Morgunblaðið - 22.04.1956, Blaðsíða 8
24
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 22. apríl 1956
rsmiður
Viðtal við Kristján Halldórsson
að Stóru-Tjörnum i Ljósavatnsskarði
í SÍÐSUMARSÓL skrapp ég að smíðað klukkukassa fyrir stór-
Stóru-Tjörnum í Ljósavatns- | lóðaverk allt að 2 m. háum. Sýn-
skarði. Hafði rnér lengi leikið
hugur á að heimsækja þetta
kunna myndarheimili til þess að
skoða það, sem svo óvíða er til
á íslenzkum heimiluni hvorki til
sjávar eða sveita — heimaunninn
listiðnað hvers konar. Stóru-
Tjarnabræður hafa um langt
skeið eins og kunnugt er getið
sér mikið orð og gott fyrir frum-
lega listhneigð á mörgum svið-
um. Má raunar segja að hið veg-
lega íbúðarhús, er systkinin hafa
byggt sér, sé abt skreytt heima-
gerðum málverkum og listmun-
um.
Þetta blasir við gestsauganu
strax og stigið er inn úr dyrunum
og hlýtur hver að verða snort-
ir Kristján mér einn slíkan kassa
úr hnotu og annan úr birki,
skreytta útskurði og hefi ég
hvergi séð neitt hliðstætt, sem
þolir samanburð, svo eru þetta
fagrir og listilegir gripir.
GAF AKUREYRARKIRKJU
STUNDA OG SLAGKLUKKU
— Gafst þú ekki Akureyrar-
kirkju klukku?
— Jú, ég gaf Akureyrarkirkju
stunda- og slagklukku til minn-
ingar um konu mína. Friðbjörgu
Vigfúsdóttur frá Guliberastöðum
í Borgarfirði, sem ég missti eftir
aðeins 2 ára sambúð. Var klukk-
an smíðuð í Svíþjóð og spilar
kiukkan lag, sem Björgvin Guð-
mynda hans er mikill og fer hann
ekki á troðnar slóðir með val
efnisins og túlkun á list sinni og
hugmyndum. Eru viðfangsefnin
sprottin upp úr hans eigin huga
og ævintýraheimi sögu og sagna.
DÆGURMÁL
— Hvað getur þú sagt mér af
dægurmálunum og viðhorfi þínu
til þeirra?
— Því er erfitt að svara í stuttu
máli. Mér finnst þó frá sjónar-
miði sveitamannsins, sem mér
finnst ég alltaf vilja vera sjálfur,
þótt ég hafi verið búsettur í kaup
stað í áratugi, að það sé alvarleg
asta og jafnframt athyglisverð-
asta við mál dagsins, sé það hvað
allt jafnvægi sveita og kaup-
staða sé úr skorðum gengið. Fólks
leysi sveitanna virðist ætla að
gera út af við bændurna og hús-
freyjurnar, og er nú komið svo
að ekki virðist um annað að gera
en fá útlent verkafólk til sveita-
Kristján Hallciórsson úrsmiður með eina af klukkum sínum.
inn af hinum mikla frumleik lita : mundsson tónskáld samdi og á að j starfa ef bændurnir eiga ekki að
og lína er mætir sjónum manns
hvarvetna. Mun Aðalgeir Hall-
dórsson eiga þar stærstan hlut í
veggskreytingunni, en bræður
hans Bjarni og Sigurður starfa
hins vegar að stærri smíðum úr
tré og járni, en allir eru bræð-
urnir frábærlega listhagir og
framtakssamir. Hafa þeir m.a.
lagt hitaveitu í bæinn um lang-
an veg og reist rafstöð.
Á sviði listarinnar hefir þó
Kristján bróðir þeirra verið af-
kastamestur og fjölhæfastur,
enda var för minni sérstaklega
heitið til hans að þessu sinni.
Kristján Halldórsson er fæddur
að Stóru-Tjörnum 1888 og er því
einn af aldamótakynslóðinni eins
og hann sjálfur segir og hefur
því reynt margt um dagana.
Kristján tekur mér mjög alúðlega
þótt heilsan sé ekki sem bezt upp
á síðkastið — þegar ég bið hann
að segja mér eitthvað um ævi
sína og starf.
URSMIÐUR
19 ára byrjaði ég að læra úr-
smíðar hjá Sigmundi Sigurðssyni
á Akureyri og lauk því námi á
2Vz ári. Síðan hefi ég svo verið
starfandi úrsmiður — lengst af á
Akureyri — og vantar mig nú
aðeins 2 ár til þess að hafa stund-
að þá iðn í 50 ára. Árið 1914 byrj-
aði ég svo að reka mitt eigið úr-
smíðaverkstæði á Akureyri.
Hafði ég síðar hljóðfæraverzlun
með, sem þá var algjör nýjung
á Akureyri.
— En hvað um klukkusmíð-
arnar? Hefur þú ekki smíðað
þessar klukkur, sem hér eru .
inni? j
— Jú, ég hefi nokkuð gert að i
því líka að smíða klukkur Hefi i
ég m. a. smíðað 4 klukkuverk að J
öllu leyti og einnig klukkur með j
lóðaverki, sem slá og ganga 8
daga í einu. Sömuleiðis hefi ég
tákna mannsævina.
Sýnir þessi vegiega gjöf bezt
mat Kristjáns á Stóru-Tjörnum
á hinni látnu eiginkonu sinni.
Að sögn Kristjáns hefði klukk-
an kostað yfir kr. 300.000,00 sam-
kvæmt núverandi verðlagi.
DRÁTTLISTAR- OG
MYNDSKURÐARMABUR
— Hér eru bæði útskornir
munir og málverk, segir ég við
Kristján.
• i
örmagnast af hinu daglega striti.
Þetta krefst þó erlends gjald-
eyris á sama tíma og Alþingi er
að semja uög um atvinnuleysis-
tryggingar fyrir þá sem í þétt-
býlið flytja til auðveldari starfa,
ábyrgðarminni með 3 vikna or-
lofi og 65 helgidaga frí á ári, sem
þó eru betur launuð í ofanálag, en
eins og kunnugt er, verða bænd-
urnir að vinna alla helgidaga
ársins fyrir dagvinnukaup.
Samræming lífskjaranna og
Stóru-Tjarnir á Ljósavatnsskarði.
— Já, ég bregð þess háttar
föndri fyrir mig stöku sinnum,
mér til gamans og dægradvalar.
Var ég eitt sinn að nema drátt-
list því að hugur minn hneigðist
nokkuð að þeim hlutum og var
ég á listmálaranámskeiði hjá
Hauk 'Stefánssyni í því skyni.
Myndskurð hefi ég einnig svo-
lítið iðkað í frístundum mínum
frá úrsmíðunum, en vinnutíminn
hefur oft verið langur og frístund
irnar fáar frá aðalstarfinu, sem
ég hefi setið við oft 10—12 st. á
dag.
Mjög athyglisvert er að skoða
þessi listaverk Kristjáns, sem eru
gædd mikilli fjölbreyttni og sér-
stæðu hugmyndaflugi. Frumleiki
Sýnishorn af listmunum Kristjáns, útskorin bókahilla
málverk — álfabrenna og stúlkumynd.
og tvö
lífsaðstöðunnar í sveit og við sjó
er því að mínu áliti eitt stærsta
mál þjóðar okkar eins og nú
horfir og mikið og vandasamt
hagfræðispursmál, ásamt efna-
hagsmálunum.
RÍKISÚTVARPIÐ
— Hvað viltu segja um Ríkis-
útvarpið?
— Ríkisútvarpið á að vera rödd
þjóðarinnar. Það á að flytja þjóð-
leg fræði bæði forn og ný,
bæði skáldverk og leiklist svo að
þjóðin haldi áfram að meta þessa
sérstæðu menningararfleifð ísl.
þjóðarinnar, sem hvergi á sinn
líka. Mér finnst sjálfstæðishugur
útvarpsins til hinna innlendu
skáldverka helzt til þröngur, sem
bezt sést á því, hvað mikið er
flutt af erlendu efni — sumu
beinlínis óþjóðlegu eins og t.d.
sum leikrit eru.
Ef við eigum að vera leiðandi
þjóð á alþjóðamælikvarða, eins
og dr. Helgi Péturss spáði og nú
Adam Ruderford, þá verðum við
að varðveita tunguna og hinn
dýpri menningararf. Um tónlist-
ina er það að segja, að mér finnst
alltof mikið flutt af erlendri tón-
list, en of lítið af tónverkum
innlendra höfunda. Eins og kunn-
ugt er, er Ríkisútvarpið hið allra
mikilvægasta menningartæki ef
vel er á haldið og varðar því
miklu að uppeldisáhrif þess séu
holl og þjóðleg.
— Hvaða framfaramál telur þú
mikilvægust fyrir okkur Þing-
eyinga?
— Því er fljótsvarað, Ég tel að
það séu rafmagnsmálin, hagnýt-
ing jarðhitans og bygging niður-
suðuverksmiðju.
RAFMAGNSMÁL
— Eins og þú veizt, eru raf-
magnsmálin þýðingarmestu vel-
ferðarmál sveitanna, ef þau verða
framkvæmd með viðráðanlegum
kostnaði fyrir bændur.
Hafa margir bændur í sýslunni
sýnt lofsvert framtak og áhuga á
því ag leysa þessi mál með bygg-
ingu vatnsaflsstöðva og hygg ég
að samanlögð orkuframleiðsla
þeirra sé ekki undir 400 kw.
Þetta framtak bændanna þyrfti
að styðja og örfa því að með
þessu verður lokatakmarkinu —
rafmagn á hvert heimili — fyrst
náð, enda hefur reynslan sýnt að
þetta er ódýrasta rafmagn, sem
völ er á.
HAGNÝTING JARÐHITANS
Hér í sýslunni er mikil orka
bundin í iðrum jarðar bæði í
Námaskarði og Reykjahverfi.
Hagnýting þessara auðlinda er
framtíðarmál héraðsbúa. Það
þarf að leiða heita vatnið úr Uxa-
| hver til Húsavíkur. Þessi orka
! mundi nægja 5 þús. íbúa bæ til
! húshitunar, en sparnaðurinn í er-
! lendum gjaldeyri mundi strax
i nema um 2 milljón króna sam-
! kvæmt íbúatölu Húsavíkur nú.
Þarf ríkið að styðja þessa þýð-
j ingarmiklu framkvæmd.
NroURSUDUVERKSMIÐJA
í sambandi við hitaveituna þarf
að reisa niðursuðuverksmiðju á
Húsavík og mundi sú fram-
kvæmd styðja rekstur beggja fyr-
irtækjanna.
Á Húsavík eru ágæt skilyrði
fyrir hendi fyrir verksmiðjuna,
fjölbreytt hráefni, sem til fall-
ast á staðnum og úr héraðinu. Má
þar néfna margs konar ferskar
sjávarafurðir, silung og lax úr
veiðivötnum og ám, sem hvergi
fyrirfinnast betri, ásamt nýju
dilkakjöti og öðrum sláturafurð-
um, er haía getið sér ágætt álit
á erlendum mörkuðum.
Þannig bíða framfaramálin úr-
lausnar eitt af öðru, og óska ég
einskis fremur en að þingeyskum
áhuga- og athafnamönnum megi
takast að hrinda þeim í fram-
kvæmd sem allra fyrst, svo að
sýslan okkar — þótt kaldlynd sé
stundum — þurfi ekki að standa
að baki öðrum héruðum um lífs-
kjör og framleiðslumöguleika.
Þannig fórust Kristjáni Hall-
dórssyni á Stóru-Tjörnum orð. er
ég kvaddi hann með þakklátum
huga fyrir hina eftirminnilegu
samræðustund. Mér fannst þetta
vel mælt og karlmannlega eins og
vænta mátti af slíkum ágætis-
manni. Var ekki að sjá að hinn
aldni úrsmiður, sem á nú því
miður við vanheilsu að búa um
sinn, láti það á sig fá, eða það
lami hinn sanna framfaravilja
eða listræna smekk, sem er
íklæddur drengskap, ættjarðar-
I ást og átthagatryggð. H. G.
Happdrœttislán r'skis-
sjóðs
500,00 króna vinningar í happ- 14030 14527 14537 15142
drættisláni ríkissjóðs: 15234 15421 15425 15826
1251 3075 4550 4701 16138 17387 17392 17468
5456 6045 7464 8657 18438 18929 19201 19880
9480 9734 10151 11639 20533 20992 22198 22729
12156 13376 15552 15712 23751 23780 23902 24232
15948 15986 16086 16584 25382 25522 25658 26040
16614 16918 17552 20302 26044 26248 26646 26899
24474 25734 25957 26033 26902 27502 29079 29542
30537 31332 32519 34351 30008 31387 31937 32251
34559 34833 36591 37785 32487 32621 32958 33135
39263 39694 40114 40830 33344 34978 35198 35528
41902 43806 48924 49022 35757 36041 36143 36475
49142 45875 51750 53485 36910 37059 37484 38767
53750 54122 55829 56510 38791 39237 39971 40077
58998 59269 60756 61150 40537 41477 41587 43178
63392 64754 66636 68113 44302 44742 45331 46102
68490 69236 69377 69567 46214 46243 48904 49074
70325 70456 70864 71166 49416 49515 49844 49880
71805 73226 74025 74405 50097 50701 52037 52547
76168 77934 79897 82389 52624 53139 53202 54566
89572 90583 91289 92199 55786 55802 56334 57163
95238 95821 96166 96406 57784 58305 58816 58987
96662 97776 98176 98239 59451 59854 60469 60835
98568 101528 105675 106406 61458 62610 62715 62970
107812 107822 107998 109674 63982 64800 65106 66619
110207 111740 111804 115612 66632 68063 68824. 70526
117612 119876 120173 121291 70541 72934 73967 75710
122345 122622 122841 123937 75952 76215 77967 78944
125653 127105 128069 129733 79843 80289 80947 81240
130317 131304 133821 134068 81768 82521 82778 82878
134202 135935 136028 137083 83042 83229 83514 84140
137788 140406 140568 142186 84789 84912 85191 85533
143467 143764 144190 146810 85687 85705 85755 85808
147922 148550 86136 86746 86953 87816
88155 88468 89157 89331
250,00 krónur: 89942 89985 90263 90628
32 1516 1861 1898 91212 91837 92094 92608
1919 2267 2451 2529 94206 94611 96088 97121
3422 4281 4737 5152 97247 97809 98996 99256
5712 7069 8217 9907 99409 99572 100029 101079
10116 10197 11470 11870 102200 102216 104069 104475
11944 12425 12524 13478 | Frh. á bls. 29