Morgunblaðið - 24.09.1955, Qupperneq 1
16 síður
42. árgangov
217. tbl. — Laugardagur 24. september 1955
PrentsmiSja Morgunbiaðsin*
NEW YORK, 23. sept.
IRÆÐU sinni á fundi allsherjarþings Sþ i dag gaf Molotov enn
ekki Iokasvar við Genfartillögu Eisenhowers um gagnkvæm
skipti á hernaðarlegum upplýsingum og loftmyndum af hernaðar-
mannvirkjum. Hinsvegar fuiiyrti Molotov, að Ráðstjómin væri
enn að íhuga tillögu Eisenhowers í einstökum atriðum, þar sem
tillagan væri í samræmi við sáttfúsan anda Genfarráðstefnunnar.
Molotov lætur ósvarað
Genfartillögu Eisenhowers
Rússar telja hvorki Petsamó
né Kyrjálaeiði finnskt land
Porkkala-samningurinn
★ ★ ★ *
Ráðstjórnin álítur tillögu Eis-
enhovvers bera vott um einlægan
vilja til að leysa afvopnunarmál-
in, en „við viljum gera okkur
fyllilega ijóst að hvaða gagni hún
kemur við að koma í framkvæmd
alþjóða afvopnunar og banni við
kjarnorkuvopnum“, sagði Molo-
tov.
f Molotov ræddi nokkuð afvopn-
unartillögu Ráðstjórnarinnar frá
10. maí í vor. Kvaðst hann álíta
þá tillögu vænlegasta til að ryðja
brautina fyrir eftirlitskerfi með
afvopnun og banni gegn kjarn-
orkuvopnum. Minnti Molotov á,
að í tillögu Rússa er gert ráð fyr-
ir, að komið sé á eftirlitsstöðvum
við endastöðvar járnbrauta og
þjóðvega, við flugvelli og hafnir
í þeim löndum, sem undirrita af-
vopnunar sáttmálann.
★ ★ ★
Einn liður í viðleitninni til að
draga úr viðsjám þjóða í milli,
er að öll ríki yfirgefi herstöðvar
sínar á erlendri grund, hélt Molo-
tov áfram. Rússar hafa nú yfir-
gefið herstöðvar sínar í Port
Arthur í Mansjúríu og munu
ílytja allt herlið sitt brott frá
Porkkala Udd fyrir 1. jan. 1956.
Hafa þeir þá yfirgefið allar sínar
herstöðvar á erlendri grund.
Af þessu er augljóst, að
Rússar telja nú orðið Kyrjála-
( eiði og Petsamóhérað rúss-
, neskt land, þó að þessi héruð
, tilheyri Finnlandi með réttu.
★ ★ ★
Sagði rússneski utanríkisráð-
herrann, að Eáðstjórnin væri fús
til að ræða og íhuga allar tillög-
ur, er fram kæmu, um stofnsetn-
ingu öryggiskerfis fyrir Evrópu,
en sagði jafnframt, að Genfar-
tillögur Rússa væru vænlegastar.
Frh. á bls. 12.
Burgess og Madeao
yfirgáfu England
á elleftu stundu
Lundúnum, 23. sept.
Reuter-NTB.
BREZKU njósnararnir Guy
Burgess og Donald MacLean
yfirgáfu land sitt á elleftu stundu,
er þeir hurfu þaðan vorið 1951.
í hvítri bók, sem brezka stjórnin
gaf út í dag um mál þetta í ein-
stökum atriðum, segir að brezka
rannsóknarlögreglan hafi þegar
í maí 1951 vitað, að njósnir í ut-
anríkisráðuneytinu ættu rætur
sínar að rekja til Burgess. Þeir
félagar höfðu þá þegar njósnað
fyrir Ráðstjórnarríkin um langt
skeið.
★ Þegar tveim árum áður
hafði rannsóknarlögreglunni orð-
ið ljóst, að njósnarar höfðu að-
setur í utanríkisráðuneytinu. —
Eftir langvinnar rannsóknir féll
grunurinn á Burgess, sem var
yfirmaður deildar þeirrar, er
fjallaði um bandarísk málefni.
ir Engar sannanir voru fyrir
hendi til að sanna sekt hans og
gripu yfirvöldin því til þess ráðs
að láta engin mikilvæg skjöl kom
ast í hans vörzlu.
★ Þáverandi utanríkisráð-
herra gaf heimild til að hann
yrði yfirheyrður, en af ýmsum
ástæðum var yfirheyrslu hans
frestað fram í miðjan júní — og
var Burgess þá floginn úr hreiðr-
inu. Mun hann hafa grunað, hvað
til stóð, m .a. af því að engin
mikilvæg skjöl voru fengin hon-
um í hendur. — Sennilega hefir
hann einnig verið aðvaraður.
V-Þýzha stjórnin snmþykhii
stjórnmálasamband við Rússa
Sendiherraskipti fara ekki fram, fyrr en
þýzkir stríðsfangar hafa verið látnir lausir
BONN, 23. sept. — Reuter-NTB
VESTUR-ÞÝZKA stjórnin hefir nú endanlega úrskurðað, að
ekkert standi í vegi fyrir því, að Vestur-Þjóðverjar taki upp
Stjórnmálasamband við Rússa. í dag samþykkti vestur-þýzka
sambandsþingið einróma að taka upp eðlilegt stjórnmálasamband
við Ráðstjórnarríkin, en líklegt er, að nokkrir mánuðir líði, áður
en löndin tvö skiptast formlega á sendiherrum.
Talsmaður vestur-þýzka utan-
fíkisráðuneytisins sagði í dag, að
umræður um sendiherraskipti
yrðu ekki hafin fyrr en Rússar
hefðu látið þýzka stríðsfanga í
Rússlandi lausa.
★ ★ ★
Sambandsþingið gaf út tvær
yfirlýsingar, er það gerði sam-
þykktina. Segir þar, að þingið
vænti þess, að Bulganin mar-
skálkur standi við munnlegt lof-
orð, er hann gaf dr. Adenauer
þess efnis, að þýzkir stríðsfang-
ar yrðu látnir lausir svo fljótt
sem unnt væri. Aðeins vestur-
þýzka stjómin geti haft orðið
fyrir hönd allra Þjóðverja, þar
sem austur-þýzka þingið sé ekki
kosið í frjálsum kosningum.
Kekkonen forsætisráðherra (situr til vinstri) bíður eftir að undirrita samninginn um afhending
Porkkala Udd í hendur Finna. Bulganin marskálkur (sitjandi til hægri) er að undirrita samninginn.
Hægra megin við Bulganin stendur Nikita Krúsjeff, aðalritari kommúnistaflokksins.
BONN — Þingflokkur Kristilegra
demókrata í vestur-þýzka sam-
bandsþinginu hefir farið þess á
leit við meðlimi sína, að þeir
neiti heimboðum, er kunni að
berast frá Moskvu. ‘
„Humaita“ — fallbyssubáturinn, sem Perón flúði um borð í. Bát-
urinn tilheyrir fljótaflota Paraguy og er 633 lestir að stærð.
Hinn nýi forseti Argentínu lofar
prentfrelsi og fundafrelsi
Gífurlegur mannfjöidi hyllti
Lonardi, er hann hélt innreið
sina i Buenos Aires
BUENOS AIRES, 23. sept. — Reuter-NTB
ID A G söfnuðust allir, sem vettlingi gátu valdið, saman á göt*
um og torgum Buenos Aires til að sjá uppreisnarherforingjann
Eduardo Lonardi halda innreið sína í höfuðborgina sem sigur*
vegari. Hann sór embættiseið sinn sem hinn nýi forseti Argentinu
í dag. Hann er 59 ára að aldri.
taki, er hann kom fram á svalip
forsetahallarinnar. Átti hann
erfitt með að fá hljóð, þar sem
gleðihróp hrifinna áheyrenda
yfirgnæfðu rödd hans.
Er hann í ræðu sinni notaði
orðalagið „fyrirrennari minn J
forsetahöllinni“. æpti mannfjöld*
inn í mótmælaskyni, og menn
vísuðu þumalfingrinum niður að
sið hinna fornu Rómverja. ,
★ ★ ★ *
Lofaði hinn nýi forseti því,
að prentfrelsi, fundafrelsi og
öðrum lýðræðislegum rétt*
indum skyldi þegar í staS
komið á. Hann lofaði þvi
einnig að reyna að „semja
frið“ við kaþólsku kirkjuna,
en hún hefir verið einn harð-
skeyttasti andstæðingur Per*
óns.
Talið er víst, að Perón sé enn
Frh. á bls. 12. ,
Kortið sýnir, hvernig uppreisn-
armenn í Argentínu skipulögðu
byltinguna. Uppreisnin hófst í
Cordoba, og var tilgangurinn sá
að draga liðstyrk fylgismanna
Peróns frá Buenos Aires.
Ræddu ekki
loftferða-
samninginn
FUNDUM norrænu samgöngu-
málanefndarinnar lauk í gær-
kvöldi. Magnús Jónsson gerði
grein fyrir afstöðu íslendinga til
loftferðasamnings Svía og íslend-
inga. Samkvæmt meðferð máls-
ins i Norðurlandaráði taldi nefnd
in sér þó ekki heimilt að taka
málið til umræðu nú, þar eð bíða
yrði árangurs af samningaumleit-
unum ríkisstjórna beggja landa.
Frekar verður sagt frá ályktun-
um í blaöinu á morgun.
Fólkið á götunum lét misjafn-
lega í ljósi gleði sína og fögnuð,
hló og grét, söng og kastaði
blómum fyrir vagn Lonardis. Er
hann steig út úr flugvélinni, sem
flutti hann frá Cordoba, var hon-
um fagnað með fallbyssuskotum.
❖ ❖ ❖
í Cordoba og grennd við hana
geisuðu hörðustu bardagarnir
milli uppreisnarmanna og fylg-
ismanna Peróns fyrir nokkrum
dögum.
Fréttamenn í Buenos Aires
segja, að aldrei hafi Perón —
jafnvel ekki á hátindi frægðar
sinnar — litið annan eins mann-
fjölda og safnazt hafði saman
fyrir framan forsetahöllina, eft-
ir að Lonardi hafði unnið em-
bættiseið sinn.
★ ★ ★
Manngrúinn braut niður allar
hindranir og hyllti Lonardi með
miklum fagnaðarlátum og lófa-