Morgunblaðið - 14.09.1955, Síða 1
*
42. árgangor
208. tbl. — Miðvikudagur 14. september 1955
PrentsmlðJ* Morgunbiaðsina
Ben ABAFA
verður oð
víkjít
„Allt fór vel að lokum46 sagði Bulganin
SAMKOMULAG í MOSKVU
PARÍS, 12. sept.
Þ R Á T T fyrir að Ben Ar-
ara, soldán í Marokkó, hafi
lýst yfir því í gær, að hann
muni ekki leggja niður
soldánsdóm í landinu „fyrr
en Allah sé það þóknan-
legt“, gaf franska stjórnin
Latour, landsstjóra Frakka,
fyrirmæli um það í morgun,
að gera ráðstafanir til þess
að sett verði á laggirnar
strax þriggja manna heima-
stjórn í Marokkó, sem taki
við stjórn landsins úr hönd-
um soldáns.
Sú skoðun er almennt ríkjandi
í París, að búið verði að víkja
Ben Arafa frá völdum f yrir
vikulokin. Er þess vænzt að
soldáninn hverfi á burt og taki
sér aðsetur í Tangier.
Til þess að gera Ben Arafa
auðveldara að víkja frá þeirri
ákvörðun sinni að leggja ekki
niður völd, reit Rene Coty, for-
seti Frakklands, soldáninum
bréf í gær, en í þessu bréfi er á
mjög diplomatisku máli lýst yfir
því að Ben Youssef, fyrrverandi
soldán, muni aldrei verða fengið
aftur í hendur soldánsembættið
í Marokkó, ef Ben Arafa lætur
að vilja frönsku stjórnarinnar
um að afhenda völd sín í hend-
ur hinu ráðgerða þriggja manna
ráði.
Dr. Adenauer og Bulganin. Myndin er tekin í Moskvu.
Grimmdar-
verk í Algier
PHILIPPVILLE
O F S I N N, hræðslan og kvíð-
inn í Algier blossaði upp að nýju
fyrir síðustu helgi, er frönsk
kona og tvær dætur hennar voru
drepnar í grend við Philippeville.
Mæðgurnar voru skotnar til
bana úr launsátri um kl. hálf
sjö að kvöldi.
Konan var gift frönskum járn-
brautarstarfsmanni. Hún og ell-
efu ára dóttir hennar létust sam-
stundis. Hin dóttirin, fjögurra
ára, lézt á sjúkrahúsi. Níu ára
gamall sonur var barinn til ó-
bóta með byssuskefti og eins árs
hvítvoðungur var særður I ann-
an fótinn.
Að morðum þessum er talið að
hafi staðið hir.ir svonefndu
fellaghas (ofstækisfullir upp-
reisnarmenn) og glæpurinn er
aðeins sýnishorn af baráttuað-
ferðum þessara útlaga, sem haf-
ast við í fjöllunum í sunnan-
verðu landinu. Erfitt er að verj-
ast árásum þessara útlaga. Þótt
Frakkar hefðu fimm eða sex
sinnum meiri her í landinu, væri
greinilega alveg ókleift að verja
alla Evrópumenn allar stundir
dagsins. Augljóst er að fyrir út-
lögunum vakir að eitra andrúms-
loftið í landinu og skapa slíkt
öryggisleysi, að almennur flótti
hefjist úr landinu og þar með
dragi úr áhrifum franskra
Btjórnarvalda í Algier.
„Jopiler" yfirgefinn
i ísnum
KAUPMANNAHÖFN í gær-
kvöldi: — Ritsau fréttastofan
skýrði frá því í kvöld, að ákveðið
hefði verið að átta manna áhöfn-
in á „Jopiter“ skuli flutt um borð
í Kista Dan og farið skuli með
hana til Meistaravíkur.
★
KAUPMANNAHÖFN, 13. sept.:
— Danska íshafsfarið „Kista
Dan“ liggur nú síbyrt við Ála-
sundsskipið „Jopiter“ og hrekur
bæði skipin suður á bóginn með
hálfrar annarar sjómílu hraða.
Skipin eru nú um það bil sólar-
hrings siglingu frá Meistaravík.
Ráðgert hafði verið að „Kista
Dan“ reyndi að draga „Jopiter“
til hafnar, en af því getur ekki
orðið. „Kista Dan“ verður að
hraða för sinni til Meistaravíkur
til þess að geta komist þangað
áður en hafnir lokast vegna ísa.
Eina vonin til þess að takast
megi að bjarga „Jopiter“, byggist
nú á norska eftirlitsskipinu
„Andenes", sem verið hefir við
íslandsstrendur og er nú væntan-
legt til skipanna beggja í ísnum
á miðvikudag.
★
Skv. Reutersfregn frá St. Johns á
Nýfundnalandi mun ísbjörn hafa
ráðist að loftskeytamanninum á
danska íshafsfarinu „Kista Dan“.
Loftskeytamanninn sakaði ekki.
Kýrin nautiðog
rússneska bændanefndin
PARÍS 12. sept.: —. 12 manna
sendinefnd landbúnaðarsérfræð-
inga frá sovétríkjunum, sem ver-
ið hefir á ferðalagi um sveitahér-
uð vestanhafs undanfarna mán-
uði, kom við í París á heimleið í
dag. Sendinefndin hafði ekki með
ferðis í flugvélinni nautið og
kúna, sem henni var afhent að
gjöf, er hún lagði af stað frá
New York i gærkvöldi.
Formaður nefndarinnar, Maske
vitsch, landbúnaðarráðherra,
sagði að það væri ekki nema eðli
legt, að þeir félagar hefðu orðið
að skilja eftir heima hinar góðu
gjafir, þar sem þeim hefði ekki
verið leyft að hafa með sér í far-
angri sínum nema 66 kg.
Nautið og kýrin verða send
austur um haf með flutningaskipi.
Maskevitsch rómaði mjög vin-
gjarnlega framkomu og gestrisni
bænda í Bandaríkjunum.
Á norðurslóðum
MOSKVA, 13. sept.: — ísbrjótur
frá sovétríkjunum hefir komist
lengra í norður heldur en nokk-
uð annað skip hefir komizt áður,
að því er Tass fréttastofan skýrir
frá. ísbrjóturinn T. Litke komst
á mánudaginn á 83. gráðu 11 mín-
útur norðlægrar breiddar, 49 gr.
03 mínútur austlægrar lengdar.
Hópur vísindamanna frá sovét-
ríkjunum er um borð í skipinu.
Þýzku fangarnir
verða sendir heim
Stjórnmálasamband — en
ekkert minnzt á sameininguna
MOSKVU, 13. sept.
SAMKOMULAG náðist í dag milli dr. Adenauers, kanslara
V.-Þjóðverja og Bulganins marskálks, forsætisráðherra
Sovétríkjanna, um það að stjórnmálalegt samband skuli
tekið upp milli Sovétríkjanna og Vestur-Þýzkalands. Jafn-
framt mun Bulganin hafa gefið dr. Adenauer persónulegt
loforð um að þeir Þjóðverjar, sem enn eru í haldi í Sovét-
ríkjunum, dæmdir fyrir stríðsglæpi, skuli fá að hverfa heim
aftur til Þýzkalands.
í samningunum er ekkert minnzt á sameiningu Þýzka-
lands.
í opinberri tilkynningu, sem birt var í kvöld, eftir að samning-
ar höfðu verið undirritaðir, segir að samkomulag hafi tekizt um
að Vestur-Þjóðverjar skuli opna sendiráð í Moskvu og Sovétríkin
sendiráð í Bonn.
í sérstöku bréfi til Bulganins forsætisráðherra, hefir dr. Aden-
auer sétt fram tvo skilmála V.-Þjóðverja fyrir því, að þeir taki
upp stjórnmálasamband við Sovétríkin.
í fyrsta lagi, að ekki verði ákveðin endanleg landamæri Þýzka-
lands nema með sérstökum friðarsáttmála. Þetta skilyrði er sett
vegna þeirra þýzku héraða, sem Sovétríkin lögðu undir sig eftir
stríðið og sem Pólverjar fengu í sinn hlut.
Hinn skilmálinn er sá, að þýzka stjórnin heldur fast við þá
kröfu sína að vera viðurkennd sem hin eina rétta ríkisstjórn sam-
einaðs Þýzkalands. Af hálfu Sovétríkjanna er ekki tekin nein
bein afstaða til þessara skilmála.
Samkvæmt hinni opinberu tilkynningu hafa báðir aðilar fallizt
á að taka upp verzlunarsamband milli Sovétríkjanna og Vestur-
Þýzkalands.
Árangurinn, sem náðist í
Moskvu, er skrásettur á fjórum
skjölum: í fyrsta lagi er hin
opinbera tilkynning, sem gefin
var út í kvöld. í öðru lagi eru
bréf, sem farið hafa á milli dr.
Adenauers og Bulganins mar-
skálks um stofnun stjórnmála-
sambands milli þjóðanna. í
þriðja lagi er bréf dr. Adenau-
ers til Bulganins, um skilmála
Vestur-Þjóðverja fyrir því, að
stjórnmálasambandið er tekið
upp. Og í fjórða lagi er yfirlýs-
ing frá dr. Adenauer um heim-
sendingu þýzku stríðsfanganna.
Á FIMMTA DEGI
SAMNINGANNA
Samningar milli samninga-
nefnda Þjóðverja og Rússa hóf-
ust í morgun með því að þeir
ræddust við einslega góða stund
dr. Adenauer og Bulganin mar-
skálkur. Viðstaddir voru ekki
aðrir en Molotoff, utanríkisráð-
herra og von Brentano, utanrík-
isráðherra. Síðar kom Krutschev
á fundinn.
Eftir þennan einkafund héldu
samninganefndirnar þriggja
klukkustunda fund, en síðan var
gert stutt hlé. Að því búnu hófst
fundur að nýju og var samkomu-
lagið þá undirritað.
Talsmaður Vestur-Þjóðverja
skýrði frá því í kvöld, að dr.
Adenauer gerði ráð fyrir því, að
þýzka þingið myndi staðfesta
Moskvu-samkomulagið innan
hálfs mánaðar. Hefir kanslarinn
tilkynnt Bulganin þessa von sína.
Rætt hefir verið um að Bulg-
anin komi í opinbera heimsókn
til Vestur-Þýzkalands, en engin
ákvörðun hefir verið um það tek
in. En dr. Adenauer hefir áður
lýst yfir því, að leiðtogar Sovét-
ríkjanna væru velkomnir til
Vestur-Þýzkalands.
Á blaðamannafundi, sem yfir-
maður fréttaþjónustu utanríkis-
ráðuneytis Sovétríkjanna hélt í
kvöld, var hann spurður að því
hvort Bulganin hefði gefið á-
kveðið loforð um að vestur-
þýzku fangarnir fengju að hverfa
heim aftur til Þýzkalands. Hann
svaraði: Samkvæmt bréfi Bulg-
anins til dr. Adenauers um stofn-
un stjórnmálasambands milli
þjóðanna, þá mun slíkt samband
gera auðveldara að leysa þau
þrjú mál, sem óleyst eru í sam-
búð þessara tveggja þjóða. Þetta
á einnig við fangamálið.
Eftir að samningar höfðu ver-
ið undirritaðir, létu Bulganin og
Molotoff svo um mælt, „að allt
hefði farið vel að lokum.“
Tvær þýzkar flugvélar eru
komnar til Moskvu, til þess að
sækja dr. Adenauer og föruneyti
hans. Þær halda heimleiðis í
fyrramálið. Dr. Adenauer hefir
þá dvalið 6 daga í Moskvu.
Ræða Bulganins
MOSKVA, 13. sept.: — Útvarpið
í Moskvu utvarpaði í kvöld ræðu,
sem Bulganin marskálkur flutti.
í ræðu þessari sagði marskálkur-
inn að meir en 100.000 sovétborg-
arar hafi ekki komiö heim eftir
stríðið, og séu nú búsettir í V.
Þýzkalandi. Hann hvatti vestur
þýzku stjórnina til þess að að-
stoða þessa sovétborgara við að
komast heim aftur. — NTB.