Morgunblaðið - 17.12.1955, Qupperneq 1
32 síður (2 blöð)
41 árgaBgiar 289. tbl. — Laugardagur 17. desember 1955 freBt«il(i HargunblaSvlM
Ur ragðu borgarstjóra við umræðurar um f járhagsáæ tlunina
Tillögur minnihlutufiokkunna
miðuðu uð því uð tefju eðu stöðvu
nuuðsynlegur frumkvæmdir
Fjórir flokkar og flokkabrot geta
ekki komið fram í meirihluta
bœjarbúa
BÆJARSTJÓRNARFUNDURINN, sem hófst kl. 2 e. h. á fimmtu-
dag, endaði ekki fyrr en kl. tæplega 7 í gærmorgun, en þá
var lokið 2. umræðu um fjárhagsáætlun Reykjavíkurbæjar.
Eftir að sjö fulltrúar minnihluta-flokkanna höfðu talað, tók
borgarstjóri til máls. Tók hann þar ýtarlega til meðferðar ýmis
atriði fjárhagsáætlunarinnara og svaraði athugasemdum, sem komið
höfðu fram frá fuRtrúum minnihluta-fJokkanna. Fara hér á eftir
nokkur atriði úr ræðu borgarstjóra.
MINNI HÆKKUN
EN HJÁ RÍKINU
; Út af fyrirspurn um útsvars-
•upphæðina vil ég taka það fram,
að staðfestingu félagsmálaráðu-
neytisins þarf fyrir útsvarsupp-
hæðinni. Ég hef ekki kannað hjá
ráðherra, hvort hann muni veita
jhana, hef talið útilokað að hann
'synji, ekki sízt þegar haft er í
huga, að útgjöldin samkvæmt
þessari fjárhagsáætlun hækka
hlutfallslega minna en fjárlög
ríkisins á sama tima.
BREYTINGAR
OG LAGFÆRINGAR
Hér eru nokkrar breytingar-
tillögur, sem bæjarráð stendur
að einróma. Ég hef rakið þær áð-
ur, en vil aðeins endurtaka, að
bæjarráð er sammála um að
leggja til, að Dvalarheimili aldr-
aðia sjómanna fái 300 þús. kr.
“stýrk, Karlakór Reykjavíkur 30
"þús. kr. styrk til utanfarar, og
“framlag til Heiðmerkur hækki í
295 þús. kr.
Kostnaðaráætlun Hvítabands-
spítalans hefur verið endurskoð-
uð og þarf að hækka framlagið
upp í eina milljón og 100 þús.
'végna reksturshalía hans. Einriig
■flytúr bæjarráð tillögur um
hækkun framlagá til almanna-
'trygginga og Sjúkrasamlags, sam-
^táls 850 þús., sem er afleiðing
stjómarfrumvarps, sem iagt var
fram á Alþingi í gær, um breyt-
'ingu á lögum um almannatrygg-
ingar. Þá flytur bæjarráð tillögu
mn\ að veita 100 þús. kr. styrk, til
viðbótár þeim 20 þús., sem í frv.
‘er áætlað, til Félags lamaðra og
fatlaðra. Það hefur komið á fót
sérstakri æfingastöð fyrir lamaða
bg fatlaða, félagið hefur keypt
hús og búið það fullkomnum og
dýrum tækjum. Að vísu fær það
allríflegar tekjur af sölu eld-
spýtna og ennfremur hefur það
fengið ágóða af happdrætti, en
stofnkostnaður er mikill, og
j-eksturskostnaður á þessari æf-
ingastöð áætlaður á ári um 600
;þús. Hér er um mikið nauðsynja-
starf að ræða.
ÝMIS ERINDI
TIU BÆJARSTJÓRNAR
. Bæjarstjórn hafa borizt ýmis
•erindi. Nokkur eru þegar tekin í
frv., sum önnur hefur bæjarráð
tekið upp og enn önnur leggja
bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks-
ins til að samþykkt verði. Lúðra-
eveitin Svanur, sem hefur haft 10
þús. kr. styrk undanfarin ár,
sækir um að styrkurinn sé hækk-
aður upp í 25 þús. kr., og leggjum
við til, að það verði samþykkt.
Ástæðan fyrir þessari beiðni er
mikill kostnaður við kennslu,
endumýjun hljóðfæra, við hús-
næði o. m. fl.
í öðru lagi er tillaga um styrk
til Landakotsspítala. í frv. er gert
ráð fyrir 120 þús. vegna samstarfs
sjúkrahúsa um móttöku aðkall-
andi sjúkdómstilfella. Nú hefur
Landakotsspítali talið óhjákvæmi
legt að fá meiri aðstoð en hér
greinir. Segir svo í bréfi frá yfir-
lækni spítalans, að gamli spítal-
inn sé meira en hálfrar aldar
gamalt timburhús og því að ganga
úr sér, auk þess er eldhætta
mikil. Stjóm spítalans hefur því
ákveðið að leggja hann niður sem
sjúkrahús og hefur í huga endur-
byggingu, en það er ógerningur,
nema spítalanum sé tryggður
f járhagsgrundvöliur. Bæ jarfull -
trúar Sjálfstæðismanna hafa fall-
izt á þessi rök og leggja til að
spítalanum verði veittar 300 þús.
krónur.
í þriðja lagi er erindi frá Flug-
björgunarsveitinni, sem hefur
sótt um stýrk til eflingar starfi
sínu. Lagt er til, að þessi björg-
unarsveit, sem þegar hefur unnið
Frh. á bls. 2
Gunnar Thoroddsen,
borgarstjóri.
Áfengisleit í bíl-
itöðvum í Keflavík
KEFLAVÍK, 16. des. — Milli kl.
9—10 í kvöld, var gerð allsherj-
ar áfengisleit af lögreglunni hér
í Keflavík, á bifreiðastöðvum og
í leigubílum, að undantekinni á-
ætlunarbifreiðastöðinni. Þá var
einnig gerð húsrannsókn hjá
tveimur bifreiðastjórum.
Árangurinn af leitinni varð sá,
að hjá einum bifreiðastjóranum
fundust þrjár áfengisflöskur
keyptar í Áfengisverzlun ríkis-
ins. —
Á meðan á leitinni stóð, var
stöðvunum og símum þeirra lok-
að. — Fréttaritari.
34 árangurslausar
atkvœðagreiðslur SÞ
Verður Öryggisráðið óstarfhœft?
Sam, þjóðunum 16. desember.
IDAG fóru fram á Allsherjaiþingi Sam. þjóðanna 5 atkvæða-
greiðslur um það, hvaða ríki skuli taka sæti Tyrkja í Öryggis-
ráðinu; en fulltrúi Tyrkja á að víkja úr ráðinu 1. jan. n.k. Þessar
fimm atkvæðagreiðslur fóru fram án árangurs, og eru hinar
árangursríkustu atkvæðagreiðslur þá alls orðnar 34 talsins.
★ ÓLÖGLEGT
Jose Maza forseti Allsherjar-
þingsins lét svo um mælt, að
þinginu yrði ekki slitið fyrr en
tekizt hefði að fá löglegan meiri
hluta með einhverju ríki til að
taka sæti í Öryggisráðinu. Halda
menn því fram að störf Öryggis-
ráðsins séu ólögleg, ef öll sæti
þar séu ekki skipuð.
* VANDINN MIKLI !
í>rjú rikj víkja úr ráðinu 1.
jan. Það eru auk Tyrklands,
Brasilía og Nýja Sjáland. t staS
þeirra síðarnefndu voru kjörin
til sætis í ráðinu Kúba og Ástra-
lía, en stríðið stendur um sæti
Tyrklands og hefur verið greitt
atkvæði um Filipseyjar og
Júgóslavíu. Filipseyjar hafa allt-
af fengið heldur fleiri atkvæði.
Við 34. atkvæðagreiðsluna fengu
Filipseyjar 38 atkv., en Júgó-
slafía 31. Til að ná kosningu
þarf 46 atkvæði.
Adenauer segir:
Þetta eru hinar gall-
hörðu staðreyndir ...
ADENAUER forsætisráðherra lét svo um mælt í blaðaviðtali í
dag, að Genfarráðstefnan nýafstaðna hefði staðfest öðru frem-
ur að stefna V-Þjóðverja í utanríkismálum sé rétt og þeir hafi
á undanfömum árum gert rétt í því að taka ákveðna afstöðu með
Vesturveldunum.
* RÚSSAR VILJA EKKI <
FRJÁLST ÞÝZKALAND
Genfarráðstefnan, sagði Aden-
auer, sem fyrst og fremst átti að
fjalla um Þýzkalandsmálin, færði
tvískipta þýzka þjóð ekkert nær
j sameiningarmarkinu. Sovétherr-
I amir neituðu afdráttarlaust að
samþykkja frjálsar kosningar. —
Molotov gerði öllum ljóst, að
jafnvel þó Vestur-Þýzkaland
færi úr samtökum Atlantshafs-
ríkjanna, þá myndu Sovétríkin
ekki fallast á sameiningu Þýzka-
lands, nema því aðeins að allt
landið lyti kommúniskri stjórn.
* EKKI VERÐUR BREYTT
UM STEFNU
Þetta eru hinar gallhörðu stað-
reyndir, sagði Adenauer. Vestur-
Þjóðverjar hafa hins vegar frá
.upphafi mótað stefnu sína í
stjórnmálum fast ag ákveðið. —
Þannig er hún enn í dag. Henni
Framh. á bls. 12
3r f ••• •
i kjon
WASHINGTON, 16. des. — í dag
kallaði Estes Keafauer blaða-
menn á sinn fund og sagði þeim,
að hann myndi á þingi demo-
krata, þar sem ákveðið er hver
verði forsetaefni flokksins, gefa
kost á sér.
Kefauer var einnig í fram-
boði síðast, þá á móti Stevenson,
sem hlaut kosningu.
Stevenson verður einnig í
kjöri nú á flokksþinginu og
þriðji maður, fylkisstjórinn í
Ohio, hefur og tilkynnt að hann
gefi kost á sér —Reuter.
i ____________________
PARÍS, 16. des. — Ráðherra-
nefnd Atlantshafsríkjanna tíl-
kynnti í dag þá ákvörðun sína
að stofna nýja flugsveit sem
skipuð væri ítölskum og banda-
rískum flugmönnum.
Afgreiðslu fjárlaga írestað
Sjálfstæðisflokkurinn faldi ekki skynsamlegt
að afgreiða þau meðan vandamál
framleiðslunnar eru óleyst
IGÆR var lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um
bráðabirgðafjárgreiðslur úr ríkissjóði fram til 20. janú-
ar. Tilkynnti Eysteinn Jónsson fjármálaráðherra í fram-
söguræðu, að frumvarpið væri borið fram, vegna þess, að
ekki hefði náðst samkomulag milli stjórnarflokkanna um
afgreiðslu fjárlaga fyrir áramót.
AFSTAÐA FRAMSÓKNARFLOKKSINS
Eysteinn skýrði frá því, að ágreiningur væri um þetta
milli stjórnarflokkanna. Hann sjálfur og Fram.sóknarflohk-
urinn hefðu viljað afgreiða fjárlögin skilyrðisiaust fyrir
áramót, en Sjálfstæðisflokkurinn hefði ekki talið rétt að
lúka fjárlögum fyrr en vandamál útflutningsatvinnuveganm
hefðu verið leyst. Gat Eysteinn þess í ræðu sinni, að þessi
ágreiningur væri þó ekki þess eðlis, að til stjórnarslita
kæmi.
VANDAMÁL ÚTFLUTNINGSINS
Ólafur Thors, forsætisráðherra gerði grein fyrir afstöðu
Sjálfstæðisflokksins. Hann sagði, að um áranótin féllu
bátagjaldeyrisfríðindin úr gildi. Lögin um styrk til togar-
anna falla einnig úr gildi og nú í haust hefur veiið ákveðið
að veita uppbætur á útfluttar landbúnaðarafui ðir ársáns
1955, sem ætlað er að nemi 15 millj. kr.
Þá skýrði hann frá því að sérfræðingar hefðu undanfarna
mánuði unnið að athugun á þvi, hvernig auðið væri að leysa
vandamál útflutningsatvinnuveganna.
Athugun þessari er enn ekki lokið og hefur rikisstjúmin
því ekki getað gert sér grein fyrir, hvaða stefnu beri að
taka í málinu.
EKKI SKYNSAMLEGT
AD AFGREIÐA FJÁRLÖG STRAX
„Meðan svo standa sakir,“ sagði forsætisráðherra, ,4»efur
Sjálfstæðisflokkurinn ekki talið skynsamlegt, og raunar
tæpast auðið, að afgreiða fjárlög ríkisins endanlega, en
leggur hins vegar megin áherzlu á að leysa þessi mál sem
allra fyrst og mun ríkisstjórnin vinna sleitulaust að undir-
búningi þess í því þinghléi, sem nú er fyrirhugað.
Rétt er að geta þess, að Sjálfstæðisflokkurinn hefði að
sjálfsögðu kosið að ljúka báðum málunum fyrir áramót, en
að gaumgæfilega athuguðu máli komizt að þeirri íuðurstöðu,
að þess væri ekki kostur."