Morgunblaðið - 07.12.1955, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 07.12.1955, Qupperneq 2
2 MORGL n ULAÐIÐ Miðvikudagur 7. des. 1Ð55 "] Tvœr kunnar ferðabœkur komnar í ísl. þýðingu „Asía heillar" og ,,Sœludcgar og svaðilfarir" FERÐABÓKAÚTGÁFAN sendir tvær bækur frá sér núna fyrir jólin, báðar eftir heimskunna menn. Önnur bókin nefnist „,Asía heillar“ og er eftir vísindamanninn' og landkönnuðinn Roý Chapman Andrews, en hin eftir svissneska ævintýramanninn og baróns-soninn Hans de Meiss-Teuffen. Nefnist hún „Sæludag-. -ar og svaðilfarir.“ ' Mikil jólaskreyting^ ASIA IIEILLAR ' Roy Chapman Andrews er einn íif frægustu landkönnuðum og náttúruvísindamönnum Banda- ríkjanna. Hann var forstöðumað- wr Náttúrugripasafnsins í New York um skeið, en sagði því starfi )ausu til þess að geta óskiptur llelgað sig vísindarannsóknum sínum, sem höfðu í för með sér ferðalög um víða veröld. Segir Andrews í bók sinni frá hinum íurðulegustu atburðum, og það 'flv.o að höfundur sér ástæðu til að taka það fram í formálsorðum að /rásagnirnar séu allar sannleik- anum samkvæmar. Ævar R. Kvaran hefir þýtt bókina. ÁTTI A» GERAST BANKA- MADUR EN STRAUK Hans de Meiss-Teuffen höfund- ur „Sæludaga og svaðilfara" er í?onur svissnesks baróns. Hann var fyrst látinn starfa í banka, en kunni ekki betur við sig en svo, að hann greip fyrsta tækifærið til að strjúka úr vistinni. Síðan hefir margt á daga hans drifið. Hann hefir farið einn á smábát yfir Atlantshafið, siglt um Ind- jandshaf með Aröbum, unnið ýmis störf undir fölsku flaggi í Palestínu, stundað smygl, niósnað fyrir Breta og Þjóðverja báða í isenn og þannig mætti lengi telja. New York Times sagði um |>essa bók, þegar hún kom út vestan hafs: „Þetta er einhver fjoriegasta, glaðlegasta og við- burðaríkasta frásaga, sem birzt hefir mánuðum saman“. — Her- .steinn Pálsson hefir íslenzkað bókina. ----- Dáiiarfrep úr Skagaflrðt T>ANN 22. nóvember s. 1. andaðist í sjúkrahúsinu á Sauðárkróki I.ovísa Albertsdóttir fyrrv. hús- freyja á Páfastöðum í Skagafirði. Hún var fædd á Páfastöðum 7. jan. 1895, dóttir Alberts Krist- jánssonar bónda á Páfastöðum og konu hans Guðrúnar Ólafsdóttur. Lovisa stóð fyrir búinu á Páfa- fctöðum með föður sínum, í rúm 20 ár, eftir að Guðrún móðir henn ar andaðist og þar til Edda dótt- ir hennar tók við búsforráðum á Páfastöðum. Lovísa var merk kona, fríð sýn- um og vel gefin. Hún giftist Sig. Skagfield söngvara (var 1. kona hans). Þau skildu. Börn þeirra voru: Hilmar, fór til Vesturheims og Edda húsfreyja á Páfastöðum, gift Baldri Helgasyni bónda á Páfastöðum. Næsta dag, þann 23. nóv. s. 1. andaðist í sjúkrahúsinu á Sauð- árkróki Guðríður Pétursdóttir f>rrv. húsfreyja í Valadal í .Skagafirði, fædd 8. júní 1867. — Guðríður var Borgfirðingur að ætt. Árið 1899 giftist hún Friðriki Stefánssyni bónda í Valadal í Skagafirði. Bjuggu þau þar stór- búi um langt skeið. Friðrik mann tdnn missti Guðríður 1925. — Síð- an hefir Guðríður dvalið lengst af hjá börnum sínum. Guðríður var merkiskona, sem var vel virt af öllum, er henni kynntust. — Börn þeirra Valadals-hjóna voru: S.gþrúður, gift Birni Jónssyni bónda á Gili í Svartárdal í Húna- vatnssýslu, Stefán bóndi í Glæsi- bæ í Skagafirði, býr með Ingi- björgu Jónsdóttur, og Helga, gift Birni Ólafssyni bónda á Krít- feóli í Skagafirði. AKUREYRI, 5. des.: — Um sl. helgi unnu verzlunarmenn hér á Akureyri langt fram á nótt við að skreyta verzlunarglugga sina fyr- | ir jólin. Var margt manna á ferli | á sunnudag á götunum og bar mikið á ungu kynslóðinni er virti fyrir sér með hrifningu, margs konar skaut, jólasveina er gera ýmsa skringilega tilburði og sýna vörur margs konar. Kalt var í veðri, en börnin létu það ekki á sig fá, því í gluggunum er vissu- lega margt er fær mann til að gleyma kulda og snjó. Sumar verzlanir hafa og komið upp stór-, um bjöllum eða stjörnum með mörgum mislítum ljósum og hengt. milli húsa og mislit ljós eru fyrir framan margar verzlanir. Eru menn þegar farnir að hugsa til innkaupa fyrir jólin og er verzlun alltaf að aukast. — Jónas. Ávarp fiS fsfirisip veeiia sfofnunar b Skóíaíólk íær iélaafslátt með Föxumim FLUGFÉLAG ÍSLANDS hefur ákveðið að veita skólafólki af- slátt af fargjöldum á innanlands- flugleiðum frá 15. desember til 15. janúar n.k. Nemur afsláttur- inn 25% af gildandi tvímiðafar- gjaldi, og nær hann til allra flug- leiða félagsins innanlands. Með þessari nýbreytni hyggst Flugfélag íslands auðvelda því skólafólki, sem stundar nám fjarri heimiium sínum, að heim- sækja vini og ættingja um jólin. Það skólafólk, sem hefur í huga að notafæra sér þessi hlunnindi, ætti að panta sæti tímanlega hjá afgreiðslum Flugfélags íslands og fá þar frekari upplýsingar varðandi ferðirnar. Má búast við, að síðustu ferðir fyrir jól verði brátt fullskipaðar. Hefur Flugfélag íslands fullan hug á að greiða fyrir ferðum fólks nú fyrir jólin svo sem frekast er unnt, m. a. með því að láta millilandaflugvélarnar Gullfaxa og Sólfaxa annast flutn- inga að einhverju leyti milli Reykjavíkur og Akureyrar. Rúma flugvélar þessar hvor um sig frá 55 til 60 farþega. Amernkur dægur- jagatönrjvari á kvöldskemmfun KUNNUR amerískur dægurlaga- söngvari John Boohlen að nafni, mun syngja á kvöldskemmtun íslenzkra tóna í kvöld og föstu- dagskvöld sem gestur, og mun hann syngja ný amerísk dægur- lög. | John Boohlen er í tölu yngri dægurlagasöngvara Bandaríkj- anna og mjög vinsæll. Hann kem- ur oft fram í sjónvarpi og út- varpi. Auk þess hefur hann sung- ið í mörgum þekktustu skemmti- stöðum Bandaríkjanna. Verður gaman að heyra John Boohlen við hlið dægurlagasöngv ara okkar, t. d. Alfreðs Clauséns, Jóhanns Möllers og Skafta Ólafs- sonar. Mikil aðsókn er enn að Revýu- Kabarett íslenzkra tóna, en sýn- ingum fer að Ijúka. Af nýjum atriðum þar er m. a. nýr skop- þáttur og kynnt verða ný dægur- lög. ____________________ Bíll ekur á garðvegg í GÆR var kært til rannsóknar- lögieglunnar yfir því, að vörubil landsdeildarinnar, Gretar Fells hafi verjð ekið á vegg umhverfis rithöfundur. Aðrir ræðumenn húsið Fornhagi 20. Veggurinn fiuttu kveðjur og árnaðaróskir hefur orðið fyrir nokkrum frá Guðspekistúkum hérlendis. skemmdum Þó merkilegt megi önnur skemmtiatriði voru þessi: virðast, hefur bílstjórinn látið Einar Sturluson söng einsöng, undir höfuð leggjast að gera fólk- Gunnar Sigurgeirsson lék á slag- inu í húsinu aðvart um skemmdir hörpu, Björn Ólafsson lék á fiðlu, þær er hann olli. Eru það vin- Guðbjörg Þorbjarnardóttir las samleg tilmæli rannsóknarlög- upp og Lilja Björnsdóttir skáld- reglunriar til bílstjóra þessa, að kona las upp kvæði. Var lista- hann komi hið fyrsta til viðtals mönnunum og hlutverkum þeirra og aðrir þeir, er einhverjar upp- vel fagnað. Skemmtu menn Sér lýsingar geta gefið f málinu, en þarna hið bezta, enda rikti bróð- þetta mun hafa gerzt í fyrrinótt urhugur og glaðværð yfir sam- eða í gærmorgun. komu þessari, K. S. K. ,Eift er þoð land‘ eftir Halldóru B. Björnsson NÝLEGA er komið út minninga- safn, „Eitt er það land“, eftir Halldóru B. Björnsson. Rekur skáldkonan þar minningar frá bernskuárunum, og er bókinni skipt i 15 kafla: Inngangur í nútíð, Blótað á laun, í Þykjast- mannalandi, Veðurhljóð, Mundi og Bína, Bókaramennt, Merin Butt, Hálfdanir, Pési, Sköpun heims, .. og fleira, Ellefu skyrt- ur, Einu sinni var, Afabær og j Haustmorgunn. — Bókm er 139 blaðsíður og gefin út á vegum Hlaðbúðar. Barbara Árnason hef- ir gert teikningarnar í bókinni. Veglegf afmælis- samsæti TIL frétta má það teljast, að hinn 17. nóv. síðastl. héldu Guð- spekinemar hér í Reykjavík veg- legt afmælissamsæti í húsi fé- lagsins, Ingólfsstræti 22. Tilefni samsætisins var áttatíú ára af- mæli Alheimsfélags Guðspeki- nema. En félagið var stofnað í New York 17. nóv. 1875, eins og áður hefur verið skýrt frá. — Samsæti þetta var fjölmennt, eins og húsrúm frekast leyfði. Var þarna vel til alls vandað og glæsibragur yfir öllu. Var þar sameiginlegt borðhald, í anda og eftir venju Náttúrulækningafé- lagsins. Önnur atriði samkom- unnar voru: ræðuhöld, söngur, hljóðfæraleikur og upplestur. — Aðalræðuna flutti forseti ís- BÆJARSTJÓRN ísafjarðarkaupstaðar og sýslunefndir Vestur- og Norður-ísafjarðarsýslu hafa samþykkt að stofna i félagi ti! Ibyggðarsafns á ísafirði, og kosið undirritaða í stjórn safrisins. falendingar leggja nú mikla stund á að varðveita frá glötun hvers konar minjar um menningu og starfshætti liðinna kynslóða. Hefur nú verið stofnað tii byggðasafna í flestum byggðum landsins. Hefur þeim verið mjög vcl tekið af almenningi, enda mun öllum vera Ijjóst. að síðustu forvöð eru að bjarga frá glötun mörgu af því, sem einkenndi íslenzk hcimili 19. aldarinnar og á fyrri hluta þessarar aldar. Hér á Vestfjörðum hafa orðið miklar brcytingar á atvinnuháttum, búnaðarháttum og byggingum. í stað hins gamla kemur nýtt og hið gamla liverfur og glatasi. En til þess að koma í veg fyrir það, hefur verið stofnað til byggðarsafnsins. Okkur er Ijóst, að mikið er enn til af alls konar sjaldgæfum og merkum mumiin og tækjum, sem naúðsyn ber ti! að varðveita, og bezt eri» geymdír í vördum byggðarsafns. Það eru því tilmæli vor, að allir ísfirðingar, hvort heldur þeir eru búsettir í sýslunum, kaup- staðnum eða fluttir burtu úr héraði, leggi byggðarsafninu liðs- styrk eftir mættí og með'al annars með þessum hætti: t, Nenn athugi, hvort þeir eigi ekki í fórum sínum muni, tæki, myndir eða annað, sem þeir telja bezt geymt í byggðarsafni, Menn gæti þess að ekkert er svo smálegt að það hafi ekki þjóðlegt gildi. 2. riTenn gefi þessa muni til safnsins eða ánafni þá safninu eftir sixm dag. 3. Þoir, setn selja vildu slíka muni sanngjörnu verði, láti ein- hvern undirritaðra vita af því. Höfuðáherzlu leggjum vér á það, að hver og einn gæti þess að ckkert giatist að óþörfu, sem hefur mcnningarlegt gildi. Menn hendi ekki tækjum og hlutum, þó þeir séu gamlir og úreltir, þegar hætt er að nota þá, cða menn flytja búferlum, heldur láti safnið njóta þeirra. Vér skonim á alia að styðja að því að byggðarsafnið geti orðið héraðsprýði og það mun takast, ef allir leggjast á eitt. Undirritaðir veita gjöfum viðtöku og ennfremur Gnðm. Jónsson, frá Mosda!, sem heitið hefur stjórninni aðstoð sinni. Stjórn Byggðarsafns ísfirðinga, Einar Guðfinnsson, Kristján Davíðsson Jóh. Gunnar Ólafsson. Páll Ísólísson heiðursforseti Á FRAMHALDSAÐALFUNDI Tónskáldafélags íslands á sunnu- daginn var Páll ísólfsson ein- róma kjörinn heiðursforseti fé- lagsins ævilangt samkvæmt laga- breytingu og tíUögu Jóns Leifs foiTnanns Tónskáldafélagsins. VinnumiSlun stúdenfa um iólin EINS og undanfarin ár starfar í Háskóianum Vinnumiðlun stúd- enta, sem gegnir því hlutverki að létta undir með stúdentum við útvegun atvinnu. Hefur árangur af starfi Vinnumiðlunarinnar orðið hinn bezti, þau ár, sem hún hefur starfað. Margir atvinnu- rekendur hafa sýnt starfseminni skilning og í staðinn fengið vel- menntaða og harðduglega starfs- menn, enda eru stúdentar flest- ir vinnu vanir. Allflestir stúdent- ar þurfa að lifa af því yfir vet- urinn, sem þeir afla á sumrin. En eins og eðlilegt er vill mörg- um ganga illa að láta endana mætast og verða þá að grípa til vinnu með náminu. Nú eru jóla- annirnar hjá fyrirtækjum að ganga í garð, má búast við að allmargir atvinnurekendur þurfi að auka starfslið sitt og er þá tilvalíð fyrir þá að snúa sér til Vinnumiðlunar stúdenta og fá hjá henni úrlausn; Vinnumiðlunin hefur opna skrifstofu í herbergi Stúdenta- ráðs í Háskóla íslands þriðjudaga og fimmtudaga kl. 11—12 f. h., sími 5959. Geta atvinnurekendur snúið sér þangað með umsóknir um Vinnuafl. í stjórn Vinnumiðlunar stúd- enta eru: Sigurður Pétursson stud. jur. form., Hálldór Þ. Jóns- son, stud. jur., Loftur Magnús- son, stud. med. Engar fannir HÚSAVÍK, 6. des.: — Undan- farna daga hefur verið frost hér og snjóað af og til. Allar leiðir eru þó bílfærar ennþá. Það má telja til sérstakra tíðinda, að eng- ar fannir eru ennþá komnar á Vaðlaheiði og er slíkt mjög óvenjulegt er komið er fram á þennan tíma. 6óð færð STYKKISHÓLMI, 6. des.: — Snjó koma hefur verið hér af og til undanfarna daga. Hefur það mest verið fjúk, sem ekki hefur dregið’ í fannir og skafið af um leið. í nótt snjóaði allmikið í byggð, en þrátt fyrir það, var Kerlingar- skarð vel fært í morgun og voru bílarnir eina klst. yfir. Yfirleitt eru vegir ekki tepptir hér ennþá. Þyngst færð er á veg- inum til Grundarfjarðar og er sá vegur um það bil að teppast. — Fréttaritari. 1127 kr. lyiir j 11 réttar ' ÚRSLIT leikjanna á laugardag: Birmingham 4 Arsenal 0 l Burnley 2 Manch. City 2 x Charlton 4 Huddersfield 1 l Everton 3 Chelsea 3 x Luton 3 Cardiff 0 l Manch. Utd 2 Sunderland I 1 Newcastle 3 Bolton 0 1 Preston 2 Wolves 0 1 Sheff. Utd 2 Aston Villa 2 x Tottenham 1 Blackpool 1 x WBA 4 — Portsmouth 0 1 Fulham 1 Sheff. Wedn 2 2 Bezti árangur reyndist 11 rétt- ir, sem komu fyrir á einum seðli, 8 raða seðli með einföldum röð- um. Vinningurinn fyrir hann verður 1127 kr. Á 8 seðlum vöru 10 réttar ágizkanir, og hæstu vinningar fyrir 10 rétta verða 266 kr. J

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.