Morgunblaðið - 23.05.1956, Qupperneq 1
Prenfsmiðja Morgunblaðs-
ins flutt í ABalsiræti 6
Ný og afkastamikil
prentvél tekin í notkun
MEÐ ÚTKOMU þessa tölublaðs af Morgunblaðinu
verða þáttaskil í nær 43 ára starfsemi blaðsins. t*að
er nú í fyrsta skipti prentað í hinum nýju húsakynnum sín-
nm við Aðalstræti 6. Jafnframt hefur það tekið í notkun
nýja prentvél, sem prentar um 15 þús. eintök á klukku-
stund. Gamla prentvélin, sem blaðið hefur verið prentað í
síðan 1. júní 1943 afkastaði hins vegar aðeins rúmlega 3
þús. eintökum á klst. Prentun blaðsins í henni tók því nær
9 klst. livern sólarhring. í nýju prentvélinni mun prentun-
in taka tæplega 3 klukkustundir, þar sem skipti á papppírs-
rúllum taka nokkurn tíma.
Þessi aukna tækni og bættu
vinnubrögð við prentun og út-
gáfu Morgunblaðsins eiga að
hafa í för með sér bætta þjón-
-Slalín var miskunnarlaus
0« misnotaði vald sitt“
G
Moskvu.
RÁÐSTJÓENIN hefur nt' veitt Stalín heitnum þyngsta höggið,
síðan aðförin að hont m hófst á þingi kommúnistaflokksins.
Rússnesku þjóðinni hefur- nú verið gert kunnugt, að Lenin hafi í
erfðaskrá sinni lýst Stalín óhæfan til starfa, þar sem hann væri
„harðbrjósta, miskunnarlaus gagnvart félögum sínum, duttlunga-
fullur og hefði tilhneigingu til að misnota vald sitt.“
Málgagn ungkommúnista, Kom
somolskaya Pravda, gerði þessa
staðreynd lýðum ljósa á föstu-
daginn og scgir í grein frá mati
Lenins á Stalins, en því hefur
verið haldið leyndu fyrir rúss-
nesku þjóðinni í 34 ár.
Utan marka Sovétríkjanna hef-
ur mönnum verið kunnugt um
skoðanir Lenins á Stalin m. a. úr
bók Trotzkis um erfðaskrá Len-
ins, en Stalin tókst að halda þessu
leyndu innan Ráðstjórnarríkj-
anna. Greinin í Komsomolskaya
Pravda fjallar um nauðsyn þess
að útrýma persónudýrkun og er
þar vitnað í erfðaskrá Lenins.
Segir þar, að Lenin hafi orðið
það ljóst, er Stalin var ritari
flokksins, hversu hættulegur
hann væri, þar sem hætta væri
á þvi, að hann mundi virða að
vettugi regluna um samvirka
forustu.
— ★ —
Komsomolskaya Pravda, telur
upp ýmsa glæpi Stalins: Hann
hafi gert sig sekan um sjálfsdýrk-
un, vanrækt að ráðfæra sig við
miðstjórn flokksins, áður en
mikilvægar ákvarðanir voru
teknar og beitt gjörræði.
ustu við viðskiptavini þess,
kaupendur blaðsins og auglýs-
endur. Sl. 13 ár hefur kaup-
endtala þess tvöfaldazt. Gamla
prentvélin var því fyrir all-
löngu orðin gersamlega ófull-
nægjandi. Prentun blaðsins
tók orðið mikils til of langan
tíma. Hefur það bakað kaup-
endum þess, bæði hér í
Reykjavík og út um land,
mikil óþægindi. Blaðið var
ennfremur orðið of lítið. Eðli-
leg hlutföll milli greina og
auglýsinga höfðu raskazt.
Nú, þegar hin nýja prent-
vél hefur verið tekin í notkun,
verður mögulegt að stækka
blaðið. Er hægt að stækka það
upp í 24 síður.
PRENTSMIÐJA OG
AFGREIÐSLA FLUTT
f MORGUNBLAÐ SHÚSIÐ
I síðustu viltu voru setningar-
vélar Morgunblaðsins og önnur
prenttæki, að undantekinni
gömlu prentvélinni, flutt úr prent
smiðju þess í gömlu ísafold við
Austurstræti 8, en í þeirri sögu-
frægu byggingu hefur blaðið ver-
ið prentað frá uphafi, upp í setj-
arasalinn í nýja „Morgunblaðs-
húsinu" við 'Áðalstræti 6. Var
ein og ein vél flutt í einu til þess
að hægt væri að halda vinnu við
blaðið í fullum gangi, þrátt fyrir
flutningana. Hafa þær nú allar
verið settar upp og teknar í
notkun. Mun blaðið nota 5 setn-
ingarvélar við starfsemi sína.
Þá hefur afgreiðsla blaðsins
verið flutt í nýja húsið, ásamt
auglýsingaskrifstofu þess. Ekki
er fullgengið frá innréttingu þess
húsnæðis, sem þessar starfsgrein-
ar blaðsins fá til sinna umráða.
Ritstjórn og bókhald verða
fyrst um sinn áfram til húsa í
Austurstræti 8, meðan lokið verð-
ur við innréttingu í hinu nýja
húsnæði. En gert er ráð fyrir að
því geti orðið að mestu lokið í
næsta mánuði.
« :
Þrykkivélin i setjarasalnum. Við hana stendur Samúel Jóhannsson
prentari.
HIN NÝJU HÚSA-
KYNNI BLAÐSINS
Morgunblaðið hefur frá stofn-
un. sinni árið 1913 búið í leigu-
húsnæði. Hafði það lengi verið til
athugunar að útvega því bygg-
ingarlóð á heppilegum stað í
Miðbænum fyrir starfsemi sína.
Forrráðamenn blaðsins hófust
handa um það árið 1948 að
tryggja því lóð undir framtíðar-
byggingu. Voru þá fest kaup á
lóð við Aðalstræti 6. Sá staður
var mjög hentugur fyrir blaðið,
þar sem hann er í hjarta bæjar-
ins. Ennfremur reyndist tiltölu-
lega auðvelt að komast þar niður
á fastan grunn. En einnig það er
þýðingarmikið þar, sem setja á
upp hraðgengar vélar.
Frh. á bls. 2. ,
B cg K til Horðurlanda
KHÖFN og STOKKHÓLMI, 22.
maí — Stjórnir Danmerkur og
Svíþjóðar hafa ákveðið að bjóða
Bulganin og Krúsjeff í opinbera
heimsókn til Danmerkur og Sví-
þjóðar. Enn hefur ekki verið
álcveðið hvenær heimsóknin á
sér stað.
-------------------- 4|
KAIRÓ, 22. maí — Sendiherra
Rússa afhenti Nasser í dag
Ilyushinflugvél að gjöf frá Ráð-
stjórninni. Sagði sendiherrann,
að flugvélin væri tákn vinsam-
legra samskipta þessara tveggja
þjóða.
illiíll
-18
t -
Hln nýja prentvéT MorgunbTaTTsfns. Vi» hana standa ólafur Magnússon prentari (nær) og Guffbjörn Guffmundsson prentari. — Til hægri er mynd úr afsteypusalnum
•í vel þeirri, sem síðurnar eru Hfræstar“ L ______ _ Myndirnar tók ljósm. Mbl.: Ól. K. M.