Morgunblaðið - 28.09.1955, Page 12

Morgunblaðið - 28.09.1955, Page 12
12 MORGUNBLABIB Miðvikudagur 28. sept. 1955 Sérfræðingoi í heildverzlon og vörugeymsia heuim íslenzkum verzluuurmönnum Á vegum Iðnaðarmálastofnunarínnar HINN 2. okt. n. k. eru væntanlegir til Reykjavikur á vegum Iðn- aðalmálastofnunar íslands fjórir sérfræðingar í heildverzlun og vörugeymslu. Sérfræðingar þessir starfa hjá Framleiðniráði Evrópu (European Productivity Agency) og hafa þeir á undanförnum tveim árum inna af hendi leiðbeiningarstörf víða um Evrópu við góðan orðstír. Sérfræðingarnir munu starfa hér á landi í tvær vikur. — GÓ®AR HEIMSÓKNIR Heimsókn sérfræðinganna er einn þáttur í aukinni hagnýtingu okkar Islendinga á þeirri þjón- ustu, sem Framleiðniráð lætur aðildarríkjum Efnahagsstofnun- ar Evrópu í té. Á þessu ári hefur verið lögð áherzla á að fá frá Framleiðniráði sérfræðinga verzlunarmálum. Hafa sex slíkir sérfræðingar dvalizt hér á landi. Þar af var einn sérfræðingur í sölu og dreifingu matvöru, en hinir í vefnaðarvöru, stykkja- vöru (búsáhöld, húsgögn o. þ. h.), auglýsingum, bókhaldi og al- mennri sölutækni. Allir hafa þessir sérfræðingar fengið hinar beztu móttökur hjá kaupsýslu- mönnum og öðrum þeim, sem hafa getað hagnýtt sér dvöl þeirra til að auka þekkingu sína og hæfni í dreigingu og sölu vara. ÝMSAR NÝJUNGAR Sérfræðingahópurinn í heild- verzlun og vörugeymslu, sem er væntanlegur í byrjun október, eins og áður er getið, er hinn síð- asti, sem koma mun til lands- ins á þessu ári á vegum IMSf. Með því að stuðla að heimsókn- um sérfræðinga í flestum grein- úm verzlunarinnar, hefir Iðnað- armálastofnunin og verzlunar- samtökin leitazt við að gefa kaup sýslumönnum og verzlunarfólki tækifæri til að kynna sér erlend- ar nýjungar og tækni, sem áður hafa verið lítt þekkt hér á landi, eins og t. d. sjálfsafgreiðslufyrir- komulag í verzlunum. NÁMSKEIÐ Meðan sérfræðingarnir dveljast hér munu þeir halda tvö nám- skeið. Hið fyrra verður um mat- vöruheildverzlun og verður hald- ið dagana 4., 5. og 6. október n. k. Hið síðara verður um heildverzl- un með aðrar vörur en matvæli og verður haldið dagana 10., II. og 12. október n. k. Verða fyrir- lestrarnir fluttir síðdegis og á kvöldin. Á báðum námskeiðun- um verða fluttir fyrirlestrar um vörugeymslur. Verða fyrirlestr- arnir þyddir á islenzku og munu þátttakendur fá eitt eintak af hverjum þeirra. Námskeiðin eru fyrst og fremst ætluð þeim, sem fást við heildverzlun og hafa með geymslu vara að gera, byggingu og skipulagningu vörugeymslu- húsa. Hver hinna fjögurra sérfræð- inga mun flytja þrjá fyrirlestra í sinni grein, og er þátttökugjald kr.'25,00 fyrir hvern fyrirlestra- flokk. — Þeir, sem hugsa sér, að taka þátt í námskeiðunum og teljast til framangreindra sam- taka, geta snúið sér beint til skrifstofa þeirra og tilkynnt þátt- töku sína og jafnframt fengið. nánari vitneskju um væntanlegtj starf sérfræðinganna hér á landi. Aðrir, sem áhuga kynnu að hafa fyrir þátttöku, geta snúið sér til skrifstofu IMSÍ. i Áríðandi er, að menn tilkynni þátttöku sína fyrir miðvikudags- kvöld 28. sept. HEIMSÓKNIR í VERZLANIR Um tilhögun að öðru leyti má geta þess, að sérfræðingarnir munu heimsækja heildverzlanir,; vörugeymsluhús og fyrirtæki, ’ sem óska eftir að ræða við þá um einhver ákveðin vandamál, og skal beiðnum um slíkar heim- sóknir vísað til ofangreindra samtaka. Sérfræðingahópurinn í heild- verzlun og vörugeymslu hyggst leggja megin áherzlu á að kynna þá tækni og þær nýjungar, sem bezt hafa reynzt í Bandaríkjun- um í heildverzlun og vöru- geymslu. Reynsla annarra þjóða hefur verið sú, að rétt hagnýting þeirrar tækni og aðferða, sem sérfræðingarnir hafa kennt bæði í fyrirlestrum og heimsóknum í heildverzlanir og vörugeymslu- hús, hefur haft í för með sér mikinn sparnað fyrir neytand- ann, smásalann og framleiðand- ann. Heildverzlanir og vörugeymsla eru að sjálfsögðu þættir, sem hafa mikla þýðingu fyrir vöru- dreifingarkerfið og er áríðandi, að þar ríki reksturshagkvæmni og að jafnan sé séð um, að vöru- straumurinn á markaðinn sé jafn og stöðugur. Málfundafélagið Óðinn Skrifstofa félagsins er opin á föstudagskvöldum frá kl. 8—10. Sími 7104. Félagsmenn, sem eiga ógreitt órgjaldið fyrir 1955, eru vinsamlega beðnir um að gera s'xil í skrifstofuna n.k. föstudagskvöld. ALMENNA BÓKAFÉLACIÐ: Afgreiðsla í Tjarnargötu 16. Sími 8-27-07. S : | Höfum aftur fengið PROTEX þéttiefnið *1 í 1/8 gal. 1 gal, og 5 gal. : ■ ■ Með PROTEX má stoppa ■ á augabragði allan leka, á : ■ steini, járni, timbri og pappa \ Tryggið hús yðar gegn ■ leka með PROTEX ■ MIALiMIiMG & j JARNVÖRLR ■ Sími 2876. Laugavegi 23. : ■ Mafseðill kvöldsins Lauksúpa Tartalettur, Tosca Lambakótilettur með grænmeti eða Uxasteik, Choron Avaxlahlaup m/l'jóma Kaffi Leikhúskjallarinn. VETRARGARÐURINN DANSLEIKUB f Vetrargarðinum í kvöld kL 9. ðljómsveit Baldurs Kristjánssonar Miðspantanir í *íma 6710 eftir kluxkan 8. V- G ■«WM Dansskóli Guðnýjar Pétursdóttur tekur til starfa 3. okt. n, k. Innritun nemenda og upplýs- ingar í síma 80509 í dag kl. 2—6. — Eingöngu kennt ballet. Ath.: Byrjendur yngri en > 5 ára ekki teknir. Tvöfaldar Poplinkápur teknar upp í dag. — Verð| frá kr. 658,00. NINON Bankastræti 7. Ráðskona Stúlka eða kona óskast á heimili í sveit. Má hafa með sér barn. Góð húsakynni, fullkomið rafmagn og önn- ur þægindi. Uppl. í síma 82277 eða Keflavík, sími 94. fihnð tiS söSu 80 ferm., nýleg íbúðarhæð í steinhúsi, til sölu. — Til mála kæmi að taka nýlegan bíl upp í. Mikil útborgun. Tilb. sendist afgr. Mbl. fyr- ir fimmtudagskvöld, merkt: „Vogar — 290 — 1260“. GÆFA FYLGIR trúlofunarhringunum frá Sig- urþór, Hafnarstræti. —- Sendir gegn póstkröfu. — Sendið ná- kvæmt mál. Ávm Quðjónsson hátaðsdómólöcjmadusL Málflutningsskrifstofa Garðastræti 17 Simt 2831 . Kaffi Nýbrennt og malað, í loft- þéttum sellophanumbúðum. Verzl. Halfa Þórarins Vesturg. 17, Hverfisg. 89, BEZT AÐ AUGLtSA 4 I MORGUNBLAÐIim Ríkisútvarpið Sinfóníuhljórpsveitin ■ Tónleikar í Þjóðleikhúsinu föstudaginn 30. september klukkan 8,30 síðdegis. Stjórnandi: Dr. Victor Urbancic. Einsöngvari: Kristinn Hallssson. Viðfangsefni eftir Urbancic, Wirén, Haydn, Hándel, Verdi, Mozart og Borodin. Aðgöngumiðasala í Þjóðleikhúsinu. 5 fuðningsmenn D-listans í Kópavogi D listinn heldur fund í barnaskólanum fimmtu- daginn 29. þ. m. klukkan 8,45 síðdegis. Forsætisráðherra Ólafur Thors mætir á fundinum. Sjálfstæðisfólk og aðrir stuðningsmenn D listans fjölmennið. Saltsildarflök Höfum fyrirliggjandi flakaða NORÐANSÍLD beinlausa og roðlausa á áttungum. — Einnig tóm kvartil og áttunga úr beiki undir kjöt og slátur. ÐlN H.F! Vesturgötu 20 — Sími 1067 og 81438 bjooi Okkur vantar unglinga til að hera blaðið víðsvegar um bæinn. Talið við skrifstofuna eftir kl. 10 f. K. JPfcmputMaftið »*■«■■ •■■■J.IIJUU .TfTimJ

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.