Morgunblaðið - 18.12.1955, Page 16

Morgunblaðið - 18.12.1955, Page 16
Veðurútlit í dag: Þykknar upp með vaxandi ausi- anátt í kvöld. 290. tbl. — Sunnudagur 18. desember 1955 dagar til jóla Fjögra hreyffla fflugvéfl á fflugfleiðirsni miflfli tveggja fliifuðstaða : FYRRADAG lenti fjögra hreyfla flugvél í fyrsta skipti á hinum nýja flugvelli við Akureyri. Var það Sólfaxi Flugfélags íslands, flugstjóri Jóhannes Snorrason, sem ('ór þessa ferð milli Reykjavíkur og Akureyrar. Markar betta tímamót, því að flugflutningar milli þessara tvegjahöfuðstaða eru orðnir svo miklir, að tímabært fer affi verða að taka stærri flugvélar í notkun á leiðinni. Ferðin milli Reykjavíkur og Akureyrar tekur um klukkustuml með Sólíaxa. — Mynd þessa tók Ljósm. Mbl. Ól. K. M. á Akureyrarflugvelli kl. 11 í fyrrakvöld. í baksýn vinstra megin er ljósadýrðin á Akureyri. Kunniir bátamaður í Niarðvík gerir velheppnaðar veiðitilraunir með súdarvörpu í Miðnessjó Er sannfærður um möguðeikana JR því mun verða skorið áður en langt um líður, hvort 60—100 tonna bátar geti almennt byrjað síldveiðar með síldarvörpu, en í fyrrinótt var gerð slík veiðtilraun úti í Miðnessjó. — Vélskipið Fróði úr Njarðvíkum var þar með síldarvörpu og sagði skipstjór- ínn Egill Jónasson, að lokinni veiðiförinni, að hægt væri að veiða rnikla síld með þessari vörpu. Getur þetta haft stórkostlega þýð- 1 ingu fyrir útgerð bátaflotans, sagði Karvel Ögmundsson útgerðar- maður í símtali við Mbl. í gær. í haust fóru auk togarans Jör- undar til síldveiða í Norðursjó vélskipið Ingvar Guðjónsson og svo Fróði frá Njarðvík. Þessar tilraunir v’oru styrktar af at- vinnumálaráðuneytinu og fiski- máiasjóði. Fróða gekk ekki vel og fyrir um það bil mánuði kom báturinn heim aftur. VÖRPUNNI BREYTT Okkur langaði fil þess að reyna vörpuna hér heima, sagði Karvel Ögmundsson útgerðarmaður, en ótíð heíur hamlað þar til nú fyrir nokkrum dögum Þá fór Egill skipstjóri Jónasson á Fróða með vörpuna til veiða, eftir að hata breytt henni þannig að toga mætti uppi í sjó. Á miðvikudags- kvöldið fór Fróði með vörpuna, en skömmu eftir að byrjað var að toga sprakk hún. Telur Egill sennilegt að það hafi verið síld sem olli því. TILRAUNIN Á fimmtudaginn voru skip- verjar að lagfæra vörpuna og 'komust út aftur kl. 10 um kvöld- í.ð og vai' nú haldið út í Miðnes- sjó. Egill skipstjóri var. fáliðaður, en hér var fremur um veiðitil- raun að ræða, en veiðiför í þess orðs merkingu. — Strax og varp- an var komin í sjóinn kom síld í hana, en þó virtist ekki mikil síld vera þar, samkv. dýptar- mæli. Togað var nokkrum sinn- um í kringum 20 mín. og gekk ,það ágætlega. Togað var á 10— 25 faðma dýpi. Þegar Egill kom úr þessarl veiðitilraunaför, sagði hann mér, sagði Karvel Ögmundsson, að það væri bjargföst trú sín að með þessari vörpu mætti veiða mikla síld, en það tekur tíma að þreifa .iig áfram. Egill Jónasson er kunnur maður i sjómannastétt- ínni og skoðun hans á þessu mjög mikils virði, og sannfærður I er ég um það, sagði Karvel, að þetta getur haft stórkostlega þýðingu fyrir okkur, ef 60—100 tonna bátar gætu almennt hafið síldveiðar hér við land í vörpu. Þessar tilraunir kostar útgerð- arfélag Fróða, Fróði h. f., en Karvel kvað.st vilja þakka stuðn- ing atvinnumáiaráðuneytisíns og fiskimálasjóðs, við sildveiðitil- raunir þær sem gerðar hafa ver- ið í Miðnessjó, t. d í fyrra, en þá hamlaði stöðug ótíð sjálfum veiðitilraununum, en Fróði tók þátt í beim. Góð síldveiði AKRANESI, 17. des. — Síldin ætlar ekki að gera það enda- sleppt við Akurnesinga. í dag komu hingað fimm reknetjabát- ar með samtals 1300 tunnur síld- ar. — Aflahæstir voru Bjarni Jóhann esson með 341 tunnu, Reynir með 314 og Hrefna með 246 tunnur. Öll var síldin fryst. í dag fóru 6'bátar til veiða og ætla að láta reka í nótt. — Oddur. Kveikt á Óslóar- trénu í kvöld -jk-STÓRA jólatréð, sem reist -W- hefur verið á Austurvelli, er jólakveðja til Reykjavíkur frá Ósló. í gær var það skreytt og í dag á að kveikja á því kl. 4. Þá mun Lúðrasveit Reykjavíkur leika jólalög við tréð, en að því loknu mun sendifulltrúi Norð- manna Thorbjörn Christiansen, í fjarveru ambassadorsins, af- henda Reykjavík tréð, en Gunn- ar Thoroddsen borgarstjóri þakk- ar. — Síðan verður kveikt á tug- um ljósapera, sem á því eru og gerir það frú Marie Muller. — Dómkirkjukórinn mun syngja jólasálma, en athöfninni lýkur með því að kórinn, sem verður undir stjórn dr. Páls ísólfssonar, syngur þjóðsöngva landanna. Nýll brauðverð í gær tilkynnti verðgæzlustjóri nýtt hámarksverð á brauðum. — Samkvæmt því kosta fransk- og heilhveitibrauð kr. 3,20, rúgbrauð og normalbrauð kr. 4.40. Mun hér vera um 10% hækkun að ræða. TÓKÍÓ, 16. des. — í dag var komið fram með vantrauststil- lögu í japanska þinginu á utan- ríkisráðherra laridsins. Var hún felld. Tilefni vantraustsins var það að Japan hafði ekki hlotið samþykkt sem aðildarríki S. Þ.! Bilaverkstæði í Ytri P" vík brennor til kaldra kola Tveir bíflar er mu í hásiíui gsreyðiSögðusl UM kl. 1 í fyrrinótt kom upp eldur 1 bílskúr í Ytri-Njarðvíkj sem notaður hefur verið fyrir bílaverkstæðL Voru slökkviliS Keflavíkur og Keflavíkurflugvallar kvödd á vettvang, en vegna erfiðra aðstæðna tókst ekki að bjarga skúmum, sem var eigm Skúla Sveinssonar í Garðshúsum. Brann hann til kaldra kola og allt sem í honum var, þar á meðal tveir bílar. Skýrði slökkviliðs- stjóri Keflavíkur Mbl. frá þessu í gærkvöldi. AÐ MESTU LEYTI UR TIMBRI Verkstæði þetta, var til húsa í bílskúr, sem fyrir nokkru hafði verið stækkaður. Eru veggir stein steyptir en framhlið og þak úr timbri. Bílarnir sem í skúrnum voru voru jeppi og sex manna fólksbíll. Einnig voru geymd í skúrnum áhöld ýmis konar og talsvert af netum. Tókst ekki að bjarga neinu af þvi er í skúrn- um var. ELDSUPPTÖK ÓKUNN Skúrinn var alelda er slökkvi- liðin komu á staðinn. Var eld- urinn mjög magnaður um tíma, en vegna þess að logn var tókst að verja nærliggjandi hús. Ekki er vitað um eldsupptök. ERFIDAR AÐST/EÐUR í 'Ytri Njarðvik eru aðstæður þannig, að ekki er hægt að koma vatnsslöngum slökkviliðsins í samband við vatnskerfi bæjar- ins. Hafa engir vatnshanar ver- ið settir upp í því skyni. Urðis slökkviliðsmenn að sækja vatn- ið á tankbílunum all langan veg„ Seinkaði þetta mjög slökkvi- starfinu. Hekla braot lendmgarljós ER flugvélin Hekla kom hér víð á fimmtudaginn, á leið frá Bandaríkjunum, mistókst lend- ing hennar á Reykjavíkurflug- velli. Lenti flugvélin á girðingu og sleit hana niður og braut eitt lendingarljós á flugbrautinni. Ekki er kunnugt hvað ollá þessum mistökum við lending- una, en loftferðaeftirlitið hefur tekið málið til rannsóknar. Flug- ' vélin hélt áfram ferðinni til I Hamborgár. ÞJOÐMINJASAFNINU BERST GÓÐ GJÖF FYRIR skömmu barst Þjóðminjasafninu myndarleg gjöf frá Kunstindustri Museet í Oslo. Áður hefur þetta safn sent Þjóð- minjasafninu góðar gjafir — en í þetta skiptið var það austur- lenzkur vefnaður og útsaumur. FAGRIR MUNIR Þjóðminjavörður boðaði í gær blaðamenn á fund sinn í tilefni þessa. Eru þetta fagrir vefnaðar og útsaumsmunir, eins og áður segir, og eru þeir um 70 að tölu. Margír munanna eru af óþekkt- um uppruna, en flestir eru þeir tyrkneskir, persneskir og arabisk ir. í dag verður opnuð sýning á mununum — og verður hún í bogasal Þjóðminjasafnsins. Ekki er ákveðið hvað sýníngin mun standa lengi, en fram til jóla verður hún opin á sama tíma og Þjóðminjasafnið. * Framkvæmdastjóri Heklu h.f, Sigfús Bjarnason afhendir frú Ástu Jónsdóttur, Hverfisgötu 27, Hafnarfirði, kæliskápinn, sem hún vann i happdrætti því, er Hekla efndi til meðal sýningargesta, á heim- ilistækjasýningunni, sem lauk í fyrradag. Öll fjölskyldan var mætt, til þess að taka á móti hinum glæsilega vinningi og það kom sér vel fyrir heimilið, því þar var ekki til kæliskápur. Aðrir happ- drættisvinningar voru og afhentir í gær. j

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.