Morgunblaðið - 24.12.1955, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 24. des. 1955
fðýju og gömlu
dunsurnir
i G. T.-HÚSINU
annan jóladag kl. ð
Jóladansleikur
Hljómsveit Carls Billich
Söngvarar: Valgerður Bára og Skafti Ólafsson.
Aðgöngumiðasala frá kl. 5—6 og eftir klukkan 8.
Sími 3355.
!
Annan jóladag
leikur hljómsveit Svavars Gests frá kl. 3,30—5.
IMýju dansamir
klukkan 9. — Hljómsveit Svavars Gests
Aðgöngumiðasala frá kl. 6.
Þriðji jóladagur
Gömlu dansarnir
klukkan 9. — Hljómsveit Svavars Gests
Aðgöngumiðasala frá kl. 8
Ath.: Ósóttar pantanir að áramótafagnaðinum seldar á
miðvikudag.
Þórscafé
Gömlu dansarnir
í Þórscafé á II. jóladag.
J. H. kvintettinn leikur.
Aðgöngumiðasala frá kl. 5.
® ----
Á áramótadansBeiknum
verða GÖMLU DANSARNIR.
J. H. kvintettinn leikur.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 5 27. des.
Silfurtunglið
Dansleikur annan. jóladag
Hin vinsæia hljómsveit JOSE M. RIBA
SILFURTUNGLIÐ
SKATAR
Stúlkur og piltar 16 ára og eldri.
Áramótafagnaður verður í Skátaheimilinu á
Gamlárskvöld kl. 10 e. h.
Góð músik. Aðgöngumiðar seldir í Skátaheimilinu
29. og 30. des. kl. 5—6.
NEFNDIN
Hér ern syslurnar á St. Jósefsspítalanum í Hafnarfirði, og situr príorinnan, systir Marie Hildegardis,
önnur frá vinslri. — Ljósm. Gunnar Rúnar.
Var um 27 ára skeið eina sjúkra-
húsið I Hafnarfirði
NIJ er um það bil verið að leggja síðustu hönd á liina nýju viðbyggingu við St. Jósefsspítalann. Að-
eins er eftir að koma lyftunni fyrir og mála n íðri kjallarann. Vinna hófst við nýju álmuna 2ö.
tnarz 1954 og sá Byggingarfélagið Þór um verkið. Er byggingin öll bin giæsilegasta, og heflr spítalinn
í heild tekið slíkum stakkaskiptum, að sem nýr er.
MARGS KO.NAR ÞÆGINDI
í nýju álmunni eru 4 sjúkrastof
ur fyrir 17 sjúklinga, þar af eitt
barnaherbergi, sem er fyi-ir 3
börn. Auk þessa er herbergi fyrir
lækna, rannsóknarstofa, setustof-
ur, — og á hverri hæð er lítið eld-
hús. Á kvisthæðinni eru herbergi
fyrir systurnar, en í kjallaranum
er ljpslækningastofa: stuttbylgjur,
kvai-tslampar, alls konar ljós-
iækningalampar, — og röntgen-
tæki, sem hafa reyndar verið i
sjúkrahúsinu frá upphafi. 1 neðri
kjallaranum er farið inn í lyftuna
af götunni, og verður hún sett upp
af Vélsmiðjunni Héðni á næst-
unni. 1 sama kjallara er einnig
lílnhús.
★
Sigurgeir Guðmundsson (Hf)
teiknaði viðbygginguna, en Bjami
Snæbjörnsson, sem er læknir spít-
alans, gaf ýmsar góðar ráðlegg-
ingar viðvíkjandi bygginguna. —
Kristinn Magnússon (Hf) og syn-
ir sáu um málningu; .Sigurjón
Jónsson (Hf) um múrverk; Vél-
smiðja Hafnarfjarðar um hita-
lögn og Jón og Þorvaldur (Hf)
um raflagnir.
GEY.SIMIKLVR
ENDURBÆTLR
Með þessari nýju byggingu skap
ast mjög aukið athafnapláss í
spítalanum. Ov KA+'t qpy ^ema
4 sjúkrastofur í nýju álmunni,
hrfir verið hægt að rýma til á svo
margan hátt — sem of langt yrði
að telja upp hér — að spítalinn
er nú að mörgu leyti sem nýr
væri. Hann hefir verið málaður
hátt og lágt með björtum og þægi-
legum litum, sem gefa honum
mjög skemmtilegan blæ.
OFTAST FULLSKIPAÐ
St. Jósefsspítalinn í Hafnar-
firði var reistur árið 192ti af regl
unni, sem við hann er kennd.
Má segja, að nær alltaf síðan hafi
verið iullskipað, en rúm voru þar
fyrir 40 sjúklinga. Reyndar var
harineini spitalinn í Firðinum, þar
til er Sólvangur tók til starfa, —
og leituðu þangað hjúkrunar auk
Hafnfirðinga, fólk hvaðanæva að
af Suðumesjum, allt frarn á síð-
ustu ár. Af þessu má nokkuð
marka, hversu geysilegt líknar-
starf St. Jósefsreglan hefir lagt
af mörkum hér í Hafnaifirði. Það
er ekki svo lítið starf, sem fellst
í því að taka á móti um 400—500
sjúklingum árlega, en sú hef ir tala
þeir-ra oft verið frá því spítalinn
tók til starfa og fram á þennan
dag. Standa Hafnfirðingar og aðr
ir, sem notið haf;v hjúkrunar
í spítalanum í mikilti þakk-
arskuld við systur St: Jósefs-
spítalans, sem ávallt hafa verið
reiðuhúnar að hiúkra hinum s.iúku
Þessi mymí er tekin í hinni nýjn viðbyggingu. — (Ljósm. GRÓ)
og gert það af mikilli alúð og góð-
vild. —
IIAF.4 STARFAÐ HÉR
I MÖRG ÁR
Lengst af hafa 11 systur starf-
að á spítalanum, þar af ein príór-
inna, en alls hafa þær verið
fimm. — Sex af systrun-
um stunda hjúkrun, og liafa þær
laert hana í Danmörku, en hinar
eru við ýmis önnur störf, svo sem
: matreiðslu, í þvottahúsi o. fl. Geta
I má þess, að 7 systranna hafa feng-
ið íslenzkan ríkishorgararétt. —
Sumar af systrunum hafa verið
hér í all-mörg ár, og ein þeirra,
systir Albina, eíðan spítalinn tók
til starfa. En samtals hefir hún
nú verið hér á landi um 40 ára
skeið, og lengstum starfað í skurð-
stofu spítalans. Annars má geta
þess, að elzta systir St. Jósefs-
reglunnar hérlendis er nú oi'ðin 92
ára og heldur til á Landakoti.
!
GÖÐ ADSÖKN AD SKÓLAMJM
Síðan 1930 hefir kaþólska trú-
boðið rekið skóla fyrir börn, og
var hann fyrst í tveimur litlum
húsum, sem eru rétt við spítalann.
En þau reyndúst brátt alltof lítil,
og var þá reist hið glæsilega skóla-
hús, sem fullgert var árið 1938.
Hefir aðsókn að skólanum ávallt
verið góð, núna eru t. d. í honum
rúmlega 100 börn. Skólastjóri er
systir Marie Lioba, en auk henn-
ar eru við skólann nokkrir íslenzk-
ir kennarar.
★ ★ ★
Systurnar á spítalanmn taka dag
>nn snemma. Þær rísa úr rckkju
kl. 5 árdegis, en kl. 6 ganga þær
i kirkju, þar sem þær Iilíða messu
hjá prestunum á Jófríðarslöðum.
Vinnudae'uritin hefst kl. 7, og unn-
Ið stanzlaust til kl. hálf þrjú, en
þá fá þær frí frá störfum til kl. 4
o<: einnig kl. 8—9 á kvöldin, en
iið þcim tíma liðnum gunga ]>ær
til rekkju.
Á næsta ári verður þess minnzt
í Danmörku, að þá eru 100 ár lið-
in síðan fyrstu svstur St. Jósefs-
reglunnar komu þangað frá Frakk
landi, en þar var reglan stofnuð.
Systurnar, sem eru hér á spítal-
anum, komu frá Danmörku, þar
sem þær hafa starfað, en eru hins
vegar allar þýzkar að uppruna
nema ein, sem er pólsk. — G. E.