Morgunblaðið - 18.11.1955, Page 1
16 síður
4Í árgMigwf
264. tbl. — Föstudagur 18. nóvember 1955
Prentnaitla Mergunblaðsmn
Útgetðin á kröfu á heilbrígium
stnrísgrundvelli
Úi ræðu Óiuis Thors iorsætis-
róðherru ú uðuliundi L.Í.Ú.
sys a
Miklubraut
SÍÐDEGIS í gær varð enn eitt
dauðaslys á g-ötum bæjarins.
Laust eftir klukkan 4 varð
öldruð kona, Guðrún Sigríð-
ur Pétursdóttir, Bólstaðahlíð
13, fyrir strætisvagni á Miklu-
braut á móts við Stakkahlíð.
Vagninn var á leið vestur
Miklubraut, er Guðrún Sig-
ríður var að fara yfir götuna.
Lenti hún fyrir vagninum og
beið þegar bana.
Guðrún Sigríður var ekkja,
77 ára að aldri. — Þetta er
sjöunda banaslysið á götum
Reykjavíkur í ár.
□-
-□
OLAFUR THORS, forsætis- og
sjávarútvegsmálaráðherra
flutti ýtarlega ræðu við setningu
aðalfundar L. í. Ú. og birtist hér
stuttur útdráttur úr henni:
Fyrst vék forsætisráðherra að
því, að menn töluðu nú mikið
um þau vandræði, sem þjóðin
ætti nú við að etja og oft mætti
helzt skilja sem slíks væru eng-
in dæmi fyrr. Sannleikurinn væri
þó sá, að þjóðin hefði aldrei búið
við betri kjör. Það gæti hver
dæmt um af sjálfs síns reynslu.
Hitt væri rétt, að ýmis vansmíði
væri á þannig, að efnahagskerf-
ið hefði gengið úr skorðum á
ýmsum sviðum, en slíkt væri
ekki nýtt í þjóðlifinu. Að lokn-
um kosningum 1949 var um það
Myndin sýnir Hans Fischer Heinesen, hafnarstjóra í Klakksvík,
á tali við fiskimann nokkurn úr þorpinu. í fyrradag var hafnar-
stjórinn dæmdur í 18 mánaða fangelsi. Þótti Klakksvíkingum það
harður dómur, eins og aðrir þeir dómar, er féllu yfir Klakksvík-
ingum, og kom til talsverðra óeirða í þorpinu, er úrslit réttar-
haldanna voru kunngerð.
Frá bæjarstjórnarfundinum i gær:
Raunhæf áætlun um útrýmingu
herskálaíbúða og annars
heilsuspillandi húsnæðis
TiHögur Sjálfslæðismanna samþykktar
TILLÖGUR Sjálfstæðismanna og áætlun xtm byggingar
til útrýmingar herskála, og annars heilsuspillandi hús-
ræðis, voru til umræðu á bæjarstjórnarfundi í gærkvöldi.
Jóhann Hafstein bftr. fylgdi tillögunum úr hlaði með ítar-
legri ræðu, sem birt er á öðrum stað í blaðinu. J. H. hefur
ásamt Gísla Halldórssyni arkitekt unnið mjög að undirbún-
ingi þeirrar áætlunar, sem lögð var fram.
Forsæ tisráðherran um
í Iran sýnt banatilræði
í bænah úsi Shahsins
Á eftir ræðu J. H. tóku full-
trúar minnihluta-flokkanna til
máls. Guðm. Vigfússon (K) taldi
að íbúðirnar, sem byggja ætti
væru allt of litlar, allt Of fáar
og yrðu allt of lengi í byggingu.
Lagði hann ásamt Alfreð Gísla-
syni (U) fylgdarmanni sínum á
svipuðum ferðalögum, fram
venjulegar yfirborðstillögur, þar
sem gert var ráð fyrir þeim
stóru tölum, sem stórum yfirboð-
um fylgja. Alfreð Gíslason taldi
að með byggingu 200 smærri
íbúða væri verið að byggja nýja
„Höfðaborg“. Kvartaði hann und-
an, að framsögumaður hefði ekki
viðurkennt hið „mikla framlag
minnihlutaflokkanna til bygg-
ingamálanna í bænum“. Þórður
Björnsson (F) bar fram tillögu
um rannsókn á herskálaíbúðum
og heilsuspillandi íbúðum í bæn-
um, en kom annars ekki efnis-
lega inn á tillögurnar. Bárður
Daníelsson (Þ) taldi, að skipa
ætti byggingarnefnd til að sjá
um framkvæmdir, og að ekki
væri rétt að byggja einnar hæðar
hús.
Jóhann Hafstein tók til máls
og svaraði athugasemdum, sem
komið höfðu fram. Skv. tillög-
unum skyldi skipa sérstakan
framkvæmdastjóra, sem annað-
ist framkvæmdir undir stjórn og
eftiiTiti bæjarráðs. Bæjarráð
væri hin eiginlega byggingar-
nefnd og væri í hennar valdi að
taka nánari ákvarðanir um allt
sem lyti að framkvæmdum. Þeir
tillöguuppdrættir, sem lagðir
hefðu verið fram nú, væru bæj-
arstjórn aðeins til glöggvunar og
leiðbeiningar en það væri á valdi
bæjarráðs að láta gera á þeim
breytingar eða þá aðra nýja og
hagkvæmari, ef þess væri kostur.
Samkeppni um uppdrætti gæti
og komið til greina.
VARANLEGAR ÍBÚÐIR
J. H. tók fram að það væri
Framhald á bls. 2.
Teheran, 17. nóv.
Reuter-NTB.
FORSÆTISRÁÐHERRANUM í
íran, Hussein Ala, var í dag
sýnt banatilræði, og slapp hann
nauðuglega. — Tilræðismaðurinn
, hitti í mark og særði forsætisráð-
herrann í hálsinn. Var hann
fluttur í sjúkrahús og gert að
sárum hans, en hann gat haldið
aftur til vinnu sinnar skömmu
siðar.
• Var skotið á forsætisráð-
herraiui, er hann var á leið út úr
bænahúsi shahsins, en þar hafði
hann verið viðstaddur minning-
arguðsþjónustu. Tiiræðismaður-
inn var handtekinn þegar í stað.
• Á þessum sama stað — við
bænahús shahsins í miðri höfuð-
borginni — var Ali Razmara, þá-
verandi forsætisráðherra írans,
myrtur 7. marz 1951.
• Hussein Ala tók við for-
sætisráðherraembættinu af Za-
hedi liershöfðingja, 7. apríl s.l.
Var Hussein Ala á sínum tíma
einn af áköfustu andstæðingum
Mossadeks og hefur um langt
skeið verið einn bezti vinur
Shahsins. Hann gegndi embætti
forsætisráðherra um skeið árið
1951. —
Sýrlendingor
hótn hörðu
, WASHINGTON, 17. nóv. — Sýr-
lenzka stjórnin varaði í dag
Bandaríkjamenn við að láta
ísraelsmönnum vopn í té. Ef svo
færi kvaðst sýrlenzka stjórnin
neyðast til að afla sér vopna frá
útlöndum. Um leið og Sýrlend-
ingar sendu Bandaríkjamönnum
þessa aðvörun tilkynnti Tass-
fréttastofan í Moskvu, að Sýr-
land og Sovétríkin hefðu gert
með sér viðskiptasamning.
—Reuter-NTB.
Hussein Aia—skotsár á hálsinum
Verkalýðssamtökin
í Argenfínu láta
undan síga
BUENOS AIRES, 17. nóv. — í
dag var svo að sjá sem argen-
tínsku stjórninni — undir for-
ustu nýja forsetans, Pedro Aram-
buru — hefði tekizt að ná ýfir-
höndinni í viðureigninni við
verkalýðssamtökin, sem voru
máttarstólpi stjórnar Peróns. —
Verkalýðssamtökin boðuðu alls-
herjarverkfall s.l. mánudag, en
flestir verkamennirnir sneru aft-
ur til vinnu sinnar í dag. Verk-
fallinu hefur enn ekki verið af-
lýst en svo er að sjá sem það
muni fjara út af sjálfu sér.
Stjórnin hyggst gefa verkalýðs-
félögunum tækifæri til að endur-
skipaleggja samtök sín. Hefur
stjórnin tekið í sínar hendur aðal
bækistöðvar verkalýðssamtak-
anna, og gert sjóliðsforingja
nokkurn að formanni samtak-
anna.
að ræða að leggja óbærilega
skatta á þjóðina eða fella krón-
una. Hnigið hefði verið að síðará
ráðinu sem kunnugt væri.
Það hefði sætt mikilli gagffl-
rýni stjórnarandstöðunnar,
sem þó engin önnur úrrætfi
hefði borið fram, og allra sázt
bent á hvemig skyldi inn-
heimta þá skatta, sem ella
hefði þurft að leggja á þjóð-
ina. Rétt væri að vonirnar,
sem tengdar voru við gengis-
lækkunina, hefðu ekki að fuliu
rætzt. Verzlunarárferðíð á
árinu 1950 hefði veríð íslend-
ingum óhagstætt, þ. e, a, s. aS
aðkeyptar vörur hefðu hækk-
að meir í verði en framleiðslu
vörur íslendinga.
BÁT AG J ALDE YRIRINN
Þá hefði verið gripið til báta-
gjaldeyris og hefði það kerfi
verið valið vegna réttmætra
óska útgerðarmanna, sem frem-
ur kysu að fá hlunnindi í sam-
bandi við nokkurn hluta þess,
sem þeir' drægju í þjóðarbúið,
heldur en að uppbætur væru
greiddar úr ríkissjóði. Þetta
kerfi hefur staðið óbreytt að
mestu þar til um síðustu ára-
mót. Þá hefur ríkisstjórnin rýrt
hlunnindin um 10%. Nú nýverið
hefðu svo útgerðarmenn gegn
vilja og ráðum ríkisstjómarinn-
ar hækkað álagið á bátagjald-
eyrisskírteinin.
Allar hefðu þessar ráðstafanir
ríkisvaldsins sætt gagnrýni stjórn
arandstöðunnar. Fyrst gengis-
lækkunin síðan bátagjaldeyririnn
Þegar svo bátagjaldeyrisfríðind-
in voru skert um síðustu áramót,
var deilt á stjórnina fyrir að
hún væri að ráðast á útvegs-
menn og sjómenn og þegar út-
vegsmenn hækkuðu álagið ný-
verið, var deilt á stjórnina fyrir
að þola slíka hækkun á nota-
þörfum almennings.
Ráðherrar.n sagði, að þessar
ádeilur þyrftu ekki að spretta
af óvild í garð útvegsmanna "íjg
sjómanna. Stjórnarandstaðan
væri aðeins að deila a aðgerðir
stjórnarinnar eins og gerist og
gengur, en ádeilurnar væru samt
skaðlegar vegna þess, að þær
rugluðu réttan skilning almenn-
ings á því, að útgerðin er einn
aðalburðarásinn í efnahagslífi
þjóðarinnar, sem dregur í búið
nær allan þann gjaldeyrir, sem
íslendingar þurfa til að greiða
innfluttar vörur. Útgerðin væri
þessvegna dráttarhestur en eng-
in ómagi.
BYRÐI, SEM SJÁVARÚTVEG-
URINN FÆR EKKI RISH)
UNDIR
Hitt taldi ráðherrann þó enn
skaðlegra, að með síhækkandi
kaupgjaldi væri búið að leggja
slika byrði á sjávarútveginn, aS
hann fengi með engu móti undir
risið nema með síhækkandi
styrkjum. Risaspor í þa átt hefði
þrátt fyrir aðvaranir stjórnar-
valdanna, verið stigið með hin-
um almennu kauphækkunum á
siðastliðnu vori og enn liti út
fyrir, að þessi feigðardans ætii
Framh. á bla. 10