Morgunblaðið - 17.07.1955, Side 1

Morgunblaðið - 17.07.1955, Side 1
16 síður og Lesbók 43. árgangur 159. tbl. — Sunnudagur 17. júlí 1955 Prentsmiðja Morgunblaðsins Eisenhower segir við komu til íslands: „Ég fer til Evrópu í leit að friði“ r Mynd þessa tók Ijósm. Mbl. Gunnar Rúnar, þegar Eisenhower steig út úr flugvél sinni á Keflavíkur velli. Fyrir framan forsetann er Mamie og því næst John sonur þeirra og ráðunautar forseta. vinstra megin gengur forseti íslands til móts við Eisenhower. DWIGHT EISENHOWER forseti Bandaríkjanna kom í gær i stutta heimsókn til íslands. Dvaldist hann í tvær klukkustundir á Keílavíkurflugvelli og snæddi hádegisverð í boði ríkisstjórn- ar íslands. Við komuna flutti hsnn stutt ávarp, þar sem hann lagði áherzlu á það, að för hans til Genfar væri gerð í leit að friði. Eisenhower mælti m. a. á þessa leið: — Ég tel mig hafa verið mjög heppinn að för mín til Evrópu gerði mér kleift að heimsækja íslendinga, sem hafa nú um langt skeið verið ágæt vinaþjóð okkar Bandaríkja- manna. Það er skemmtilegra veður og bjartara í lofti núna heldur en síðast þegar ég heimsótti ykkur enda var þá miður janúar. Næst vék forsetinn nokkrum orðum að Genfar-ráðstefn- unni. Hann sagði m. a.: — Þessi Evrópu-för mín er gerð í leit að friði. Ég vona að okkur sem sitjum Genfar-ráðstefnuna muni takast að styrkja málstað friðarins í þágu allrar veraldar, svo að þjóðir eins og þér íslendingar, vér Bandaríkjamenn, allar þjóðir Atlantshafsbandalagsins, sem og allar aðrar þjóðir heims geti lifað kyrrlátara lífi í frelsi og í réttlæti. Ég tel það mikilvægt, að mér gefst nú tækifæri, að vísu aðeins í stuttan tíma til að ræða við ykkur íslendinga um sameiginleg vandamál okkar beggja. Valdabaráttan í Rússiandi er í algleymingi STJÓRNMÁIjASÉRFRÆÐINGAR eru þeirrar skoðunar, að aldrei Rússlandi austur. hafi komið betur í Ijós en nú, hversu mjög Sovétleiðtogarnir Því viðvíkjandi má benda á, berjast sín á milli um völdin. Má heita, að helztu mennirnir fari a® l)e'r cinkum áhuga á allir til Genfar, augsýnilega í þeim tilgangi, að enginn einn geti leikið aðalhluíverkið. Sérfræðingar benda á, að einn aðalmaðurinn í þessari valdabaráttu sé ritari rússneska kommúnistaflokksins, Nikita Krusjeff, en hann hafi ekki enn náð töglum og högldum, eins og hann ætli sér. Hann fer ekki sízt til Genfar til að sýna völd sín og áhrií. Leiðtogar vesturvelaanna fara áttað sig betur á því, hver er m. a. til Genfar til þess að geta hinn raunverulegi valdamaður í KRUSJEFF að kynna sér framkomu og áhrif yfirmanns rauða hers- ins, Sjúkoffs, landvarnaráð- herra. Getur ráðstefnan varp- að nokkru ljósi á það, hver afstaða Rauða hersins er til kommúnistaflokksins. TVEIR NÝIR ÁHRIFAMENN Það þótti tíðindum sæta, þeg- ar valdir voru menn í Æðsta- ráð kommúnistaflokksins fyrir skömmu. Sjúkoff var ekki val- inn né neinn annar fulltrúi Frh. á bls. 2. GLAMPAÐI A FORSETA- I FLUGVÉL í SÓLSKINI Úrhellisrigning var á laugar- dagsmorgun og mjög lágskýjað á Keflavíkurflugvelli, svo að allt útlit var fyrir að erfitt yrði um lendingu þar. En þegar leið á ellefsta tímann létti upp og sáu viðstaddir, þegar einkaflugvél Eisenhowers forseta, Columbine II, flaug glampandi inn yfir völl- inn um stundarfjórðung fyrir ellefu. Fyrir framan flugvallarhótelið stóð fjölmennur heiðursvörður, sem í voru íslenzkir lögreglu- menn og hermenn, flugmenn og sjóliðar úr bandaríska varnarlið- inu á Keflavíkurflugvelli. Lúðra- sveit úr bandaríska flughernum lék þar. FORSETAFJÖLSKYLDAN BIRTIST Þegar flugvél Eisenhowers hafði numið staðar opnuðust dyr á hlið hennar og birtust í anddyr- inu andlit, sem eru íslendingum góðkunn af miklum fjölda frétta- mynda. Það var Eisenhower for- seti og eiginkona hans ,,Mamie“ Eisenhower. Veifaði forsetafrúin brosandi til hins mikla mann- f jölda, er þarna hafði safnazt sam an til að fagna komu hins erlenda stórmennis. Að baki þeirra hjóna stóð hár og myndarlegur ein- kennisbúinn ungur maður, það er sonur þeirra John Eisenhower, sem er hermaður og herforingi að atvinnu eins og faðir hans. FORSETI OG RÍKISSTJÓRN ÍSLANDS HEILSA Er þau gengu niour landgöngu brúna komu forseti íslands og frú ásamt forsætisráðherra Ólafi Thors og frú móti þeim og buðu hinn bandaríska forseta velkom- Frh. á bls. 2. Verkfall í Antverpen Endist kampavínsbrosið út alla veizluna. — New York Timea ANTVERPEN, 16. júli: — Und- anfarna daga hefir verið hafnar- verkfall hér í borg og taka um 17 þús. verkamenn þátt í því. — Kommúnistar standa að verkfall- inu, en verkalýðsfélög sósialista og kaþólskra styðja það ekki. — Kommúnistar hafa komið því til leiðar, að verkamenn greiði at- kvæði með handauppréttingum, en leiðtogar sósíalista og kaþólskra halda því fram, að verkamenn mundu samþykkja að . taka upp vinnu aftur, ef skrifleg | atkvæðagreiðsla fari fram. Það j hefir þó ekki orðið ofan á. í gær greiddu verkamenn aft- ur atkvæði um það, hvort þeir vilji taka upp vinnu á ný. Að- eins um 2000 verkamenn greiddu atkvæði og samþykktu með handauppréttingu að halda verk fallinu áfram. — Reuter. Forseti íslands, Ólafur Thors forsætisráðherra, Bjarni Benedikts- son dómsmálaráðherra, Eysteinn Jónsson fjármálaráðherra og frúr þeirra bíða komu Eisenhowers forseta. lóraarranar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.