Morgunblaðið - 04.05.1956, Page 1
16 síður
M. árgsapb
100. tbl. — Föstudagur 4. maí 1956
Prentsmiði* Horgunbl«tit*i
Lægsiir tollar ai naaðsynlegiun neyzluvörnnt
— Frjóls verzlun tryggi hóflegt vöru-
— Santvinnufólögin standi nton við póli-
iískar flokkadeilur
Hér fara á eftir ályktanir 12. landsfundar Sjálfstæðisflokksins
um fjármál, skattamál, verzlunarmál og samvinnumál:
FJÁRMÁL OG SKATTAMÁL
LANDSFUNDUIIINN felur miðstjórn og þingmönnum
Sjálfsíæðisflokksins að vinna ötullega að því að styrkja grund-
Völl atvinnu- og fjármálalífs þjóðarinnar, m. a. með því:
1) Að veita einstaklingsframtaki og félagsrekstri aðstöðu til að
safna nægjanlega miklu eigin fé, til viðbótar rekstrariánum
bankanna, til þess að framleiðslustarfsemin verði rekin með
eðlilegum hætti.
2) Að tollaálögum verði hagað þannig, að jafnan verði greiddir
lægstir tollar af öllum nauðsynlegum neyzluvörum til fram-
íærslu almennings í landinu, svo og af öllum vörum til út-
flutningsframleiðslunnar og nauðsynlegustu fjárfestingar, en
tollaðar verði til hins ýtrasta allar óþarfavörur, hvort heldur
eru til eyðslu cða fjárfestingar, til þess á þann hátt að spyrna
fótum við óþarfa eyðslu í landinu.
SAMKEPPNIN HALDI VÖRUVERÐI NIDRI
2) Að greitt verði sérstaklega fyrir viðskiptum við þau lönd, sem
hagkvæmast er að hafa viðskipti við, svo að verðgildi útflutn-
ingsvörunnar geti notið sín að fullu, svo og að verzlunin sé það
frjáls, að samlteppnin megni að halda niðri vöruverðinu í
landinu.
4j Að haldið verði áfram endurskoðun skattalaganna, svo sem
lofað var, á þeim grundvelli, sem markaður er með tillögum
', landsfundarins 1953. Harmar fundurinn, að þessu verki heíur
ekki verið lokið. Fclur hann miðstjórn og þingmönnum flokks-
1 ins að vinna ötullega að því, að endurskoðuninni verði lokið
sem fyrst, um leið og hann þakkar þann þátt sem Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur átt i þeim umbótum, sem þegar hafa fengizt.
GREIÐSLUHALLALAUS FJÁRLÖG
5) Að gætt sé fyllsta sparnaðar í fjármálum rikisins, og að fjárlög
séu jafnan afgreidd greiðsluhallalaus. Þakkar fundurinn Sjálf-
stæðismönnum á Alþingi fyrir þá ábyrgðartilfinningu, sem þeir
hafa jafnan sýnt við afgreiðslu fjárlaga, aiveg án tillits til þess,
hvaða flokkur fer með fjármálin í ríkisstjóm. Fundurinn harm-
ar þær miklu umframgreiðslur, sem orðið hafa árlega á ríkis-
reikningum og koma fram í aukafjárlögum, og telur að gera
beri sérstakar ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir þær,
m. a. með því að hafa mikið strangara eftirlit með eyðslu ríkis-
ins en gert er, og vill í því sambandi benda á, hve nauðsynlegt
er að samþykkja frumvarp Gísla Jónssonar um eftirlit með
rekstri ríkisins og rikisstofnana, sem hann hefur borið fram á
undanförnum þingum, en ekki hefur náð fram að ganga.
VERZLUNARMÁL
• Sjálfstæðisflokkurinn hefur ætíð talið frjálsa verzlun eitt af
frumskilyrðum fyrir góðri afkomu almennings í landinu. Þess vegna
hefur hann barizt fyrir afnámi verziunarhafta og gegn ihlutun hins
opinbera um verzlun og viðskipti.
í samræmi við þessa stefnu flokksins, telur fundurinn höfuð-
nauðsyn, að þess sé gætt, að jafnvægi haldist í efnahagskerfi
landsins, því að án þess verður ekki til lengdar haldið uppi frjáls-
um og heilbrlgðum viðskiptum. Ber þess vegna að stefna mark-
visst að því, að Iciðrétt sé svo fljótt sem unnt er það misvægi í
efnahagskerfinu, sem nú gerir vart við sig og valdið hefur erfið-
leikum með lánsfé og gjaldeyri. Varanleg stöðvun verðbólgunnar
er fyrsta skrefið til þess að ná þessu marki.
INNFLUTNINGSHÖFT engin LÆKNING
• Fundurinn leggur áherzlu á, að ekki verði gripið til innflutn-
ingshafta í því skyni að leiðrétta að einhverju leyti misvægið í
efnahagskerfinu, enda hefur reynslan sýnt, að með innflutnings-
hþftum ojr verðlagsákvæðum fæst engin lækning í þessu efni og
slíkar ráðstafanir veita hagsmunum almennings enga vernd.
Fundurinn vill benda á, að mikil nauðsyn er að gæta þess, að
samdráttur sá sem nú á sér stað í útlánum bankanna leggist ekki
mcð meiri þunga á verzlunina en aðrar atvinnugreinar. Heilbrigðri
verzlun verður ekki haldið uppi í landinu nema hæfilegt lánsfé
fáist til rekstursins.
HÓFLEGT VÖRUVERÐ
9 Fundurinn telur afar mikilvægt að eðlilegt vöruframboð,
heilbrigð samkeppni og frjálst verðlag geti haldizt í verzluninni,
þvt að það tryggir atmenningi bezt hóflegt vöruverð og fyrirbyggir
sjúklega verzlunarhætti, sem jafnan fylgja ófrelsi og höftum í
viðskiptum.
Verzlunarfyrirtækjum sé gert kieift að koma upp hentugu at-
vinnuhúsnæði.
‘ Frh á bls. 2.
Undirnefnd afvopnunar-
nefndar S.Þ. sleit fundi sínuni
í London í gær án þess að
samkomulag næðist um eitt
einasta atriði dagskrárinnar.
Q-
-L'
Öll danska þjóðin stendur á öndinni
15 ÁRA STÚLKA
HVERFUR SPORLAUST
Eftir 10 daga leit er löcreglan jafn nær
DANSKA lögreglan hefur nú með höndum rannsókn eins dular-
fyllsta máls, sém hún hefur glímt við í lengri tíma. Og það
er ekki nóg með að allt hafi verið sett á annan endann í bæki-
stöðvum lögreglunnar, því að segja má, að öll danska þjóðin standi
á öndinni af eftirvæntingu eftir að mál þetta upplýsist. Það ér
hvarf 15 ára gamallar stúlku, sem hér er um að ræða — og eftir
10 daga víðtæka leit og rannsókn er lögreglan jafn nær að heita má.
Ismay lætur af embætti
Ráðherraíundur NATO hefst í dag
París 3. maí.
AMORGUN hefst ráðherrafundur Nato, og eru flestir ráðherr-
anna þegar komnir til börgarinnar. Hafa þeir átt óformlegar
viðræður í dag, og ræddu m. a. utanrikisráðherrar Breta og Banda-
ríkjamanna um heimsókn þeirra Kúsjeffs og Búlganins til Bret-
lands á dögunum. Margvísleg málefni verða tekin til umræðu á
fundinum, og eitt aðalmálið verður nánari samvinna bandalags-
þjóðanna í efnahagsmálum — með tilliti til hinnar nýju utanríkis-
rnálastefnu kommúnista.
I SAMKOMULAGSÁIT
UM SAAR
Rætt veríður ujm deilumálin
fyrir botni Miðjarðarhafsins, af-
vopnun og Þýzkalandsmálin ■—
auk fjölda annarra mala. Mikinn
fögnuð vakti það í dag, er til-
kynnt var, að fulltrúar Þjóðverja
og Frakka hefðu setið á rök-
stólum — og mörg ágreinings-
mál viðvíkjandi Saar væru nú
leyst.
ÓVÍST HVER EFTIRMAÐUR-
INN VERÐUR
Blaðamenn áttu tal við Ismay
lávarð í dag — og kvað hann
hernaðarlega samvmnu vera
jafn mikilvæga og áóur, þrátt
fyrir breytta stefnu Rússa á
yfirþorðinu. Stefna þeirra drægi
á engan hátt úr hervarnarþörf
frjálsra þjóða.
Skýrði Ismay frá því, að hann
hyggðist láta af embætti fram-
kvæmdastjóra NATO á næsta
ári, eri enn hefur ekkert heyrzt
um það hver eftirtnaður hans
verði. Heyrzt hEifði, að Pearson,
utanríkisráðherra Kanada hefði
verið beðinn að taka við, en hann
vísaði öllum slíkum íréttum á
bug, og sagði að þær hefðu ekki
við nein rök að styðjast.
Málsatvik eru þau, að stúlkaft,
Ina Laursen að nafni, hvarf svó
að segja sporlaust laugardaginn
21. fyrra mánaðar. Vann hún í
plast-verksmiðju í bænum Vejle
á Jótlandi — og spurðist síðar til
hennar um hádegisbilið umgetinn
dag, er hún var í þann veginn að
ljúka vinnu. Varð hún síðust til
þess að yfirgefa vinnustaðinn —
og síðan ekki söguna meir. Reið-
hjól hennar fannst nokkrum dög-
um síðar falið í hæðardragi
skammt frá bænum, en það þykir
fullsannað, að hún hafi ekki fafið
með það þangað.
Lögreglan hefur lýst því yfir, að
rannsókn verði haldið áfram þar
til málið upplýsist að fullu, én
ætlað er, að Ina hafi verið myrt.
Hins vegar er það aðeins ágizkun,
því að stúlkan hefur ekki látið
eítir sig nein spor.
MAROKKO, 3. maí — Mikil átök
hafa verið undanfarj.nn sólar-
hring í nánd við bæmn Marrak-
esh í Marokko. Hafa óaldarsegg-
ir gert harða hríð að fylgis-
mönnum hin nýlátna (51 Glaoui.
Þegar síðast fréttist hofðu óald-
arseggirnir drcpið 3a menn.
Pranskt herlið var kvatt á vett-
vang, en ekki hafði tekizt að
brjóta alla andspyrni> á bak aft-
ur, er síðast fréttist.
Missir stöðva á íslandi veikir
stórlega varnormátt NATO
— segir Grunther hershðfðingi
-$>
Hammarskjöld
gefur skýrsln
NEW YORK, 3. maí — Dag
Hammarskjöld, framkvæmda
stjóri Sameirmiðu þjóðanna,
sendi Öryggisráðinu í dag út-
drátt úr skýrslu sinni um við-
ræður sínar við stjórnarvöld
ísraels og Arabaríkjanna.
Kvaðst hann vongcður um að
samningur sá um áiramhald-
andi vopnahlé, sem hann fékk
deiluaðila til þess að undirrita,
bæri góðan árangur. Geta má
þess, að ísraelsmenn hafa þeg-
ar sakað Egypta um að hafa
brotið samning þennan — og
rannsakar fulltrúi S. Þ. nú
mál þetta.
Hammarskjöld kom til
Kairo i dag og rædði stuttlega
við egypzka ráðamenn, en á
morgun miin haftft halda til
New York með piðkomu í
Róm.
EF Atlantshafsbandalagið missir stöðvar sínar á íslandi, mun
það stórlega veikja varnarmátt þess, — sagði Grunther yfir-
hershöfðingi Atlantshafsbandalagsins á fundi með fréttamönnum í
aðalstöðvum bandalagsins í París fyrir skömmu. Fréttamaður frá
Ríkisútvarpinu sat þann fund, og skýrði hann frá þessum ummælum
yfirhershöfðingjans í útvarpinu í gærkvöldi.
HERSTYRKUR LINA
TRYGGINGIN FYRIR
FRIÐI
Á fundinum gerði Grunther
grein fyrir varnarmætti Atl-
antshafsbandalagsins, og sagði
hann, að höfuðáherzlu bæri
að leggja á nauðsyu þess að
bandalagið héldi afram að
efla styrk sinn. Verkefni þess
væri að koma í veg fyrir
styrjöld, og einungis herstyrk-
ur þess gæti tryggt nandalags-
þjóðunum öryggi cg frið.
ÍSLAND ÓMISSANDI
BÆKISTÖÐ
Sagði yfirhershöfninginn, 'ið
ísland væri mikilvægur hlekk
ur í varnarkerfi bandalagsins.
Ef til styrjaldar kæmi væri
ísland ómissandi bækistöð
fyrir birgðaflutning yfir N.-
Atlantshafið — og skipalestir
í þeim flutningum. Einnig
væri ísland mikilvægur hliuti
af loftvarnarkerfi Atlants-
hafsbandalag! ins — og ef
bandalagið nússii stöðvar sin-
ar þar, mundi það stórlega
veikja varnat mátt þess
ÚRSÖGN ÍSLANDS ÚR
BANDALAGINU MIKIÐ
ÁFALL FYRlR ÞAÐ
Sömuleiðís væri Island
mjög mikilvæg stöð, ef árás
væn gerð, og frá hernaðar-
legu sjónarmíði væri það
mikill hnekkir fyrir banda-
lagið að missa ísland. Og þó
væri hitt sínu alvarlegra —
og mikið áfall fyrir einingu
og samhug Atlantshafsbanda-
lagsríkjanna, ef ísland gengi
úr bandaiaginu.