Morgunblaðið - 10.07.1955, Side 8

Morgunblaðið - 10.07.1955, Side 8
8 MORGVNBLAÐIÐ Sunnudagur 10. júlí 1955 JttwpitiMðfrftj Útg.: H.f. Arvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Stjórnmálaritstjóri: Sigurður Bjarnason frá Vigui. Lesbók: Árni Óla, sími 3045. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla: Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald kr. 20.00 á mánuði Innanlanda. í lausasölu 1 krónu eintakið. ÚR DAGLEGA LÍFINU 0' ^NASSIS, gríski fjármálajöf- urinn og skipaeigandinn, hefur boðist til þess að hlaupa undir bagga með smáríkinu Monaco, sem á í alvarlegum fjár- hagslegum vandræðum um þess- O, í taumanna 'naóóLó npar Leikhús Heimdallar — menningarviðburður SL. FIMMTUDAG hóf Leikhús Heimdallar starfsemi sína með sýningu á einu leikriti hins mikla meistara, Bernhards Shaw. Hlýtur það að teljast merkur við- burður í menningar- og skemmt- analífi höfuðborgarinnar þegar stærstu félagssamtök ungs fólks í bænum ráðast í að efna til leik- starfsemi með aðstoð ágæts lista- fólks. í formála fyrir leikskrá, kemst formaður Heimdallar, Þorvaldur Garðar Kristjánsson m.a. að orði á þessa leið, um tilgang félagsins með þessari starfsemi: I „Leiklistaráhugi er nú mikill hér á landi og ekki sízt meðal ungs fólks. Vill Heimdallur fyrir sitt leyti efla þennan leiklistar- áhuga og styðja að því, að fólk geti sem bezt notið fjölbreyti- legrar leiklistar. Telur félagið, að það eigi að vera einn þáttur í þeirri viðleitni að beina æsku- lýðnum inn á hollar brautir í skemmtanalífinu. Yfir sumarmánuðina hefur öll leikstarfsemi í höfuðborg- inni fallið niður. Þetta hefur að vissu leyti verið óeðlilegt. í nágrannalöndum okkar tíðk- ast, að sérstök sumarleikhús starfi á þeim tíma, sem hin föstu leikhús eru ekki starf- rækt. Þetta hefur fram til þessa vantað hér í höfuðborg- inni. Er Leikhúsi Heimdallar ætlað að bæta úr þessu ástandi. Hér er því ekki ein- ungis um nýung að ræða í fé- lagsstarfsemi Heimdallar held ur einnig í bæjarlífinu." Fábreytt skemmtanalíf Það er vissulega rétt, að mikil þörf er á því, að beina æskulýðn- um inn á hollar brautir í skemmt analífinu. En því miður er skemmtanalíf hinnar ungu höf- uðborgar mjög fábreytt. Hins- vegar eru nægar freistingar til þess að glepja ungt og ómótað fólk út í slæpingshátt og óreiðu. Að því er þessvegna mikill feng- ur þegar almenningi, ungum sem gömlum, eru sköpuð ný tækifæri til þess að njóta ágætrar listar og hollrar skemmtunar Segja má, að félag eins og Heimdallur hljóti að bera allmiklar skyldur í þessum efnum. Hann er langsamlega fjöl- mennasta æskulýðsfélag í Reykja vík. Innan vébanda hans er fólk úr öllum stéttum bæjarfélagsins. Slíku félagi ber vissulega að leggja áherzlu á fleiri þætti starf semi sinnar en sjálfa stjórnmála- baráttuna. Almenningur er held- ur ekki svo áhugasamur um stjórnmál á öllum tímum, að stjórnmálaumræður og pólitísk áróðursstarfsemi haldi áhuga fólksins vakandi. Frjálslynt og þróttmikið æsku- lýðsfélag eins og Heimdallur hlýt ur þessvegna að velja sér fleiri viðfangsefni en stjórnmálastarf- ið. Það er eitt af hlutverkum hans að stuðla að vaxandi þroska æskunnar í bænum, skilningi hennar og áhuga fyrir fögrum listum og umfram allt eigin ham- ingju og manndómi. Leiklistin er ein hin elzta grein listarinnar. Hún hefur á öllum tímum veitt innsýn í leyndardóma mannlífsins, skýrt mannlegar þrár, dregið bresti mannsins fram í dags- Ijósið og kennt manneskjunni að þekkja sjálfa sig. Hún hef- ur sýnt allar hliðar á mann- legu eðli, veikleika þess og styrkleika og átt ríkan þátt í eflingu mannlegs þroska. Þess vegna á mannkynið henni mikið sS þakka og þessvegna hljóta menningarþjóðir jafnan að hafa þessa göfugu listgrein í heiðri. Sumarleikhús ÍSLENDINGAR eignuðust sitt eigið Þjóðleikhús fyrst fyrir 5 árum. Fram til þess tíma höfðu dugmiklir brautryðjendur orðið að iðka leiklist hér við hinar erfiðustu aðstæður. Að starfsemi Þjóðleikhússins hefur íslenzkri leiklist og menningarlífi þegar orðið stórkostlegt gagn. Leikhúsi Heimdallar er, eins og formaður félagsins segir í for- mála sínum fyrir leikskránni, ætlað að fylla upp í eyðu, sem er í leiklistarlífi bæjarins yfir sum- armánuðina. Mun því áreiðanlega verða mjög fagnað af unnendum leiklistar í bænum. Leikhús Heimdallar hefur farið vel af stað. Það hefur val ið ágætt verk eftir mikinn rit- höfund, sem fyrsta viðfangs- efni sitt. Og það hefur fengið nokkra af fremstu leikurum höfuðborgarinnar til þess að flytja það. Menningarlífi Reykjavíkur er mikill fengur að þessari starfsemi. Þess- vegna er ástæða til þess að árna henni heilla. Títóisminn breiðist úf HEIMSÓKN rússnesku leiðtog- anna til Títós í Júgóslavíu hefur vakið mikla ókyrrð meðal þjóð- ernissinnaðra kommúnista (Tító- ista) í Ungverjalandi Rakosi, hinn sauðtryggi Moskvakommún ’ isti og nánustu samstarfsmenn I hans eru hræddir og hafa nú) gripið til róttækra ráðstafana, til , þess að reyna að tryggja aðstöðu sína. Lögregluvörður á götum úti hefir verið aukinn mjög og sér- stakur vörður hefur verið settur um sendiráð vesturveldanna. — Leitað er á öllum, sem erindi eiga við sendiráðin og margir hafa verið yfirheyrðir. Færustu áróðursmenn kommún- istaflokksins hafa verið sendir út um byggðir landsins, til þess að prédika gegn títóisma. Dregið hefur verið úr mat- vælaskammtinum. Langar raðir fólks bíða fyrir utan matvæla- búðir í Búdapest. í gær fengu bændur svo fyrir- ’ skipun frá ríkisstjórninni um að skila öllu korni sínu. I Vitað er, að til átaka kom milli Rakosi, formanns ungverska kom múnistaflokksins og Hegedusar, forsætisráðherra Ungverja í júní síðastl. Síðan hefir lítið til Hege- dusar spurst. Hanrí hefur verið í Moskvu og fregnir háfa gengið um, að hann hafi verið settur frá ráðherraembættinu. ar mundir. Onassis hefur höfuð- stöðvar sínar í Monte Carlo, höf- uðborginni í Monaco. Onassis kom fljúgandi frá New York til Parísar síðastlið- inn mánudag, og sagði við komu sína þangað: „Það ætti að vera auðvelt að ráða fram úr vand- ræðunum í Monaco, ef beðið verður um aðstoð frá mér. Ég mun þá helga mig algerlega verkefninu". * ♦ V A VANDRÆÐIN í Monaco hófust á fimmtudaginn í fyrri viku, og stöfuðu frá „Banka dýrmætra málma“ í Monte Caarlo. . . Sagt er að bankinn hafi fest fé, að upphæð tæplega 20 millj. króna, í einkafyrirtækjum út- Ívarps o.g sjónvarpstækja. En til viðbótar við fjármála- vandræðin, hafa nú komið fram í dagsljósið margra ára átök milli Rainers ríkisstjórans í Monaco og þingsins í landinu. Jafnvel hafa heyrst raddir um ! að Rainer fursti mun neyðast til þess að leggja niður völd sín. * ♦ V ♦ STRAX eftir að stjórnmálavand- ræðin steðjuðu að, neyddist prinsinn til þess að láta fjóra menn úr ríkisstjórn sinni víkja úr embætti. En brátt kom í Ijós, að þrír af ráðherrunum höfðu verið látnir fara frá, aðeins til málamynda. Þeir héldu áfram störfum og einn þeirra stjórnaði jafnvel rannsókn á fjármála- hneykslinu. Takist ríkisstjóra og ráðherr- um hans annars vegar og 18 manna þingi landsins hins vegar að leysa ágreining sinn, þá virð- ist lítið að óttast, að því er fjár- málin varðar. Onassis leyfir varla, að spila- höllinni í Monte Carlo verði lokað. Eins og nú stancla sakir hefur ekki verið viðurkennt opinber- lega, að Hitler sé dauður. Yfirvöldin í Vestur Berlín, en þar er talið að Hitler hafi framið sjálfsmorð í loftvarnabyrgi sínu, hafa seilzt til fjármuna Hitlers, til þess að geta notað þá til þess að bæta tjón þeirra, sem urðu fyrir barðinu á nazistum. PETER TOWNSEND, brezki flugliðsforinginn, sem kennd- , ur er við Margréti Bretaprins- essu, átti mikilli lýðhylli að fagna í Danmörk og Svíþjóð um | síðustu helgi. f Málmey í Sví- þóð voru á sunnudaginn háðar hinar „alþjóðlegu áhugamanna veðreiðar" og Peter Townsend bar þar sigur af hólmi ó gæð- ingi, sem kallaður er „Rock’s". Auk Townsends tók þátt i þessum veðreiðum Ali Khan prins og reið hann hesti föður síns. Ali Khan varð fjórði í röð- inni í keppninni. Átján knapar tóku þátt i keppninni. Þegar hestarnir fóru fram hjá áhorfendapöllunum eftir fyrsta hringinn var Towns- end fyrstur og Ali Khan annar. Vakti þetta mikinn fögnuð meðal áhorfenda, — einkum þó kven- áhorfenda. ★ MACMILLAN, utanríkisráð- herra Breta er talinn hafa komið eftirfarandi þrem atriðum til leiðar er hann ræddi við Molo toff hér: • í fyrsta lagi fellst Molotoff á það, að Genfarfundurinn mætti ekki verða vettvangur áróðurs, höfuðáherzlu bæri að leggja á samtöl, en ekki mælsku. • Molotoff fellst á það að utan- ríkisráðherrarnir skuli taka beinan þátt í umræðunum í Genf á þann hátt sem hér segir: Æðstu mennirnir skulu halda tvo fundi fyrsta daginn, þ. 18. júlí, utanrík- isráðherrarnir skulu koma sam- an að morgni daginn eftir og hvern morgun eftir það á meðan fundurinn stendur yfir. Æðstu mennirnir hittast síðdegis. XJeíuaLandi áhripar: * ♦ V A í ÞRJÚ ÁR hefir staðið hörð barátta um 270 milljón króna arf eftir Hitler. í byrjun júlí voru helzt horfur á því, að ætt- ingjar Hitlers og konu hans, Evu Braun, ynnu þetta mál fyrir dómstólunum. Hæstiréttur í Múnchen úr- skurðaði 2. júlí, að opinbert dán- arvottorð um dauða Hitlers væri ekki hægt að gefa út annars- staðar en í Berchtesgaden, þar sem hinn frægi bústaður Hitlers var í fjöllum uppi. Ef dánarvottorð er gefið út í Berchtesgáden myndi ættingjum Hitlers, þ. á. m. systur hans, frú Wolf og foreldrum Evu Braun, sem nú búa í Bayern, — gert kleift að fá arfinn. ÞEIR eru sennilega ekki fáir, sem skroppið hafa úr bænum um þessa helgi eins og svo marg- ar aðrar. íslenzk náttúra er að- laðandi og heillar menn til funda við sig, þegar sól skín í heiði og hjartað slær af ást og þrá og mennirnir verða góðir eins og endurnar á Tjörninni. í gamla 1 daga voru menn ekki yfir sig . þreyttir á borgarlífinu, hraði hversdagsins ekki óbærilegur, rykið ekki kæfandi. Þá átti ! enginn Sephír og Fíat og Fólksvagn og hvað þeir nú allir heita, þá þurftu menn ekki á því að halda að flýja sjálfa sig inn í græna dali við gömul fjöll. Þá sátu engir þreyttir blaðamenn og pikkuðu af eldmóti á sálarlausar ritvélar og enginn Velvakandi reyndi að vera sniðugur til þess að þóknast lesendum sínum. ★★★★★ ÞAÐ er gaman að ferðast og sjá fjöllin koma á móti manni og hverfa svo að baki eins og fólkið í Austurstræti. —---- Munurinn er bara sá að við þurf- um ekki að taka ofan fyrir fjöll- unum og brosa smeðjulega til þeirra og langa til að vera vinir þeirra einungis vegna þess að þau eru voldug og stór. Þau eiga sér ekki viðhlæjendur að vinum, heldur þá sem eru sjálf- ir stórir og sterkir og heilbrigð- ir og hraustir og vilja njóta í faðmi þeirra, gleyma í bláma þeirra. Fjöllin eru svo ólík mönnunum, þau eru ekki fé- skjálg og hverflynd og geðvond og metorðasjúk. Þau eru bara fjöll; blá, græn og grá. Bara fjöll.... ★★★★★ ÞAÐ er gaman að ferðast, þeg- ar malbikið hitnar og brenn- ir á manni fæturna og trén teygja sig til himins og ánamaðkarnir bíða átekta: Það er sól. — Við tökum pjönkur okkar, brjótum tjaldið saman og þeysum úr skarkalanum. Kannski sjáum við laxinn hoppa í Leirvogsá eða Laxá í Kjós, sporðasprækan silung í Þingvallavatni eða lóuna eða þröstinn.... ★★★★★ ÞAÐ er gaman að ferðast, þegar rigningin lemur tjöldin, eins og einhver annar sé að pikka á ritvélina sína en þreyttur blaðamaður, •— þegar við sofnum í grænu grasi og heitu regni og einhver annar pikkar á ritvélina sína eins og þreyttur blaðamaður. . . . íw-ca ■ crswjj MerklB, lem klæðir landli.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.