Morgunblaðið - 15.11.1955, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 15.11.1955, Blaðsíða 16
Yeðurúltit í dag: Sunnan gola eða kaldi — lítils- háttar rigning. Leyndardémsfullur Þjöðverji. Sjá grein á blaðsíðu 9. Horfur a að vísiföltsbréfin gangi fil þurrðar næsfu daga 8aia nýju verðbréfanna fór vel af stað j GÆRMORGUN þegar bankar bæjarins opnuðu hófst sala hinna | nýju bankavaxtabréfa veðdeildar Landsbanka íslands. Eftir- spurn eftir bréfum var þegar árdegis mikíl og var saia ör allan daginn. Sérstaklega var sala mikil í vísitölubréfunum, en einnig seld- ist allmikið af hinum 7% íbúðar- lánabréi'um. ÉTI Á LANDI LÍKA Landsbankinn skýrði Mbl. frá þessu í gærkvöldi og lét þess og getið, að sala bankavaxtabréf- anna hefði einnig verið ör úti á iandi. Eftir daginn í gær, er útlit fyrir að það magn vísitölubréfa, sem fyrir liggur að sinni muni -ganga til þurrðar á örfáum dög- um. «RÉFIN MEÐ GÓÐUM KJÖRUM Eins og kunnugt er af fregnum sunnudagsblaðanna, eru hin nýju bankavaxtabréf með mjög góð- um kjörum. Báðir flokkar þeirra eru undanþegnir framtalsskyldu og skattfrjálsir. Upphæð vísitölu- bréfanna er bundin vísitölu fram [ færslukostnaðar, en íbúðarlána- . bréfin með óvenju háum vöxt- um. Héraðslæknir skip- aður al Hvoisvelli HEILBRIGÐISMÁLARÁÐ- HERRA skipaði í gær Henrik Linnet læknir í Bolungarvík til þess að gegna héraðslæknisstörf- um á Hvolsvelli í Rangárvalla- sýslu frá næstu áramótum að telja. Tveir umsækjendur voru um starfið. líosning íslenzkra full- trúa í IMorðurlandarátfið Þrír ernir á einum hrúfsskrokki ÞÚFUM, mánudag: — Margir ætla að örninni fari fækkandi svo að leitt geti til tort'mingar með öllu á þessum tignarlega fugli. — En ekki er hætt við slíku að sinni. Innarlega í ísafjarðardjúpi fórst kind í haust, stórhrútur, frá Gerfidal. — Þegar hann fannst sátu 3 ernir á honum og gerðu sér gott af skrokk hans, og þótt- ust hafa fundið gott æti. Venjulega verpa ein arnarhjón á hverju ári í svokölluðum Arn- arstapa, i.inan við botn ísafjarð- ar. Á fleiri stöðum hér við Djúp munu ernir eiga sér hreiður. — P. P. IGÆR fór fram í báðum deildum Alþingis kosning fulltrúa úr hópi þingmanna í Norðurlandaráð. Gildir kosning þessi þar til ný kosning fer fram á næsta reglulega Alþingi. u í Neðri deild skyldi kjósa þrjá aðalmenn. Komu fram tveir listar. Annar með þess- um nöfnum: Sigurður Bjarna- son, Ásgeir Bjarnason og Emil Jónsson. Hinn með Gils Guð- mundssyni. Fyrri listinn fékk 22 atkv. og alla kosna. Seinni listinn fékk fimm atkv. og náði Gils ekki kosningu. Varamenn í Neðri deild voru kjörnir án atkvæða- greiðslu: Magnús Jónsson, Halldór Ásgrímsson og Gylfi Þ. Gíslason. Gcðnr afii trillubála AKRANESI, 14. nóv. — Hóðan reru fimm trillubátar á laugar- daginn og fengu þeir frá 700— 1000 kg. á bát. í seinustu róðrunum hefur meira slæðst inn af stútungi á línuna. Nær undarlega lítið hef- ur orðið vart við lúðu seinni hluta sumars og í haust. Sjómenn segja að lúða og koli leiti til djúpsins á haustin og komi aftur með vor- inu. Reknetabátarnir fóru allir á veiðar í dag. — Oddur. STYKKISHOLMI, 12. nóvember. — Stöðugt er nú unnið við Rifs- í efri deild skyldi kjósa tvo höfn og miðar verkinu vel áfram. menn og voru þeir kjörnir án Hefur dýpkunarskipið Grettir atkVæðagreiðslu Gísli Jónsson unnið þar stöðugt frá byrjun og og Bernharð Stefánsson. — undanfarið hefur m.b. Hafdís að- Sömuleiði : varamennirnir stoðað hann. Er búizt við að Lárus Jóhannesson og Karl höfnin verði orðin vel nothæf í Kristjánsson. vetur. — Árni. fí%rr jCfrtmnnariift kn«tnr nú J.ÓÓ kr. . t M ; 0906 X 1(~ áH X '1-C HLUTI ýH*r bvo þáfttakan t* *nSn W nar 64i't 4, L ú 2 2 34 1 2 3 4 5 6 7 s X[*T? <l*|i '!*!> TfíTT <"I*"i'2 <!*Í2 <1*12 TRfT / / i... í Xxi.. t m: \f\ vg-k" ff /, 'f L , \AÍ ■é ■ L Z íLí h ... n :•>**$ —jL §!:: ..4...;., Kona hlýtur 7667kr. fyrir 12 rétta í Cefraununum Unnu Keflvíkinga í brisffe HAFNARFIRÐI. — sunnudaginn kepptu Hafnfirðingar í bridge við Keflvíkinga og unnu á 3 borðum, hinir síðarnefndu á 1 borði og jafntefli varð á einu. Þá er nýlokið tvímennings- keppni bridgefélagsins, og urðu Árni og Kári efstir með 255 >/2 stig, Páll og Guðmundur 249, Reynir og Kristján 247 V2. Björn og Einar 240 >2, Albert og Ólafur 233V2, Bjarni og Fálmi 222V2. — G. E. UM siðustu helgi tókst húsmóð- ur í Reykjavík að gizka rétt á alla 12 leikina á getraunaseðl- inum og var vinningur' hennar 7.667.00 kr. Er það hæsti vinn- ingur, sem íslenzkar getráunir hafa greitt út til þessa, en þetta er í fyrsta sinn á þessu ári, sem fram kemur „tólfari". Til þessa hafa komið fyrir 7 sinnum tólf- arar, og þrisvar hinnum hefur það verið kona, sem átt hefur seðilinn. Þessi síðasti seðill kom frá umboðinu í Fjólu á Vestur- götu 29. Getraunirnar eru ekki anhað en happdrætti, og hefur það marg sannazt, að þeir, sem fylgjast bezt með úrslitum standa sízt betur að vígi en þeir, sem nota eldspýtur eða snældur til þess að ákveða merkin. Þátttakan er afar ein- föld, og eru ókeypis leiðarvísar fáanlegir hjá öllum umboðsmönn úm, og einnig vikulegir og fastir seðlar. Vinningar skiptust þannig: 1. vinningur: 6033 kr. fyrir 12 rétta (1), T vinningur: 172 kr. fvrir 11 rétta (6), 3. vinningur: 43 kr. fyrir 10 rétta (24). Vegna þess að seðillinn var með kerfi, koma einnig fram 11 réttir á seðlinum, og var hann eini seðillinn með 11 réttum, alla í 6 röðum, en einnig með 10 rétta í 14 röðum (38 raða kerfi). Árbær — Ljósm. Mbl. Ól. K. M. Árbœ verður að bjarga ESSUM gamla sveitabæ er er lítill sómi sýndur. Þó er þetta eini íslenzki bærinn sem stendur í nágrenni höfuðborgar- innar. Þetta er Árbær, sem í eina tíð var einn helzti áningastaður bæjarmanna er þeir brugðu sér úr bænum. En svo hélt vélamenningin inn- reið sína og hún náði stöðugt meiri og meiri tökum, og svo fór að lökum, að hlutverki Árbæjar sem ámingastaðar var lokið. Áratugum saman hafa þúsund- ir manna á sólbjörtum sumardög- um, þeytzt þarna fram hjá. Menn horfa aðeins heim að Árbæ úr fjarlægð, fæstir munu gera sér grein fyrir því að þar er nú allt í hinni sárgrætilegustu niður- lægingu. — Það er eins og bæjar- húsin hangi uppi af gömlum vana, því að þar hefur engu ver- ið haldið við. í fyrravetur lögðu skemmdarvargar leið sína þang- að; brutu upp hurðir, mölvuðu glugga o. fl. Þá var slegið fyrir gluggana gömlu bárujárni og það látið duga. Veturinn leið og sumarið líka og kominn er aftur vetur, en engin rúða í stað þeirra sem brotnuðu, sett í. Þekjan yfir bæj- argöngunum, húsinu lengst til hægri, er fallin og framhliðin virðist geta sópast í burtu í næsta sunnanstormi. Árbær hefur verið traust- byggður bær, með innréttingum eins og þær gerðust í gömlu bæj- unum. ■ Bjarga verður Árbæ frá eyði- leggingu. Skjótlega þarf að bregða við. Hætt er við, að í blöð- unum yrði sú spurning borin fram, ef þessi gamli bær myndi eyðileggjast í sviptivindi ein- hverja nóttina: Hví var Árbær látinn fara svona? — Því hreyfir Mbl. þessu máli nú, ef verða mætti til þess að Árbæ yrði ein- hver sómi sýndur — og það strax! Málverkssýning i Kjarvals framlengd um vlku ÁKVEÐIÐ hefur verið að fram- ler.gja málverkasýningu Kjar- vals í Listasafni ríkisins vegna mikillar aðsóknar. Verður sýn- ingin opin þessa viku og lýkur kl. 10 sunnudagskvöldið 20. nóv- ember. í gær um miðjan dag voru 3200 gestir búnir að heim- sækja sýninguna, en alls höfðu þá komið 18 þúsundir. Aðgangur er ókeypis og er sýningin opin kl. 1—10 alla daga. Hún hefur nú staðið yfir í mánuð. Fiskiþingi lauk á suniiudag Þingið aigreiddi alis 44 mál FISKIÞINGI lauk í gær og hefur staðið alls 15 daga. Þingið af- greiddi alls 44 mál. Kosnir voru til að starfa í fræðslumálum ásamt fiskimála- stjóra, Ólafur B. Björnsson og Hjálmar R. Bárðarson. Mál þau, er fiskiþingið af- greiddi í gær, voru þessi: Maðuriiin svaf inni í skálanom RJÚPNASKYTTAN, sem óttast var um á laugardagskvöldið, kom fram um nóttina, er leitarflokkur skáta vakti upp í skíðaskálanum Þrymheimur. Svaf þá maðurinn þar, ásamt nokkrum skátum er voru sér þar til hvíldar og liress- ingar um helgina! — Taldi mað- urinn sig aldrei hafa verið tynd- an. Allt væri þetta á misskiln- ingi byggt. En þó vel færi nú, og reyndar í tvö önnur skipti, sem leitaö hef- ur verið til Slysavarnaíélagsins nú í haust og vetur, vegna týndra rjúpnaveiðimanna, þó er nauð- synlegt fyrir menn að skipuleggja svo ferðir sínar er þeir fara til veiða, að svona misskilningur geti ekki átt sér stað, sagði Jón Oddgeir Jónsson, fulltrúi, í stuttu samtali við Mbl. í gær. Afkoma sjávarútvegsins, land- helgismál, rannsóknarstofnun sjávarútvegsins, lög Fiskifélags- ins, og þurrafúi í skipum. Fundarstjóri, Ólafur B. Björns- son, þakkaði fulltrúum vel unnin störf og ánægjulegt samstarf. —■ Fiskimálastjóri sleit þinginu og árnaði fulltrúum góðrar heim- komu og góða samvinnu. r 1 Oku dnikknir 'k'k'h UM helgina voru sex menn kærðir fyrir ölvun við akstur hér i bænum, fimm bíl. stjórar og einn á bifhjóii. 'kk'k Undanfarið hefur götu- Iögreglan hert mjög á umferð- arefíiriitinu á götum bæjarins og við hann og voru lögreglu- menn víða á ferli í bílum um helgina, svo að segja má, að götulogreglunni hafi orðið vel ágengt í baráttunni gegn ölv- uðum bilstjórum. Einn hinna ákærðu gerði tilraun til þess að komast undan á bíl sínum. en tókst ekki. krkk Götulögreglan mun halda áfram, eftir því sem yf- irmönnum hennar þykir á- stæða til, hvort heldur er á virkum dögum eða um lielgar. að kveðja aukið Iögreglulið til starfa í baráttunni gega drukknum bílstjórum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.