Morgunblaðið - 19.07.1955, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 19.07.1955, Qupperneq 16
,mi' ■ n». u "inw .>«<»«» ■»«>» ,ii*l.i., «, .a* .tr.Ai ýéMN, jíW&V í'£v h • • ‘ •■.?:•• • -• 1 ., : Yeðurúflif í dag: SV kaldi eða stinningskaldi. — Skúrir. Tónlisfarháfíðin í Vín Sjá bls. 9 Fjölmennt héraðsmóf Sjálf- stæðismanna við Djúp SJÁLFSTÆÐISMENN við innanvert Isafjarðardjúp héldu hér- aðsmót sitt í Reykjanesi s.l. sunnudag. Var það meðal hinna íjölmennustu móta, sem þar hafa verið haldin. Munu hafa sótt það <um 400 manns. Fór það í öllu hið bezta fram. Baldur Bjarnason bóndi í Vigur setti mótið fyrir hönd Félags ungra Sjálfstseðis- tnanna við ísafjarðardjúp, en aðalræðuna flutti Sigurður Bjarna- eon alpingismaður. Ræddi hann í senn stjórnmálaviðhorfið í land- ínu ©g ýmis héraðsmál Norður-ísfirðinga. SKEMMTIATRIÐI Ágæt skemmtiatriði voru á mótinu. Kristinn Hallsson óperusöngvari söng einsöng við undirleik Ragnars Björnssonar og leikararnir Valur Gíslason og Klemenz Jónsson fluttu leikþætti og lásu upp. Veður var gott framan af degi, þurrt og kyrrt. En með kvöldinu hvessti og rigndi nokkuð. Fagranesið og fleiri bátar fluttu fólk til mótsins. Ennfrem- ur fluttu nú bifreiðar í fyrsta skipti fólk til Reykjaness en ak- vegasamband er nú að skapast við staðinn. Hefur akvegur ver- ið lagður kringum ísafjörð og verið er að byggja brú á ísafjarð- ará. Farsótíir í bænum FARSÓTTIR í Reykjavík vikuna ( 3.—9. júlí 1955 samkvæmt skýrsl- um 16 (16) starfandi lækna. 1 Kverkabólga 38 (36) Kvefsótt 87 (101). Iðrakvef 13 (35) Hvot- sótt 1 (0). Kveflungnabólga 2 (2). Hlaupabóla 3 (0). Saltað hefir verið í rúm- lega 41 þúsund tunnur Aflamagnið helmingi minna en í fyrra SAMKVÆMT síðustu síldveiðiskýrslu Fiskifélags íslands var bræðslusíldaraflinn orðinn 3,475 mál (74575 mál á sama tíma 'í fyrra), sallað hafði verið í 41,574 tunnur (12529 á sama tíma í fyrra) og 2.068 tunnur höfðu farið tii frystingar (5782 á sama tíma í fyrra). Hin nýja millilandaflugvél Loftleiða h.f., Saga, á Reykjavíkurflugvelli. M'dlL[an.daf[ugvél af „Skymaster" gerb bætist íslenzka f[ugf[otanum Loftleiðir hafa nu þrjár slíkar flugvélar til umráða NÝ FLUGVÉL af „Skymaster“-gerð hefur nú bætzt islenzka flugflotanum. Flugvél þessi, Saga, er eign Loftleiða h.f., og er það þriðja „Skymaster“-flugvélin, sem félagið fær til umráða. Var Saga skráð sem eign Loftleiða s.I. föstudag. Flugvélin er að öllu búin á sama hátt og flugvélin Hekla og Edda, sem er leiguflug- vél félagsins. Að kvöldi s.l. laugardags kom flugvélin frá Ósló og Stafangri, og höfðu Loftleiðir boð inni í veitingaskála sínum á Reykjavíkurflugvelli fyrir ýmsa helztu forustumenn flugmála, í tilefni af komu vélarinnar. SAMA VERÐMÆTI AFLANS OG í FYRRA Aflamagnið er því nál. helm- ingi minna en á sama tíma í fyrra en aflaverðmætið til útgerðar- tnanna er því nær hið sama, þar 6em megin hluti aflans hefir ver- ilð saltaður nú. 143 SKIP A VEIÐUM Atvinnumálaráðuneytið hefir veitt 143 skipum síldarleyfi, en ekki hafa þau öll farið til veiða enn. í fyrra höfðu 188 skip feng- ið veiðileyfi um þetta leyti. Vitað er um 115 skip, sem hafa fengið einhvern afla, en af þeim höfðu 37 skip aflað meira en 500 mál og tunnur samanlagt s.l. laug ardag. í fyrra höfðu 84 skip feng- ið yfir 500 mál og tunnur um þetta leyti. — Á 2. síðu blaðsins er Skýrsla Fiskifélagsins yfir þau skip, sem aflað hafa yfir 500 mál og tunnur. Leikhús Heimdallar Rógi Tímans hnekkt LE IK H Ú S Heimdallar hóf 7. þ. m. sýningar á sjón- leiknum „Óskabarn örlaganna“ eftir Bernard Shaw. Leikur þessi hefur hlotið mikla aðsókn og ágæta dóma hjá leikdómurum blaðanna. Hefur Leikhús Heimdallar vakið óskipta athygli og viðurkenningu, enda um að ræða merkan viðburð í menningarlífi höfuðborgarinnar. tvö af blöðum bæjarins, Tíminn og Alþýðublaðið, hafa þó lagzt það lágt að skrökva því, að Ieiksýningar þessar væru nokkurs konar drykkjusamkomur. — Hefur Tíminn gehgið svo langt í rógburði sínum að segja, „að leikararnir þurfi að keppa við glasaglaum og ölótt fólk til að halda athygli áhorfenda.“ Þessum tilhæfulausu ósannindum verður bezt svarað með eftirfarandi yfirlýsingu leikstjóra og allra leikara:. Við undirritaðir, leikstjóri og leikarar við Leikhús . . Heimdallar, viljum að gefnu tilefni lýsa yfir, að við höfum ekki verið við leiksýningu nokkurs staðar, þar • sem prúðari og háttvísari gestir hafa verið saman- komnir en í Sjálfstæðishúsinu á leiksýningum Leik-j húss Heimdallar. Við höfum aldrei heyrt glasaglaum eða klið í salnum, enda hafa engar veitingar átt sér. stað meðan á sýningu stendur, hvorki vínveitingar né aðrar veitingar. Reykjavík 18. júlí 1955. 1 - Einar Pálsson. Lárus Pálsson. Guðbjörg Þorbjarnard. Róbert Arnfinnsson, Valdemar Helgason. Framangreind yfirlýsing þarfnast ekki skýringa. — Þar kemur fram, að engin veitingasala hefur átt sér stað meðan á sýningu stendur. Veitingar eru ekki seldar, fyrr en sýn- ingum er lokið. Hefur þá Sjálfstæðishúsið almenna veit-j ingasölu, sem ekki er á vegum Leikhúss Heimdallar frekar l;„ en önnur kvöld. ★ ATBURÐUR, SEM VERT ER AÐ MINNAST Kristján Guðlaugsson, formað- ur stjórnar Loftleiða, flutti ræðu. Kvað hann þetta vera atburð, i sem vert væri að minnast. Hefði aðdragandi að kaupunum orðið all langur, þar sem við ýmsa erf- iðleika hefði verið að etja um skeið, þó að ríkisstjórnin hefði viljað greiða fyrir kaupunum með ríkisábyrgð, sem ekki þurfti samt á að halda er til kastanna kom. Kaupin tókust án þess að ríkisábyrgð væri notuð. Minntist ræðumaður þess tíma, er erlend skipafélög önnuðust alla flutninga til landsins, þar til bjartsýnir framkvæmdamenn hefðu ráðist í að stofna íslenzkt ' eimskipafélag. Slíkt framtak hefði orðið þeim mönnum, er að flugmálum vinna hvatning til að festa kaup á flugvélum, sem ann- ast gætu loftflutninga þjóðarinn- ar og var fyrsta „Skymaster“- flugvélin keypt hingað til lands á árinu 1947 af Loftleiðum. Milli- landaflugvélar Loftleiða koma nú hingað tíu sinnum í viku og ^ fljúga jafn oft í austur og vestur , til meginlanda Evrópu og Ame- ríku. Átta ár eru liðin frá því ■ fyrsta ferð félagsins var farin í ' „Skymaster“-vél til Kaupmanna- ( hafnar, en nú er auk þess flogið til Hamborgar, Luxemborgar, Gautaborgar, Oslóar, Stafangurs og New York. ★ GETA FLUTT ÞÚSUND FARÞEGA Á VIKU MILLI LANDA Er fyrsta „Skymaster“-flugvél Loftleiða, Hekla, var keypt. ef- uðust margir um, að hagkvæm skilyrði væru fyrir hendi til rekst urs loftflutninga hér á landi, en þó mætti nú teljast undantekn- ing, að íslendingar leituðu á náð- ir erlendra flugfélaga til að kom- ast leiðar sinnar í loftinu. Benti formaður á, að stuðning- ur íslenzku þjóðarinnar við félag- ið væri góður og nauðsynlegur, en dygði þó ekki til að halda uppi umfangsmiklum rekstri, enda byggðu Loftleiðir að verulegu leyti starfsemi sína á erlendum markaði — þrír fjórðu þess far- þegafjölda, er félagið flytur, eru erlendir menn. Geta Loftleiðir nú flutt um 1000 farþega á viku milli meginlandanna í austri og vestrL ★ ISLENZK STJORNARVÖLD HAFA GREITT FYRIR FÉLAGINU Starfsemi félagsins hefði ekki aðeins fjárhagsþýðingu fyrir þjóð ina heldur einnig auglýsinga- gildi út á við. íslenzk stjórnar- völd og utanríkisþjónusta hefðu einnig greitt fyrir félaginu á marga lund, og væri það mjög mikilvægt, þar sem erlendir að- ilar, er óttuðust samkeppni við félagið, vildu það feigt. Drap formaður á það, að æski- legt hefði verið, að félagið hefði getað keypt stærri og veigameiri flugvél, en skortur hefði verið á fjármagni og einnig mætti telja vafasamt, að rekstur slíkra fara- tækja hentaði í bráð. ★ ★ ★ Lauk hann máli sínu svo: „Við vitum ekki, hvað framtíðin ber í skauti sínu, en við erum hug- rakkir og bjartsýnir og byggjum miklar vonir á þeim árangri sem þegar hefir fengizt. Þótt hug- myndirnar um framtíð Loftleiða séu enn draumkenndar, þá er það eitt víst, að í dag er flugvélin og nútíminn eitt og loftsiglingar eiga sér örugga framtíð.“ ★ FIMM ÍSLENZKAR MILLILANDAFLUGVÉLAR í FÖRUM Tók síðan til máls Ingólfur Jónsson, flugmálaráðherra. Ósk- aði hann félaginu til hamingju með flugvélina. Tíu ár væru nú liðin, síðan flogið hefði verið flug vél með íslenzkri áhöfn til annars lands, en nú hefðu íslendingar í förum fimm myndarlegar ís- lenzkar flugvélar — og hefði þó tæplega verið svo mikils árang- urs að vænta á svo skömmum tíma. Kvað ráðherrann íslendinga álíta, að fullt frelsi ætti að ríkja í lofti eins og á sjó. Hins- vegar hefði nú komið í ljós, að nágrannar okkar og frændur aðhylltust ekki þessa hugsjón og hefðu sagt upp loftferða- samningi við ísland og reynd ust tregir til að endurnýja samninginn að nýju. Hefði því ekki reynzt haldgóð sú nor- ræna samvinna, sem nú væri verið að reyna að skapa. Lýsti ráðherrann yfir þeirri von sinni, að Svíar myndu að athuguðu máli sjá, að fram- koma þeirra væri ekki sæmi- leg, — geri þeir það, ætti sam- vinna þessara tveggja þjóða að geta orðið i anda þeirrar norrænu samvinnu, sem svo mikið er rætt um. Geri þeir það ekki, hlýtur framkoma þeirra að verða sá blettur á norrænni samvinnu, sem við íslendingar getum ekkl gleymt. _ ★ ★ ★ Minntist ráðherrann síðan þeirra flugsambanda í lofti, er hafizt hefðu milli Luxemborgar og íslands á þessu sumri. Hefðu forustumenn flugmála í Luxem- borg viljað á allan hátt greiða fyrir því, að þessar flugsamgöng- ur tækju&t sem bezt. Sá hlýhugur, er íslendingar hefðu mætt frá þessari litlu þjóð væri óvenju- legur, og kvaðst hann vona, að þessi gagnkvæma samvinna gæti orðið þýðingarmikil og varanleg fyrir báðar þjóðirnar. Lýsti flugmálaráðherra yfir þeirri von sinni, að sá tími væri ekki langt framundan, að íslend- ingar hefðu í förum stærri og fullkomnari flugvélar. Að lokum bauð ráðherrann hina nýju milli- landaflugvél velkomna og bað hana að fara og koma heila í höfn. i Sljórnmálasamband við Ungverjaland ' SAMKOMULAG hefir nýlega verið gert milli ríkisstjórna ís* lands og Ungverjalands um að stofna til stjórnmálasambands milli lanöanna. Ráðgert er að bráðlega verði skipaðir sendiherí ar í löndunum, sem þó mumj hafa fastú búsetu í þriðja landi, (Frá! utanríkisráðuneytinu). SKÁKÉINVfGID REYKJAVÍK A B ’ð U E F G H 1 A * n E F G H STQKKHÓLMUl 1 25. léikur Reykjavíkur: 1 j. a5—a4 Ath.: 25. leikur Stokkhólms mis- prentaðist. Átti hann að vera Rc3—b5 en ekki Rc3—d5.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.