Morgunblaðið - 03.09.1955, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 03.09.1955, Blaðsíða 16
Veðurúiiif í dag: S-kaldi. Rigning. 199. tbl. — Laugardagur 3. september 1955 Samial við menntamálaráðherra Dana. Sjá grein á bls. 9. Fyrsta íslenzka flugvél- in lendir í Washington Mikíar annir Cullfaxa og Sólfaxa Frá fundi mennfamálaráðherrarwa Rannsókn á ieseini nnffiissffa og hvernig stöðva má giæparitin HINAR stóru millilandaflugvélar Flugfélags íslands hafa óvenju- mikið að gera um þessar mundir, þar sem þær eru í leiguflugi og einnig er hvert sæti skipað í ferðum félagsins til útlanda næstu ■daga. Fyrsta íslenzka flugvél í Washinglon S. 1. miðvikudag fór Sólfaxi í leiguflug til Washington, höfuð- borgar Bandarikjanna. Flutti flug vélin þangað bandaríska hermenn. Mun þetta vera í fyrsta skipti, sem íslenzk flugvél lendir í Washing- ton. Farið var þangað með við- komu í Gander. 1 bakaleiðinni kom Thor Thors sendiherra til landsins og var flugvélin væntanleg í nótt. Með innflytjendur og vísindamenn Þá átti flugvélin að fara í ann- að leiguflug á þriðjudaginn frá Hamborg til New York með 57 þýzka innflytjendur til Kanada. Á laugardagskvöld fer Gullfaxi til Narsarssuak-flugvallar með 40 danska iðnaðarmenn og á sunnu- daginn fer Katalina-flugbátur flugfélagsins til Ella-eyjar og sæk ir 19 vísindamenn, sem þar hafa verið í Lauge Koch leiðangrinum. Þeir fara siðan með áætlunarflug vélum flugfélagsins til London og Kaupmannahafnar. Allt upppantað Óvenju miklir farþegaflutningar eru nú milli landa, miðað við tím ann og fyrirsjáanlegt að þeir verða miklir út þennan mánuð. T. d. eru öll sæti skipuð í ferðinni til Glasgow og Kaupmannahafnar á laugardag, einnig í þriðjudags- ferðinni til Glasgow og Lundúna og miðvikudagsferðinni til Kaup- mannahafnar og Hamborgar. — Hafa margar pantanir verið gerð ar með öllum næstu flugferðum. ÍR-inp í Kaiisfad STOKKHÓLMI, 2. sept: — ÍR- ingarnir náðu ágætum árangri á móti í Karlstad s.l. miðvikudag. Vilhjálmur Einarsson (UÍA) varð l. í þrístökki með 14,88 m. Sig- urður Guðnason var fyrstu í 800 m. hlaupi á 1.58,6 mín. Þórir Þor- steinsson (Á) varð 3. í 400 m. hlaupi á 48,1 sek., Guðmundur Vilhjálmsson varð 3. í 100 ín. hlaupi á 10,9 sek. Adolf Óskars- son var 2. í spjótkasti með 54,97 m. Heiðar Georgsson varð 3. í stangarstökki með 3,70 m. og Daníel Halldórsson 5. í 400 m. hlaupi (B-riðli) á 51,6 sek — Örn. AFUNDI menntamálaráðherra Norðurlandanna fóru í fyrradag fram miklar umræður um lesefni unglinga og hvernig varast megi hin uppeldishættulegu sorprit og glæparit, sem svo mjög hefur borið á hin síðustu ár. Þeir Vilhjálmur Þ. Gíslason og Þórður Eyjólfsson fluttu framsöguræður. Var samþykkt að lokum að nor- ræn nefnd skyldi rannsaka þetta vandamál, en þangað til skyldi engin þjóðin ein fyrir sig gera neinar endanlegar ráðstafanir. MIKIL BÓKAÚTGÁFA Á NORÐURLÖNDUM Umræður þessar hófust með því að Vilhjálmur Þ. Gíslason útvarpsstjóri flutti ýtarlegt er- indi um lesefni unglinga á Norð- urlöndum. Hann gat þess að á Norðurlöndum væru árlega gefn- ar út 12—13 þús. bækur og 450 dagblöð. Þar væru 21 þúsund bókasöfn með 40 milljón bindi. En erfitt er að dæma um það hvað mikið bækurnar eru lesnar, sagði Vilhjálmur. Taldi hann nauðsynlegt að láta fara fram rannsókn á því hverjir lesa bæk- urnar, hvemig bækur eru helzt lesnar o. s. frv. Helzt þyrfti að byrja rannsókn á því hvað væri helzta lesefni unglinga. Þar yrði einnig að taka tíllit til helztu keppinauta bókanna, útvarpsins, sjónvarpsins og kvikmyndanna. | dómari hafði framsögu um vam- ir gegn útbreiðslu lestrarefnis, sem teljast mætti sérstaklega skaðlegt börnum og unglingum. ' Hann gat þess, að landssamband framhaldsskólakennara hefði á síðasta þingi sínu gert samþykkt um tilmæli til Alþingis og ríkis- stjórnar um að gera ráðstafanir til að hindra útgáfu glæparita og innflutning glæpamyndahefta, ( ALMENNINGSBÓKIN Vilhjálmur vék nokkuð að at- hugunum, sem gerðar hafa verið á lesefni manna. Augsýnilegar væru ýmsar breytingar, sem orð- ið hafa I bókaútgáfu. Ódýra al- menningsbókin væri nú útbreidd ust. T. d. seldust árið 1951 230 milljónir vasabóka í Bandaríkj- unum og á síðustu árum hafa betri bækur færzt í aukana aft- ur og náð yfirhöndinni í sam- keppni við glæpasögur. Vilhjálmur Þ. Gíslason útvarsstjóri Ljósmynd þessa tók Ól. K. Magnússon í danska sendiráðinu í gær, þegar viðurkenning fyrir björg- un „Kríunnar“ var afhent. Frá vinstri: Guðbjartur Óiafsson, Henry Halfdánarson, frú Bodil Begtrup, Eiríkur Kristófersson, Árni Valdimarsson og Pétur Sigurðsson. ER HÆGT AÐ LÝSA BÆKUR ÓFRIÐHELGAR? Ræðumaður taldi að bækurnar ættu að þjóna lífinu, en hvaða jífi eiga þær að þjóna? Hver á Hér væri einkum um að ræða innflutning svonefndra hasar- blaða og útgáfu tímarita um af- brot og glæpamál, sem á síðustU árum hefðu hafið göngu sína hér Erlend ríkisstjórn sendir þakkir og rausnarlega viður- kenningu fyrir björgun skips Frú Bodil Begfrup afhendir SVFI 10 þús. d. kr, IGÆR afhenti frú Bodil Begtrup, sendiherra Dana hér á landi heiðursgjafir og viðurkenningu fyrir það góða starf, sem nokkrir íslendingar unnu, þegar danska mælingaskipinu „Ternen“ (Krían) var bjargað við Mávabót á Meðallandsbugt í júnímánuði 6.1. Viðurkenningarnar komu frá dönsku stjórninni og eru skemmti- legur og óvenjulegur vottur um það, að erlend yfirvöld kunna að meta björgunarstarf íslendinga hér við strendurnar. Cóð gjöf lil slysavarna Frú Bodil Begtrup afhenti for- stöðumönnum Slysavarnafélagsins þeim Guðbjarti Ólafssyni og Hen- ry Hálfdánarsyni, 10 þúsund danskar krónur, til frjálsra af- nota, sem þakklæti fyrir starf björgunarsveitarinnar á Kirkju- bæjarklaustri. Heiðursmerki Þá hlutu þessir menn viðurkenn ingu fyrir björgun skipsins úr sandinum: Pétur Sigurðsson for- stjóri landhelgisgæzlunnar, var sæmdur Kommandör-krossi Danne brogs, Eiríkur Kristófersson skip- herra á varðskipinu Þór var eæmdur 1 stigi riddarakross Dannebrogs. Gunnar Gíslason skipherra á varðskipinu Óðni var sæmdur riddarakrossi Dannebrogs. Árni Valdimarsson stýrimaður fékk að gjöf silfuröskju með áletr . un. Þá færði frú Bodil Begtrup þakkir sínar, íslenzku ríkisstjórn inni, en Magnús V. Magnússon, skrifstofustjóri var viðstaddur af- hendingu þessa,- Fimmfi landsiundur Fél. ísl. símamanna haldinn á Akureyri FIMMTI landsfundur Félags ísl. símamanna var haldinn á Akur- eyri dagana 25. til 27. ágúst s.l. Fundinn sátu 36 fulltrúar víðs- vegar að af landinu. Forsetar fundarins voru þeir Steindór Björnsson Reykjavík og Émil Jónasson, Seyðisfirði. Fund- urinn gerði margar tillögur og ályktanir í launa- og kjaramálum símamannastéttarinnar. Fótbrotnaði í Snðargötu í GÆR um nónbil, var maður á gangi á Suðurgötunni Var það Valdemar Sigurðsson, sem starf- ar í Þjóðleikhúsinu. — Hrasaði Valdemar þá og féll í götuna, en hann hefur þjáðst af máttleysi alllengi. Var fljótt kallað á sjúkra bifreið og lögreglunni gert að- vart. Var maðurinn 'fluttur í Lands- spitalann og þar rannsakaður. •— Kom þá í Ijós, að hann var fót- brotinn. Líðan hans er nú góð. Hrifning á útvarps tónleikunum f GÆRKVÖLDI gekkst ríkisút- varpið fyrir tónleikum í Þjóð- leikhúsinu. Voru það fyrstu tón- leikar Sinfóníuhljómsveitarinnar á þessu hausti. Á efnisskrá var Septett op. 20, eftir Beethoven. Guðmundur Jónsson söng íslenzk lög með undirleik Fritz Weiss- happel og að lokum lék sinfóníu- hljómsveitin verk eftir dr. Pál ísólfsson, Passacaglíu í f-moll. Stjórnaði dr. Páll sjálfur sveit- inni. Áheyrendur klöppuðu lista- mönnunum mjög lof í lófa, og hylltu þá dr. Pál og Guðmund Jónsson. Voru tónleikarnir hinir beztu og lofa góðu um tónleika Ríkis- útvarpsins í vetur. Þórður Eyjólfsson hæstaréttardómari. að dæma um og velja hvaða bækur eru æskilegar? í ein-ræð- isríkjum er bókmenntum skipt niður í dilka og óæskilegum bókum rutt úr vegi. í lýðfrjáls- um löndum eru menn ekki eins djarfir að lýsa ákveðnar bækur ófriðhelgar. Að lokum kvaðst Vilhjálmur Þ. Gíslason hafa gert áætlun yf- ir, hvernig framkvæma skyldi rannsókn á lesefni unglinga, þar yrði tekið tillit til aldurs, skóla, heimilis, borgar og sveitar. Spurt yrði um hvaða bækur eru lesnar og hvaða höfundar o. s. frv. Með þessu mætti fá mjög þýðingar- mikla skýrslu um andlegt líf á Norðurlöndum og uppeldi æsk- unnar. BANN VIÐ GLÆPARITUM ÞórðUr Eyjólfsson hæstaréttar- á landi. V^NDKVÆÐI Á LAGABANNI Þórður kvað svipuð vandamál mjög hafa verið til umræðu 1 ýmsum öðrum löndum á síðustu árum. Ræddi hann síðan ýmsar leiðir, sem nefndar hefðu verið til að stemma stigu við út* breiðslu glæparita. Taldi hann ýmis vandkvæði vera á, að rit þessi væru beinlínis bönnuð með lögum, eins og þó hefði verið gert í Englandi og Kanada. KvaS hann málið enn vera á athugunar stigi hér á landi og að enn hefðu engar ákvarðanir verið teknar 1 þessu efni. MIKLAR UMRÆÐUR Miklar umræður urðu um þessi efni. M. a. skýrði danski fræðslu málastjórinn Olaf Petersen frá því að dönsk nefnd hefði gert rannsókn á óheppilegum ritum þar í landi og aðrir fulltrúar skýrðu frá viðhorfum hver í sínu landi. Að lokum var samþykkt tillaga þess efnis að stofna nor- ræna nefnd sem rannsakaði þetta vandamál ýtarlega. Friðardúfnakurr HÉR hafa að undanförnu dvalizt kínverskir listamenn á vegum Kínanefndar. Eru þar meðal ann- ars hljóðfæraleikarar dans- og söngmeyjar ásamt fimleika- manni. List þeirra er þrungin austrænum töfrum og hið ljúfa flautuspil minnir helzt á þyt í laufskógi á haustdegi blandinn léttu dúfnakurri. Þættirnir eru kynntir á kín- versku, en túlkaðir af Inga R. Helgasyni formanni Kínanefndair,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.