Morgunblaðið - 12.10.1955, Blaðsíða 16
Veðorúflit í dag:
NA stinningskaldi. Skýjað.
Efíing
landgræðslusjóðs. — Sjá grein
á bls. 9. |
Sæfell hefur faslar áæll-
unarferðir til Vm.eyja
ifærra, gangbefra skip með farþegarými.
GUÐNI JÓHANNSSON útgerðarmaður hefur nú ákveðið að hefja
fastar áætlunarferðir með vélskipinu Sæfelli milli Vestmanna-
«yja og Reykjavíkur. Gerir hann þetta í tilraunaskyni til þess að
athuga, hvort reksturs svo stórs skips getur borið sig á þessari
leið. Um leið gæti tilraun þessi orðið góður undanfari að því að
Vestmannaeyingar kaupi farþegaskip til ferðanna.
Sæfell er á annað hundrað Áætlun Sæfells er þannig að
smálesta skip, en hingað til hafa það fer frá Reykjavík sunnudags-
ininni bátar verið notaðir, Skaft- og miðvikudagskvöld, en frá
fellingur, sem er 60 tonna skip Vestmannaeyjum mánudags- og
.eg Skógafoss, sem er 50 tonna. fimmtudagskvold. Afgreiðsla
Tekur Sæfell við af Skógafossi. skipsins í Reykjavík er hjá Lax-
Verið er að útbúa farþegaklefa fossafgreiðslunni en í _Vest-
i Sæfell og á það að hafa svefn-1 mannaeyjum hjá Gunnari Ólafs-
pláss fyrir 15 farþega. Skipið syni & Co. Skipstjóri er Sigþór
«r all ganghratt. Fer með um j Guðnason.
10 sjómílna hraða.
Bókmenntakynning á
verktim Þóris Bergssonar
ÁLMENNA bókafélagið efnir í kvöld til fyrstu bókakynningar
sinnar. Hefst hún kl. 9 í hátíðasal Háskólans. Tilefni þessarar
bókmenntakynningar er sjötugs afmæli Þóris Bergssonar rithöf-
undar. Verður flutt erindi um hann og ágætir listamenn íesa upp
úr verkum hans. Ennfremur leikur Gísli Magnússon einleik á píanó.
Þórir Bergsson er einn list-
ícngasti smásagnahöfundur lands
ins og sögur hans um margt
sérstæðar og skemmtilegar. Hon-
um lætur flestum betur að túlka
stór og minnisverð örlög í spegli
einfaldra atvika, og samúð hans
með olnbogabörnum hamingj-
unnar er næm og sterk.
Má því vænta þess, að margir
'vilji nota þetta tækifæri til að
Tifja upp kynni sín af verkum
hans og láta um leið í ljósi þakk-
læti sitt við höfundinn.
Bókmenntakynningin hefst
Bieð ávarpi Bjarna Benediktsson-
•ar menntamálaráðherra, en síð-
an flytur Guðm. G. Hagalín rit-
höfundur erindi um Þóri Bergs-
son og verk hans. Bókmennta-
4 mæniveikililfelli
u!an Reykjavíkur
KEFLAVÍK, 11. okt. — Sam-
kvæmt upplýsingum frá héraðs-
lækni eru 3 mænuveiki tilfelli hér
í Keflavík. Er eitt þeirra væg
lömun. Þá er eitt tilfelli utan
Keflavíkur. Er það í Garðinum.
kynningunni lýkur með því að
Gunnar Gunnarsson skáld flyt-
ur nokkur ávarpsorð.
Kristmann Guðmundsson verð-
ur kynnir á samkomunni. Að-
gangur er öllum frjáls og er
ókeypis.
Vísilaian hækkar
um 7 sfig
KAUPLAGSNEFND hefur reikn-
að út vísitölu framfærslukostn-
aðar í Reykjavík hinn 1. október
s.l. og reyndist hún vera 172 stig.
— Hefir vísitalan hækkað um 7
stig frá síðasta mánuði.
Breli, en ekki
háhymingur
KEFLAVÍK — f fyrrinótt varð
vélbáturinn ísleifur III. fyrir
nokkru veiðarfæratjóni. Orsökin
að þessu sinni var ekki háhyrn-
ingur heldur hitt, að brezkur
togari keyrði yfir netin. Skáru
þeir netin, er þau drógust upp
og sigldu síðan ferðar sinnar.
—FréParitari.
Mtaría Júlía stöhkvir
illhvelum
í FYRRINÓTT stökkti varð-
skipið María Júlía á flótta há-
hyrningavöðunni á Faxaflóa
og sást hún síðast hverfa til
hafs.
Atvik eru þau, að síldveiði-
flotinn er nú í Miðnessjó og
hefur varðskipið María Júlía
verið honum til aðstoðar. Þar
eru einnig tveir hátar gerðir
út af Fiskifélaginu vopnaðir
rifflum gegn háhyrningahætt-
unni.
í fyrrinótt urðu yztu bát-
arnir varir við að háhyrning-
urinn var að koma á miðin.
Var Maríu Júlíu og hinum
skipunum gert aðvart og
lögðu þau nú til hinnar hat-
á ilótta
römmustu sjóorustu við ill-
hveli þessi. Var feikna skot-
hríð í myrkrinu og eldglær-
ingar um allt. Þegar allmarg-
ir háhyrningar voru særðir
eða fallnir lét öll háhyrninga-
vaðan undan síga. Fóru þeir
á flótta og hurfu út í hafs-
auga.
Telja Suðurnesjamenn, að
varðskipsmenn á Maríu Júlíu
hafi gert mikið gagn með
þessu og ber þeim ekki saman
við Vestfirðinga, sem hafa
haft í flimtingum að varð-
skipsmennirnir væru á smokk
fiskveiðum og í berjatínslu.
Þessa nótt varð lítið veiðar-
færatjón hjá bátunum.
Séra Malfhías
Eggcrlsson látinn
SÉRA Matthías Eggertsson fyrr-
um prestur í Grímsey andaðist að
heimili sínu hér í bænum aðfara-
nótt hins 9. þ.m. rúmlega níræður
að aldri. Hann var fæddur að
Melanesi á Rauðasandi í Barða- j
strandasýslu. Stúdentsprófí lauk i
hann árið 1883 og guðfræðiprófi
árið 1888. Gerðist hann þá prest- j
ur að Helgastöðum í Reykjadal. j
Árið 1895 var hann kosinn prest- j
ur í Grímsey. Þjónaði hann því 1
prestakalH í 42 ár.
Séra Matthías starfaði töluvert !
að fræðiiðkunum, m. a. samdi
hann mikinn ættartölubálk.
Hann verður jarðsettur frá
Dómkirkjunni hér í Reykjavík I
næstkomandi mánudag.
Sigurjófl í Raílholfi
tekur sæ!i á Aiþingi
EINS og kunnugt er, er Ingólfur
Jónsson viðskiptamálaráðherra,
fyrri þingmaður Rangæinga, nú
staddur á ferðalagi í Bandaríkj-
unum. Hefir varamaður hans,
Sigurjón Sigurðsson bóndi í Raft-
holti, því verið kvaddur til þing-
setu. Tók hann sæti á Alþingi í
gær. Framsögumaður kjörbréfa-
nefndar var Lárus Jóhannesson,
og var kosningin tekin gild með
samhljóða atkvæðum.
Góður reknetjaafli
KEFLAVÍK, 11. okt. — Afli rek-
netjabáta var góður í dag, eða
frá 70 og upp í 130 tunnur. Hæst
var Vonin, með 130 tunnur.
Nokkrir bátar eru nú að hætta
veiðum og er það mikið vegna
manneklu. —Ingvar.
i
I gærmorgun fór „Fegurðardrottning íslands 1955“, ungfrú Arna
Hjörleifsdóttir, með millilandaflugvél Flugfélags íslands, Gullfaxa,
til Lundúna til að taka þar þátt í fegurðarsamkeppni um íitilinn
„Miss World'. Úrslit í þessari keppni verða kunn 20. okt. í för
með ungfrúnni verður Njáll Símonarson, fulltrúi F. í. (t. h.), en
eins og áður hefir verið skýrt frá, hefir Arna verið ráðin sem
flugfreyja hjá F. í. Til vinstri á myndinni er Hörður Sigurjónsson,
fiugstjóri.
Danskt hjúkrunarfólk aðstoðer
vegna mænusóttarfaraldursins
Læknir, hjúkrunarkona og
nuddkona komu i gær
MÆNUSÓTTIN breiðist yfirleitt hægt úr. Frá því að hennar
varð vart, 23. f. m., hafa tilkynningar borizt um 32 nokkurn
veginn örugg tilfelli, 15 sjúklingar hafa lamazt, einstaka alvarlega,
en langflestir lítið. Einn hefir látizt.
-Þegar í upphafi veikinnar
gerðu heilbrigðisyfirvöldin ráð-
stafanir til að fá aðstoð erlendis
frá, ef veikin breiddist út, en
samvinna hefur tekizt með Norð-
urlöndum um gagnkvæma aðstoð,
þegar mænusóttarfaraldur kemur
upp i einhverju landanna. Hafa
styrktarfélög fatlaðra og lamaðra
í þessum löndum haft forgöngu
um þessa aðstoð. Um sjðustu
helgi þótti rétt að beiðast þessar-
ar aðstoðar frá Danmörku, en
Danir hafa öðlast mikla og dýr-
keypta reynslu í mænusóttarfar-
aldrinum mikla í Kaupamnna-
höfn árið 1952—53.
í gærkvöldi komu hingað til
bæjarins læknir, dr. Sund
Kristensen, hjúkrunarkona, frk.
Eva Andersen, og nuddkona, frk.
Ella Andersson, sem munu dvelj
ast hér um hríð á kostnað Styrkt-
arfélags lamaðra og fatlaðra.
Þá kom einnig hingað í gær-
kvöldi próf., dr. med. H. C. A.
Lassen, sem er yfirlæknir far-
sóttasjúkrahússins í Kaup-
mannahöfn, en hann varð
þekktur um allan heim fyrir
nýja meðferð, er hann notaði
við mænusóttarsjúklinga í áð-
urnefndum faraldri í Höfn.
Prófessor Lassen mun dvelj-
ast hér í 2—3 daga. >
Fari svo að nýir sjúklingar
bætist við og þurfi á sjúkrahús-
vist að halda, verða þeir lagðir
inn í Hjúkrunarspítalann í Heilsu
verndarstöðinni, sem nú tekur til
starfa. Yfirlæknir hjúkrunar-
spítalans er, eins og kunnugt er,
dr. Óskar Þ. Þórðarson.
Þetta glæsilega verzlunarhús hefur verið reist í Bolungarvík. —
í blaðinu í dag er grein á bls. 7, um hið nýopnaða verzlunarhús.
--------------------- 1
Peningakasslnn :
í Keflavík fundinn !
í DAG fannst peningakassinn,
sem stolið var úr Vatnsnesbar
fyrir nokkrum dögum. Fannst
hann á fiskstæði skammt frá
barnum. v'ar nann þar falinn
undir kaðlahrúgu. Menn sem
áttu kaðlana fundu hann, þá
er þcir ætluðu að breiða úr
köðlunum. (
Kassinn var með öllu ó-
skcmmdur og var allt í honum,
sem þar átti að vera, en það
var 25 þús. kr. í reiðu fé. Er
undarlegt, að þjófarnir skyldu
velja þennan felustað fyrir
kassann, aðeins nokkra metra
frá einni fjölförnustu götu
bæjarins. Virðist sem þeir
ættu að snúa sér að einhverri
annarri atvinnugrein, fyrst
þeir ekki kunna betur með
peninga að fara en þetta.
— Fréttaritari. j