í
hinum hvítu kyrtlum sínum. Þeir
voru að undirstrika kröfuna um
rétt sjúklinga til þess að velja
sér lækni sjálíir.
Til umræðu í austurríska þing-
inu er frumvarp til laga, sem
heimilar tryggingayfirvöldum
ríkisins að fela sjúklinga ákveðn-
um læknum á hendur._
Bretadrottning
í Noregi
OSLO 24. júní: —. Elisabetu
Bretadrottningu var vel fagnað
af tugþúsundum er hún kom til
Osló í morgun í þriggja daga op-
inbera heimsókn. Veður var þó
hryssingslegt. Hákon konungur
tók á móti frænku sinni
t