Morgunblaðið - 27.08.1955, Blaðsíða 1
16 síður
42. árgangur
193. tbl. — Laugardagur 27. ágúst 1955
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Bsrs Arafa
,f<sr hwergí"
DuSles reynir að afsfýra
Palestínustríði
Ælvarlega;
Falltníar
Narðorlanda
| Ben Arafa.
París í gærkvöldi.
BEN ARAFA soldán í Marokkó
lýsti yfir því í Rabat, Marokkó,
í dag að það væri rangt að hann
ætlaði að segja af sér.
Samningar í Aix la Baines
héldu áfram í dag og þóttu sam-
komulagshorfur góðar.
Þrír hópar Berba í Atlasfjöll-
um gáfust upp í dag, og fór í því
sambandi fram hefðbundin at-
höfn, en einn þáttur í athöfninni
er að sjö uxum er slátrað.
„Ylðyöninarfeerfi
iílllð
New York, 25. ágúst.
BANDARÍKIN munu leggja fyrir
undirnefnd afvopnunarnefndar
Sameinuðu þjóðanna, sem kemur
saman í Nevv York á mánudag-
inn, tillögu Eisenhovvers forseta
um gagnkvæmar upplýsingar
Rússa og Bandaríkjamanna um
hernaðarleyndarmái og um leyfi
til handa flugher þessara þjóða
um að taka lofímyndir í landi
hvors annars.
Bandaríkin eru við því búin
að fallast á þá tillögu Rússa að
afvopnunar eftirlitsmenn fái að-
setur í höfnum, við járnbrautar-
stöðvar og á flugvöllum hvórs
lands um sig. En Bandaríkja-
menn gera kröfu til þess að eftir-
litsmennirnir fái einnig að koma
í kjarnorkuvopna verksmiðjur.
Fyrir Bandaríkjunum vakir að
koma á fót „viðvarana kerfi“,
svo að hvorug þjóðin geti skyndi-
lega dregið saman her manns til
óvæntrar árásar. Ef Rússar fall-
ast á þessa tillögu ætla Banda-
ríkjamenn að stinga upp á því að
eftirlitið með vígbúnaði fari
fram í öllum löndum heims.
Fulltrúar vesturveldanna á
hinni væntanlegu ráðstefnu und-
irnefndar afvopnunarnefndarinn-
ar, komu saman í New York í
dag til þess að ráða ráðum sín-
um.
Fulltrúarnir á fundi undir-
nefndarinnar, sem hefst á mánu-
daginn verða þessir: Anthony
Nutting, fyrir Breta, Harold
Stassen, fyrir Bandaríkin, Jules
Moch, fyrir Frakka, Paul Martin,
lieilbrigðismálaráðherra, fyrir
Kanada og Sobolev, fyrir Sovét-
ríkin.
Washington 26. ágúst.
INAR alvarlegu horfur á
Gazasvæðinu á landamær-
um Israels og Egyptalands
leiddu í dag til þess að Dulles,
utanríkismálaráðherra Banda
ríkjanna lýsti yfir því að
Bandaríkjamenn væru fúsir
til þess að ábyxgjast ásamt
Arabaríkjunum núverandi
landamæri Israels.
Dulles sagði að jafnframt yrði
að ganga frá ýmsum öðrum mál-
um varðandi Israel og þá fyrst
og fremst málefnum 900 þús. ar-
abiskra flóttamanna, sem búa í
flóttamannabúðum á landssvæði
Israelsmanna.
Sendiherra Bandaríkjanna
ræddi í dag í tvær klukkustundir
við Nasser forsætisráðherra
Egypta og lét í ljós kvíða Banda-
ríkjamanna út af hinum hættu-
legu átökum sem sífellt ættu sér
stað á Gaza svæðinu.
Fyrr í dag höfðu sendiherrar
vesturveldanna í Kairo haldið j
fund út af hinum alvarlegu horf-!
um á Gaza svæðinu.
XILKYNNING
HERSTJÓRNARINNAR
Kairo, 26. ágúst.
„EGYPSKUR her elti í dag tvær
könnunarsveitir ísraelsmanna,
sem farið höfðu yfir vopnahlés-
linuna, inn „á landssvæði
Palestínu, sem ísraelsmenn hafa
lagt undir sig“ og drápu 12 menn'
úr könnunarsveitunum,“ segir í
tilkynningu frá egypska hernum
í kvöld. !
í tilkynningunni er skýrt frá
tveim árekstrum sem urðu á
landamærunum í gær og getið
um fallbyssuskothi'ið á sveitir
ísraelsmanna og sagt að margir j
Israelsmanna hafi særzt.
ísraelsher tilkynnti fyrir sitt
leyti í dag að flokkur ísraels-
manna hafi í dag gert atlögu að
og náð aftur á sitt vald hæð einni,
sem Egyptar höfðu tekið í gær.
Fulltrúar á fundi Norrænu félaganna. Fremri röð, talið frá vinstri: Sigurður Magnússon, Erling
Ósterud, C. V. Bramsnæs, Sigurd J. Christensen, Nils Goude, Hildur Nygren, Stefán Jóh. Stefánsson,
Gunnar Thoroddsen, Arnheiður Jónsdóttir, Sveinn Ásgeirsson, Henning Bödtker, Yrjö Similá, Vilhj.
Þ. Gíslason, Páll ísólfsson, Magnús Gíslason og Arne F. Andersson. — Aftari röð: Frantz W. Wendt,
Henry N. Bache, J. O. Fallqvist, Birger Olsson og Veikko Karsma. — Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.
ISiorrænu félögin vinna að efnaiegum
framförum auk menningartengsla
S.AJ. kaupir
11 flugvélar
STOKKHÓLMI, 26. ágúst: —
SAS hefir fest kaup á 11 nýtízku
Convair 440 flugvélum að verð-
mæti samtals 69 millj. norskra
króna, að því er forstjóri félags-
ins upplýsti í dag.
Félagið fékk 8.5 millj. dollara
lán til þess að standa straum af
þessum kaupum.
Fyrsta flugvélin verður afhent
snemma á næsta ári en sú síðasta
eftir tvö ár. — NTB.
Mjólkurskömmtun
íKhöfnvegnajmrrkanna
KAUPMANNAHOFN, 26. ágúst
— Vegna þurrkanna hefir orðið
að grípa til þess ráðs að skammta
mjólk í Kaupmannahöfn. —
Skömmtunin hefir fyrst í stað í
för með sér að mjólkurneyzlan j
minnkar um 15 af hundraði. |
Hinir miklu hitar hafa haft í
för með sér bæði aukna mjólkur-
neyzlu til svölunar á þorsta og
minnkandi mjólkurmagn, sem
stafar af því að kýrnar fá lélega
beit á hinni sviðnu jörð.
Mjólkurbúin hafa gert sitt
ítrasta til þess að reyna að forð-
ast skömmtun og sótt mjólk um
langa vegu á Sjálandi en í gær
var sýnilegt að ekki varð kom-
ist hjá skömmtun. I
Eðlileg mjólkurneyzla Kaup-
mannahafnarbúa nemur um 500
þús. lítrum á dag.
Spjallað við formenn trá frœndþjóðunum
FUNDUR norrænu félag-
anna hófst í Alþingishús-
inu kl. 9,30 í gærmorgun. —
Borgarstjórinn í Reykjavík
Gunnar Thoroddsen bauð full
trúana velkomna og sérstak-
lega hina erlendu gesti, sem
fundinn sitja. Það eru fulltrú-
ar frá öllum Norðurlöndum.
Var síðan gengið til fundar-
starfa og fóru fyrst fram kosn-
ingar fundarstjóra og fundarrit-
ara. Forseti fundarins var kjör-
inn Gunnar Thoroddsen, en vara-
forsetar formenn Norðurlanda-
nefndanna. Ritarar voru kjörnir
Birgir Olsson frá Svíþjóð og
Magnús Gíslason framkvæmda-
stjóri Norræna félagsins íslenzka.
EFNI FUNDANNA
Fyrsta mál á dagskrá fundar-
ins í gærmomgun var stutt yfirlit
yfir störf félaganna á þVí tíma-
bili, sem liðið er frá síðasta full-
trúafundi. Síðan flutti Gunnar
Thoroddsen borgarstjóri fram-
söguræðu um málio: ísland í nor-
rænni samvinnu. Boi’garstjóri
ræddi í ræðunni um, að íslend-
ingar ættu nokkra sérstöðu í hinu
norræna samstarfi, þótt samstaða
þeirra með Norðurlöndum væri
höfuðreglan. Ekki þyrftu minni
samskipti við Norðui’landaþjóð-
irnar að stafa af tungumálaörð-
ugleikum, þar sem flestir íslend-
ingar kynnu tungu einhverrar
Norðurlandaþjóðarinnar, en fjar-
lægð landsins væri hér nokkur
Frh. á bls. 2.
rr
Bandaríkin hóta að segja sig úr
þingmannasambandinu
Prestaþing á Isiandi
ÓSLÓ, 25. ágúst: — Á þingi nor-
raanna biskupa, sem haldið er í
Ósló, tilkynnti' Ásmundur Guð-
mundsson, biskup íslands, að á
næsta ári myndi verða haldin
prestastefna á íslandi í tilefni af
900 ára afmæli biskupsstóls á ís-
landi.
34 af 38 biskupum Norðurlanda
taka þátt í þinginu í Ósló. NTB.
HELSINGFORS, 25. ágúst: —
Alvarlega bliku dregur á loft á
þingi alþjóða þingmannasam-
bandsins í Helsingfors.
Tillaga liggur fyrir þinginu um
að taka Kína-kommúnista inn í
þingmannasambandið, en vitað
er að fulltrúanefnd Bandaríkj-
anna hefir hótað því að Banda-
ríkin muni segja sig úr samband-
inu, ef aðild Kína-kommúnista
veirður samþykkt.
Sovétríkin sitja nú þing sam-
bandsins í fyrsta skifti. Fulltrúi
þeirra, Mikailov, menntamála-
ráðherra, harmaði mjög, að Kína-
kommúnistar skuli ekki sitja
þingið.
Ráðheri-ann sagði að mörg
vandamál væru óleyst i heimin-
um, enda þótt dregið hafi úr við-
sjám. Ráðherrann benti í þessu
sambandi sérstaklega á bann við
notkun atomvopna.
Finn Moe talaði af hálfu Norð-
manna og marmaði hann m. a.
að Kína-kommúnistar skyldu
ekki vera búnir að fá aðild að
Sameinuðu þjóðunum. — NTB.
Togara" gjaldeyrir
Dana til bílahaupa
KAUPMANNAHÖFN: — Fyrir
þremur árum komu Danir á hjá
sér nokkurskonar „togaragjald-
eyri“ — þeir tala í þessu sam-
bandi um „dollaraverðlaun" —.
sem greitt hefir fyrir bílainn-
flutningi til Danmerkur. Á þess-
um þremur ái’um hafa Danir
flutt inn 54.000 fólksbila, 15.000
mótorhjól „auk fjölmargra vöru-
bíla, sem hægt er að nota ýmist
til vöruflutninga eða mannfli'tn-
inga“. .
Á fyrra árs helmingi þessa árs
voru fluttir inn 17.900 fólksbílar.
— Innflutningsverðmæti þe'ssara
bíla nam 112 millj. (dönskum)
krónum, eða 2.8% af heildarverð-
mæti danska innflutningsins
Yfirleitt hefir dregið úr bíla-
innflutningum í ár, miðað við
fyrra ár.
Danir áttu samtals 310.000 bíla
1. júlí síðastliðinn. Tala mótor-
i hjóla nam á sama tíma 103.000.
Til viðbótar koma „skellinöðr-
urnar“, sem eru samtals 100.000
eða fleiri.