Morgunblaðið - 19.10.1955, Qupperneq 1
16 síður
42. árgangur
238. tbl. — Miðvikudagur 19. október 1955
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Ef dylgjur kommúnista um verðlags
okur væru réttar hví gegna kaup-
félög þá ekki skyldu sinnar
Bjöm Ólalsson hreknr stoð-
hæfingor stjórnorondstæðinga
um nð grnndvöllnr irjnlsrar
verzlnnnr sé ekki fyrir hendi
FRUMKVÖÐLAR hins óhappasæla verkfalls s.l. vor,
kommúnistar og fylgifiskar þeirra, láta nú eins og þeir
komi af fjöllum, þegar verðhækkanir fylgja í spor óhappa-
verkanna. Þykjast þeir ekki hafa haft hugmynd um að í
kjölfarið myndi koma verðbólga. Þá hafa menn veitt því
athygli, að kommúnistar eru nú að reyna að koma sökinni
af sér og kveður nú stöðugt við þann tón, að hækkanir á
vöruverði og þjónustu hafi verið meiri en kauphækkanir.
Þegar þeir héldu þessu enn fram á Alþingi í gær, þá varp-
aði Björn Ólafsson fram spurningu, sem kommúnistar og
hinir óliappamennirnir hafa ekki svarað enn:
— Ef verðhækkanir og vöruálagning er meiri en
eðlilegt er, hvers vegna selja kaupfélögin vörur sínar
þá ekki ódýrar. Þannig er t. d. með KRON í Reykja-
vík, sem kommúnistar segja að sé til fyrir fólkið.
Þessi samvinnuverzlun nýtur stórkostlegra skattfríð-
inda fram yfir kaupmennina. Samt selur hún vörur
sínar ekki ódýrara, það er frekar að þær séu jafnvel
dýrari en hjá kaupmönnum.
Á þessari ósvöruðu spurningu hljóta að stranda og verða
að engu órökstuddar dylgjur kommúnista um mikinn milli-
liðagróða.
VERÐLAGSEFTIRLIT
Á AÐ VERA ALLRA
MEINA BÓT
TJmræður þessar á þingi
spruttu af því að Gylfi Þ. Gísla-
SQn og fleiri Alþýðuflokksmenn
báru nýlega fram frumvarp um
að koma aftur á algeru verðlags-
eftirliti. Flutti Gylfi framsögu-
ræðu fyrir frumvarpinu í gær.
Talaði hann sig upp í allmikinn
hita og var svo komið í lok ræðu
hans, að hann virtist álíta verð-
lagseftirlit bót á flestum meinum
fjárhagsmálanna. Hann taldi að
grundvöllur væri ekki fyrir
frjálsri verzlun, þar sem innflutn
ingur væri ekki frjáls nema að
litlu leyti. Sagði hann að frelsi
í verzluninni væri nú aðeins frelsi
kaupmanna til að leggja eins og
þéim sjálfum þóknaðist á vör-
una. Síðan ræddi hann um þróun
verðlagsmálanna eftir verkfallið
Ságði hann að verðhækkanirnar
hefðu verið meiri en kauphækk-
anirnar og reyndi á ýmsan hátt
að kasta af sér og Alþýðuflokkn-
um ábyrgðinni á hinu ógæfusam-
lega verkfalli.
;Einar Olgeirsson fulltrúi komm
únista tók að mestu í sama
streng, að öðru leyti var ræða
hans mest um vinstri samvinnu.
★ ★ ★
l»á kvaddi Björn Ólafs-
son, þingmaður Reykvík-
inga, sér hljóðs og kvaðst
hann harma það, að ræðu-
mennirnir tveir á undan
hefðu á ýmsan hátt farið
með rangt mál, þegar þeir
voru að reyna að koma sök-
inni af sér með því að tala
um verðlagsokur.
KAUPFÉLÖG OG KAUPMENN
Því að hvernig geta þeir þá
svarað spurningu um verzlunar-
kjör hjá kaupfélögunum. Hvar
eru kaupfélögin nú til að halda í
Frh. á bls. 12.
íál
sir
FRIEDLAND, 18. okt. — f dag
hlutu frelsi 599 þýzkir stríðs-
fangar, sem síðan styrjöldinni
lauk hafa verið í rússneskum
þrælabúðum. Kom þessi fanga-
hópur til flóttamannabæjarins
Friedland.
Fjórum sinnum
MUNSAN, Kóreu, 18. okt. —
Stjórn stöðva Sam. þjóðanna í
Kóreu ákærði kommúnista í dag
fyrir að hafa fjórum sinnum af
yfirlögðu ráði brotið hlutleysi
kóranska lýðveldisins. Var þess
á leit farið, að hinum seku flug-
mönnum yrði refsað.
Við þurfum
vopn
JERUSALEM, 18. okt. — Moshe
Sharett forsætis- og utanríkis-
ráðherra ísraels, lét þau orð falla
í dag, áð ísraelsmenn hefðu þörf
fyrir mikið magn af ódýrúm, en
góðum þungum vopnum. Og við
erum staðráðnir í því, að fá þau
hvaðan sem við getum.
Yfirlýsing þessi kom frá for-
sætisráðherranum er hann var
málshefjandi við umræðu um
utanríkismál í þinginu.
Hann sagði einnig að ísraels-
menn vildu gera varnarbanda-
lagssamning við Vesturveldin —
helzt Bandaríkin, en sá samn-
ingur gæti ekki komið í stað
vopnakaupanna.
Sharett sagði að Rússar
stæðu að baki vopnasölu
Tékka til Egypta. Sú vopna-
sala ógnar tilveru ísraels.
—Reuter.
Sfórsigur Faures
Fékk traust 308 þingmanna
en 254 voru á móti honum
París 18. okt. — Frá Reuter-NTB.
SAMSTEYPUSTJÓRN Edgars Faures hlaut í kvöld velþegna
traustsyfirlýsingu franska þingsins að því er snertir stefnu
stjórnarinnar í Algiermálunum. 308 þingmenn lýstu stuðningi við
stjórnina, en 254 bera ekki traust til hennar. 61 þingmaður neytti
ekki atkvæðisréttar síns, sumir vegna fjarvistar.
«★
I næstu viku
BONN, 18. okt. — Heiisa Aden-
auers forsætisráðherra, er enn
ekki góð. Lungnabólgan batnar
hægt og sagði talsmaður stjórn-
arinnar í dag, að ekki mætti von-
ast eftir forsætisráðherranum til
skyldustarfa sinna fyrr en í
næstu viku. —Reuter.
Margrét prinsessa —
. fimm daga í röð.
Fimm daga í röð
hafa þau sézt saman
Péfur og Margrét
prinsessa
Lundúnum 18. okt. — frá Reuter—NTB.
ÞAÐ varð uppi fótur og fit í Lundúnaborg í dag, þegar vegfar-
endur við Clarence House, heimili Margrétar prinsessu, sáu
hinn fertuga flugforingja Peter Townsend aka að húsinu og smeygja
sér inn til fundar við prinsessuna. Þúsundir manna ræddu um það,
hvort það væri nú líklega bara ekki rétt að Margrét og Pétur
myndu hugsa til trúlofunar.
FAURE
TALAÐI SÍÐASTUR
Til atkvæðagreiðslunnar kom
eftir þriggja daga umræður. Síð-
astur talaði Faure og krafðist
hann trausts þingsins.
kr
★ I 5 DAGA
Þegar Pétur ók að Clarence
House, þá var móðir Margrétar
þar stödd. Ekki löngu eftir komu
hans yfirgaf hún húsið í fylgd
með fylgdarkonu. Hún var samt
ekki lengi í burtu og kom þangað
aftur, áður en Pétur fór þaðan.
Pétur Townsend og Margrét
prinsessa hafa nú sézt saman
á hverjum degi, siðan prins-
essan kom til Lundúna frá
Skotlandi fyrir 5 dögum.
* ENGIN TILKYNNING
Samt er ekki talið líklegt
að væntanleg sé nein opinber til-
kynning um mál þeirra í bráð.
Elisabet drottning kom í dag til
Lundúna frá sumarhöll konungs-
fjölskyldunnar í Skotlandi.
* Á ÆÐRI STÖÐUM
Ríkisstjórnin sat á fundi í
dag, en Eden hreyfði ekki máli
þeirra Margrétar og Péturs. Hins
vegar bar málið á góma í per-
sónulegum samræðum ráðherr-
anna. Orðrómur hermir að neðri
deild þingsins muni innan
skamms fá til meðferðar laga-
breytingu, sem gerir Margréti
kleift að giftast Pétri, en þingið
kemur ekki saman fyrr en í
næstu viku.
★ f BLÖÐUNUM
Brezkt blöð hafa mörg orðið
orðmörg um samveru Péturs og
prinsessu og sum orðið nokkuð
orðhvöt. Sérstök nefnd brezka
blaðamannasambandsins sem hef j
ur það starfssvið að dæma um j
háttvísi blaðanna, samþykkti íi
dag yfirlýsingu um, að „nokkur j
blöð hefðu hagað sér ósæmilega'
í umræðunum um þetta mál og
hefðu þau með því sett blett á
heiður brezkra blaða.“
Kanarnir
kaupa
NEW YORK, 17. okt. _ f „W.U j he™r" hinúm"'birizt
Street Journal segir nylega að
mjög hafi það farið í vöxt að
bandarískir þegnar kaupi hluta-
bréf í fyrirtækjum í Evrópu.
Fjármálaritið segir, að aldrei
hafi sala þéssara bréfa verið jafn
mikil og nú. Á síðasta ári keyptu
Bandaríkjamenn hluti í evrópsk-
um firmum fyrir um 100 milljónir
dala og á fyrri helmingi yfir-
standandi árs keyptu þeir
evórpsk hlutabréf fyrir 55 millj. ANKARA, 17. okt. — Menders,
Blaðið segir þessa auknu sölu forsætisráðherra Tyrklands, var
fyrst og fremst eiga rætur sínar í dag með yfirgnæfandi meiri-
að rekja til batnandi hags hluta kjörinn forseti lýðræðis-
Evrópuríkja. — Brezk, hollenzk sinnaflokksins. Af 1500 atkvæð-
og þýzk bréf seljast bezt. um hlaut hann rúmlega 1200.
Fréttaritari Reuters skrif-
ar, að úrslit atkvæðagreiðsl-
unnar hafi verið stórsigur
fyrir Faure. í lokaræðu sinni
dró Faure upp mynd af ástand
inu á þá leið, að erlendis frá
væri ekki einungis litið á
þetta sem atkvæðagreiðslu um
traustsyfirlýsingu. — Erlendis
bollalögðu menn um það
hvort Frakkar gætu staðið
saman á alvörustundum því
framundan væri mikilsverð
ráðstefna í Genf og kosningar
í Saar sem þýðingarmiklar
væru fyrir Frakkland og gæti
það haft hinar alvarlegustu
afleiðingar ef landið væri
stjórnarlaust.
Eisenhower
í sfól
DENVER, 18. okt. — Líðan Eisen-
howers fer nú dagbatnandi eftir
hjartaáfallið sem hann varð fyrir
fyrir 3 vikum. Hann er nú farinn
að sitja í stól og æ lengur með
hverjum degi er líður.
Ákveðið er að forsetinn taki nú
smám saman meiri þátt í stjórn-
arstörfum. Ákveðið er að hann
sitji ráðstefnu með öðstu mönn-
um hers landsins og síðar mun
hann ræða við Dulles.
Meðan forsetinn hefur legið
70 þúsund
bréf og kort og 3000 símskeyti.
Hann hefur og fengið fjölda gjafa
hvaðanæfa að úr heiminum. Með
öllum þessum bréfum og gjöfum
hafa fylgt góðar óskir um skjótan
bata og langt líf.
Heirihluii
Erl. her í Danmörku
Kaupmannahöfn 18. okt. frá fréttaritara Mbl.
I^KSTRABLADET“ segir. í dag frá því, að á síðasta
ráðherrafundi í Atlantshafsráðinu, en fundurinn
var haldinn í síðustu viku, hafi verið rætt um undir-
búning að staðsetningu mikils erlends herliðs í Dan-
mörku.
Starfandi forsætisráðherra, Christiansen, vill hvorki
staðfesta ummæli blaðsins né bera orðróminn til baka.
Vegna þeirrar afstöðu ráðherrans, telur blaðið senni-
legt að ummælin verði innan skamms staðfest sem
sönn. — Páll.