Morgunblaðið - 23.05.1956, Side 1

Morgunblaðið - 23.05.1956, Side 1
Prenfsmiðja Morgunblaðs- ins flutt í ABalsiræti 6 Ný og afkastamikil prentvél tekin í notkun MEÐ ÚTKOMU þessa tölublaðs af Morgunblaðinu verða þáttaskil í nær 43 ára starfsemi blaðsins. t*að er nú í fyrsta skipti prentað í hinum nýju húsakynnum sín- nm við Aðalstræti 6. Jafnframt hefur það tekið í notkun nýja prentvél, sem prentar um 15 þús. eintök á klukku- stund. Gamla prentvélin, sem blaðið hefur verið prentað í síðan 1. júní 1943 afkastaði hins vegar aðeins rúmlega 3 þús. eintökum á klst. Prentun blaðsins í henni tók því nær 9 klst. livern sólarhring. í nýju prentvélinni mun prentun- in taka tæplega 3 klukkustundir, þar sem skipti á papppírs- rúllum taka nokkurn tíma. Þessi aukna tækni og bættu vinnubrögð við prentun og út- gáfu Morgunblaðsins eiga að hafa í för með sér bætta þjón- -Slalín var miskunnarlaus 0« misnotaði vald sitt“ G Moskvu. RÁÐSTJÓENIN hefur nt' veitt Stalín heitnum þyngsta höggið, síðan aðförin að hont m hófst á þingi kommúnistaflokksins. Rússnesku þjóðinni hefur- nú verið gert kunnugt, að Lenin hafi í erfðaskrá sinni lýst Stalín óhæfan til starfa, þar sem hann væri „harðbrjósta, miskunnarlaus gagnvart félögum sínum, duttlunga- fullur og hefði tilhneigingu til að misnota vald sitt.“ Málgagn ungkommúnista, Kom somolskaya Pravda, gerði þessa staðreynd lýðum ljósa á föstu- daginn og scgir í grein frá mati Lenins á Stalins, en því hefur verið haldið leyndu fyrir rúss- nesku þjóðinni í 34 ár. Utan marka Sovétríkjanna hef- ur mönnum verið kunnugt um skoðanir Lenins á Stalin m. a. úr bók Trotzkis um erfðaskrá Len- ins, en Stalin tókst að halda þessu leyndu innan Ráðstjórnarríkj- anna. Greinin í Komsomolskaya Pravda fjallar um nauðsyn þess að útrýma persónudýrkun og er þar vitnað í erfðaskrá Lenins. Segir þar, að Lenin hafi orðið það ljóst, er Stalin var ritari flokksins, hversu hættulegur hann væri, þar sem hætta væri á þvi, að hann mundi virða að vettugi regluna um samvirka forustu. — ★ — Komsomolskaya Pravda, telur upp ýmsa glæpi Stalins: Hann hafi gert sig sekan um sjálfsdýrk- un, vanrækt að ráðfæra sig við miðstjórn flokksins, áður en mikilvægar ákvarðanir voru teknar og beitt gjörræði. ustu við viðskiptavini þess, kaupendur blaðsins og auglýs- endur. Sl. 13 ár hefur kaup- endtala þess tvöfaldazt. Gamla prentvélin var því fyrir all- löngu orðin gersamlega ófull- nægjandi. Prentun blaðsins tók orðið mikils til of langan tíma. Hefur það bakað kaup- endum þess, bæði hér í Reykjavík og út um land, mikil óþægindi. Blaðið var ennfremur orðið of lítið. Eðli- leg hlutföll milli greina og auglýsinga höfðu raskazt. Nú, þegar hin nýja prent- vél hefur verið tekin í notkun, verður mögulegt að stækka blaðið. Er hægt að stækka það upp í 24 síður. PRENTSMIÐJA OG AFGREIÐSLA FLUTT f MORGUNBLAÐ SHÚSIÐ I síðustu viltu voru setningar- vélar Morgunblaðsins og önnur prenttæki, að undantekinni gömlu prentvélinni, flutt úr prent smiðju þess í gömlu ísafold við Austurstræti 8, en í þeirri sögu- frægu byggingu hefur blaðið ver- ið prentað frá uphafi, upp í setj- arasalinn í nýja „Morgunblaðs- húsinu" við 'Áðalstræti 6. Var ein og ein vél flutt í einu til þess að hægt væri að halda vinnu við blaðið í fullum gangi, þrátt fyrir flutningana. Hafa þær nú allar verið settar upp og teknar í notkun. Mun blaðið nota 5 setn- ingarvélar við starfsemi sína. Þá hefur afgreiðsla blaðsins verið flutt í nýja húsið, ásamt auglýsingaskrifstofu þess. Ekki er fullgengið frá innréttingu þess húsnæðis, sem þessar starfsgrein- ar blaðsins fá til sinna umráða. Ritstjórn og bókhald verða fyrst um sinn áfram til húsa í Austurstræti 8, meðan lokið verð- ur við innréttingu í hinu nýja húsnæði. En gert er ráð fyrir að því geti orðið að mestu lokið í næsta mánuði. « : Þrykkivélin i setjarasalnum. Við hana stendur Samúel Jóhannsson prentari. HIN NÝJU HÚSA- KYNNI BLAÐSINS Morgunblaðið hefur frá stofn- un. sinni árið 1913 búið í leigu- húsnæði. Hafði það lengi verið til athugunar að útvega því bygg- ingarlóð á heppilegum stað í Miðbænum fyrir starfsemi sína. Forrráðamenn blaðsins hófust handa um það árið 1948 að tryggja því lóð undir framtíðar- byggingu. Voru þá fest kaup á lóð við Aðalstræti 6. Sá staður var mjög hentugur fyrir blaðið, þar sem hann er í hjarta bæjar- ins. Ennfremur reyndist tiltölu- lega auðvelt að komast þar niður á fastan grunn. En einnig það er þýðingarmikið þar, sem setja á upp hraðgengar vélar. Frh. á bls. 2. , B cg K til Horðurlanda KHÖFN og STOKKHÓLMI, 22. maí — Stjórnir Danmerkur og Svíþjóðar hafa ákveðið að bjóða Bulganin og Krúsjeff í opinbera heimsókn til Danmerkur og Sví- þjóðar. Enn hefur ekki verið álcveðið hvenær heimsóknin á sér stað. -------------------- 4| KAIRÓ, 22. maí — Sendiherra Rússa afhenti Nasser í dag Ilyushinflugvél að gjöf frá Ráð- stjórninni. Sagði sendiherrann, að flugvélin væri tákn vinsam- legra samskipta þessara tveggja þjóða. illiíll -18 t - Hln nýja prentvéT MorgunbTaTTsfns. Vi» hana standa ólafur Magnússon prentari (nær) og Guffbjörn Guffmundsson prentari. — Til hægri er mynd úr afsteypusalnum •í vel þeirri, sem síðurnar eru Hfræstar“ L ______ _ Myndirnar tók ljósm. Mbl.: Ól. K. M.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.