Morgunblaðið - 18.12.1955, Qupperneq 10
10
M&KGUNBl A91B
Sunnudagur 18. des. 1955 1
Ný sending:
af glæsilegum
model kApum
FELDUR H.F.
Laugavegi 116, III. hæð.
Ný sending:
SAfySflí VÆMISK JÓLAR
FELDUR H.F.
Laugavegi 116, III. hæð
Ný sending:
GRLIÐSLIJSLOPPAR
FELDUR H.F.
Laugavegi 116
Ný sending:
KVEN — náttföt
— náttkjólar
— kriolin millipils
— undirkjólar
— buxur
B A R N A — undirkjólar
ANGORA—HÚFUR
HATTAR
BELTI
FELDUR H.F.
Laugavegi 116
Ný sending:
GLLGGATJALDAEFNI
Bankastræti 7
(J/ólalfóm — Jólaálretýtinaar
Vegna mikillar vöntunar á afskornum blómum,
tökum Við ó móti pöntunum.
Þeir, sem panta strax, fá örugglega blóm.
Svo höfum við. eins og alltaf áður mikið úrval af
skreyttum körfum, skálum, krossum, krönsum og
fjöldamörgum öðrum skreytingum.
Munið að panta strax.
Blóm og grœnmeti h.f.
Skólavörðustíg 10 — Sími 5474.
Öflugi bindindisfélag
í Skcgaskóla
SNEMMA á þessu skólaárí heim-
sótti Brynleifur Tobíasson Skóga-
skóla. Flutti hann fróðlegt erindi
um bindindismál og sýndi kvik-
mynd. Hrifust nemendur mjög af
máli hans og gengust, í sambandi
við þessa merku heimsókn, fyrir
stofnun bindindisfélags í skólan-
um. Gekk meiri hluti nemenda
þegar í það og á hið unga félag
vaxandi vinsældum að fagna í
skólanum.
Laugardaginn 3. des. efndi
bindindisfélagið til fyrstu árs-
hátíðar sinnar. í tilefni þess
heimsóttu skólann nokkrir ágæt-
ir gestir frá umdæmisstúkunni
nr. 1. Hátíðin hófst með ávarpi
formanns félagsins, Jóns Húnars
Guðjónssonar, en síðan tóku
hinir góðu gestir til máls hver
af öðrum. Þorsteinn J. Sigurðs-
son flutti ræðu, Maríus Óiafsson,
skáld, las frumort kvæðí, Sigurð-
ur Guðmundsson flutti frásögu-
þátt, Þorgrímur Einarsson leikari
skemmti með upplestri og lát-
bragðalist, Þórður Steindórsson
flutti ávarp. Sýnd var, hiri. fagra
kvikmvnd Tjöld í skógi. Milli
atriða var söngur, bæði fjölda-
söngur og kórsöngur. Auk þess
söng tvöfaldur kvartett drengja.
Frú Guðrún Sveinsdóttir, er dval
izt hefur um skeið á Skógum og
haldið söngnámskeið, stjórnaði
söngnum og annaðist undirleik.
Að síðustu var dansað og lék
einn gestanna frá umdæmisstúk-
unni, Magnús Jónsson, á harmo-
niku fyrir dansinum. Björn
Björnsson, sýslumaður Rangæ-
inga var staddur á skemmtun-
inni. Hann hélt þar snjalla ræðu
og hvatti nemendur skóíans til
bindindis og reglusemi. Hátíð
þessi fór hið bezta fram og var
hinu nýstofnaða félagi til sóma
i hvívetna.
Hinn 1. des. s-.l. gekkst nem-
endafélagið fyrir hátíðahöldum.
Inspector scholae, Daði Sigurðs-
son, flutti ávarp, aðalræðu dags-
ins hél't Óskar Jónsson í Vik.
Skólakórinn söng undir stjórn
frú Guðrúnar Sveinsdóttur. Síð-
an skemmtu nemendur sér við
íélagsvist, en hún á miklum vin-
sældum að fagna í skólanum. Má
segja að félagslíf í skólanum
standi með miklum blórna.
Af góðum gestum sem heim-
sótt hafa skólann í vetur ber enn-
fremur að nefna Kristmann Guð-
mundsson, rithöfund. Ðvaldist
hann á Skógum á vegum bók-
menntakynningara í skólum í
fjóra daga og flutti hin snjöll-
ustu erindi um nokkur öndvegis-
skáld islenzk og las úr verkum
þeirra. ' '
Heilsufar nemenda á Skógum
heíur verið gott, nema hvað háls-
bólga og kvef hafa' stungið sér
niður. Ekki var það þó alvarlegt
og að mestu liðið hjá.
(Frá Skógaskóla).
kennlngarskjal
{ GÆR opnaði kjörbúð SÍS nýja
deild í Austurstræti 10, herrafata-
deild, skódeild og vefnaðarvöru-
deild, þar sem einnig eru seld
Butterick kjólasnið.
1 gær var Kjöibúðinni veitt við-
urkenningarskjal Neytendasamtak
anna fyrir bætta afgreiðsluháttu
og merkar nýjungar í afgreiðslu.
'S’kjalið, sem var hið vandaðasta
og teiknað af Sigfúsi Halldórssyni,
var gert úr pergamentpappír. Á
því stendur „Neytendasamtökin
veita hér með kjörbúð SÍS, Aust-
urstræti W, viðurkenníngu fyrir
merkar nýjungar í afgrefðrfuhátt-
um“. Fyrir hönd Neytendasam-
takanna voru mættir þeir Sveinn
Ásgeirsson formaður og Sveinn
Ólafsson. Við viðurkenningarskjal
inu tóku þeir aðalforstjóri SÍS,
Erlendur Einarsson og verzlunar-
stjóri kjörbúðarinnar, Guðlaugur
Eyjólfsson.
HÖFUIVi OPISIAÐ
JÓLA8ÖLI
Á LÖMPUIH
í Listamannaskálanum
Á boðstólum verða yfir 200 gerðir gólf- og borðlampa
írá Ameríku og Þýzkalandi.
Verð frá kr 50 00
Aldrei hefur sézt eins mikið úrval lampa saman
komið á einurn stað á íslandi.
Sjálfsafgreiðsla.
Fallegur lampi er fögur jólagjöf.
HEKLA H.F.
Verzlunarskóianemendur
Jólagleðin verður haldin í skólanum 1 kvöld. Hefst
kl 9. — Aðgangur bannaður öðrum en nemendum.
SKEMMTINEFNDIN.
ORÐSEIMÐIIMG
hrsí Byggingarsainvinnufélagi Reykjavíkur.
Efri hæð og hálfur kjallari í Barmáhlíð 10 er til-
sölu. — Félagsmenn í Byggingarsamvinnufélagi
Reykjavíkur eiga forkaupsrétt samkvæmt lögum. —
Þeir sem vilja nota forkaupsréttinn, skulu sækja um
það skriflega til stjórnar félagsins, Austurstræti 5,
fyrir 29. þ. m.
STJÓRNIN
DOMUR DÖMUR
Ný sendíng JÓLAIIATTAR
fjölbreytt litaúrval, einnig kuldahúfur
Verzl. JENNY, Laugaveg 76
Bezta jólagjöfin er
Eliznbeth Arden
fegmnarvörur
cMJja lii kn
Morgunblaðið með morgunkaffinu
BEZT AÐ AUGLÝSA
í MORGVmLAÐmU