Morgunblaðið - 30.08.1955, Side 1
16 síður
WíiMftíöifo
42. árgangur
195. tbl. — Þriðjudagur 30. ágúst 1955
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Formenn
Menniiigar-
málanefndar
Friðarráðstefnur í London og París
FAIJRE FORNAR GRAIMDVAL
Stjórnarkreppu afstýrt
í Frakklandi
Þrjú ríki Atlantshoisbanda-
lagsins d súttafondi
Formcnn norrænu Menningarmálanefndanna, sem sitja nú á fundi hér í Reykjavík, talið frá vinstri:
Prófessor Erik Lönnroth, Finnlandi, Ólafur Björnsson próf., íslandi, H. M. Hansen, rektor, Danmörku,
Ragnar Edeman ríkisritari, Svíþjóð og Helge Sivertsen, ríkisritari, frá Noregi. — Ljósm. Mbl. Ól. K. M.
Fundur norrænu Menningurmála-
nelndarinnar hófst hér í gser
Nær 40 fulltrúar frá öllum
Norðurlörrdunum sækja fundinn
IGÆR hófst hér í Reykjavík hinn árlegi fundur norrænu Menn-
ingarmálanefndarinnar, sem öll Norðurlöndin eiga aðild að.
Sitja hann nær 40 fulltrúar. Fundurinn var settur í Sal Neðri deild-
ar Alþingis kl. 10 f. h. í gær. H. M. Hansen, rektor Kaupmanna-
faafnarháskóla, formaður dönsku fulltrúanefndarinnar, setti fund-
Inn og lét í ljós ánægju sína með það, að hann skyldi að þessu sinni
faaldinn hér á íslandi. Ólafur Björnsson prófessor, formaður íslenzku
nefndarinnar, bauð fulltrúana velkomna og gerði síðan nokkra grein
fyrir starfstilhögun og skipulagi fundarins.
FULLTRÚARNIR
í gær stóð fundur Menningar-
málanefndanna til kl. rúmlega 12
á hádegi. Var þá gert hlé á fund-
um til kl. 3, en þá hófust fundir
1 hinum þremur deildum, sem
fulltrúunum er skipt í.
FuIItrúar Dana á fundinum eru
þessir: H. M. Hansen, rektor, for-
nlaður, dr. phil. Hakon Stangerup
lektor, Albert Michelsen, skrif-
stofustjóri, Marius Buhl fólks-
þingmaður, Oluf Bertolt, forstj.,
Jörgen Jörgensen, fólksþingmað-
ur, Olaf Waage, háskólaritari og
P. A. Koch, fulltrúi.
Frá Finnlandi eru þessir full-
trúar á fundinum: Prófessor
Erik Lönnroth, formaður, R. H.
Oittinen, forstjóri, J. O. Tallqvist
fil. mag. og Ragnar Meinander
ritari.
Mesiu þurrkar í Sví-
þjóð í Ivær aldir
STOKKHÓLMUR, 29. ágúst —
Þurrkarnir í Stokkhólmi í sumar
eru hinir mestu frá því á árinu
1785, en frá því ári og til þessa
dags eru til veðurfarsbækur í
Stokkhólmi.
I Horfurnar í mjólkurframleiðsl-
í unni í Svíþjóð eru bágar, vegna
1 lélegrar beitar. Mjólkurbúin á
Stokkhólmssvæðinu hafa neyðst til
þess að draga úr osta og smjör
framleiðslunni til þess að geta
fullnægt eftirspurn eftir mjólk.
Frá Noregi eru eftirtaldir full-
trúar: dr. Harald Schielderup
prófessor, Helge Seip stórþings- .
maður, Nils Langhelle stórþings- '
maður, Helge Sivertsen ríkisrit-
ari, formaður, Henrik Groth for-
stjóri, Helene Andersen ritari, og
Kjell Eide skrifstofustjóri.
Frá Svíþjóð eru þessir: Ragnar
Edenman ríkisritari, formaður,
Harald Cramer prófessor, rektor
Stokkhólmsháskóla, E. G. Rosén
forstjóri, Erik Forslund lands-
þingsmaður, Harald Elldin rektor
dr. Gunnar Helén ríkisþingmað-;
ur, dr. Nils Andrén ritari og
Gösta Forsström ritari.
Frá íslandi: Ólafur Björnsson
Frh. á bls. 2. 1
Vopnahlésnefndin
héll á flóffa
KAIRO, 29. ágúst — Vopnahlés-
nefndin á Gazasvæðinu á landa-
mærum Israels og Egyptalands,
varð að slíta fundi í skyndi í dag
og halda burt vegna nýrra átaka
milli herja Israelsmanna og
Egypta. Átökin í dag áttu sér
stað bæði í ilofti og á landi.
Gazasvæðið er um 200 ferkíló-
metrar og á þessu svæði búa 200
þús. arabiskir flóttamenn, sem
lifa á ölmusu frá S. Þ. og Egypt-
Fyrrum prentari,
nú ritstjóri,
vara-fersætis-
ráðherra Hana
Stjórnarbreyting
filkynnt í dag
Kaupmann ahöf n:
VARA- forsætisráðherra Dana,
sem skipaður verður í em
bætti í dag, er fyrrverandi prent-
ari eins og H. C. Hansen, for-
sætisráðherra. Hann heitir Ernst
Christiansen, er 64 ára gamall og
hefir undanfarið verið ritstjóri
Kaupmannahafnarblaðsins „So-
cial-Demokraten“ í utanríkis-
málum.
í æsku var Christiansen for-
maður sambands ungra jafnaðar-
manna í Danmörku, gerðist síð-
an kommúnisti, varð fvrsti for-
maður kommúnistaflokks Dana
og gegndi þeirri formennsku á
árunum 1919—1927. Arið 1931
gerðist hann jafnaðarrr.aður aft-
ur, tók til starfa við „Social-
Demokraten" og hefir undanfarið
verið fulltrúi í sendinefnd Dana
á þingum Sameinuðu þjóðanna.
Christiansen verður ráðherra
án stjórnardeildar, en raunveru-
lega verður hann vara-forsætis-
ráðherra.
Aðrar breytingar, sem gerðar
verða á dönsku stjórninni eru
þær, að Kjærböl, fyrrum innan-
ríkis- og húsnæðismálaráðherra,
verður áfram húsnæðismálaráð-
herra, en við embætti innanríkis-
málaráðherra tekur Carl Peter-
sen, samgöngumálaráðherra. —
Samgöngumálaráðherra verður
Kai Lindberg, formaður verklýðs
félagasambandsins. Lindberg er
fulltrúi Dana í Norræna ráðinu.
London og París, 29. ágúst.
OFRIÐARBLIKUR við austanvert og vestanvert Miðjarð-
arhaf voru til umræðu á mikilvægum ráðstefnmn í
París og London í dag.
í London var sett ráðstefna utanríkisráðherra Breta,
Grikkja og Tyrkja um varnir við austanvert Miðjarðarhaf
með sérstöku tilliti til framtíðaf Cyprus eyjar.
Af 510 þús. íbúum Kyprus eyjar eru um 100 þús. Tyrkir, sem
segjast munu stofna til blóðugrar byltingar, ef Bretar fallast á að
afhenda eyna Grikkjum.
Bretar hafa varið 13 milljónum sterlingspunda til þess að gera
hernaðarmannvirki á eynni, sem var gerð að aðalherstöð þeirra
við austanvert Miðjarðarhaf er þeir urðu að flytja her sinn frá
Suez eiði. — í herstöð Breta á eynni eru nú 4 þús. hermenn.
HÆTTI AÐ STYÐJA
MARKARIOS
Kýprus vandamálið varðar all
mjög Atlanthafsbandalagið, þar
eð allar þrjár þjóðirnar, sem þar
deila eru í bandalaginu Bæði í
Grikklandi og Tyrklandi hefur
mál þetta verið gert að stór- j
felldu æsingamáli, svo að varn-
arbandalag þessara tveggja þjóða
sem stofnað var í fyrra, getur
vart talist raunverulegt lengur. j
Harold Macmillan, utanríkis- j
ráðherra Breta, hefir verið kjör-J
inn forseti Kyprusráðstefnunnar i
í London. Talið er, að Bandaríkin |
leggi á það mikla áherzlu, aðj
deilumál þetta, sem öllum er til
tjóns nema sovétríkjunum, verði
leyst á ráðstefnunni, sem nú er
að hefjast í London.
Fyrst í stað munu Brctar leggja
á það áherzlu að Grikkir hætti
að styðja Markarios erkibiskup
á Kýpur.
Eystrasalts-
íöndin „Iokuð“
lönd
BERLlN, 29. ágúst — Sovét-
stjórnin hefir synjað tveim
amerískum þingmönnum, sem
staddir eru í Sovétríkjunum um
þessar mundir, um leyfi til þess
að fara til Riga í Lettlandi. Tal-
ið er að Rússar hafi mikla hern-
aðarbækistöð í Riga.
Lausafregnir, sem gengið hafa
um það undanfarið, að erlendum
mönnum væri bannað að ferðast
um Eystrasaltslöndin vegna hinna
miklu herstöðva Rússa í þessum
löndum, hlutu óbeina staðfestingu
estnesks hafnarverkamanns, sem
nýlega flúði af estnesku skipi í
höfninni í London. Hafnarverka-
maðurinn, tvítugur unglingur, að
nafni Manivad Raestas, hefir
undanfarna átta mánuði starfað
við höfnina í Tallin, höfuðborg
Estlands.
Unglingurinn sagði að Rússar
hefðu gert Estland að aðal eld-
flauga herstöð sinni.
KAUPMANNAHÖFN, 29. ág. —
Sex ritstjórum danskra blaða hef-
ir verið boðið í hálfsmánaðar
heimsókn til Sovétríkjanna.
Landbúnaðarráðherra Dana hef-
ir þekkst boð um að koma í heim-
sókn til Moskvu.
FYRIR 12. SEPT.
Allgóðar horfur eru taldir á
því að vandamálið við vestan-
vert Miðjarðarhaf, Marokkó-
málið, sem rætt hefur verið
á 13 klst. fundi í París nú
um helgina, sé að leysast.
Eftir að fundi frönsku ríkis-
stjórnarinnar lauk í París í dag,
skýrði ráðherra Norður Afríku,
July, frá því, að fullt samkomu-
lag hafi tekist á fundinum. Er
búist við að Marokkómenn fái
einhverskonar heimastiórn fyrir
12. sept. n.k.
Fyrsti árangur hinnar nýju
stefnu Frakka í Marokkó, sem-
samkomulag virðist nú hafa tek-
ist um, er að þriggja manna
nefnd tekur við störfum soldáns-
ins Ben Arafa. Síðar meir er
gert ráð fyrir að fyrrverandi sol-
dán Ben Youssef verði kvaddur
til Frakklands og taki við sol-
dánsstjórn í Marokkó er frá líður.
Faure forsætisráðherra tókst
að fá samþykki ráðuneytisins síns
fyrir þessari breytingu með því
að fórna þeim manninum, sem
mestan þátt hefir átt í því, að
hin væntanlega stjórnarbót
kemst á í Marokkó, Grandval
hershöfðingja. Er sagt að Faure
hafi nú þegar tekið lausnarbeiðni
Grandvals til greina.
Landsstjóri í Marokkó í stað
Grandvals verður skipaðuir la
Tours, sem verið hefur landstjóri
Frakka í Túnis undanfarið. Við
landsstjórn í Túnís tekur lög-
reglustjórinn í París, André
Dubois.
GRANDVAL VINSÆLL
Það voru hægri flokkarnir í
stjórnarsamsteypu Faures, Gaul-
listar, bændur og óháðir bænd-
ur og óháðir hægri-þingmenn,
sem kröfðust þess, að Grandval
yrði fórnað.
Nokkur hætta er á því, að
lausnarbeiðni Grandvals hleypi
af stað nýjum óeirðum í Mar-
okkó, en þar hefur landstjórinn
náð miklum vinsældum meðal
Araba á þeim tveim mánuðum,
sem hann hefur gegnt landstjóra-
embættinu. Því aðeins er talið,
að hægt verði að afstýra vand-
ræðum, að Ben Arafa soldán
verði látinn segja af sér um leið.
Jafnvel E1 Glaoui pasja í Marr-
akesh, er talinn gera sér grein
fyrir að Ben Arafa verði að víkja,
ef það á að takast að fá einskonar
heimastjórn fyrir Marokkó.
i