Morgunblaðið - 08.12.1955, Page 14
14
MORGUNBLAÐIB
Fimmtudagur 8. des. 1955
ANNA KRISTÍN
EFTIR LALLI KNUTSEN
I
FramhLaldssagan 20
konu þína að umtalsefni sveitar-
innar. — Því sér hún fyrir sjálf,
ég þarf þess ekki. Læstu dyrun-
um, segi ég. Þeir hlógu báðir.
Ég gekk út í ganginn. Það var
orðíð áliðið kvelds og kalt í
veðri. Ég gekk að loðkápu Önnu
Kristínar, sem hékk í ganginum,
strauk skinnið hvað eftir annað
ráðaleysislega. Ég varð að að-
vara hana, en hvernig? Sesselja
kom hægt á móti mér. Hún stanz
aði og leit á mig. — Hvert fór
hún? hvíslaði ég. — Hvers vegna
spurðu? Hún vantreysti mér ævin
lega. — Ég verð að taka hest og
reyna að leita að henni. Gynter
.... Sesselja horfði fast á mig
og sagði án þess að láta sér
bregða: — Ég veit ekkert hvert
hún fór. — Þú lýgur, sagði ég,
öryggi hennar er í voða. — Mér
er sama hvort þú trúir mér eða
ekki. Ég veit ekkert um hana.
Án þess að hika gaf ég henni
löðrung. í sama bili var stofu-
dyrunum hrundið upp og ívar
stóð þar, viti sínu fjær af reiði
og drykkju. — Hvers vegna kem-
urðu ekki með lykilinn? — Ég
hef ekki lokað enn. Hann rauk
að mér, þreif í öxlina á mér,
þeytti mér frá sér og öskraði til
Sesselju: — Komdu henni í rúm-
ið, læstu herberginu hennar og
fáðu mér lykilinn. — Gerðu það
heldur sjálfur, sagði nú Gynter,
sem stóð bak við hann, lítill, feit-
ur og gleiðfættur. — Maður get-
ur aldrei treyst kvenfólkinu. Þú
ættir að sýna þeim í tvo heim-
ana.
ivar rak okkur nú upp stig-
ann. Það var algjörlega þýðing-
arlaust að mæla í móti. Síðan
vorum við læstar inni, Sesselja
í vefstofunni, ég í jómfrúarher-
berginu.
Það leið á nóttina. Ég sat við
gluggann og hlustaði á ívar og
Gynter þræta úti á tröppunum.
Gynter vildi gista, en ívar vildi
ekki leyfa honum það. Endirinn
varð sá, að ráðsmaðurinn kom
með hest Gynters og hann reið
á brott. Svo læsti ívar útidyrun-
um og ég heyrði hann ganga
þungum skrefum upp stigann.
Nokkru síðar heyrði ég hófa-
tak útifyrir. Síðan varð allt hljótt
um stund og ég vissi að nú mundi
Anna Kristín vera að spretta af
hestinum. Hvernig skyldi hún
komast inn?
Nú heyrði ég kallað lágum
rómi upp í gluggann. Það var
hún. Ég teygði mig út og hvísl-
aði: — Gynter var hérna. Ivar
er brjálaður og hefur læst hús-
inu. Ég er innilokuð hér og Sess-
elja í vefstofunni. Við getum ekki
hjálpað þér. Hún þagði stundar-
korn. Svo sá ég hana klifra upp
linditréð. Sama tréð og Lárus
kleif forðum. Hún stökk inn um
gluggann og við féllumst í faðma.
Svo lögðumst við báðar upp í
rúmið mitt. Ég gat ekki sofnað.
En hún hreiðraði um sig við hlið
mína og sofnaði vært eins og
barn. Öðru hvoru brosti hún í
svefninum.
Þegar við komum niður næsta
morgun sat ívar við borðið. Hann
glotti og sagði: — Jæja, svo mín
dyggðum prýdda húsfreyja er
komin heim aftur. Þú ættir að
gæta þín í framtíðinni, því að
hver veit nema Mæri verði lokað
að fullu og öllu fyrir þér næst
þegar líku gegnir. Hún settist,
tók brauðsneið af fatinu og sagði
rólega: — Þessa skaltu fá að
gjalda. Lokir þú dyrunum í ann-
að sinn, kann ég ráð til að opna
þær. Augu þeirra mættust. Það
var hann sem leit undan.
Þegar ívar kom heim um kveld
ið, kom hann að lokuðum dyrum
hjónaherbergisins. Anna Kristín
hafði látið flytja alla hans muni
yfir í biskupsstofu. Og á svefn-
herbergisdyrnar hafði hún látið
Jokum setja rammgerðan lás.
Ég veit ekki hvernig ívar tók
þessu. Hann sagði ekki eitt ein-
asta orð um það í minni áheyrn,
en ég hræddist þögn hans og
ygldan svip. Systir mín hló bara
og sagði: — Þarna sérðu. Það
var hann en ekki ég, sem fékk
skellinn. Þetta hefði ég átt að
gera fyrir löngu síðan.
Á kveldin sat ég oft á rúmstokk
Önnu Kristínar og við mösuðum
saman. Fyrr eða síðar lét hún
ávallt talið berast að Jörgen
Randulf. — Hann er svo blíð-
lyndur og veikgeðja, sagði hún
ástúðlega. Ég er orðin þreytt á
viljasterku fólki. Þannig var
pabbi og þannig er ívar, Sesselja
Og þú. Ekkert getur bugað þig.
— ívar er ekki viljasterkur, sagði
ég, sízt gagnvart þér. Enginn er
ósveigjanlegur við þann sem
hann elskar. Og ívar elskar þig.
— Sér er nú hver ástin! Hann
fékk mín nauðugrar og hann
sleppir mér ekki svo lengi sem
hann lifir. Randulf er gjörólíkur.
Hann krefst aldrei neins en er
þakklátur fyrir það sem hann
Þjónusta EHGLAiVÍVA
Séra Jón Auðuns dómprófastur skrifar:
Lítil bók, en full af háleitum hugsunum
og furðulegri vitranareynslu. Fagran
jólaboðskap flytur þessi yndislega bók
um þá, sem fylgja í verki dæmi meistara
síns og stíga niður í heim þjáninganna
til að flytja jarðneskum mönnum lækn-
ing og líkn.
Hlustað á vindinn.
a
- /-ýfwwh
* ' V>‘hí
Stefán Jónsson er flestum rithöfundum
okkar gleggri í skilningi á sálfræði
barna og fullorðinna. en jafnframt ein-
kennast sögur hans af skemmtilegri og
markvissri frásögn og oft af minnis-
stæðri kímni. — Stefán hefir oft fengið
verðlaun ísl. tímarita fyrir smásögur
sínar, enda í fremstu röð smásagna-
höfunda okkar.
JólabœkurLy
ísafoldar.
Nýtt úrval af
KÁPUM
og mjög fjölbreytt úrval af
KJÓLUM
fyrir allskonar tækifæri.
FELDUR H.F.
Laugavegi 116
Kuldaúlpur
á börn og fullorðna.
Síðbuxur
Húhir
Vetilingur
á drengi og telpur
seljast með miklum
afslætti.
FELDUR H.F.
Laugavegi 116
Peysur
Golftreyjur
Hálsklútar
Blússur
Pils
FELDUR H.F.
Austurstræti 6
Borðdúkur
einlitir
og mislitir
•
Glugga-
tjaldaefni
Storesefni
Pífugluggatiöld
Tilbúin gluggatjöld
FELDUR H.F.
Bankastræti 7
IMÝKOMIÐ
Ferðastraujárn í öskjum fyrir 110 og 220 volta spennu.
Smekkleg og nytsöm jólagjöf.
VOLTI, NORÐURSTÍG
Sími 6458.
15 tonna vélbátur
til sölu, mjög ódýrt