Morgunblaðið - 15.10.1955, Side 1
16 síður
42. árgangUE
235. tbl. — Laugardagur 15. október 1955
Prentsmiðja Morgunblaðsin*
Mynd þessi var tekin á 1500. fundi Bæjarráðs Reykjavíkur í gær.
Þar sjást talið frá vinstri: Guðmundur Vigfússon, Bárður Daníels-
son, frú Auður Auðuns, Bolli Xlioroddsen bæjarverkfræðingur,
Gunnar Xhoroddsen borgarstjóri, Guðm. H. Guðmundsson, Geir
Hallgrímsson, Xómas Jónsson borgarritari og Páll Líndal fulltrúi
borgarstjóra. (Ljósm. Vigfús Sigurgeirsson).
Bæjarráð hélt 1500
fund sinn í gærdag
Þnr hofa öll meiriháttar vandomól
ört vaKsmii höfnðborgor verið rædd
• í GÆR hélt Bæjarráð Reykjavikur fund og var hann I
1500. fundurinn, sem það hefur haldið frá upphafi. —
Samþykkt var á þessum fundi, eftir tillögu listaverkanefnd-
ar að láta gera afsteypu af höggmyndunum „Útilegumað-
urinn“ eftir próf. Einar Jónsson og „Piltur og stúlka“ eftir
Ásmund Sveinsson.
• Á fundinum í gær gat Gunnar Thoroddsen horgarstjóri
um ýmis atriði úr sögu og störfum bæjarráðs, en að öðru
leyti voru ýmis mál tekin til meðferðar á fundinum á venju-
legan hátt.
• Fyrsta kosning í Bæjarráð Reykjavíkur fór fram á bæj-
arstjórnarfundi 4. ágúst 1932 og voru þessir menn kjörnir:
• Guðmundur Ásbjörnsson, Jakoh Möller, Pétur Hall-
dórsson, Hermann Jónasson og Stefán Jóh. Stefánsson. —
Fyrsti formaður bæjarráðs var Knud Zimsen borgarstjóri.
• Nú eiga þessir bæjarfulltrúar sæti í bæjarráðinu:
• Auður Auðuns, Geir Hallgrímsson, Guðmundur H. Guð-
mundsson, Bárður Baníelsson og Guðmundur Vigfússon. —
Formaður þess er Gunnar
Vopnosala
Hússa til um-
ræðu é Genfar-
fnndinnm?
WASHÍNGTON, 13. okt,— Banda
ííkin munu spyrjast fyrir um
Vopnasölu kommúnisku ríkjanna
til landanna fyrir botni Miðjarð-
árhafs. Verður fyrirspurnum þess
um komið á framfæri á utanríkis
ráðherrafundinum, sem hefst í
Genf 25. þ. m.
Sagt er. að ákvörðun hafi verið
tekið um þetta mál, er Dulles
ræddi við Eisenhower á her-
sjúkrahúsinu í Denver s.l. þriðju-
dag. Bretar munu haft. lagt bless-
un sína yfir, að þessi mál yrðu
rædd við fulltrúa Sovétríkjanna.
Bandáríska utanríkisráðuneyt-
ið hefir til þessa verið fylgjandi
því, að útkljá þessi mál í við-
ræðum við Arabalöndin, en
Eisenhower mun vera þeirrar
skoðunar, að þessi mál heyri und-
ir utanríkisráðherrafundinn.
roddsen borgarstjori.
Saar —
þrœtuepli
BONN, 14. okt.: — Þrír stjórn-
málaflokkar í Vestur-Þýzkalandi
hafa hvatt stjórnina til að gera j
ráðstafanir, er verði til þess að
áuðvelda það, að Saarhéraðið
verði aftur innlimað í Þýzka-
land. Eru það jafnaðarmanna-
flokkurinn, sem eru í stjórnarand
stöðu, frjálsir demókratar, sem
eru í samsteypustjórn Adenauers,
og flóttamannaflokkurinn, sem er
óháður. í frumvarpi, er þessir
þrír flokkar lögð fram í þinginu,
lögð þeir til, að lækkaðir yrðu 1
tollar á vörum frá Saar-hérað-
inu, bættar yrðu samgöngur milli
héraðsins og V-Þýzkalands og
Saarbúum auðveldað að heim-
sækja Þýzkaland. Sunnudaginn
23. okt. fer fram þjóðaratkvæða-
greiðsla í Saar um Saarsáttmál-
ann, sem gerir ráð fyrir því, að
Saar verði sjálfstætt „fríríki" þar
til friðarsamningar hafa verið
gerðir við Þýzkaland.
Einar Olafsson á leið til
hafnar í Norðnr-Irlandi
Lettinn! að brezku herflugvélinni hætl
á hádegi í gær, Talið vonlausl, að nokkur
af áhöfn flugvélarinnar hafi komiit lífs af.
LONDON, 14. okt. — Einkaskeyti frá Reuter til Mbl.
VÉLSKIPIÐ Einar Ólafsson er nú á leið til hafnar í London-
derry í Norður-írlandi. Skipið fer um 6 sjómílur á klukku- '
stund og gengur fyrir eigin vélarafli. Er ekki búizt við, að það
nái höfn fyrr en árdegis á morgun (laugardag).
í fylgd með Einari Ólafssyni er brezkt beitiskip frá Belfast,
„Wizard“. Slóst beitiskipið aftur í för með vélskipinu, er það
hafði gefið frá sér að leita frekar að áhöfn brezku herflugvélar-
innar, sem fórst í gærkvöld er hún var að vísa skipum á slóðir
Einars Ólafssonar.
Framfíð prinsess-
unnar láfin iiggja
í þagnargiidi
LUNDÚNUM, 14. okt.: — Margrét
prinsessa og Peter Townsend,
flugkapteinn, hittust í dag á
landsetri skammt frá Windsor-
kastalanum í grennd við London.
Skömmu áður hafði verið send
tilkynning frá Buckinghamhöll-
inni, og sagt þar, að á næstunni
vrði ekkert kunngert um fram-
tíð Margrétar prinsessu. Voru
blöðin jafnframt hvött til þess að
láta einkalíf prinsessunnar af-
skiptalaust. Er þetta í fyrsta
skipti í tvö ár, sem nokkuð hefir
heyrzt frá Buckinghamhöll um
samband Margrétar og Towns-
ends flugkapteins.
— Reuter-NTB
r
Asfralía og Kúba
hlufu sæfi
í öryggisráðinu
NEW YORK, 14. okt.: — í dag fór
fram atkvæðagreiðsla í allsherj-
arþingi SÞ um sex lausu sætin
í öryggisráðinu. Hlutu Ástralía
og Kúba sitt sætið hvor. Hinsveg-
ar hlaut ekkert þriðja ríki nógu
mörg atkvæði — tvo þriðju hluta
atkvæðamagnsins. Viðureignin
um þriðja sætið stóð milli Filipps
eyja, sem Bandaríkin studdu,
Póllands og Júgóslavíu. Var mál-
inu frestað til þriðjudags. í ör-
yggisráðinu sitja fimm fastir
fulltrúar frá Bandaríkjunum,
Bretlandi, Ráðstj órnarríkj unum,
Frakklandi og kínversku þjóð-
ernissinnast j órninni.
DENVER, 14. okt.: — Eisenhower
forseti er 61 árs í dag. Heldur
hann afmælisdaginn hátíðlegan í
hersjúkrahúsinu í Denver og hef-
ir honum borizt mikill fjöldi
heillaskeyta víðsvegar að. Líðan
Bandaríkjaforseta fer stöðugt
batnandi.
Níu manna áhöfn var á
herflugvélinni, sem var frá
herstöð brezka flotans í Bally-
kelly í Norður-írlandi. Var
hennar leitað af fjölmörgum
skipum og flugvélum á þess-
um slóðum í nótt og í morg-
un, en leitinni var hætt
skömmu eftir hádegi, þar sem
vonlaust var talið ,að nokkur
af áhöfninni hefði komizt lífs
af. —
★ ★ ★
Þrjú lík fundust og voru þau
flutt um borð í „Wizard“ úr
kanadiska beitiskipinu „Pretori-
an“. Nokkurt brak úr flugvél-
inni fannst, og er það einnig um
borð í „Wizard".
Talsverður leki kom upp í vél-
arrúmi Einars Ólafssonar í gær,
er hann var staddur í óveðri um
200 mílur norðvestur af írlandi.
í Reutersskeytinu segir, að
Einar Ólafsson sé ekki lengur í
bráðri hættu. „Wizard“ fylgir
vélskipinu fast eftir, og mun
brezka beitiskipið „Loch Rut-
hvan“ leysa „Wizard“ af og
fylgja Einari Ólafssyni síðasta
spölinn til hafnar. Er síðast
fréttist átti Einar Ólafsson enn
eftir 200 km til hafnar.
★ ★ ★
Kanadisku beitiskipin þrjú, er
komu vélskipinu til hjálpar hafa
nú haldið áfram til Azoreyja.
Eins og áður hefir verið skýrt
frá er Einar Ólafsson 300 lesta
flutningaskip, og var á leið til
Spánar með saltfiskfarm á veg-
um Sölusambands ísl. fiskfram-
leiðenda.
Faure gerir Algier-
málin að fráfarar-
atriði
PARÍS, 14. okt.: — í dag lauk
þriggja daga umræðum um
Algiermálin í franska þinginu.
Hefir Faure forsætisráðherra nú
gert samþykkt stefnu stjórnarinn
ar í Algier að fráfararatriði. At-
kvæðagreiðsla fer fram um mál-
in n.k. þriðjudag. ,
TEL AVIV, 14. okt: — Ben
Gurion, sem útnefndur hefir ver-
ið forsætisráðherra ísraels, er
veikur. Hafa læknar skipað hon-
um að taka sér hvíld frá störfum
í vikutíma. Ben Gurion er 69 ára
að aldri. Hann ætlaði að leggja
skipan ráðuneytis síns undir sam-
þykki þingsins n.k. mánudag, en
því hefir nú verið frestað.
Norska hvalveiðisambandið ber
Onassis þungum sökum
Sagt er, að „Olympic Challenger“ ha£i stund-
að ólöglegar hvalveiðar um margra ára
skeið. — Verðmæti aflans nemur um 130
millj. íslenzkra króna.
SAMKVÆMT upplýsingum, sem
Norska hvalveiðisambandið
hefir aflað sér og munu vera
nokkurn veginn áreiðanlegar, hef
ir útgerðarmaðurinn Aristoteles
Onassis gerzt sekur um að
láta hvalveiðimóðurskip sitt,
Aristoteles Onassis — 3,1 millj.
sterlingspunda í aðra hönd.
„Olympic Challenger", stunda ó-
löglegar hvalveiðar. Álitið er, að
verðmæti hins ólöglega afla nemi
sem svarar um 130 milljónum ísl.
króna. Hvalveiðisambandið hefir
sent norska utanríkisráðuneytinu
þessar upplýsingar, og hefir utan-
ríkisráðuneytið gert stjórn Pan-
ama grein fyrir málinu og einnig
haft samband við ritara Alþjóða
hvalveiðinefndarinnar.
★ ★ ★
„Olympic Challenger" siglir
undir fána Panama, sem hefir
staðfest samþykktir alþjóða hval
ve.iðiþingsins, og mun þar af leið-
andi krefjast þess, að „Olympic
Challenger" brjóti ekki þessar
samþykktir.
Lcngi hefir gengið orðróm-
ur um, að hvalveiðimóðurskip
þetta stundaði ólöglegar hval-
veiðar í stórum stíl, og nú má
heita, að Norska hvalveiðisam
bandið hafi öruggar sannanir
fyrir því. Upplýsingar þess eru
mjög athyglisverðar.
400—500 manna áhöfn er á
„Olympic Challenger" — svo að
segja eingöngu Þjóðverjar. Flest-
ar skýtturnar eru Norðmenn eða
menn af norskum ættum.
Þær veiðiskýrslur, sem eftir
litsmenn í Panama hafa sent
Alþjóða hvalveiðinefndinni
hafa að því er virðist verið í
lagi, en þær upplýsingar, sem
Norska hvalveiðisambandið
hefir orðið sér úti um, sýna,
Frh. á bls. 2.