Morgunblaðið - 30.12.1955, Síða 1

Morgunblaðið - 30.12.1955, Síða 1
16 síður 42. árgangur 298. tbl. — Föstudagur 30. desember 1955 Prentsmiðja Morgunblaöetns Uppdráttur af svæðinu við norðurenda Tjarnarinn ir. Ramminn sýnir það svæði, sem Ráðhúsinu er ætl ð Ráðhúsinu valinn staður Æðstaráðið lauk fundum í gœr Hefur Krusjeff ndð yfirhöndinni? Moskva, 29. des. Reuter-NTB. ÆÐSTARÁÐ Sovétríkjanna lauk í dag fundum sínum eftir að hafa samþykkt skýrslu Krusjeffs og Bulganins um för þeirra suður til Indlands, Burma og Afghanistans. Tóku þeir báiðk til máls — og sagði Krusjeff m. a., að brezkir ráðamenn í Indlandi hefðu verið ránsmenn í orðsins fyllstu merkingu. viú n&rðurenda íjarnarinnar Allii bæiarfalitrúiir samþykkja tillöga borgarst|óra ó fundi bæjarstjérnorinnar í gærkvöldi 1G Æ B kom til umræðu og atkvæðagreiðslu á bæjar- stjórnarfundi sú till. borgarstjóra, sem skýrt var frá i blaðinu í gær, að Ráðhúsi Keykjavíkurbæjar yrði valinn staður við norðurenda Tjarnarinnar. Borgarstjóri tók fyrstur til máls; gerði hann grein fyrir aðdraganda og efni tillögunnar og fer útdráttur úr ræðu hans hér á eftir. LANGUR AÐDRAGANDI Hugleiðingar og umræður um Ráðhús í Reykjavík eiga sér lang- an aldur og aðdraganda. Eitt hið íyrsta, sem um þetta mál er rit- að, er í ritgerð eftir Tómas Sae- mundsson, sem birtist í tímarit- inu Fjölni árið 1835. Þar ræðir Tómas framtiðarskipulag Reykja- víkur og vikur að torgi, þar sem meðal annara stórhýsa þurfi að standa „ráðstofa“. Það elzta sem er um þetta mál í plöggum bæjarstjórnarinnar er írá árinu 1918, en þá ræðir Knud Ziemsen borgarstjóri, á bæjar- stjórnarfundi um skipun nefnd- ar til að athuga stað fyrir Ráð- hús. Upp úr þessu var það, að borgarstjórinn skrifaði ríkis- stjórninni bréf, þar sem óskað er eftir, að hún láti bænum í té lóð á Arnarhólstúni fyrir Ráðhús. — Ekki sést að svar hafi íengizt eða máiinu hafi síðar verið haldið íram. Frá 1920 til 1940 er oft rætt um stað fyrir Ráðhús, bæði í bæjar- stjórn, blöðum og mannfundum. Stungið var upp á mörgum stöð- um, m.a. var talað um Skóla- vörðuhæðina, en það þótti fjar- stæða, vegna þess hve langt hún væri út úr bænum. Á árinu 1941 var kosin ráðhúsnefnd, en í henni voru Guðmundur Ásbjörnsson, Bjarni Benediktsson, Jónas Jóns- •on, Jón Axel Pétursson, Helgi H. Eiríksson og Sig. Thoroddsen, yngri Þessi 6 manna undirbúnings- nefnd fjallaði um málið og í maí 1943 samþ. nefndin einróma að Sex manna undirbúningsnefnd fjallaði um málið og í maí 1943 samþykkti nefndin einróma að mæla með því að Ráðhúsið yrði staðsett á uppfyllingu nyrzt í Tjörninni, en að Tjörnin yrði stækkuð annars staðar því tii uppbótar, sem þarna misstist. — Máiið var rætt á bæjarstjornar- fundi 20. maí 1943, en tillagan um staðinn kom ekki til atkvæða. HUGiMYNDASAMKEPPNI Þessi uppástunga vakti mikil blaðaskrif og ýmsar éistæður voru færðar fram gegn henni. Það helzta var að slík stórbygg- ing mundi skerða Tjörnina um of og auk þess væri þarna því- líkt kviksyndi, að það væri bæði illt og dýrt að byggja. Á næsta ári er bæjarstjórn bú- in að taka aðra stefnu því þá ákveður hún að reisa skrifstofu- hús fyrir bæinn og stofnanir hans norðanvert í Arnarhólst- túni. Málið var undirbúið og út- boð gert, en framkvæmdir féllu niður. í árslok 1945 var efnt til hugmyndasamkeppni um Ráðhús. Skyldi þar miðað við þrjá staði, norðurenda Tjarnarinnar, Grjóta þorpið gegnt Austurstræti og loks syðri hluti Grjótaþorps- ins að Túngötu. Dómnefndin vnai engin ryrstu verðlaun veita en 2. verðlaun voru veitt fyrir til- lögu um Ráðhús á lóð Miðbæj- arbarnaskólans og á lóðinni sunn an tíOKmöðustigs. 3. verðlaunum var skipt milli tveggja manna, sem iögðu til að húsið yrði byggt í Vonarstræti. Allar tillögurnar, sem Komu fram miðuðust við j Tjörnina, en engin við Grjóta- þorpið. I EINROMA TILLAGA UM STAÐ NORÐAN VIÐ TJÖRNINA j í marz 1952 ósKaði núverandi borgarstjóri eftir því, að skipu- lagsnefnd léti í té álit um alla staði, sem orðaðir hefðu verið í sambandi við ráðhúsbyggingu. Álit barst í ágúst 1952 og fjallaði það um 16 staði, sem ncfndin sérstaklega tók til ineðferðar, en niðurstaðan var sú, að hún mælti einróma með norðurenda Tjarnarinnar. Nefndin tók fram, að ef það yrði álit bæjarstjórnar að Ráð- húsið ætti að standa fyrir utan hinn gamla kjarna bæjarins, þá yrði því valinn staður við Háa- leiti, við syðri bakka grjótnáms hafnarinnar. Borgarstjóri fól síðan bæj- arverkfræðingi að athuga aðstöðu til byggingar við norð urenda Tjarnarinnar. Voru boranir gerðar og gáfu 4 verkfræðingar það álit að ekkert væri því til fyrirstöðu, tæknilega séð eða vegna kostn aðar, að byggja Ráðliúsið við Tjarnarendann. HVE STÓRT Á RÁÐHÚSID AÐ VERA Skerðing Tjarnarinnar var allt af helzta mótbáran, en þó er stærð hússins auðvitað meginat- riðið, en í því sambandi verður að gera sér grein fyrir nokkrum megin sjónarmiðum, svo sem þeim, hvaða hlutverki slikt hús eigi að gegna, hvort eigi að safna saman öllu, sem viðkemur bæn- um og stofnunum hans. Fyrir 10 til 12 árum var jafnan hugsað um stórt hús eða minnst 40—50 þús. rúmrn., en það er jafn stórt hús og Háskólinn, Sjómannaskólinn og Heilsuverndarstöðin til sam- ans. Augljóst var að svo stórt hús væri ekki hægt að byggja, Frh. á bls. 2 Selwyn L!oyd LONDON, 29. des. — Hinn nýi utanríkisráðherra Breta, Selwyn Lloyd, tók í dag í fyrsta skipti á móti sendifulltrúum erlendra ríkja. Það er venja erlendra sendimanna í London, að ganga á fund utanríkisráðherra eftir að ráðherraskipti hafa orðið. í dag var það ambassador Norðmanna, sem fyrstur gekk á fund hins ný- skipaða utanríkisráðherra. Hon- um fylgdu ambassadorar Svíþjóð- ar, Kúbu, ísraels og Brazilíu. — Reuter. yfirtýsing LONDON, 29. des. — Undirbún- ingi að stofnun lýðveldis í Súdan fer nú brátt að verða lokið. Egypska stjórnin lét þess getið í dag, að Egyptaland og Bretland mundu viðurkenna sjálfstæði Súdan í sameiginlegri yfirlýs- ingu. Nefnd stjórnarinnar er nú á förum héðan til Kairo til þess að vinna að yfirlýsingu þessari. ÓTTAST ER UM HOLLENSKT SKIP BLYTH, 29. des. — Saknað er hollensks skips, Rudy, að nafnl. Er skipið 211 smálestir að stærð og áhöfnin 10 menn. Ekkert hef- ur til skipsins spurst í tvo daga — eða frá því að það lagði upp frá Elva Tees á leið til Blyth á austurströnd Englands. Skipstjór inn er eigandi skipsins. Ef enn verður ókunnugt um afdrif Rudy á morgun, mun enski flugherinn hefja leit að skipinu i birtingu. —Reuter. Páfinn fordæmir kommiíniskt réttarfar RÓM, 29. des. — Píus páfi 12. fordæmdi enn í dag hina órétt- mætu fangelsun Wyszynski kardínála og hinar taumlausu og ofstækisfullu aftökur kirkjunnar manna í Póllandi. Kardinálinn var handtekinn í Varsjá í sept. 1953 og hefur verið í haldi þar síðan án réttarhalda eða sekt- arsönnunar. Sagði páfi, að slíkt framferði væri fordæmt af öllum þjóðum þar sem frelsi væri ekki orðið tómt. —Reuter. TVÍÞÆTT STEFNA í UTANRÍKISMÁLUM Fundur ráðsins hefur staðið frá 26. þessa mánaðar, og hafa mörg mikilvæg mál veríð þar til umræðu. Eftir umræðurnar um utanrikismálin er það sýnt, að stefna Rússa í utanríkismálum og samvinna þeirra við önnur lönd mun í framtíðinni verða tvíþætt. í fyrsta lagi munu þeir hafa nána samvinnu við öll þau ríki, sem þess óska — og þá sérstaklega A.úurikin. I öðru lagi mun samband þeirra og samvinnuviðleitni viff Vestur- veldin verða takmörkHff svo sem hingað tii, og' mm verða bundin þeim ályktunum, er leiðtogarnir gerðu eftir Genf- arfund utanríkisráðherranna í haust. FORDÆMDI BANDALÖG ANDKOMMÚNISTA Bulganin lagði á það megin- áherzlu í ræðum sínum, að Rúss- ar fordæmdu alla nýlendupólitík — og að Rússar væru jafn fúsir sem áður til þess að ganga til samstarfs við Vesturveldin. Hann fordæmdi varnarbandalög þau, sem andkommúnisku ríkin í Asíu hafa gert með sér og réðist harkalega á Breta fyrir hlutdeild þeirra í Bagdad-bandalaginu. VÖLD KRUSJEFFS VAXA Ræða Krusjeffs var mun styttri en Bulganins, en þrátt fyrir það vék hann að fleiri ágreiningsatriðum í sambúð austurs og vesturs. Mátti ráða það af ræðu hans, að hann talaði bæði sem formaður kommúnista- flokksins og sem utanríkisráð- herra. Ber það þess vott, að völd Krusjeffs fara nú sívaxandi, svo sem ýmsir hafa spáð. Einkar athyglisvert má telja þaff, aff sjálfur utanríkisráff- herrann, Molotov, skyldi ekki taka til máls, þar eff utanríkis- málin voru til umræffo. Ekbi hentnr tíl sætta í Moloya MALAYA, 29. des. •— Tilraunin til þess að binda endi á hina átta ára gömlu deilu og styrjald- arástand' í Malaya virðist hafa farið út um þúfur. Kommúnistar hafa rofið vopnahléið, sem gert var til þess að reyna að koma á sættum. Yfirvöldin í Malaya ■ gerðu kommúnistum tvð úrslita tilboð. Var annað þess efnis, að þeir gæfu sig fram og hin lög- lega stjórn landsins hæfist handa og tæki mál þeirra til rannsókn- ar, eða þá, að þeir hyrfu á brott hið skjótasta og færu aftur til Kína, en þaðan eru þeir flestir komnir. Kommúnistar hðfnuðli báðum kostum, sem að líkindum llætur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.