Morgunblaðið - 17.08.1955, Blaðsíða 1
16 sáður
13. árrancu
184. tbl. — Miðvikudagur 17. ágúst 1955.
FrentsjmSÍJa H*rgunblaðsiiif
„Miss Universe"
Menn ræða nú vart annað meira hér heima en fegurðarsam-
keppnina, er fór fram í Tívolí s. 1. sunnudag, og þá möguleika, er
fegurðardrottning Islands hafi á heimsmælikvarða. — Það er því
ekki úr vegi að athuga útlit sænsku stúlkunnar, er hlaut titilinn
„Miss Universe“ í ár. Síðan hún hlaut viðurkenningu sem feg-
ursta kona heimsins, hefir Hillev Rombin dvalið í Bandaríkjunum
og hefir verío ráöin til kvikmyndafélags nokkurs í Hollywood.
Myndin er tekin af henni í Kaupmannahöfn, er hún var á leið
heim til Svíþjóðar til að heimsækja unnusta sinn í Uppsölum.
Ulbrichl flutfur fár-
veikur lil Hoskvu
Vk" BERLÍN, 16. ágúst: — Aðal-
riluri austur-þýzka kommúnista-
flokksins, Walter Ulbricht, er mjög
veikur og hefir verið fluttur til
Moskva, til iið hiegt sé að leila
ráða rússneskra lækna. Var þetta
opinberlega tilkynnt í Auslur-
Berlín i <lug. Segir i tilkynning-
unni, að Ulbricht hafi verið sár-
þjíiður um nokkurt skeið, en hon-
tmi liafi versnað að mun í júlímán
uði. Hann mun því ekki geta gegnt
Störfum sínum sem aðalritari um
langt skeið. Ulbricht kom síðast
Opinberlega fram í byrjun júní-
mánaðar s.l., er honn flutti ræðu
( miðstjórn flokksins.
Vél til tungumálanáms.
Seattle. — Framleidd hefur verið
í Bandaríkjunum vél, sem kem-
Ur að góðu gagni við að þýða
bækur af erlendum tungumálum.
Er vél þessi heiiavél, knuin elek-
trónum. Man hún það, sem henni
er sagt.
Frakkar í Marokkó
biíast við öllu illu
22. ágúst
Casablanca, 16. ágúst.
Einkaskeyti frá Reuter.
FRANSKI herinn í Marokkó hef-
ir nú þegar hafið mikinn við-
búnað, og var talsverðtir liðs-
auki sendur þangað í dag. Vilja
þeir vera við öllu búnir þann 22.
ágúst n.k., en þá eru tvö ár liðin
síðan Ben Yousseff, fyrrverandi
soldán, var gerður útlægur og
sendur til Madagascar.
Grandval fór í dag á fund nú-
verandi soldáns, Ben Arafa, í
annað sinn, síðan hann kom frá
París. Munu þeir hafa rætt þá
áætlun, er franska stjórnin vill,
að fylgt sé til að koma kyrrð á
í landinu. Grandval á að fara
aftur til Parísar, ef soldáninn
fellst á áform stjórnarinnar, sem
mun vera fólgið í því að koma á
fót ríkisstjórnarráði í Marokkó.
„Ikliður með harðstjár-
ann“ — hrópuðu
stúdentarmr
BUENOS AIRES, 16. ágúst.
Einkaskeyti frá Reuter.
♦ f DÖGUN í morgun var
argentínski aðmírállinn, Samuel
Toranza Calderon, sviptur tign
sinni í hernum, en eins og menn
minnast var hann forsprakki
byltingarinnar, er gerð var gegn
Perón í júní s. 1. Að viðstöddum
öllum helztu mönnum úr argen-
tínska sjóhernum voru axlaskúf-
arnir og hnapparnir rifnir af
einkennisbúningi hans. Calderon
hefur þegar verið dæmdur af
herrétti til lífstiðar fangelsis-
vistar.
♦ Enn kom til óeirða í Buenos
Aires í dag, er lögreglan hafði
handtekið 55 menn, er grunaðir
voru um hlutdeild að samsæri
því, er argentínska stjórnin ljóst-
aði upp um í gær. — Fregnir frá
Argentínu eru mjög óljósar, og
gruna menn Peron jafnvel um þá
græsku að hafa búið til samsærið
sjálfur til að geta komizt fyrir
rætur júní-samsærisins.
+ í dag fór stór hópur stúdenta
kröfugöngu um götur borgarinn-
ar, Eva Peron. Hrópuðu þeir:
„Burt með harðstjórann." Lög-
reglan dreifði mannfjöldanum
með táragasi og 41 maður var
handtekinn.
I'iy í licimsókil
WASHINGTON — Dean Acheson
fyrrv. utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna fer í heimsókn til Evrópu
innan skamms.
Blóðugar óeirðir á götum
Bombay og Kalkútta
Nehru kvebur Indverja standa fast v/ð
kröfu sina um sameiningu Goa -
v/ð Indland
Nýju Delhi, Bombay og Kalkútta, 16. ágúst. — Reuter-NTB
MIKLAR óeirðir urðu í dag í Bombay og Kalkútta í sambandi
við átök þau, er áttu sér stáð í portúgölsku nýlendunni Goa
í gær. Mikill fjöldi manna fór kröfugöngu eftir götum Nýju
Delhi. Alls munu rúmlega 80 manns hafa verið handteknir og
álíka margir særðust, er lögreglan reyndi að hafa hemil á múgn-
um. — 17 lögreglumenn særðust.
illir undir aðra kjarn-
GENF, 16. ágúst — Eisenhower
forseti hefur látið í ljós þá von,
að ekki líði mjög langur tími,
þar til stofnað verði aftur til
ráðstefnu um friðsamlega hag-
nýtingu kjarnorkunnav. Lewis
Strauss, formaður bandarísku
k j arnorkumálanef ndarinnar,
skýrði frá þessu í dag í Genf.
Sagði hann, að Eisenhower þætti
mikill árangur hafa náðst á Genf
arráðstefnunni, og hefði hann
lýst yfir þeirri von sinni, að al-
þjóðasamstarf á þessu sviði
héldi áfram.
DuIIes tagnar
ákvörðun Rússa um
minnkun heraílans
WASHINGTON, 16. ágúst. — Einkaskeyti frá Reuter.
ABLAÐAMANNAFUNDI sínum í dag kvaðst bandaríski utan-
ríkisráðherrann, Dulles, fagna ákvörðun Ráðstjórnarinnar um
að minnka herafla sinn. Kvað hann þessa ákvörðun bera vott um,
að Ráðstjórnin treysti í raun og veru á friðarvilja Bandaríkjanna
og annarra vestrænna þjóða.
Manngrúi mikill safnaðist sam-
an fyrir framan stjórnarskrifstof
urnar í Bombay og krafðizt þess,
að indverski fáninn yr'ði dreginn
í hálfa stöng í virðingarskyni við
þá Indverja, er drepnir voru í
Goa í gær. Um tvö þusund Ind-
verjar fóru í kröfugöngu inn fyr-
ir landamærin.
í óeirðunum í Bombay í dag,
biðu þrír menn bana, er lögreglan
skaut á mannfjöldann, er svaraði
með grjótkasti — 11 lögreglu-
menn særðust. Áður hafði lög-
reglan beitt táragasi og kylfum
til að reyna að dreifa múgnum.
□-
-□
Síðusfu fréftir
Þrjátíu Indverjar, er krefjast
þess, að nýlendur Portúgala við
strendur Indlands, verði innlim-
aðar í indverska ríkið, héldu í
dag inn í portúgölsku eynýlend-
una Diu, er liggur úti fyrir
strönd Saurashtra-skagans. —
Voru þeir handteknir, en búist er
við, að þeim verði skilað aftur
á morgun. Kröfugöngurnar inn
fyrir landamæri Goa héldu á-
fram í dag — og fór hópur 30
Indverja inn í nýlenduna.
-□
Eins og áður hefir verið skýrt'
frá tilkynnti Ráðstjórnin s.l.
laugardag, að herafli Rússa yrði
minnkaður um 640 þús. manna
á næstu fjórum mánuðum.
„Komist þessi ákvörðun í fram-
kvæmd, er hún mjög í anda
Genfarráðstefnunnar", sagði Dul-
les. Og Rússar hafa auðsjáanlega
tekið mark á þeim orðum Eisen-
howers forseta á Genfarráðstefn-
unni, að Bandaríkin myndu
aldrei gerast árásaraðili.
Dulles benti á, að þetta
væri í fyrsta skipti á síðast-
liðnum átta árum, sem Rúss-
ar drægju úr herafla sínum
— eftir því sem menn bezt
vissu. Kvað hann mjög erfitt
að gera sér grein fyrir tnikil-
vægi þessara ákvörðunar Ráð-
stjórnarinnar, þar sem engar
nákvæmar skýrslur hefðu ver-
ið gefnar út um stærð Rauða
hersins — „og þrátt fyrir
þetta verður Rauði herinn
eftir sem áður miklu stærri!
en her Bandaríkjanna“. Gat1
hann þess einnig, að Rússar
hefðu til umráða mikið vara-
lið, er hægt væri að kalla til
vopna með mjög skömmum
fyrirvara.
★ ★ ★
Lýsti Dulles yfir þeirri von
sinni, að umræður þær, er hefj-
ast um afvopnunarmálin í New
York 29. ágúst n.k. beri þann ár-
angur, að hægt verði að koma á
fót öruggu eftirlitskerfi.
Þýfi írska þjóðernis-
hersins fundið
LONDON, 16. ágúst. — Reuter
NTB '— Brezka lögreglan hefur
nú fundið mestan hluta þeirra
vopna og skotfæra, sem fylgis-
menn írska þjóðeraishersins
stálu í einni af æfingastöðvum
brezka hersins í Wales s.l. laug-
aardag. Fannst þýfið í kjallara
húss nokkurs í norður iiluta Lund
úna. Hafði ekki verið búið í hús-
inu all langa hríð. Er lögreglu-
mennirnir komu að, var ein vél-
byssan hlaðin, o gaugljóst, að
írarnir höfðu ekki ætlað sér að
láta herfangið af hendi viðstöðu-
laust — en enginn var í húsinu.
í dag gerðu fylgismenn írska
þjóðernissinnahersins aftur til-
raun til að stela vopnum, en sú
tilraun mistókst. írski þjóðernis-
herinn berst fyrir því, að Norður-
írland verði innlimað í írska
lýðveldið, Eire.
□-
Öllum verksmiðjum og fjölda
annarra fyrirtækja í Bombay
héfur verið lokað. Bæjarstjórnin
hefur bannað hvers konar fjölda-
samkomur og kröfugöngur.
*
í Kalkútta réðist hópur manna
inn í indverska sendiráðið, tók
niður portúgalska fánann, en dró
þrílita indverska fánann að hún.
Réðust þeir síðan inn í sendi-
herrabústaðinn, mölvuðu hús-
gögn, rannsökuðu skjöl og
kveiktu að lokum í gluggatjöld-
unum.
Um 25 þúsund stúdentar fóru
í kröfugöngu eftir götunum og
heimtuðu, að indverska stjórnin
léti meir til sín taka í ctökunum
í Goa.
*
í Nýju Delhi var bönkum,
verzlunum og kvikmyndahúsum
lokað í samúðarskyni við þá Ind-
verja, er fallið höfðu i Goa. —
Indverska þingið hætti fundum í
hálfa klukkustund í virðingar-
skyni við hina iátnu.
Fðrsætisráðherrann Nehru lét
svo ummælt, að framkoma Portú-
gala við kröfugöngumennina í
i Goa væri „ruddaleg og ósæm-
andi siðuðum mönnum". Hann
kvað stjórnina myndu reyna aS
fjalla friðsamlega um deilumál-
J in í lengstu lög, en grípa ekki
til vopnavalds.
1 Frh. á bls. 2.