Morgunblaðið - 21.10.1955, Blaðsíða 1
16 síður
4J:, árgangur
240. tbl. — Föstudagur 21. október 1955
Prentsmiðja Morgunblaðsin*
Rœða Bjarna Benediktssonar á Varðar-fundi:
Ofurvald kommúnista í verkalýðs-
félögunum er alvarlegasta meinsemdin
Kcmmún^star sftefira að því að
brjúta nlður löglega stjörmirhætti
Milliliða-blekkingar
vinstrimanna hrakfar
lið fyrir lið
Bjarni Benediktcson, menntamálaráðherra.
Stntus aúo*
r
l
L_
— verði sáttmálan-
um liafnað
París, 20. okt.
FRANSKA stjórnin mun ekki
breyta afstöðu sinni til nam-
einíngar Þýzkalands, þó að þjóð-
aratkvæðagreiðslan í Saar leiði
tjl þess, að fransk-þýzka Saar-
sáttmálanum verði hafnað, sagði
franski íorsætisráðherrann Kdgar
Faure í dag. Samningaumræður
verða ekki hafnar að nýju milli
Þýzkalands og Frakklands. Verði
Saar-sáttmálanum hafnað þýðir
það aðeins „Status quo“ í Saar,
sagði forsætisráðherrann.
Lýsti forsætisráðherrann einnig
ýfir því, að Frakkar myndu ekki
á næstunni hafa nein sambönd
við allsherjarþing S. Þ. Eins og
menn munu minnast, gengu
frönsku fulltrúarnir af fundi
allsherjarþingsins, er ákveðið var
að ræða Algier-málin þar.
- Ræddi Faure einnig fyriihug-
aðan utanríkisráðherrafund fjór-
Veldanna, sem hefst í Genf í
næstu viku. Þar munu Vestur-
veldin ræða vopnasölu kommún-
ístaríkjanna til Egyptalands, og
gera nauðsynlegar ráðstafar.ir til
að koma í veg fyrir, að friðnum
verði stofnað í hættu, sagði
Faure. —Reuter-NTB.
Hauskúpa Hitlers
FRIEDLAND, 20. okt. — Karl
Schneider, fyrrverandi majór í
SS-sveitum Hitlers, var meðal
stríðsfanga þeirra, er komu til
Friedland í dag. Sagði hann svo
frá, að Rússar hefðu grafið upp
lík Hitlers í byrjun maímánaðar
1945 og haft hauskúpuna á brott
með sér til rannsókna í Moskvu.
Sagðist Schneider sjálfur hafa
tekið benzínið af bifreið foringj-
ans og hefði átt að nota það við
líkbrennslu þeirra Hitlers og Evu
Braun. —Reuter-NTB.
Vandi fylgir
vegsemd
hverri
Vill prinsessan eiga
flugkapteininn ?
Lundúnum, 20. okt.
MJÖG líklegt þykir, að þing-
menn neðri deildar brezka
þingsins muni, er þingið kemur
saman n.k. þriðjudag, biðja
stjórnina að gera fulla grein fyrir
hinu rómantíska sambandi Mar-
grétar prinsessu og Townsends
flugkapteins, enda þótt raunveru
lega sé bannað að bera fram per-
sónulegar spurningar um kon-
ungsfjölskylduna. Verður spurn-
ingin sennilega orðuð þannig,
hvort íorsætisráðherrann ætli
sér að breyta lögunum frá árinu
1722 um giftingar meðlima kon-
ungsf j ölskyldunnar.
- ★ ★ ★
Þau lög mæla svo á, að
prinsessan verður að tilkynna
stjórninni með árs fyrirvara um
fyrirhugaða giftingu sina — ætii
hún að giftast án samþykkis
drottningarinnar. Margir stjórn-
málamenn eru því hlynntir, að
lögunum verði breytt þannig, að
Margrét geti gift sig án þess að
taka tillit til þessa ákvæðis.
Brezku blöðin eru nú líka
orðin hávær í kröfum sínum um
að vita, hverjar séu framtíðar-
áætlanir prinsessunnar.
Daily Telegraph hefir til þessa
látið málið lítið til sín taka, en
ritar í dag grein undir fyrirsögn-
inni, „Skaðleg þögn“, og segir
Frh. á bls. 12.
„Venezúela“ hlutskörp-
ust í keppninni um titilinn
„Miss World 1955“
XJM miðnætti í gærkvöldi bár-
ust fréttir af úrslitunum í
fegurðarsamkeppninni um tit-
ilinn „Miss World 1955“, sem
háð hefur verið í Lundúnum
undanfarna daga.
• Hlutskörpust varð ungfrú Sus
ana Djuim frá Venezúela. —
Hún er 19 ára að aldri og
hlýtur í verðlaun auk titilsins
500 sterlingspund í reiðu fé
og bifreið, sem metin er á 1000
sterlingspund.
• Önnur varð Margrét Anne
Haywood frá Bandaríkjunum,
og er hún tvítug. Þriðja var
.lulia Coumoundourou frá
Grikklandi, 18 ára að aldri.
Önnur verðlaun voru 100 ster-
lingspund og þriðju verðlaun
75 sterlingspund.
# Fegurðardrottningar frá 21
landi tóku þátt í fegurðar-
samkeppninni. Sex þær hlut-
skörpustu fá allar einhver
verðlaun, en í gærkvöldi bár-
ust ekki fregnir um nema
þrjár þær fyrstu.
• Eins og áður hefur verið skýrt
frá, tók ísland í ár í fyrsta
skipti þátt í keppninni um
þennan titil, og fór fegurðar-
drottning íslands 1955, ung-
frú Arna Hjörleifsdóttir, utan
til að taka þátt í keppninni.
Hefur því verið fylgzt með
keppninni af miklum áhuga
hér heima.
PENINGAMALIN I OLAGI
FYRIR nokkrum dögum hitti ég
gamlan vin minn úti á landi,
héraðshöfðingja, sem mikil af-
skifti hefur haft af alm. málum
og í þeim oft verið annarrar skoð-
unar en ég, en ég hefi ætíð metið
mjög mikils. Þessi aldni heiðurs-
maður spurði mig tíðinda og
sagði, að við í ríkisstjórninni
hefðum nú fram úr miklum
vanda að ráða.
„En“, bætti hann við, ,,það get-
ur verið, að það sé vegna þess, að
ég sé orðinn of gamall og kunni
17% með Saarsátl-
málanum, 12% á
móti, 39% éákveðnir
Saarbriicken, 20. okt.
SAARBÚAR reyna nú eftir
föngum að átta sig á, hvaða
afstöðu þeir eiga að taka til Saar-
sáttmálans — en það kann að
reynast þeim erfitt, því að áróðr-
inum rignir yfir þá í ræðu og riti,
svo að varla fara sögur af öðru
eins í kosningunum nokkurs stað-
ar fyrr og síðar. Saarbúar eru
600 þús. að tölu, og fer þjóðar-
atkvæðagreiðslan um sáttmálann
frám n.k. sunnudag.
Prófkosningar fóru fram í Saar
í s.l. viku, og kom þá í ljós, að
17% ætla að greiða atkvæði með
sáttmálanum, 32% ætla að greiða
atkvæði á móti honum, 39%
vildu ekkert upplýsa um afstöðu
sína og 12% hyggjast ekki greiða
atkvæði. Ellefu stjórnmálaflokk-
ar láta til sín taka í kosninga-
áróðrinum, sex þeirra eru með
sáttmálanum en fimm á móti —
þýzku flokkarnir, en þeir hafa
reynt eftir föngum að gera Jó-
hannes Hoffmann forsætisráð-
herra hlægilegan. Hann er ein-
dreginn fylgismaður þess, að
Saar verði sett undir stjórn Ev-
rópulandanna. — Reuter-NTB.
PARÍS, 20. okt. — Hægri og
miðflokkarnir í franska þinginu
reka nú mikinn áróður fyrir nýj-
um þingkosningum — og vilja,
að þær fari fram sem fyrst. Vilja
sumir, að kosningarnar fari fram
4. des. n.k. eða í aprílmánuði
næsta ár. Stjórnin mun ræða mál
þetta á ráðuneytisfundi á morg-
un. Segir í Reutersfregn, að fyrr-
nefndir flokkar vilji láta kosn-
ingarnar fara fram sem fyrst til
að Mendes-France gefist ekki
tími til að fullgera nýju stefnu-
skrána sem hann hefur á prjón-
unum.
ekki að hugsa, að ég segi: Látið
þið ekki vandann vaxa ykkur um
of í augum. Aldrei hefur landið
verið betra að lifa í en nú. Fyrst
nú höfum við lært að fara með
það og er það vissulega mikill
munur frá því sem áður var. Eins
er um landhelgina og meðferð-
ina á henni. Um alla tæknina og
aðbúnað fólksins þurfum við ekki
að tala.
Eða hvað heldur þú um unga
fólkið? Sumir segja, að það sé að
fara í hundana. Það er ekkert
annað en hið sama og alltaf hef-
ur verið sagt. Mér finnst það allt
í senn vera stærra, þroskaðra og
betur menntað en þegar ég var
ungur. Mannkostirnir eru sjálf-
sagt misjafnir eins og þá“.
„Þegar ég hugsa um allt þetta“,
sagði hinn margreyndi' forystu-
maður „finnst mér rangt að segja,
að efnahagslífið, jafnvel allt þjóð
lífið sé sjúkt. Það eru peninga-
málin, sem úr lagi eru.
DÝRTÍÐIN HÆTTULEG
MEINSEMD
Það er svipað því og öll líf-
færin og bolurinn væri heill en
í einum fingrinum væri slæmur
gröftur. Slíkt er óþægilegt og get-
ur orðið hættulegt, ef það er
ekki læknað í tíma, og það kann
að vera sárt að lækna það, því
að stinga þarf á kílinu. En lækn-
ing er möguleg þótt ekki verði
hún án erfiðleika.“
Þessi var skoðun hins lífs-
reynda, athugula manns og skal
ég játa, að ég kunni ekki skil á
rökum gegn skoðun hans. Enda er
ég honum í megin atriðum sam-
mála, þótt mér dyljist ekki sá
voði, sem ólagið í peningamál-
unum, dýrtíðin, færir yfir þjóð-
félagið.
Oneitanlega er dýrtíðin mein-
semd, sem getur orðið hættuleg,
ef ekki er að gert, og hefur nú
þegar valdið alvarlegum trufl-
unum í þjóðlífinu. Um allar mein-
semdir er svo, að frumskilyrði til
lækningar þeim er að gera sér
grein fyrir eðli þeirra og orsök-
um.
MARGA FÝSIR Á ÞANN
„BLÓÐVÖLL"
Ekki vantar, að ýmsar skýring-
ar séu settar fram á dýrtíðinni.
Hmir svokölluðu „vinstri menn“,
sem annars er ekki sérlega hent
að vera sammála, mæla t. d. ein-
um rómi á þá leið, að millilið-
irnir og óhæfilegur gróði þeirm
sé ofsök þessa vanda. Læknisráð
ið sé því að slátra milliliðunum
og dylst ekki, að ýmsa þeirra fýs-
ir á þann blóðvöll og hyggjast
ekki fara vegtyllulausir þaðan.
Framh. á bls. 7