Morgunblaðið - 17.07.1955, Qupperneq 1
16 síður og Lesbók
43. árgangur 159. tbl. — Sunnudagur 17. júlí 1955 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Eisenhower segir við komu til
íslands:
„Ég fer til Evrópu í
leit að friði“
r
Mynd þessa tók Ijósm. Mbl. Gunnar Rúnar, þegar Eisenhower steig út úr flugvél sinni á Keflavíkur
velli. Fyrir framan forsetann er Mamie og því næst John sonur þeirra og ráðunautar forseta.
vinstra megin gengur forseti íslands til móts við Eisenhower.
DWIGHT EISENHOWER forseti Bandaríkjanna kom í gær i
stutta heimsókn til íslands. Dvaldist hann í tvær klukkustundir
á Keílavíkurflugvelli og snæddi hádegisverð í boði ríkisstjórn-
ar íslands. Við komuna flutti hsnn stutt ávarp, þar sem hann
lagði áherzlu á það, að för hans til Genfar væri gerð í leit að friði.
Eisenhower mælti m. a. á þessa leið:
— Ég tel mig hafa verið mjög heppinn að för mín til
Evrópu gerði mér kleift að heimsækja íslendinga, sem hafa
nú um langt skeið verið ágæt vinaþjóð okkar Bandaríkja-
manna.
Það er skemmtilegra veður og bjartara í lofti núna heldur
en síðast þegar ég heimsótti ykkur enda var þá miður
janúar.
Næst vék forsetinn nokkrum orðum að Genfar-ráðstefn-
unni. Hann sagði m. a.:
— Þessi Evrópu-för mín er gerð í leit að friði. Ég vona
að okkur sem sitjum Genfar-ráðstefnuna muni takast að
styrkja málstað friðarins í þágu allrar veraldar, svo að
þjóðir eins og þér íslendingar, vér Bandaríkjamenn, allar
þjóðir Atlantshafsbandalagsins, sem og allar aðrar þjóðir
heims geti lifað kyrrlátara lífi í frelsi og í réttlæti.
Ég tel það mikilvægt, að mér gefst nú tækifæri, að vísu
aðeins í stuttan tíma til að ræða við ykkur íslendinga um
sameiginleg vandamál okkar beggja.
Valdabaráttan í Rússiandi er í algleymingi
STJÓRNMÁIjASÉRFRÆÐINGAR eru þeirrar skoðunar, að aldrei Rússlandi austur.
hafi komið betur í Ijós en nú, hversu mjög Sovétleiðtogarnir Því viðvíkjandi má benda á,
berjast sín á milli um völdin. Má heita, að helztu mennirnir fari a® l)e'r cinkum áhuga á
allir til Genfar, augsýnilega í þeim tilgangi, að enginn einn geti
leikið aðalhluíverkið.
Sérfræðingar benda á, að einn aðalmaðurinn í þessari
valdabaráttu sé ritari rússneska kommúnistaflokksins,
Nikita Krusjeff, en hann hafi ekki enn náð töglum og
högldum, eins og hann ætli sér. Hann fer ekki sízt til Genfar
til að sýna völd sín og áhrií.
Leiðtogar vesturvelaanna fara áttað sig betur á því, hver er
m. a. til Genfar til þess að geta hinn raunverulegi valdamaður í
KRUSJEFF
að kynna sér framkomu og
áhrif yfirmanns rauða hers-
ins, Sjúkoffs, landvarnaráð-
herra. Getur ráðstefnan varp-
að nokkru ljósi á það, hver
afstaða Rauða hersins er til
kommúnistaflokksins.
TVEIR NÝIR
ÁHRIFAMENN
Það þótti tíðindum sæta, þeg-
ar valdir voru menn í Æðsta-
ráð kommúnistaflokksins fyrir
skömmu. Sjúkoff var ekki val-
inn né neinn annar fulltrúi
Frh. á bls. 2.
GLAMPAÐI A FORSETA-
I FLUGVÉL í SÓLSKINI
Úrhellisrigning var á laugar-
dagsmorgun og mjög lágskýjað á
Keflavíkurflugvelli, svo að allt
útlit var fyrir að erfitt yrði um
lendingu þar. En þegar leið á
ellefsta tímann létti upp og sáu
viðstaddir, þegar einkaflugvél
Eisenhowers forseta, Columbine
II, flaug glampandi inn yfir völl-
inn um stundarfjórðung fyrir
ellefu.
Fyrir framan flugvallarhótelið
stóð fjölmennur heiðursvörður,
sem í voru íslenzkir lögreglu-
menn og hermenn, flugmenn og
sjóliðar úr bandaríska varnarlið-
inu á Keflavíkurflugvelli. Lúðra-
sveit úr bandaríska flughernum
lék þar.
FORSETAFJÖLSKYLDAN
BIRTIST
Þegar flugvél Eisenhowers
hafði numið staðar opnuðust dyr
á hlið hennar og birtust í anddyr-
inu andlit, sem eru íslendingum
góðkunn af miklum fjölda frétta-
mynda. Það var Eisenhower for-
seti og eiginkona hans ,,Mamie“
Eisenhower. Veifaði forsetafrúin
brosandi til hins mikla mann-
f jölda, er þarna hafði safnazt sam
an til að fagna komu hins erlenda
stórmennis. Að baki þeirra hjóna
stóð hár og myndarlegur ein-
kennisbúinn ungur maður, það er
sonur þeirra John Eisenhower,
sem er hermaður og herforingi að
atvinnu eins og faðir hans.
FORSETI OG RÍKISSTJÓRN
ÍSLANDS HEILSA
Er þau gengu niour landgöngu
brúna komu forseti íslands og
frú ásamt forsætisráðherra Ólafi
Thors og frú móti þeim og buðu
hinn bandaríska forseta velkom-
Frh. á bls. 2.
Verkfall
í Antverpen
Endist kampavínsbrosið út alla veizluna. — New York Timea
ANTVERPEN, 16. júli: — Und-
anfarna daga hefir verið hafnar-
verkfall hér í borg og taka um
17 þús. verkamenn þátt í því. —
Kommúnistar standa að verkfall-
inu, en verkalýðsfélög sósialista
og kaþólskra styðja það ekki. —
Kommúnistar hafa komið því til
leiðar, að verkamenn greiði at-
kvæði með handauppréttingum,
en leiðtogar sósíalista og
kaþólskra halda því fram, að
verkamenn mundu samþykkja að .
taka upp vinnu aftur, ef skrifleg |
atkvæðagreiðsla fari fram. Það j
hefir þó ekki orðið ofan á.
í gær greiddu verkamenn aft-
ur atkvæði um það, hvort þeir
vilji taka upp vinnu á ný. Að-
eins um 2000 verkamenn greiddu
atkvæði og samþykktu með
handauppréttingu að halda verk
fallinu áfram. — Reuter.
Forseti íslands, Ólafur Thors forsætisráðherra, Bjarni Benedikts-
son dómsmálaráðherra, Eysteinn Jónsson fjármálaráðherra og frúr
þeirra bíða komu Eisenhowers forseta.
lóraarranar