Morgunblaðið - 02.10.1955, Qupperneq 1
16 síður og Lesbók
42. árgangur 224. tbl. — Sunnudagur 2. október 1955 Prentsmiðja Morgunblaðsins
NÍNA SÆMUNDSSON, myndhöggvari, opnaði listsýningu sína í
Þjóðminjasafninu í gær. Er hér um að ræða sýnishorn af siðustu
verkum Nínu, en af skiljanlcgum ástæðum getur hún ekki sýnt
hér neitt af stærri verkum sínum, sem hafa gert hana fræga. —
Blaðið birtir nú mynd af einni af höggmyndum hennar á sýning-
unni, „Sebastian“. — Sýningin er fjölbreytt og verður þar vafa-
laust fjölmenni listvina næstu dagana.
Við opnun sýningarinnar í gær var margt manna, meðal annars
menntamálaráðherra. Matthías Þórðarson, fyrrv. þjóðminjavörður,
bauð gesti velkomna fyrir hönd listakonunnar, cn ávarpaði hana
síðan nokkrum orðum. (Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.)
Lögregluliðið
Listsýning Inu Sæmundsson
Sögulegur afhurður hjá S.Þ.
gekk mótstöðulaust
á land í Klakksvík
„Hitaveitugos“
Menn, sem áður sluddu Halvorsen
— víla nú óeirðir Klakksvíkinga.
SEINT í gærkveldi varð mik-
ið „hitaveitugos" á horni Þor-
finnsgötu og Snorrabrautar.
Hefir hitaveiturör sprungið
þar og vatnið gaus um 2 metra
í loft upp, en lækurinn rann
síðan niður götuna.
Skákmólið hefsl
í dag
SKÁKMÓT Taflfélags Reykja-
víkur með þátttöku stórmeistar-
ans Hermanns Pilnik hefst í dag
kl. 1,30.
í fyrstu umferð tefla saman:
Arinbjörn Guðmundsson og Ás-
mundur Ásgeirsson, Hermann
Pilnik og Jón Þorsteinsson, Guð-
mundur Pálmason og Jón Einars-
son, Baldur Möller og Þórir
Ólafsson og Guðmundur Ágústs-
son og Ingi R. Jóhannsson.
Keppt er í Þórskaffi, og fer
önnur umferðin þar fram annað
kvöld.
Yfirgaf
land sitt
ALGIER, 1. okt.: — Ben Arafa
fór flugleiðis frá Marokkó í morg
un og lét eftir völd sín í hendur
annars manns.
Coty Frakklandsforseti lýsti
yfir að soldáninn hefði sýnt mikla
víðsýni er hann yfirgaf land sitt.
Forsetinn sagði að franska stjórn
in teldi hann á engan hátt afsala
sér réttindum sínum þó hann yfir
gæfi land sitt. — Reuter-NTB.
® ® ----- C__ ®
Kópavogsbúar!
KJÓSIÐ D-LISTANN
® ® G>OLXð ®
Morgunblaðið sendi í gær skeyti til K. Vang ritstjóra Dag-
blaðsins l Færeyjum og bað hann gefa stutta lýsingu &
ástandi þar. Frásögn hans fylgir hér á eftir.
DANSKA freygátan „Hrólfur kraki“ kom árla morguns til
Klakksvíkur. Töluvert fleira fólk var á hafnarbakkanum en.
þegar um venjulegar skipakomur hefur verið að ræða, en samt
var ekki hægt að segja að um neina mótstöðu hafi verið að ræða,
þegar að danska lögregluliðið gekk á land undir stjórn Nielsens
lögreglustjóra í Klakksvík. Það var púað nokkuð á lögregluþjón-
ana, en það er í raun og veru eina mótstaðan. Sögusagnir frá
Klakksvík herma að lögreglumennirnir hafi notað kylfur, en sýslu-
maðurinn þar neitar þeim söguburði afdráttarlaust. Sýslumaður-
inn segir að enginn hafi enn verið handtekinn né yfirheyrður.
★ VAR EKKI MEÐ
Elkær Hansen umboðsmaður
dönsku stjórnarinnar fór ekki
með skipinu til Klakksvíkur.
Kampmann fjármálaráðherra sat
í dag á fundi með bæjarstjórn
Klakksvíkur sem harmar atburði
þá er urðu á þriðjudaginn, er
lýðurinn „strandsetti" nokkra
helztu embættismertn Eyjanna á
lögreglustöðinni í Klakksvík.
★ KAMPMANN ÁKVEÐINN
Kampmann segir að tilnefning
sjúkrahússtjórnarinnar á nýju
læknunum sé fullkomlega lögleg
og hann tekur það fram að það
breyti ekki málinu þó að sjúkra-
hússtjórnin hafi er hún var lokuð
inni á lögreglustöðinni nætur-
langt, tekið aftur samþykkt þá
er hún gerði með skipun þeirra.
Kampmann fer hörðum orðum
um þá atburði er urðu í Klakks-
vík á þriðjudaginn. En fjármála-
ráðherrann heldur til Þórshafnar
aftur í kvöld (laugardag).
★ BLÖÐIN SNÚAST
Það er nú komið i ljós að
sosialdemokratar sem áður
studdu Halvorsen fylgja honum
ekki að málum eftir atburði þá
I er urðu í Klakksvík á þriðjudag.
Talið er að orsökin sé sú að nú
sé danska stjórnin beinlínis á bak
við lögregluvald í málinu.
Málgagn Þjóðveldisflokksins
„14. september“ fullyrti að
Klakksvíkingar myndu berjast
við lögregluliðið danska — en það
brást með öllu.
Dimmalætting, og Dagblaðið,
sem eru málgögn landsstjórnar-
flokkanna — sambandsflokksins
og folkaflokksins, harma uppþot-
in á þriðjudaginn og fulltrúi
þriðja landsstjórnarflokksins í
Klakksvík — sjálfsstjórnarflokkn
um, segir að uppþotin á þriðju-
daginn hafi verið beint tilræði
við ákvörðunarrétt eyjaskeggja
sjálfra. Einmitt sami maður hefur
fylgt Halvorsen að málum.
★ PÓLITÍSKT MÁL
Þar sem leiðtogar Halvor-
senshreyfingarinnar virðast
neita með öllu að bera ábyrgð
á þeim óeirðum er urðu á
þriðjudaginn, er það almenn
skoðun að með betta mál verði
farið sem hreint pólitiskt mál
og að Iæknir sá sem sjúkra-
hússtjórnin tilnefndi á fundi
sínum á þriðjudaginn muni
koma til Klakksvíkur.
Víst er að um yfirheyrslur
verður að ræða, en hversu víð
tækar þær verða er ómögulegt
um að segja nú.
Frakkar ganga af fundi
NEW YORK, 1. okt. — frá Reuter.
FRANSKA sendinefndin á þingi S. Þ. gekk öll af fundi í dag, eftir
að Pinay hafði rætt í síma við Faure forsætisráðherra. Ástæð-
an til reiði Frakka er sú, að Allsherjarþingið samþykkti með 1
atkvæðis mun að taka Algiermálið á dagskrá eftir að dagskrár-
nefnd samtakanna hafði mælt gegn því að málið yrði upp tekið
á þingi samtakanna.
★ „EINSKIS VIRDI“
Áður en Frakkar gengu af
fundi, lýstu þeir yfir að Algier
væri óaðskiljanlegur hluti Frakk
lands og afskipti af málefnum
þess ríkis væri óeðlileg afskipti
af frönskum innanlandsmálum.
Sagði Pinay meðal annars, að
allar yfirlýsingar, sem S. Þ. gerðu
um Algier væru einskis virði.
Spaak, fulltrúi Belgíu kvaddi
$ér einnig hljóðs og sagði, að ef
S. Þ. vildu skipta sér af málefn-
um Algier, þá myndu Belgir
verða að endurskoða afttöðu sína
til aðildar að samtökum S. Þ.
Löndin, sem greiddU atkvæði
gegn Frökkum voru m. a.: Araba-
ríkin, Sovétríkin og Grikkland,
og vakti það m. a. mikla furðu,
að Krutehsjeff lýsti því yfir fyr-
ir nokkrum dögum, að hann teldi
Algier algert einkamál Frakka.
★ HEIM
Franska sendinefndin heldur
frá Paris í kvöld og fastamaður
Frakka hjá S. Þ. kemur heim rétt
á eftir. Ekki er sagt, hvort full-
trúi Frakka í afvopnunarnefnd-
inni mundi halda heim einnig.
WASHINGTON, 1. okt.: — Mc-
Millan sem ætlaði að fljúga til
Lundúna í dág frá New York,
þar sem hann hefur verið á þingi
S.Þ., hefur ákveðið að verða um
kyrrt vestra yfir helgina og ræða
við ráðamenn þar um aðkallandi
vandamál. — Reuter-NTB
Mikill meiri hluti á mófi
hléum í kvikmyndahúsunum
Úrslit atkvæðagreiðslunnar birl i gær.
ATKVÆ'tíl voru talin í gær í atkvæðagreiðslunni um hléin í
kvikmyndahúsum bæjarins. Úrslit atkvæðagreiðslunnar urðu
þau, að mikill meirihluti kvikmyndahúsgesta vildi afnema hléin.
Niðurstöðutölurnar urðu þær, að 14.688 vildu fella hléin niður en
10.229 vildu halda þeim. 542 atkvæði voru auð eða ógild.
Samkvæmt yfirlýsingu kvikmyndahúseigenda áður en atkvæða-
greiðslan fór fram verður nú að vænta þess, að hléin verði felld
niður. — Úrslit atkvæðagreiðslunnar í einstökum kvikmyndahús-
um urðu sem hér segir:
Hlé Ekki Auðir
hlé og
ógildir
Austurb.bíó 1548 3169 63
Gamla Bíó 2438 2343 45
Hafnarbíó 1357 2109 145
Nýja Bíó 1817 2845 170
Stjömubíó 1528 1053 33
Tjarnarbíó 861 2021 46
SÍÐUSTU FRÉTTIR
Samkvæmt viðtali er
fréttaritari Mbl. átti við
sýslumanninn í Klakksvík,
þá hafði lögreglan þar
stjórn allra mála í sínum
höndum. Sýslumaðurinn
viðurkennir þó núna að
lögreglan hafi barið fólk,
sem neitaði að færa sig úr
vegi svo að hún kæmist
leiðar sinnar. En hann full-
yrðir, að enginn hafi hlot-
ið nokkur þau sár sem telj-
andi séu sem slík.
K. Vang.
Bátur tekinn í land-
helgi við Eyfar
Tripolibíó 680 1148 40 í GÆRMORGUN var vélbáturinn
___________________ Skallagrímur VE-231 tekinn að
Alls 10229 14688 542 dragnótaveiðum skammt frá Vest
I mannaeyjum, langt innan við fisk
Mikill meirihluti bíógesta á veiðitakmörkin.
þeim tima, er atkvæðagreiðslan | Viðurkenndi skipstjórinn þeg-
stóð yfir, tók þátt í henni, en þó ar brot sitt. Var farið með bátinn
voru þeir fjölmargir, sem ekki til Eyja, þar sem dómur verður
greiddu atkvæði. 1 kveðinn upp i málinu.