Morgunblaðið - 09.07.1955, Page 1
16 síður
Samtal við fiskimálastjéra
Skólað
fyrír Geni
“ VEIÐITÍLRAUNIR
OG SÍLDARLEIT
Ný leit að karfamiðum
ALDREI í sögu fiskveiðanna hér á landi hefir verið lögð meirt
áherzla á fiskileit og veiðitilraunir en gert er um þessar
mundir. í siðasta mánuði fór togarinn „Harðbakur“ frá Akureyri
til leita að karfamiðum við Norður- og Austurland og í fyrrinótt
fór togarinn Jón Þorláksson í sömu erindum á svæðið undan
austurströnd Grænlands. Loks lagði svo „Ægir“ upp í fyrrinótt i
leiðangur til Norðuriandsins til síldarleitar og veiðitilrauna.
Davíð Ólafsson fiskimálastjóri skýrði frá þessu á blaða-
mannafundi í gær. Eru leiðangrar þessir kostaðir af atvinnu-
málaráðuneytinu og að nokkru leyti af fiskimálasjóði í sam-
ráði við atvinnumálaráðuneytið en við þá eru tengdar miklar
vonir af öllum, sem við útgerð fást og sjóinn stunda.
Sagan endurtekur sig—
eftir 374 ár
ALLIR kannast við söguna af
því er Sir Walter Raleigh
breiddi skikkju sína fyrir fram-
an fætur Elísabetar I. Breta-
drottningar, svo að hún gæti stig-
ið þurrfóta inn í vagn sinn.
Nú hefir sagan endurtekið sig.
Skömmu eftir að Elísabet II,
Bretadrottning, kom úr Noregs-
för sinni heimsótti hún háskólann
í Dundee í Skotlandi. Það hafði
rignt um daginn og rauður dúk-
ur hafði verið lagður frá aðal-
dyrum háskólans að vagni drottn
ingar. Fjórir læknastúdentar
veittu því athygli að allmikið
vantaði þó á það, að dúkurinn
næði alla leið að vagninum. Þeir
brugðu skjótt við, skutust fram
hjá lögregluverðinum, fóru úr
hinum skrautlegu jökkum sín-
um og lögðu þá fyrir fætur drottn
ingar, þá sex metra, sem á vant-
aði. Hin unga drottning hikaði
augnablik og leit til rektors há-
skólans, sem var í fylgd með
henni. Hann kinkaði brosandi
kolli. Drottning brosti á móti og
steig síðan hiklaust yfir jakkana
og komst þurrfóta upp í vagn
sinn, — eins og fyrirrennari henn
ar fyrir réttum 374 árum.
Rússar snúa afftir
GENF, 8. júlí: — Sovétríkin til-
kynntu í dag, að þau ætlu'ðu að
taka sæti sitt að nýju í alþjóða
heilbrigðismálastofnuninni. Þeir
hættu störfum í stofnuninni fyrir
sex árum.
LEITAÐ NÝRRA
KARFAMIÐA
Það er ekki enn liðið ár síðan
hin fengsælu karfamið, Jónsmið,
út af Angmagsalik á austur-
strönd Grænlands fundust, er
togarinn Jón Þorláksson var þar
að veiðum. Þá var mjög tekið
að ganga á karfann hér við land.
Nú er togarinn Jón Þorláksson,
skipstjóri Ólafur Kristjánsson,
farinn á Grænlandsmið á ný, til
að leita nýrra karfamiða, sunn-
an Jónsmiða. — Með togaranum
er hinn nýbakaði doktor í fiski-
fræði, dr. Jakob Magnússon, en
hann hefir helgað sig karfa-
rannsóknum. Kom hann hing-
að til lands með þýzka rann-
sóknarskipinu Anton Dohrn
á dögunum, en í þeim leið-
angri fór skipið á slóðir suhn-
an Jónsmiða til karfarannsókna
og þar er hugmyndin að dr.
Jakob Magnússon stundi rann-
sóknir nú. Verður togarinn 11
daga í leiðangri þessum.
Það er mjög aðkallandi fyrir
togaraflota okkar að finna ný
karfamið, sem eru á nálægum
slóðum og því getur þessi leið-
angur markað sömu tímamót 1
karfaveiðum íslendinga og Jóns-
mið í fyrra. Hér við land hefur
karfaaflinn farið minnkandi og
tekið er að ganga á Jónsmiða-
karfann nú síðustu dagana,
herma síðustu fregnir. En Jón
Þorláksson mun láta íslenzku
togarana fylgjast með leitinni.
SÍLDARLEIT OG VEDÐI-
TILRAUNIR ÆGIS
í fyrrinótt lét varð- og rann-
sóknarskipið Ægir úr höfn hér f
Reykjavík. Var skipið nú sem
síldveiðiskip á leið á vertíð, svo
sem líka er raunin. Hann var með
tvo nótabáta, herpinætur og
síldardekk. Með skipinu er
dr. Hermann Einarsson, en
skipherra er Þórarinn Björns-
son og nótabassi skipsins
verður Ingvar Pálmason.
Segja má, að hlutverk Ægis á
síldarmiðunum verði tvíþætt.
Með hinu fullkomna tæki
sínu, asdic-tækinu, munu Æg-
ismenn veita skipunum aðstoð
við að leita að síld, sem ekki
veður, en heldur sig á viðráðan-
legu dýpi.
Þá munu verða gerðar veiði-
tilraupir. — Þær verða þannig
framkvæmdar, að er síldartorfa
kemur fram á asdictækinu, sigl-
ir léttbátur frá Ægi og staðsetur
torfuna nákvæmlega með dýpt-
armæli, sem er í léttbátnum. —•
Þegar því er lokið, koma nóta-
bátarnir og kasta á torfuna um-
hverfis bátinn.
Nú eru nokkrir fiskibátanna
Frh. á bls. 2.
Eisenhower kemur
á KeflavíkurflugvöU
WASHINGTON, í gærkvöldi.
EISENHOWER forseti kemur við á Keflavíkurflug-
velli á leið sinni austur um haf, er hann fer á Genfar-
ráðstefnuna. Hann leggur af stað í einkaflugvél sinni frá
Washington n. k. föstudagskvöld og kemur við á Keflavík-
urflugvelli fyrir hádegi á laugardaginn.
Ef flugvélin heldur áætlun er gert ráð fyrir að forsetinn komi
til Genf á laugardagskvöld.
Ráðstefna stórveldanna í Genf hefst annan mánudag, þ. 18. júlí.
Blaðafulltrúi Eisenhowers lagði af stað til Genfar þegar í dag.
Sovétríkin hafa einnig byrjað mannflutninga til Genfar.
„Stefna Sovétríkianna
ekki byggð á veikleika44
— Eg vona, ef stríð verður
aftur, að Sovétríkin og Banda-
ríkin berjist þá hlið við hlið.
— Eitthvað á þessa leið mælti
Krúsjeff í garðveizlunni hja
sendiherra Bandaríkjanna,
Charles Bohlen, á þjóðhátíð-
ardegi Bandaríkjanna 4. júlí
síðastl. Myndin er tekin í
garðveizlunni og sýnir Krúsj-
eff lyfta brosandi glasi til
konu sendiherrans, frú Bohl-
en. Bulganin forsætisráðherra,
horfir á, einnig mjög ánægð-
ur á svip.
London 10. júlí.
SIR Anthony Eden, forsætisráðh.
Breta, tók á móti Nehru, forsæt-
isráðherra Indverja, er hann kom
til Lundúnn í dag. Nehru sagði
við komuna, að London „væri
næstum síðasti áfanginn á leið
sinni, sem legið hefði um löndin r
i Austur Evrópu“.
Nehru sagði, að ferðalagið um
Austur Evrópu hefði staðfest þá
sannfæringu sína, að þjóðir þar
vildu frið.
„En það væri rangt að áætla,
að stefna -ovétstjórnarinnar í ut-
anríkismálum væri byggð á
veikleika*. sagði Indverjinn.
Meðal þeirra, sem tóku á móti
Nehru, var systir hans, Pandit,
sem er sendiherra Indverja í Lon
don og Krishna Menon, sérlegur
sendiherra Nehrus.
Nehru hefur tvo undanfarna
daga verið í Rómaborg, og gekk
þar fyrir páfa og ræddi við Segni,
hinn nýja forsætisráðherra ítala.
Nehru og Sir Anthony eru per-
sónulegir vinir. Þeir munu ræða
undirbúninginn undir Genfar-
ráðstefnuna og byggja þar nokk-
uðá reynslu Nehrus frá Sov-
étríkjunum.
6.8 km falllilífar-
stökk - án fall-
PAU, Frakklandi, 8. júlí: —
Franskir fallhlífarhermenn
stukku í dag úr flugvél í 7.500
metra hæð yfir Pyerneafjöllum
og létu sig falla 6.800 metra áður
en þeir opnuðu fallhlífar sínar.
Þeir segjast með þessu hafa sett
nýtt heimsmet.
Tíminn sem fallhlífarhermenn
irnir voru í fallinu áður en þeir
. opnuðu fallhlífarnar var frá 125
i— 132 sekundur.
j Áður var fallmetið, án fallhlíf-
ar, 6500 metrar, sett af sovétsk-
um hermönnum.
| Margir herforingjar og full-
trúar flugfélaga voru viðstaddir.
NýtefldumálaráS-
herra Breta á Kýpur
LONDON, 8. júlí: — Lennox-
Boyd, nýlendumálaráðh. Breta,
er kominn til Kyprus. Komu hans
þangað hefir verið fagnað af
eygjarskeggjum og Markarios,
erkibiskup hefir látið í veðri
vaka að ráðherrann muni m. a.
ræða við sig.
30 sfiga hili í Noregi
OSLO, 8. júlí: — Noregur er í
bili eitt heitasta landið í Evrópu.
Þar var í gær 30 stiga hiti á
nokkrum stöðum, m. a. i Nesbyen
í Hallingdal. Heitara en í Noregi
var aðeins í tveimur löndum,
Spáni 37 stig og Ukrainu 38 stig.
Hitar ganga nú einnig í Dan-
mörku, Svíþjóð og Finnlandi. f
Kaupmannahöfn og Helsingfors
var í dag 24 stiga hiti.
Reshevsky skorar
á Botviimik
MOSKVA, 8. júlí: — Samuel
Reshevsky skákmeistari Banda-
ríkjanna, hefir skorað á Michael
. Botvinnik skákmeistara Sovét-
ríkjanna og heimsmeistara í skák
j í 20 leika tafl um heimsmeist-
aratitilinn. Reshevsky vill að 10
skákir verði tefldar í Moskva og
10 skákir í Bándaríkjunum.
Reshevsky sigraði Botvinnik í
skákkeppni, sém fór fram fyrir
nokkrum dögum milli amerískra
og rússneskfa skákmanna í
Moskva. En g.rherísku skákmenn-
irnir töpuðu í hópkeppninni.