Morgunblaðið - 22.07.1955, Síða 1
lé sáður
43. árgangur
163. tbl. — Föstudagur 22. júlí 1955
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Fyrstu ,,óvœntu" tíðindin frá Genf komu frá Eisenhower
að fiugher Rú sscð tðki
iiiyndir í Bandaríkfunum
Gagnkvæmar upplýsingar
stærstu herveldanna
■
»
Mynd þessa tók Gunnar Rúnar Ijósm. Mbl. í fyrradag við bæinn Velli í Ölfusi. Þannig hafa bænd-
urnir reynt í þeim örstutta þerri er þeir fengu, að setja heyið upp í föng eða dríli. Því miður verst
heyið vatninu ekki nógu vel, auk þess sem jörðin öll er orðin vatnsósa og skemmist því mjög í
drílinu.
fflin helstn heyskapar-mánuðinn
heiur ekki komið glæta á himin
Omurleg aloma á suðurlands-undirlcndinu,
þar sem repiá hefur streyint dag og nótt
FRÉTTARITARI Mbl. sem fór snögga ferð austur í lág-
sveitir Árnessýslu í vikunni, getur ekki lýst þeirri heim-
sókn með öðrum orðum en að aðkoman þar og ástand allt
hafi verið ömurlegt.
Enda er það engin furða. Það hlýtur að fara svo í
þessu víðlendasta og frjósamasta landbúnaðarhéraði lands-
ins, að ástandið verður alvarlegt, þegar heita má að ekki
hafi stytt upp nær allan þann mánuð, sem að öðru jöfnu
er drýgstur til heyskapar.
if Er nú farið að líða að lokum júlí-mánaðar og er
ástandið slíkt á mörgum bæjum á Suðurlandsundirlendi að
engin þurr tugga er komin í hlöðu.
■jf Þetta ástand er sérstaklega alvarlegt vegna þess að
í slíkri vætutíð vex grasið örar en ella og er túngrcsi allt
að vaxa úr sér. Er það byrjað að visna niður við rótina og
ef því fengi svo að halda fram, myndi það þýða að þetta
gras yrði ónýtt. Það er því ekki um annað að gera fyrir
bændurna en að slá ofan í allan rosann og síðan horfa á
heyið hrekjast. Meira að segja súgþurrkunin getur ekki
hjálpað. Til þess að hún komi að gagni verður heyið að vera
grasþurrt.
EKKI SÉST GLÆTA
Á HIMNI
Veðrið var grátt og ömurlegt,
þegar ég skrapp snögga ferð aust-
ur fyrir fja.ll. Lágskýjað var, út-
sunnan þokusuddi og skúrir á
milli og sást stundum varla út úr
augum.
Bændur þarna sögðu mér að út-
synningnum fylgdi venjulega þurr
viðri. „En svo er rosinn mikill
núna og þrálátur, að það er sama
þótt það sé útsynningur, að ekki
kemur glæta á himininn", sagði
einn bóndinn orðrétt við mig. Og
aðrir tóku undir þessi orð og stað-
hæfðu það, áð það hefði alls ekki
komið glæta á himininn svo vikum
skipti. Aðeins tveir þerridagar
hafa verið í mánuðinum og hafa
þeir ekki nægt til að bjarga neinu.
HEYIÐ HEFUR I.EGIÐ
SlÐAN 29. jtNl
Ég heimsótti t.d. bændurna að
Túni í Flóa, en það er býli við
þ.jóðveginn skammt austur af Sel-
fossi. Þar búa þeir bræðurnir Stef
án og Einar Guðmundssynir. Þeg-
ar ekið er heim að bænum sér
maður á vinstri hönd upp undir
garðvegg, all-stóran túnreit, þar
sem gulnaðar og signar heysátur
Frh. á bls. 12
Peron er að fara
Mikil ókyrrð
í Argentínu
Buenos Aires, 21. júli
jyÝ vandræði steðja nú að
1 Juan Peron, forseta Arg-
entínu. í kvöld var ekki vit-
að hér, hvort hann væri enn
forseti landsins.
Orðrómur gengur um það,
að haldinn hafi verið í gær-
kvöldi ráðuneytisfundur og
að komið hafi til harðrar
orðasennu á þessum fundi
milli Peronista og fulltrúa
landhersins. Peron er sagð-
ur hafa beðist lausnar að
fundinum loknum.
Þegar gerð var tilraun til þess
að steypa Peron af stóli fyrir
nokkrum vikum var það landher-
inn sem bjargaði forsetanum. Þá
var það argentinski flotinn senl
stóð að byltingunni.
Nú er talið líklegt að landher-
inn og flotinn hafi gert banda-
lag gegn peronistum.
AFSAKANIR
Mjög erfitt er að fá nákvæm-
ar fregnir af því sem er að gerast
í æðstu stjórn landsins.
í dag lét stjórn Peronista-
flokksins birta yfirlýsingu, þar
sem segir að óréttmætt sé af
hálfu stjórnarandstæðinga að
kenna Peron og Peronistum um
allt sem illa fer í Argentínu.
U’YRSTU óvæntu tíðindin bárust af stórveldafundinum í
* Genf í dag. Eisenhower forseti lagði fram tillögu um
að Bandaríkin og sovétríkin skuli skiptast á hvers konar
upplýsingum um hernaðarmannvirki og herstyrk í hvoru
landinu um sig.
Fréttaritari Reuters símaði frá Genf í kvöld að tillaga
Eisenhowers myndi vafalaust síðar meir verða talin stór-
felldasta tilboðið um frið, sem komið hefði frá Genfarráð-
stefnunni.
Auk tillögunnar um gagnkvæmar upplýsingar um her og hern-
aðarmannvirki, lagði Eisenhower forseti til að Bandaríkjamönnum
yrði leyft að fljúga yfir sovétríkin og taka allar myndir úr lofti,
sem þeir vildu. Á sama hátt mun Rússum leyft að fljúga yfir
Bandaríkin.
★
Eisenhower sagði að uppástunga sín væri aðeins upphafið að
víðtæku eftirliti með afvopnun og almennri afvopnun í heiminum.
Forsetinn sagði að hann hefði margt hugsað um afvopnunarvanda-
málið. Fyrir sér hefði vakað að gera eitthvað í því máli sem
sannfært gæti heiminn um það, að Bandaríkin væru einlæg í þessu
máli. Hann kvaðst beina tillögu sinni til sovétríkjanna sérstaklega,
vegna þess að þau og Bandaríkin ættu mest vopnaval.
„Við getum þess vegna byrjað (afvopnunina) með þeim hætti,
sem ég hef nú stungið upp á, sagði forsetinn.
21. júlí markar
tímamót
— segir Faure
Genf, 21. júlí.
SVO virðist sem Eden telji
vandkvæði á því að fá gerð-
an samning á jafn breiðum grund
velli og tillaga Eisenhowers felur
í sér.
Eden lagði fram í dag tillögu,
sem hann sagði um sjálfur að
gengi mun skemmra en tillaga
Eisenhowers. Hann vill láta fara
fram eftirlit með víghúnaði og
þjóðherjum á takmörkuðu svæði
beggja megin við landamærin
milli austurs og vesturs.
Edgar Faure, forsætisráðherra
Frakka sagði, að æskilegt hefði
verið ef þjóðir heims hefðu getað
verið viðstaddar í ráðstefnusaln-
um og hlustað á jafn reyndan
hermann og Eisenhower ræða um
afvopnunarmál á þenna hátt.
Menn myndu þá hafa talið að 21.
júlí myndi marka tímamót í heim
inum.
Faure sagði að ráðstefnan hefði
nú unnið fyrsta sigur sinn yfir
efasemdamönnunum.
Síðasti
fundurinn
í dag
GENF í gærkvöldi: — Brezkir
stjórnmálamenn telja að æðstu
menn stórv. hefji á morgun að
ræða um fjórða málið á dag-
skránni, sambandið milli austurs
og vesturs.
Líklegt er að fundurinn á morg
un, föstudag, verði síðasti fund-
urinn í Genf.
Bulgonin hrósar
einlægni
Eisenhowers
GENF, 21. júlí:— Bulganin mar-
skálkur, forsætisráðherra sovét-
ríkjanna hrósaði í kvöld tillögu
Eisenhowers forseta um gagn-
kvæmar upplýsingar sovétríkj-
anna og Bandaríkjanna um her-
mál.
Bulganin sagði að hin einlæga
yfirlýsing Eisenhowers forseta
myndi hafa mikla þýðingu. Þetta
spáir góðu um starf ráðstefnunn-
ar í afvopnunarmálinu, sagði
marskálkurinn.
Nú liggur fyrir að gera ákveðn
ar tillögur til fulltrúa vorra í af-
vopnunarnefndinni. Vér verðum
að biðja utanríkisráðherra vora
að gera þessar tillögur og síðar
munum vér, stjórnarformenn-
irnir, senda þessar tillögur til af-
vopnunarnefndarinnar.
TILLAGA BULGANINS
Bulganin bar fram sína tijlögu
um ekki árásarsamning milli
ríkjanna innan Atlantshafsbanda
lagsins og rikjanna í Austur-Ev-
rópu, þegar öryggismál Evrópu
voru rædd.
Fulltrúar vesturveldanna kváð
ust ekki geta fallizt á þessa til-
lögu. vegna þess að hún fæli ekki
í sér neinar nýjar skyldur þátt-
tökuríkjanna, fram yfir skyld-
una, sem fælist í sáttmála S.Þ.
Fyrirkomulag það, sem Bulg-
anin byggir á er þar að auki ekki
í samræmi við þá ákvörðun vest-
urveldanna að fallast ekki á
neinn öryggissáttmála í Evrópu,
sem ekki felur í sér sameiningu
Þýzkalands. —• Reuter.