Morgunblaðið - 03.08.1955, Síða 1

Morgunblaðið - 03.08.1955, Síða 1
16 síður U. árgangnr 172. tbl. — Miðvikudagur 3. ágúst 1955 PrentsmlHja Morgunblaðsins í fólspor Blérfots FERÐALOG MANNA MILLI JARÐSTJARNA RIJSSAR SEGJAST EIGA GEIMFARASKIP Kaupmannahöfn, 2. ágúst: ÝZK-AMERÍSKUR eldflauga- j sérfræðingur Krafft-Fricke að ! nafni — starfsmaður í hinni frægu Preenemúnde tilraunastöð í Þýzkalandi á stríðsárunum — skýrði i samtali við danska blað- ið „Information“ í dag frá nýrri gerð af gerfihnöttum, hinum svo- kölluðu „satelloidum“. Sérfræðingurinn sagði að gerfi hnetti þessa væri hægt að senda alla leið að yfirborði annara pláneta. „SateIloidarnir“ aðgrein- ast frá „satellitunum“ sem fram til þessa hafa verið kunnir, að því leyti að „satelloidarnir“ eru knúnir eigin orku. Þessa nýju gerð sé í fyrsta áfanga hægt að senda upp í 120—150 km. hæð, en einnig alla leið til annara jarð- stjarna, eins og t. d. til Venusar. Þessi nýja gerð geri loks kleift að hefja undirbúningsrannsóknir að ferðalögum manna á milli jarðstjarna. Krafft-Fricke er nú starfsmað- ur hjá flugvélaverksmiðju í Bandaríkjunum. Hann segir að gerfihnettirnir, sem kallaðir hafa verið „satellitar" hafi verið mönn um vel kunnir frá því á árinu 1953. Satelloidamir séu yngri, en sér sé þó ekki kunnugt um hvort farið sé að smíða þá. „En ég held að flugvélaverksmiðja mín geti smíðað þá“, bætti hann við. Jean Salis og sonur hans fara með flugvélina á flugbrautina. London: AÐUR að nafni Jean Salis hefir flogið yfir Ermarsund frá Calais til Dover í flugvél, sem gerð er nákvæmlega eftir flug- vélinni, sem Frakkinn Bleriot, notaði, er hann flaug fyrstur manna yfir sundið fyrir 46 árum. Á sínum tíma var Ermarsunds- flugið eins frægt eins og fyrstu Atlantshafsflugin urðu síðar. Salis er fimmtíu og níu ára gamall og hann var ekki fyrr lentur heilu og höldnu í Englandi en hann hélt til kampavínsveizlu, sem beið hans, til þess að fagna unnu afreki. , Salis flaug vegalengdina á 56 mínútum. Bleriot fór sömu leið á 37 mínútum á sínum tíma. En flugvél af Bleriot gerðinni er mjög háð veðri og vindum og Salis átti við mótvind að stríða. Er hann var kominn hálfa leið yfir sundið tók smurningsolía frá vélinni að sletíast í gleraugu hans og blinda hann. Hann varð að taka af sér gleraugun og eftir það gekk allt að óskum. „En ég neita því ekki að ég varð feginn er ég ♦ sá brezku ströndina nálgast", sagði kappinn, er hann var lent- ur. 100 METRA FLUGTAK Þegar Bleriot lenti flugvél sinni fyrir 46 árum lét hann svo um mælt, „að Bretland væri nú ekki lengur eyland“. Salis flaug í 1000 feta hæð. Nokkur hundruð manns voru á flugvellinum í Calais, er Salis hóf sig til flugs í flugunni, sem kölluð hefir verið „fljúgandi fuglabúr- ið“. Salis þurfti 100 metra til flugtaks. Flugvélin smaug yfir trjátoppana og stefndi á haf út. í fylgd með henni voru fimm aðr- ar flugvélar. Til lendingar þurfti 100 metra, en flugvélin rann áfram og sner- ist í hálfhring á leiðarenda. Svo virtist sem hemlað hefði verið um of. ★ Tveir menn aðrir hafa gert eftirlíkingu að flugvél Bleriots og bíða byrs í Calais. Enón valdbeitin! C í Austur-Asíu GENF, 2. ágúst: — Stjórnmála- j En Lai, hinn kínverski og Dulles, menn hér telja sig hafa góðar utanríkisráðherra Bandaríkjanna heimildir fyrir því að fulltrúi komi saman á fund á næstunni. Kínverja á sendiherraráðstefnu Bandaríkjanna og Kína komm- únista hér muni á næsta fundi sendiherranna á fimmtudaginn, leggja fram tillögu um það að bæði ríkin, Bandaríkjamenn og Kína kommúnistar lýsi yfir því, að þau muni ekki beita valdi til þess að fá framgengt hagsmuna- kröfum sinum. • Einnig er þess vænst að Wang skýri frá því að hann hafi umboð til þess að lýsa yfir því, að Kína kommúnistar muni ekki beita valdi til þess að „frelsa“ For- mósu. • Loks cr búist við því, að Wang muni stinga upp á því að Chou Oeirðir á Kyprus NICOSIA, Kyprus, 2. ágúst: — Lögreglan varð að beita táragasi er ofstækismenn af grísku þjóð- erni ætluðu að ráðast á brezku ræðismannsskrifstofuna hér í dag og kveikja í henni. Verkalýðsfé- lög griskumælandi manna, bæði hægri manna og vinstri manna, gerðu sólarhringsverkfall, sem lauk í kvöld. Verkfallið var gert til þess að undristrika kröfuna um sameiningu Kyprus og Grikk lands undir eina stjórn. Dulles og Chou semja úr fjarlægð Washington, 2. ágúst. KEGAR áður en samningar milli sendiherra Banda- ríkjanna, Alexis Johnson, og sendiherra Kínakomm- únista, Wang, hófust í Genf í gær, stigu Kínakommún- istar fyrsta sporið til þess að draga úr viðsjám í Aust- ur-Asíu. — Þeir létu lausa amerísku flugmennina, 11 að tölu, sem mest hefir ver- ið rætt um á undanförnum mánuðum. Hammarskjöld,-sem fór í vetur til Peking til þess að semja við Kínakommúnista um málefni þessara 11 flug- manna, sagði í dag, að Pek- ingstjórnin hefði stigið drjúgt spor í áttina til bættr ar sambúðar við aðrar þjóð- ir með því að láta fangana lausa. Á meðan sendiherrarnir semja í Genf um einstök mál, hafa utan- ríkisráðherrar beggja þjóða, Dull- es í Washington og Chou En Lai, reynt að skapa sér vígstöðu til samninga á „æðra sviði“ — þ. e. milli utanríkisráðheranna sjálfra — með opinberum yfirlýsingum. Dulles sagði í ræðu í dag, að hann vænti þess að Kínakommún- istar gæfu út yfirlýsingu um að þeir myndu ekki beita valdi til þess að fá framgengt hagsmuna- kröfum sinum. — Slík yfirlýsing myndi hafa í för með sér mjög bætta sambúð Kínakommúnista við aðrar þjóðir og opna mögu- leika til samninga m. a. við Banda- ríkin. Beiti Kínakommúnistar á hinp Frh. á bls. 12. Ráðsteino í Kaupmannahöfn Kaupmannahöfn 2. agúst. A' HEYRNARFULLTRÚI sovét- ríkjanna á ráðstefnu vísinda- manna er fjalla um geimfarir, Sedow að nafni, kom á óvart í dag með því að lýsa yfir því, að sovétríkin hefðu tök á því að senda gerfihnött út í himingeim- inn innan tveggja ára. Hann gaf í skyn að sovétríkin myndu geta framleitt geimknöttinn á undan Bandarík j unum. Knöttur sovétríkjanna myndi sennilega verða stærri heldur en fótknattarstærðin sem frá hefir verið sagt í Bandaríkjunum. Sedow skýrði frá því að til- raunir hefðu nú þegar verið gerðar með geimfaraskip í sovét ríkjunum og að skip þessi hefðu haft lifandi dýr innanborðs. (Svipaðar tilraunir er vitað að gerðar hafa verið vestanhafs). ★ ★ ★ Ráðstefna vísindamanna er fjalla um geimfarir hefst í Kaup- mannahöfn á morgun, miðviku- dag. Hefjast brátt belnar flug ferðir til Fœreyja? Skymastervélar geta setzt á Vogey YFIRMAÐUR Loftferðaeftirlits ríkisins, Sigurður Jónsson, er nýkominn heim úr vikudvöl í Færeyjum. Fór hann þangað til þess að rannsaka hvort íslenzkar millilandaflugvélar gætu ekkl notað flugvöllinn í Færeyjum til nauðlendinga í ferðum sínum yfir hafið, ef með þyrfti. Skýrði Sigurður blaðinu svo frá, að það væri unnt, þar sem völlurinn væri allgott mannvirki og nógu langur fyrir Skymastervélar. 3 Á DAG Nú' fljúga að jafnaði þrjár ís- lenzkar millilandaflugvélar aust- ur yfir Atlantshafið á hverjum degi og er því mikið öryggi í því fólgið, ef unnt er að hafa viðstöðu á Færeyjum, ef eitthvað kemur fyrir flugvélarnar. ENGIN ÞJÓNUSTA Völlurinn á Færeyjum var byggður á stríðsárunum af brezka setuliðinu, sem þar var og er á Vogey. Er hann 1140 m. að lengd, en aðeins ein flugbraut. Flugvallarþjónusta er þar þó engin, hvorki radióstöð, ratsjá eða veðurþjónusta, enda er völl- urinn ekkert notaður eins og sak- ir standa. Eftir styrjöldina flugu vélar Scottish Airways þangað um skeið frá Prestvík. Á flugvell inum er allgott flugskýli á stærð við skýlin á Reykjavíkurvelli. MÁLIÐ í ATHUGUN Blaðið átti einnig tal við Örn Johnson, forstjóra Flugfélags ís- lands og innti hann eftir því, hvort Flugfélagið hefði nokkur áform á prjónunum u.m að heíja flugferðir til Færeyja, þar sem þar væri um nógu stóran völl fyrir millilandaflugvélar að ræða. Sagði Örn, að til tals hefði komið að hefja þangað flugferðir, og væri það mál nú í athugun. Varla mundi þó neinn skriður komast á málið, þó af yrði, fyrr en á næsta ári. MIKIL SAMGÖNGUBÓT Flugfélagi íslands múnu öðru hvoru berast fyrirspurnir um far til Færeyja, og er ekki að efa að margir yrðu til þess að fagna því, ef unnt yrði að komast til þess- arar nálægustu frændþjóðar vorr ar á fáeinum klukkutímum í fram tíðinni. Varla mundu þó skymastervél- ar notaðar í Færeyjarferðir, held- ur smærri vélar, sem ekki flygju lengra en til Færeyja og heim aftur. V

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.