Morgunblaðið - 14.09.1955, Page 7
í JÆiðvikudagur 14. sept. 1955
MORGUNBLAÐIÐ
I V
Guðmundur Þorbjörnsson mrírarameistari
AÐ morgni 4. þ. m. lézt að
. heimili Guðríðar dóttur sinn-
ar, Grundarstíg 3, Guðmundur
Þorbjörnsson múrarameistari,
Reyðarfirði, 77 ára að aldri.
Guðmundur var fæddur 14.
sept. 1878 að Háteigi á Akranesi.
Foreldrar hans voru Þorbjörn
Jónsson og kona hans Ingibjörg
Guðmundsdóttir, búendur þar.
Jón föðurfaðir Guðmundar var
Ásmundsson, Þórhallssonar Ás-
mundssonar. Er sú ætt góðkunn
am Borgarfjarðarhérað.
Móðurfaðir Guðmundar var
Guðmundur á Lambhúsum á
Akranesi, Sveinssonar bónda í
Gufunesi; systkini Guðmundar
á Lambhúsum voru Jakob tré-
smíðameistari í Reykjavík, Þor-
Steinn á Bræðraparti á Akranesi
og Guðrún fyrri kona Geirs
kaupmanns Zoega í Reykjavík.
Sex ára gamall missti Guð-
mundur föður sinn. Eftir það
ólst hann upp hjá móður sinni,
en var á sumrum vikadrengur
og smali hjá bændum. Tíu ára
gamall réðist hann í vist til
merkisbóndans Þorbjörns Ólafs-
sonar á Steinum, og var þar
fram yfir tvítugsaldur. Kallaði
Guðmundur Þorbjörn á Steinum
fóstra sinn, enda tók hann þar:
út manndómsþroska sinn mestan.
Árið 1902 réðst Guðmundur til
náms hjá Guðmundi Einarssyni |
steinsmið í Reykjavík. Að námi
loknu fór hann þegar að vinna '
sjálfstætt við steinsmíði og múr-
verk í Reykjavík.
Á námsárum Guðmundar og
starfsárum í Reykjavík tók hann
mikinn þátt í íþróttalífi bæjar-
ins, sem þá var á vakningarstigi.
Meðal annars var þá að endur-
vakna áhugi á íslenzku glím-
unni, og átti Guðmundur mik-
inn þátt í endurreisn Glímu-
félagsins Ármanns og var síðar
kjörinn heiðursfélagi þess. Var
hann einn meðal beztu og öflug-
ustu glímumanna í Reykjavík þá.
Vorið 1908 réðist Guðmundur
til að standa fyrir smíði skóla-
húss á Eiðum. Eftir það var
dvalarheimili hans ævi alla á
Austurlandi.
Veturinn, sem Guðmundur var
á Eiðum kenndi hann skólasvein-
um glímu.
Vorið 1909 réðst Guðmundur
til séra Magnúsar Blöndal Jóns-
sonar í Vallanesi. Hann hafði þá
með höndum byggingu íbúðar-
húss og gripahúsa úr steinsteypu.
Stóð Guðmundur fyrir byggingu
húsanna.
í Vallanesi kynntist Guðmund-
ur Aðalbjörgu Stefánsdóttur,
prests Péturssonar á Hjaltastað.
Hún hafði, tveggja ára að aldri,
eftir lát föður síns (10. maí 1888)
verið tekin í fóstur af Þorvarði
lækni Kjerulf á Ormarsstöðum
og seinni konu hans Guðríði Ól-
afsdóttur. Og er frú Guðríður
nokkrum árum eftir lát Þorvarð-
ar giftist séra Magnúsi í Valla-
nesi fylgdi Aðalbjörg henni
þangað tólf ára gömul og hafði
tekið þar út þroska sinn og
menntun í kvennaskóla og
mjólkurskóla í Reykjavík.
Þau Aðalbjörg og Guðmundur
feljdu hugi saman og giftust 9.
marz 1911. Bjuggu þau í Valla-
nesi til vors 1926 og svo eitt ár
á Víkingsstöðum. Þá brugðu þau
búskapnum og fluttust í Seyðis-
fjarðarkaupstað og þaðan eftir
20 ár í Búðareyrarkauptún.
Eftir að Guðmundur fluttist
til Seyðisfjarðar vann hann ein-
göngu að iðn sinni og annarri
smíði, sem hann lagði stund á.
Hann var bæði afkastamaður,
hagsýnn og góðvirkur til allra
starfa og vinna hans því mjög
eftirsótt. Þannig var hann feng-
inn til að vinna við stórbygging-
ar ýmsar á Fljótsdalshéraði, Hús-
mæðraskólann á Hallormsstað,
hið mikla (og sérstæða að
veggjagerð) íbúðarhús, sem
Gunnar skáld Gunnarsson byggði
á Skriðuklaustri, viðbótarbygg-
byggingu við Eiðaskóla o.m.fl.
Guðmundi fórst vel búskapur
sem annað, sem hann lagði stund
á. Við búskapinn kom honum vel
að haldi m. a. það sem hann
Minningarorð
hafði séð og numið af búskapar-
háttum „fóstra síns“, Þorbjarn-
ar á Steinum. Hann var frábær-
lega umhyggjusamur um allan
búfénað, en mestan áhuga hafði
hann á hestahaldi og tamningu
hesta. Var hann hverjum manni,
lagnari á að umgangast tryppi
og temja hross til reiðar, og átti
góð reiðhross, einnig allmörg ár
eftir að hann lét af búskap.
Guðmundur var frábærlega
hagur á hönd, bæði til járn-
smíða og trésmíða, þótt ekki
hefði hann lært sérstaklega til
þeirra iðngreina. — Fátt myndi
það, sem hann hefði ekki getað
laðað að vild í smiðju sinni. Var
leitað til hans, sérstaklega um
járnsmíði hvers konar, langt að.
Allra þörf og vanda vildi hann
leysa í því efni sem öðru, er til
hans var leitað, og sást þá tíðum
ekki fyrir um eigin þörf og hag.
Átti hann fyrir náungans þörf
oft langar vinnustundir umfram
aðra menn.
Guðmundur var greindur mað-
ur, skýr í hugsun og máli, ákveð-
inn og fastur í skoðunum, geð-
spakur og glaðvær, prúður í
framgöngu og grandvar til orðs
og æðis. Má um hann með sanni
segja, að hann vildi í engu vamm
sitt vita. í öllum kynnum var
hann hugþekkur.
Það lýsir vel skapgerð Guð-
mundar, hvað börn hændust að
honum hvar sem því varð við
komið. Ástæðan var bæði Ijúf-
lyndi hans og lagni í framkomu
við þau. Og svo komu þau til
hans með brotnu og biluðu gullin
sín. Það brást ekki að hann tæki
að sér að koma þeim í samt lag,
þegar tóm gafst tiL
Guðmundur var mikill maður
að vexti og afli og gervilegur í
ásýnd, afreksmaður til verka og
íþróttamaður á yngri árum, sem
fyrr er getið. Hraustur var hann
til heilsu fram til þess, er hann
fyrir um það bil ári kenndi þess
meins, sem dró hann til bana.
Guðmundur og Aðalbjörg eign
uðust sex börn, sem öll komust
til þroska, og öll voru fædd í
Vallanesi:
Magnús, búsettur á Reyðar-
firði, Guðríður, Ingibjörg, Þor-
varður, Stefán Ragnar og Þor-
björn, sem öll eru búsett í Rvík.
Lík Guðmundar verður borið
til moldar frá FossvogskapeHu í
dag. Fylgja honum til grafar
ekkja hans og börn þeirra öll,
venzlafólk, ættingjar og vinir.
Eftir lifir minning mæt.
H. St.
★
NOKKHR KVEÐJUORÐ
DAG verður til moldar borinn
vinurinn kæri, Guðmundur
Þorbjömsson, múrarameistari
frá Reyðarfirði.
Mér færari menn veit ég að
minnast þessa ágæta manns. En
minningamyndirnar eru svo
margar eftir 46 ára kynni. Þeg-
ar fundum okkar bar fyrst sam-
an, var ég munaðarlaus drengur,
en það varaði ekki lengi því að
hann varð mér bæði sem faðir
! og móðir og síðar meistari. Ég
mun láta nægja að bregða upp
aðeins einni mynd, sem mér er
þó sem helgur dómur. Vegna
bemskuyfirsjóna hlýddi ég á
umvandanir hans, og kvað svo að
orði: „að mér væri alveg sama“.
| En þessa setningu taldi hann það
‘ ljótasta, sem nokkur maður gæti
sagt. Mér varð þá litið á hann
og sá stór tár hrynja niður vanga
hans, af hryggð yfir mér. En
þessi tár urðu gimsteinar á lífs-
leið minni, sem ég hef reynt að
varðveita sem helga dóma, en
hvort ég var þeirra verður veit
ég ekki. En þeirra vegna hef ég
reynt. Mér voru gefin þau sem
veganesti af fórnfúsum kærleika,
sem hann var svo ríkur af.
Ég veit, vinur, að þér er eng-
inn greiði gerður með því að
skrifa lofgrein um þig látinn. En
minningarnar þyrpast að mér, en
af svo miklu er að taka. Um hvað
á ég að skrifa? Get ég gefið
nokkra heildarmynd? Ég get um
glæsilega þrekmennið, íþrótta-
manninn drengilega, smiðinn,
sem allt lék í höndunum á, málm-
ar jafnt sem tré, múr og steinn.
Ég get um afreksmanninn og
starfsmanninn, sem aldrei vissi
hvað klukkan var, en vann með-
an dagur var á lofti. Ég minnist
á hestamanninn, tamningasnill-
inginn og sálfræðinginn, sem las
úr yfirsvip og augum hvað innra
bjó með hverjum. Þetta og fleira
yrði mér ofviða í stuttri grein
og vantúlkað, hvað þá að lýsa
heimilisföðurnum kærleiksríka
og prúðmenninu.
Nú var til hans kallað. Kon-
ungur upphæða hefur kvatt hann
til sín.
Hann hefur lagt af sér hvers-
dagsklæði sín, og hjá þeim dvelj-
umst við enn um stund og njót-
um minninganna um góðan
dreng. Hann hefur lagt yfir sig
skykkju hreinleikans, bjarta og
skínandi af verkum sínum hér í
heimi. Við biðjum honum bless-
unar Drottins á ferðinni síðustu.
Ég bið svo góðan Guð að blessa
börn og ástvini hans ásamt eftir-
lifandi konu, sem stóð við hlið
hans til hinztu stundar jafn björt
og traust eins og fyrsta daginn,
sem þau gengu saiheinuð af Guði
út í lííið.
Friður Guðs blessi þig.
Guðni Þorsteinsson.
TIL FISKPOKKIJNAR
Hessian, Bindigarn eg Saumgarn
fyrirliggjandi.
Ólafur Gís/ason & Co. h.f.
Hafnarstræti 10—12 — Sími 81370 ■
MMMIiaiMMMIMIIMMIIIIMIMMIMMIIMMMMIIMia.lMJ
3 duglegar stúlkur
vantar til eldhússtarfa 1. október og eina stúlku,-
sem er vön að baka.
Heimavist skólanna á Laugarvatni.
Uppl. í síma 9, Laugarvatni.
I B U Ð
■
í 2—4 herbergja íbúð óskast 1. Qkt. Fyrirframgreiðsla ■
■ ■
! ef óskað er. Afnot af síma og önnur hlunnindi möguleg. :
■ ■
■ Aðeins tveir í heimili. Tilboð merkt: ,.íbúð 555 — 974“,
; leggist á afgr. Mbl. fyrir föstudagskvöld 16. sept.
Skriistofustúlka
óskast nú þegar. — Upplýsingar í skrifstofu vorri,
Hafnarstræti 5.
Olíuverzlun íslands h.f.
■
I Háseta vantar
m
strax á reknetabát frá Hafnarfirði.
■
■
Uppl. í síma 9165.
■«.»«*
Viðskiptafræðinemi
■
■ óskar eftir atvinnu hálfan daginn, frá 1. okt. n. k. Helzt
• skrifstofuvinnu. Bókhaldsþekking og vélritunarkunnátta
! fyrir hendi. — Tilb. merkt: „Námsmaður — 978“, sendist
■ afgr. Mbl. fyrir 20. þ. m.
I Skiifstofustúlka
■
Stúlka, helzt vön skrifstofustörfum, óskast. — Tilboð
; ér greini menntun og fyrri störf, sendist Mbl. fyrir
■
; fimmtudagskvöld, merkt: „Atvinna — 976“.
- w'srara'sc saaBnsBBiiíisss
»»*»** a»a a»» *■*■■* ****»■■»** ■*■■■■■
Aðalfundur
Tafl- og bridgeklúbbs Keykjavíkur, verður haldinn í
Breiðfirðingabúð, uppó, miðvikudaginn 21. september
n. k. — Fundurinn hefst kl. 9.
DAGSKRÁ: Venjuleg aðaifundarstörf.
Félagar fjölmennið.
STJÓBNIN
KEMISK HREINSUN
GUFUPRESSUN
ífámM égMM 4ilt
HAFNARSTRÆTI 5
LAUrÁSVEGI 19
- AIRWICk
Lykteyðandi og lofthreinsínndl
undraefni — Njóíið ferska loftsina
innan húss aUt ánð
AIRWICK
hefir staðist aH*. eftirlíkingcr.
AIRWICK
er ósk&ðlegt,
Aðalumboð;
(llafur Gíslason & Co. h.f.
Sími 81370.
■ RKJi .• * ■ ■