Morgunblaðið - 04.05.1956, Síða 1

Morgunblaðið - 04.05.1956, Síða 1
16 síður M. árgsapb 100. tbl. — Föstudagur 4. maí 1956 Prentsmiði* Horgunbl«tit*i Lægsiir tollar ai naaðsynlegiun neyzluvörnnt — Frjóls verzlun tryggi hóflegt vöru- — Santvinnufólögin standi nton við póli- iískar flokkadeilur Hér fara á eftir ályktanir 12. landsfundar Sjálfstæðisflokksins um fjármál, skattamál, verzlunarmál og samvinnumál: FJÁRMÁL OG SKATTAMÁL LANDSFUNDUIIINN felur miðstjórn og þingmönnum Sjálfsíæðisflokksins að vinna ötullega að því að styrkja grund- Völl atvinnu- og fjármálalífs þjóðarinnar, m. a. með því: 1) Að veita einstaklingsframtaki og félagsrekstri aðstöðu til að safna nægjanlega miklu eigin fé, til viðbótar rekstrariánum bankanna, til þess að framleiðslustarfsemin verði rekin með eðlilegum hætti. 2) Að tollaálögum verði hagað þannig, að jafnan verði greiddir lægstir tollar af öllum nauðsynlegum neyzluvörum til fram- íærslu almennings í landinu, svo og af öllum vörum til út- flutningsframleiðslunnar og nauðsynlegustu fjárfestingar, en tollaðar verði til hins ýtrasta allar óþarfavörur, hvort heldur eru til eyðslu cða fjárfestingar, til þess á þann hátt að spyrna fótum við óþarfa eyðslu í landinu. SAMKEPPNIN HALDI VÖRUVERÐI NIDRI 2) Að greitt verði sérstaklega fyrir viðskiptum við þau lönd, sem hagkvæmast er að hafa viðskipti við, svo að verðgildi útflutn- ingsvörunnar geti notið sín að fullu, svo og að verzlunin sé það frjáls, að samlteppnin megni að halda niðri vöruverðinu í landinu. 4j Að haldið verði áfram endurskoðun skattalaganna, svo sem lofað var, á þeim grundvelli, sem markaður er með tillögum ', landsfundarins 1953. Harmar fundurinn, að þessu verki heíur ekki verið lokið. Fclur hann miðstjórn og þingmönnum flokks- 1 ins að vinna ötullega að því, að endurskoðuninni verði lokið sem fyrst, um leið og hann þakkar þann þátt sem Sjálfstæðis- flokkurinn hefur átt i þeim umbótum, sem þegar hafa fengizt. GREIÐSLUHALLALAUS FJÁRLÖG 5) Að gætt sé fyllsta sparnaðar í fjármálum rikisins, og að fjárlög séu jafnan afgreidd greiðsluhallalaus. Þakkar fundurinn Sjálf- stæðismönnum á Alþingi fyrir þá ábyrgðartilfinningu, sem þeir hafa jafnan sýnt við afgreiðslu fjárlaga, aiveg án tillits til þess, hvaða flokkur fer með fjármálin í ríkisstjóm. Fundurinn harm- ar þær miklu umframgreiðslur, sem orðið hafa árlega á ríkis- reikningum og koma fram í aukafjárlögum, og telur að gera beri sérstakar ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir þær, m. a. með því að hafa mikið strangara eftirlit með eyðslu ríkis- ins en gert er, og vill í því sambandi benda á, hve nauðsynlegt er að samþykkja frumvarp Gísla Jónssonar um eftirlit með rekstri ríkisins og rikisstofnana, sem hann hefur borið fram á undanförnum þingum, en ekki hefur náð fram að ganga. VERZLUNARMÁL • Sjálfstæðisflokkurinn hefur ætíð talið frjálsa verzlun eitt af frumskilyrðum fyrir góðri afkomu almennings í landinu. Þess vegna hefur hann barizt fyrir afnámi verziunarhafta og gegn ihlutun hins opinbera um verzlun og viðskipti. í samræmi við þessa stefnu flokksins, telur fundurinn höfuð- nauðsyn, að þess sé gætt, að jafnvægi haldist í efnahagskerfi landsins, því að án þess verður ekki til lengdar haldið uppi frjáls- um og heilbrlgðum viðskiptum. Ber þess vegna að stefna mark- visst að því, að Iciðrétt sé svo fljótt sem unnt er það misvægi í efnahagskerfinu, sem nú gerir vart við sig og valdið hefur erfið- leikum með lánsfé og gjaldeyri. Varanleg stöðvun verðbólgunnar er fyrsta skrefið til þess að ná þessu marki. INNFLUTNINGSHÖFT engin LÆKNING • Fundurinn leggur áherzlu á, að ekki verði gripið til innflutn- ingshafta í því skyni að leiðrétta að einhverju leyti misvægið í efnahagskerfinu, enda hefur reynslan sýnt, að með innflutnings- hþftum ojr verðlagsákvæðum fæst engin lækning í þessu efni og slíkar ráðstafanir veita hagsmunum almennings enga vernd. Fundurinn vill benda á, að mikil nauðsyn er að gæta þess, að samdráttur sá sem nú á sér stað í útlánum bankanna leggist ekki mcð meiri þunga á verzlunina en aðrar atvinnugreinar. Heilbrigðri verzlun verður ekki haldið uppi í landinu nema hæfilegt lánsfé fáist til rekstursins. HÓFLEGT VÖRUVERÐ 9 Fundurinn telur afar mikilvægt að eðlilegt vöruframboð, heilbrigð samkeppni og frjálst verðlag geti haldizt í verzluninni, þvt að það tryggir atmenningi bezt hóflegt vöruverð og fyrirbyggir sjúklega verzlunarhætti, sem jafnan fylgja ófrelsi og höftum í viðskiptum. Verzlunarfyrirtækjum sé gert kieift að koma upp hentugu at- vinnuhúsnæði. ‘ Frh á bls. 2. Undirnefnd afvopnunar- nefndar S.Þ. sleit fundi sínuni í London í gær án þess að samkomulag næðist um eitt einasta atriði dagskrárinnar. Q- -L' Öll danska þjóðin stendur á öndinni 15 ÁRA STÚLKA HVERFUR SPORLAUST Eftir 10 daga leit er löcreglan jafn nær DANSKA lögreglan hefur nú með höndum rannsókn eins dular- fyllsta máls, sém hún hefur glímt við í lengri tíma. Og það er ekki nóg með að allt hafi verið sett á annan endann í bæki- stöðvum lögreglunnar, því að segja má, að öll danska þjóðin standi á öndinni af eftirvæntingu eftir að mál þetta upplýsist. Það ér hvarf 15 ára gamallar stúlku, sem hér er um að ræða — og eftir 10 daga víðtæka leit og rannsókn er lögreglan jafn nær að heita má. Ismay lætur af embætti Ráðherraíundur NATO hefst í dag París 3. maí. AMORGUN hefst ráðherrafundur Nato, og eru flestir ráðherr- anna þegar komnir til börgarinnar. Hafa þeir átt óformlegar viðræður í dag, og ræddu m. a. utanrikisráðherrar Breta og Banda- ríkjamanna um heimsókn þeirra Kúsjeffs og Búlganins til Bret- lands á dögunum. Margvísleg málefni verða tekin til umræðu á fundinum, og eitt aðalmálið verður nánari samvinna bandalags- þjóðanna í efnahagsmálum — með tilliti til hinnar nýju utanríkis- rnálastefnu kommúnista. I SAMKOMULAGSÁIT UM SAAR Rætt veríður ujm deilumálin fyrir botni Miðjarðarhafsins, af- vopnun og Þýzkalandsmálin ■— auk fjölda annarra mala. Mikinn fögnuð vakti það í dag, er til- kynnt var, að fulltrúar Þjóðverja og Frakka hefðu setið á rök- stólum — og mörg ágreinings- mál viðvíkjandi Saar væru nú leyst. ÓVÍST HVER EFTIRMAÐUR- INN VERÐUR Blaðamenn áttu tal við Ismay lávarð í dag — og kvað hann hernaðarlega samvmnu vera jafn mikilvæga og áóur, þrátt fyrir breytta stefnu Rússa á yfirþorðinu. Stefna þeirra drægi á engan hátt úr hervarnarþörf frjálsra þjóða. Skýrði Ismay frá því, að hann hyggðist láta af embætti fram- kvæmdastjóra NATO á næsta ári, eri enn hefur ekkert heyrzt um það hver eftirtnaður hans verði. Heyrzt hEifði, að Pearson, utanríkisráðherra Kanada hefði verið beðinn að taka við, en hann vísaði öllum slíkum íréttum á bug, og sagði að þær hefðu ekki við nein rök að styðjast. Málsatvik eru þau, að stúlkaft, Ina Laursen að nafni, hvarf svó að segja sporlaust laugardaginn 21. fyrra mánaðar. Vann hún í plast-verksmiðju í bænum Vejle á Jótlandi — og spurðist síðar til hennar um hádegisbilið umgetinn dag, er hún var í þann veginn að ljúka vinnu. Varð hún síðust til þess að yfirgefa vinnustaðinn — og síðan ekki söguna meir. Reið- hjól hennar fannst nokkrum dög- um síðar falið í hæðardragi skammt frá bænum, en það þykir fullsannað, að hún hafi ekki fafið með það þangað. Lögreglan hefur lýst því yfir, að rannsókn verði haldið áfram þar til málið upplýsist að fullu, én ætlað er, að Ina hafi verið myrt. Hins vegar er það aðeins ágizkun, því að stúlkan hefur ekki látið eítir sig nein spor. MAROKKO, 3. maí — Mikil átök hafa verið undanfarj.nn sólar- hring í nánd við bæmn Marrak- esh í Marokko. Hafa óaldarsegg- ir gert harða hríð að fylgis- mönnum hin nýlátna (51 Glaoui. Þegar síðast fréttist hofðu óald- arseggirnir drcpið 3a menn. Pranskt herlið var kvatt á vett- vang, en ekki hafði tekizt að brjóta alla andspyrni> á bak aft- ur, er síðast fréttist. Missir stöðva á íslandi veikir stórlega varnormátt NATO — segir Grunther hershðfðingi -$> Hammarskjöld gefur skýrsln NEW YORK, 3. maí — Dag Hammarskjöld, framkvæmda stjóri Sameirmiðu þjóðanna, sendi Öryggisráðinu í dag út- drátt úr skýrslu sinni um við- ræður sínar við stjórnarvöld ísraels og Arabaríkjanna. Kvaðst hann vongcður um að samningur sá um áiramhald- andi vopnahlé, sem hann fékk deiluaðila til þess að undirrita, bæri góðan árangur. Geta má þess, að ísraelsmenn hafa þeg- ar sakað Egypta um að hafa brotið samning þennan — og rannsakar fulltrúi S. Þ. nú mál þetta. Hammarskjöld kom til Kairo i dag og rædði stuttlega við egypzka ráðamenn, en á morgun miin haftft halda til New York með piðkomu í Róm. EF Atlantshafsbandalagið missir stöðvar sínar á íslandi, mun það stórlega veikja varnarmátt þess, — sagði Grunther yfir- hershöfðingi Atlantshafsbandalagsins á fundi með fréttamönnum í aðalstöðvum bandalagsins í París fyrir skömmu. Fréttamaður frá Ríkisútvarpinu sat þann fund, og skýrði hann frá þessum ummælum yfirhershöfðingjans í útvarpinu í gærkvöldi. HERSTYRKUR LINA TRYGGINGIN FYRIR FRIÐI Á fundinum gerði Grunther grein fyrir varnarmætti Atl- antshafsbandalagsins, og sagði hann, að höfuðáherzlu bæri að leggja á nauðsyu þess að bandalagið héldi afram að efla styrk sinn. Verkefni þess væri að koma í veg fyrir styrjöld, og einungis herstyrk- ur þess gæti tryggt nandalags- þjóðunum öryggi cg frið. ÍSLAND ÓMISSANDI BÆKISTÖÐ Sagði yfirhershöfninginn, 'ið ísland væri mikilvægur hlekk ur í varnarkerfi bandalagsins. Ef til styrjaldar kæmi væri ísland ómissandi bækistöð fyrir birgðaflutning yfir N.- Atlantshafið — og skipalestir í þeim flutningum. Einnig væri ísland mikilvægur hliuti af loftvarnarkerfi Atlants- hafsbandalag! ins — og ef bandalagið nússii stöðvar sin- ar þar, mundi það stórlega veikja varnat mátt þess ÚRSÖGN ÍSLANDS ÚR BANDALAGINU MIKIÐ ÁFALL FYRlR ÞAÐ Sömuleiðís væri Island mjög mikilvæg stöð, ef árás væn gerð, og frá hernaðar- legu sjónarmíði væri það mikill hnekkir fyrir banda- lagið að missa ísland. Og þó væri hitt sínu alvarlegra — og mikið áfall fyrir einingu og samhug Atlantshafsbanda- lagsríkjanna, ef ísland gengi úr bandaiaginu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.