Morgunblaðið - 10.07.1955, Side 7
Sunnudagur 10. julí 1955
MORGUNBLAÐIÐ
i
í
t
r
¥0113
áhrií tisfi nokkur orið
- segir Snorri Sigíússon, irni sparif jár-
söfxnm skóíabarna, sem söfuuðu
IJmiIlj.kr.
Á myndinni eru, talið frá vinstri: Valdimar ííeiga son, Róbert Arnfinnsson, Guðbjörg Þorbjarnar-
dóttir og Lárus Pálsson. (Ljósm. Mbl. Ól. K. M.)
ÓSKABARN ÖRLAGANNA
eftir Bernhord Shnw sýnt í Sjólfstæðishósina
Leikstjóri: Einar Pálsson
EINS og áður hefur verið getið
hér í blaðinu fór frumsýning
á gamanleiknum „Óskabarn ör-
laganna" eftir Bernhard Shaw
fram í Sjálfstæðishúsinu s.l.
fimmtudagskvöld. Er þar með
hafinn nýr og mjög athyglisverð-
ur þáttur í skemmtanalífi bæjar-
ins og eiga þeir sem að því standa
vissulega þakkir skilið fyrir þetta
ágæta framtak.
Bernhard Shaw þarf ekki að
kynna hér. Snilli hans og vægð-
arlaust háð er öllum kunn og
kemur hvorttveggja fram í þessu
stutta leikriti í ríkum mæli.
Leikurinn gerist árið 1796 í krá
á Norður-Ítalíu eftir orustuna
við Lodi, þar sem Napoleon vann
einn af sínum glæsilegu sigrum.
Teflir höfundurinn þar fram á
skemmtilegan hátt fegurð og
kænsku konunnar gegn snilli og
vitsmunum karlmannsins og sigr-
ar konan í þeim átökum með
yfirburðum. Að öðru leyti verð-
ur efni leiksins ekki rakið hér.
Einar Pálsson hefur sett leik-
inn á svið og annast leikstjórnina
og hefur tekist hvorttveggja
prýðisvel. Er hraði leiksins mjög
góður og heildarsvipurinn á leikn
um allur hinn ágætasti, þrátt
íyrir þröngt svið og þá erfið-
leika, sem af því hljóta að leiða.
Lárus Pálsson leikur Napo-
leon, aðalhlutverk leiksins. —
Shaw sýnir þarna enga gljám.ynd
af hinum mikla hershöfðingja og
Lárus ekki heldur, enda mun'það
sanni næst, að Napoleon hafi ver-
ið all hrjúfur í yiðmóti og ekki
alltaf gætt franskrar hæversku
i framkomu. — Lárus fér vel
með þetta vandasama hlutverk,
og er auðséð að hann hefur þraut
hugsað þessa sérstæðu manngerð.
Ég er þó ekki að öllu leyti sam-
mála honum um túlkun hans á
Napoleon, en um það má vitan-
lega alltaf deila. Fyrir brá í leik
Lárusar að hann minnti nokkuð
á kölska í Gullna hliðinu, annars
var leikur hans hnitmiðaður og
bar vott um glöggan skilning
leikarans á hlutverkinu.
Guðbjörg Þorbjamardóttir leik
ur Dömuna, annað aðalhlutverk
leiksins, glæsilega unga konu, er
sigrar hinn mikla sigurvegara
með yndisþokka sínum og gáfum.
Guðbjörg fer afburðavel með
þetta hlutverk. Framsögn hennar
er skýr og eðlileg og framkoman
öll í senn virðuleg og þó frjáls-
leg. Er Guðbjörg mjög vaxandi
leikkona og er nú í fremstu röð
íslenzkra leikkvenna.
Flokksforingjann leikur íióbert
Arnfinnsson. Hlutverkið er
skemmtilegt og nýtur sín til fulls
í höndum Roberts, sem vænta
mátti, því Róbert er snjall og
gáfaður leikari. Flokksforinginn
er að sjálfsögðu góður hermaður
en ekki gáfnaljós að sama skapi
og tekst Róbert ágætlega að sýna
þá hlið á þessum sómamanni.
Valdimar Helgason leikur veit-
'ngamanninn Giusepne og fer
'aglega með hlutverkið án þess
hó að skapa þar nýja persónu.
Masnús Pálsson hefur málað
“iktjöldin með sínum örugga
■mekk og ásætu huekvæmni,
'nda eru tjöldin afbragðsgóð
Árni Guðnason hefur þýtt leik-
’t.ið á ágætt mál og þjálft í
nunni, sem hans var von og visa,
Áhorfendur tóku leiknum
'-''■kunnarve! og var það að verð-
°ikum. Voru leikendur og leik-
'íóri kallaðir fram hvað eftir
nnað oð hvllíir með miklu lófa-
’M og föerum blómvöndum.
Ég vil ljúka þessum fáu lmum
'eð því að þakka öllum þeim
■"n að hessari svningu standa
'vrir þeirra ágæta starf. Er
-'r stefnt í rétta átt tit menn-
'•rarauka í fábrevttu skemmt-
nalifi bæjarins á þessum tíma
-s og er það von m;n að Reyk-
'kingar sýni að þeir kunni að
’eta bessa áeætu viðleitni m<'ð
vi að fjölmenna á þessa leik-
'mingu og aðrar sem á eftir
oma frá þeim félögum.
Signrður Grímsson.
HINN nýi þáttur í starfsemi
barnaskólanna í landinu,
sparifjársöfnun skólabarna og
leiðsögn fyrir skólabörnin í ráð-
deild og sparnaði, hefur farið
vel af stað. Árangurinn orðið
meiri en búizt hafði verið við.
Og ég vona, að hin uppeldislegu
áhrif þessa starfs hafi nokkur
orðið, því sá er höfuðtilgangur-
inn. — Sparifjármerkjasalan í
skólunum nam rúmlega 1,1 millj.
króna.
MÁL SEM SNERTIR ALLA
Á þessu leið fórust Snorra
Sigfússyni orð, er hann kvaddi
blaðamenn og forvígismenn
skólanna ásamt fræðslumála-
stjóra, á sinn fund í gær, til að
gera grein fyrir þessu gagn-
merka starfi, sem hófst á siðastl.
vetri. Áður en Snorri gerði grein
fyrir starfseminni, ræddi hann
þá knýjandi nauðsyn fyrir þjóð-
ina að efla ráðdeild og sparnað
meðal æskunnar, þegar svo
margt freistar hennar: hvers-
konar skemmtanir og munaður.
Hér væri á ferðinni mikið al-
vörumál, sem snerti alla þegna
þjóðfélagsins, en fyrst og fremst
heimilin og skólana.
Þessu næst gerði Snorri grein
fyrir sparifjársöfnuninni og
komst hann þá m. a. svo að
orði:
Eins og kunnugt er hófst á
s. 1. hausti starfsemi sú, sem
nefnd hefir verið Sparifjársöfn-
un skólabarna. Leiðsögn í ráð-
deild og sparnaði. Var þetta að
frumkvæði Þjóðbankans og kost-
að af honum og gert í samráði
við yfirstjórn fræðslumálanna
og kennarasamtakanna í land-
FRAMLAG BANKANS OG
ÞÁTTTAKABARNANNA
Sem vísir að söfnun og til
uppörfunar, gaf Landsbankinn
hverju barni á skólaskyldualdri
10 krónur, er leggjast skyldi inn
í sparisjóðsbók. Var þannig dreift
út meðal skólabarna í landinu
um 185.000,00 kr.
Að sparifjársöfnuninni með
merkjam störfuðu um 13.500
börn í 43 skólum. Er nokkuð
misjafnt með söfnunina í skól-
unum, sem .eðlilegt er. Veldur
því bæði aðstöðumunur og mis-
jafn áhugi heimila og kennara.
Og svo var tíminn mislangur.
Sumir skólar hófu ekki starfið
fyrr en eftir áramót, en þó flest-
ir í október eða nóvember. —
Lægsta söfnun skóla varð kr.
22,00 á barn að meðaltali, en sú
hæsta kr. 172,00. En langlfestir
skólar eru með 60—90 krónur
á barn að meðaltali. Er þetta
mikil söfnun, miðað við erlenda
reynslu.
602 ÞÚS. KR. í RFVKJAVÍK
Um heildarupphæð söfnunar-
innar er enn ekki vitað með
neinni nákyæmni, enda skiptir
það ekki höfuðmáli í þessu sam-
bandi. Er þó vitað, að Lands-
bankinn hefir sent út sparimerki
fyrir rúmlega XVi milljón króna.
Mun að vísu eitthvað af þeim
óselt hjá umboðsmönnum. Hitt
er þá einnig vist, að allmikið fé
hefir verið lagt inn í bækur
barnanna án merkja. En að
sjálfsögðu er merkajsalan a<5al-
stofninn. Hafa í Landsbankanum
í Rvík einum komið inn í 4340
nýjar bækur rúmlega 602 þús-
undir króna. Og merkjasalan í
skólunum mun nema um 1 millj.
150 þús. króna, eftir því sem
næst verður komizt.
er þó fyrst og fremst upp-
eldislegs eðlis, eins og oft
hefir verið tekið fram, Með
henni er ætlað að glæða
skilning barna á ráðdeild i
meðferð fjármuna, fá þau til
að skilja það, að hyggiiegrá. 1
sé að verja aurum sinum fyrir
þarflega hluti en óþarfa, a® 1 í
margt smátt samansafnað geti
orðið stórt, og að ekki sé sjálf-
sagt að eyða hverjum eyrif0^
jafnóðum og hans er aflað.
Jafnframt verður einnig að .£,
hafa það í huga, að t. d. mikil " ‘
sælgætiskaup og sælgætis- !
neyzla barna er heilsuspill-
andi og veldur tíðum nautna- »
sýki, sem leitt getur börn og |
unglinga á glapstigu. Það §
verður því að íeljast mikils
virði, ef hægt væri að fá eitt-
hvað af börnum til að keppa | í
að öðru marki með þá aura, 1 i
sem þeim áskotnast, en að
breyta þeim í sælgæti. Spari-
fjársöfnunin er því einskonar
verkleg kennsla, ef á anna® !
borð á að veita einhverja leið-
sögn í ráðdeild og sparnaðl
meðal barna, sagði Snorri
Sigfússon.
GÓÐAR UNDIRTEKTIR
ALLRA
Það má því með sanni segja
að þrátt fyrir allt hefir starfið
gengið vel þetta fyrsta ár. Er s&
það að sjálfsögðu fyrst og R3
fremst að þakka góðhm skiln-
ingi og velvilja alls almenn-
ings i landinu, góðum undir-
tektum innlánsstofnana og ekki
sízt ágætu starfi kennaranna. Er
skylt að þakka það og meta að
verðleikum. Og vér væntum þess
jafnframt að fá að njóta slíkrar rr:
velvildar og fyrirgreiðslu áfram.
★ v b
Eins og áður er sagt störfuðu
að þessu í vetur 43 skólar. Þótti
ekki ráðlegt að taka fleiri með
í byrjun. Nú hefir fleiri skólum
verið boðin þátttaka. Er þess
óskað, að þeir, sem vilja hefja ,
þetta starf í haust, segi til þess
sem fyrst. .
Einhleypur Irésmiííiur á
fertugsaldri, óskaj- eftir
HERBERG!
fæði og helzt þjónustu á
sama stað, nú þegar eða um
næstu ínánaðamót. Tilboð
sendist Mbl. fyrir 15. þ. m.
merkt „Gamli bærin-n—937“
Akurnesliigar
3ja herb. íbúð til leigu. —
Uppl. gefur Björn Lárus-
son, sími 288, Akranesi.
P AL-RAKB LÖÐ
Góð — ódýr
Af það skal með
• Munið:
PAL
Markmið þessarar starfsemi
Lárus Pálsson og Guðbjörg Þorbjarnardóttir.