Morgunblaðið - 28.08.1955, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 28.08.1955, Blaðsíða 1
16 síður og Lesbók ttjwittMtów 42. árgangur 194. tbl. — Sunnudagur 28. ágúst 1955 Prentsmiðja Morgunblaðsins „Yamarsigur ‘ Mas^iúsar! V*/ r<-' '.Maðurinn, sem bar úl ekkjuna" relddi fram lausnargjaldið MAGNÚS KJARTANSSON, ritstjóri „Þjóðviljans“ hætti í fyrrakvöld við að vera píslarvottur. Hann lét nokkra flokksmenn sína bcrga fyrir sig meiðyrðasektina, sem hann einn allra íslenzkra ritstjóra hafði neitað að borga. Síðan spásseraði hann burt af „hótelinu ‘ á Skólavörðustíg! „Þjóðviljinn“ segir í gær, að þetta sé mikill „sigur“ fyrir Magnús. Venjulegu fólki mun þó finnast að það sé í mesta lagi „varnarsigur“! Er nú hlegið að kommúnistum um allt ísland fyrir bjálfa- skap þeirra og yfirborðshátt. Þess má að lokum geta að aðal „verkamaðurinn“, sem greiddi fram lausnargjald ritstjórans, var Þorvaldur lögfræðingur Þór- arinsson, „maðurinn, sem bar út ekkjuna“ á sínum tíma. Gyldendal gefur úl 100 nýjar bækur íhaust M.a. nýja bók eftir Martin A. Hansen og danska þýðingu á Gerplu DANSKA bókaútgáfufélagið Gyldendal hyggzt senda frá sér 100 bækur fyrir næstu jól. Verður upplag þeirra allra 700 þúsund bindi. NÝTT SMÁMYNDASAFN Meðal þeirra bóka, sem fé- lagið gefur út í haust er nýlt Martin A. Hansen verk eftir hinn snjalla danska höfund Martin A. Hansen. Er það Konkylje smásagnasafn. — Samdi skáldið sumt af því skömrnu fyrir andlát sitt í sum- ar. Einnig verður gefið út minn ingarit um þenna ágæta höfund Þar verða áður óprentaðar greinar eftir Hansen og fjöl- mörg norræn skáld munu minn ast hans. 9 SMÁSÖGUR 1 Konkylje verða 9 smásögur og hafa 4 þeirra aldrei birzt á prenti áður. — Eins og kunnugt er reit Hansen einhverja beztu bók sem til er um Island, Rejse pá Island. | GERPLA KILJANS Af öðrum bókum Gyldendals í haust má nefna „Kæmpeliv i Nord“ eftir Halldór Kiljan Lax- ness, — og er þar um að ræða Gerplu, sem nú kemur í fyrsta sinn „á dönskum búningi". Snurða hefir hlaupið á vináttu „Ikes“ og Trumans íj „AtvinnupólUíkus” og „genrimaður" WASHINGTON — Snurða hefir hlaupið á vináttu þeirra Eisen- howers forseta Bandaríkjanna og Trumans fyrrv. forseta. Þeir hafa verið góðkunningjar allt til þessa, en nú hefir skyndilega komið upp óvinátta þeirra í milli, að því er bandaríska viku- blaðið Look skýrir nýlega frá. HEIMSÓTTI EKKI , IKE“ Look bendir á, að Truman hafi fjórum sinnum verið á ferð í Washington nú undan farið án þess að sækja Eisenhower heim. Þegar forsetinn kom við í Kansas City 1953, hringdi Tru- man á hótelið, þar sem hann bjó, og kvaðst vilja votta „Ike“ virðingu sína og hitta hann að máli. Honum var aldrei svarað. HARÐUR í HORN AÐ TAKA Ekki fyrir ýkjalöngu á forset- inn að hafa kallað Truman „at- vinnupólitíkus“ og Truman á að hafa sagt, að Eisenhower sé „gervimaður“! Og Truman getur alls ekki fyrirgefið Eisenhower, að hann skyldi ekki verja sinn gamla vin, Marshall hershöfð- ingja, þegar MvCarthy réðst á hann I fyrra sumar og kallaði hann föðurlandssvikara. Fréttir stuttu máii • LUNDUNUM, 27. ágúst — Dulles sagði í dag, að Bandaríkja nienn vildu tryggja landamæri ísraels og Arabalandanna. Ráð- herrann sagði og, að Bandaríkja- menn mundu leggja fram drjúg- an fjárstyrk til styrktar þeim arabísku flóttamönnum sem eru í Gyðingalandi. — Hammar- skjöld kveður tilboð þetta hið göfugmannlegasta og þungt á metaskálum friðarins. ® Róstur voru á landamærum ísraels og Egyptalands í gær. 12 menn voru drepnir. Merkur fornleifafundur: 119 herskip á botni Sýrakásflóa SYRAKUS — Kafarar hafa fundið minjar af grískum her- skipaflota, sem sökkt var fyrir 2368 árum í einni mestu sjó- orustu fornaldar. FUNDU STEFNI Kafarar hafa leitað að þessum skipum undanfarinn mánuð í Sýrakusflóa og bar leitin ekki Unnu kommúnistar kosn- in^arnar í Putalandi með t atkv, látinna kiósenda? Kusu sumir stuðningsmenn þeirra tvisvar? ANDKOMMÚNISTAR beggja vegna Atlantshafsins eru reiðir mjög út af kosningunum í putalandinu San Marinó og segja, að kommúnistar hafi unnið kosningarnar þar „með atkvæðum látinna kjósenda“, VORU VISSIR UM SIGUR I istar hafi látið látna kjósend- Einkum eru kristilegir demó- ' ur sína taka þátt í kosningun- kratar í Evrópu óánægðir með j um með því að falsa kjörskrá. úrslitin, enda töldu þeir fullvíst,, Þá beittu kommúnistar ýmsa að þeir mundu bera sigurorð af andstæðinga sína brögðum á kommúnistum. En raunin varð ^ kjörstað, svo að sumir þeirra önnur, eins og kunnugt er. KUSU TVISVAR? Nú halda kristilegir demó- kratar því fram, að kommún- Breyta nótt í dag FENEYJUM, 27. ágúst — ítalskir vísindamenn hafa tilkynnt, að þeir hafi fundið aðferð til þess að breyta nótt í bjartan dag. — Segjast þeir munu geta gert þetta eftir tvö ár eða svo. Auðvitað er hér um marg- brotna og flókna aðferð að ræða, sem sennilega mundi fara fyrir ofan garð og neðan hjá leikmönn- um. Þó má geta þess, að það eru samþjappaðar radíóbylgjur í loft- inu, sem breyta myfkrinu í birtu. sneru frá án þess kvæðaseðlunum. að skila at- árangur fyrr en í vikunni sera leið. M. a. hafa kafararnir fund- ið stefni af galeiðu. FRÁ ÞVÍ 430 F. KR. — Það getur ekki verið nein- um vafa undir orpið, að þessar skipaleifar séu af gríska flotan- um sem sigraði Syrakus, segir forstjóri fornminjasafnsins i Syrakus, Luigi Barnard Brea. Álitið er, að þarna liggi 119 herskip á sjávarbotni og var þeira sökkt 413 f. Kr. Verður grænlenzka lögreglan aukin? • GÓÐRI VON, 27. ágúst — Grænlenzka landsráðið varð i gær ásátt um, að nauðsynlegt væri að auka lögreglulið lands ins, þar eð það væri of fá- mennt og gæti alls ekki hald- ið uppi lögum og reglu. Landsráðið bendir á, að senda beri fleiri lögregluþjóna frá Dan- mörku til stærstu byggðanna, auk þess sem bæta þyrfti við græn- lenzkum lögregluþjónum. — En Grænlendingar eru ekkert gin- keyptir fyrir að gerast lögreglu- menn, þar eð kaupið er lágt og starfið oft og tíðum erilssamt. • Verkfall er nú í Chile og þyk- ir hætta á, að til óeirða komi l landinu. —Reuter. Vor liflækair 5 kéuga Lýsti banameini sínu fyrir lœknum LUNDÚNUM, 27. ágúst. LÍFLÆKNIS Bretadrottningar, Thomasar Jeeves Horder, verður áreiðanlega minnzt í læknasögu Bretlands, enaa er nann einn hæfasti læknir þar í landi. Áður en hann lézt fyrir skömmu, tæp- lega hálfníræður, lýsti hann nákvæmlega sjúkdómi þeim, sem leiddi hann til dauða. RÉTT GREINING Rólegur og íhugull lýsti Horder lávarður, fyrir nokkrum læknum sem voru umhverfis dánarbeð Hrói höttur Indlands drepinn: Ákærður fyrir 403 morð, — var trúaður og gjaimildar H NÝJU DELÍ, 27. ágúst. RÓI HÖTTUR Indlands, sem um árabil hefir verið á flótta undan fjölda vopnaðra lögreglumanna, var drepinn í gær. í MIÐ-INDLANDI Maðurinn heitir Man Singh og var 61 árs, þegar hann var drep- inn. Hann átti ríki sitt í skógum Mið-Indlands, þar sem hann var leiðtogi 5000 útlaga, er þangað höfðu leitað. REYNT AÐ NÁ MAN Undanfarin 4 ár hefir ind- verska lögreglan átt í skærum við útlagana, en einkum var leit- azt við að ná foringjanum, því hans, hjartasjúkdómi sínum. Min- útu eftir mínútu skýrði hann frá einkennum sjúkdómsins og greindi hann nákvæmlega, og síðar þegar að var gáð, reyndist sjúkdóms- greining hans hárrctt, l( LÆKNIR GEORGS V. Horder lávarður var fyrst kall- aður í lækniserindum til brezku hirðarinnar í tíð Edwards konungs 7., og var síðan líflæknir fimm Bretakonunga, Var hann síðast að embættiserindum, þegar Georg 5. lá banaleguna. — Þá má og geta þess, að hann var læknir fjöl- margra þekktra stjórnmálamanna. að hann var ákærður fyrir 403 j morð og yfir 2000 rán. Rændi hann hina ríku og gaf hinurn fá- i tæku. TRÚAÐUR Sagt er, að Man Singh hafi verið mjög trúaður maður og á ránsferðum sínum bar hann allt- af á sér Ramayana og Hanuman Chalisa — bænabók hindústan- manna. Lokuðu skipstórann mm KAUPMANNAHÖFN, 27. ágúst: — Neyðarskeyti hefir borizt frá sænska skipinu Doróthea, sem satt er sunnarlega á Atlantshafi. Skipshöfnin á skipi þessu, sem er 1800 smálestir að stærð, hefir gert uppreisn og lokað skipstjór- ann inni. Skipið er á leiðinni til Suður-Ameríku. — Reuter.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.